Morgunblaðið - 18.05.2001, Page 28
AP
Nathaniel Brazill, 14 ára, færður út úr dómsal í Palm Beach í Flórída
eftir að hann var dæmdur sekur um morð á kennara sínum.
FJÓRTÁN ára piltur í Flórída,
Nathaniel Brazill, hefur verið dæmd-
ur sekur um morð á einum af eftir-
lætiskennurum sínum og á nú allt að
lífstíðarfangelsi yfir höfði sér. Hefur
málið vakið mikla athygli í Bandaríkj-
unum og mannréttindasamtök hafa
mótmælt því að réttað sé yfir börnum
eins og þau væru fullorðið fólk.
Brazill játaði að hafa orðið ensku-
kennaranum sínum, Barry Grunow,
að bana með skammbyssu í Lake
Worth í Flórída 26. maí á síðasta ári
þegar hann var þrettán ára. Honum
hafði þá verið vikið úr skólanum um
stundarsakir fyrir að kasta vatns-
blöðrum á skólafélaga sína. Hann
sneri aftur í skólann með skamm-
byssu, sem hann fann í kökudós afa
síns, og reiddist kennaranum þegar
hann fékk ekki að tala við tvær bekkj-
arsystur sínar. Hann hleypti af byss-
unni við dyr kennslustofu sinnar og
kennarinn fékk skot á milli augn-
anna.
Pilturinn kvaðst hafa verið skjálf-
hentur og tekið í gikkinn fyrir slysni.
Kviðdómurinn í málinu komst að
þeirri niðurstöðu að hann hefði ekki
gerst sekur um morð af yfirlögðu
ráði, glæp sem varðar lífstíðarfang-
elsi. Pilturinn var hins vegar dæmdur
sekur um morð af annarri gráðu sem
varðar 25 ára til lífstíðarfangelsi án
möguleika á reynslulausn.
Lögfræðingar Brazills sögðu þó að
dómarinn hefði svigrúm til að kveða
upp mildari dóm vegna aldurs
drengsins. Saksóknarar sögðu hins
vegar að dómarinn yrði að dæma pilt-
inn í að minnsta kosti 25 ára fangelsi.
Dómurinn verður kveðinn upp 29.
júní.
Sagt brjóta í bága við
alþjóðalög
Mannréttindasamtök, þeirra á
meðal Amnesty International, mót-
mæltu réttarhöldunum þar sem rétt-
að var yfir drengnum sem fullorðnum
manni. Þeir sögðu að lífstíðardómur
yfir barni án möguleika á reynslu-
lausn bryti í bága við alþjóðalög.
Fyrir tveimur mánuðum var annar
fjórtán ára drengur, Lionel Tate,
dæmdur í lífstíðarfangelsi án mögu-
leika á reynslulausn fyrir morð að yf-
irlögðu ráði á sex ára stúlku árið
1999. Pilturinn kvaðst hafa orðið
henni að bana fyrir slysni.
Jeb Bush, ríkisstjóri Flórída, sem
íhugar að milda dóminn yfir Tate,
vottaði fjölskyldu kennarans samúð
sína en sagði að ekki hefði átt að rétta
yfir Brazill sem fullorðnum manni.
Deilt um réttarhöld yfir börnum í Bandaríkjunum
14 ára drengur dæmd-
ur fyrir morð á kennara
West Palm Beach. Reuters, AP.
ERLENT
28 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BÚIST er við að Mohammad Khat-
ami, forseti Írans, nái endurkjöri í
kosningunum 8. júní þegar hann et-
ur kappi við níu aðra frambjóðend-
ur sem flestir tengjast harðlínuöfl-
unum sem hafa lagst gegn
umbótastefnu forsetans. Líklegt
þykir hins vegar að fylgi Khatamis
verði mun minna en í síðustu for-
setakosningum 1997 þegar hann
fékk 70% greiddra atkvæða, meðal
annars vegna þess að frambjóðend-
urnir eru nú fleiri en nokkru sinni
fyrr og talið er að atkvæðin dreifist
meira en í kosningunum fyrir fjór-
um árum.
Sérstakt ráð afturhaldssamra
klerka og lögfræðinga birti í fyrra-
dag endanlegan lista yfir frambjóð-
endur í kosningunum og hafnaði
804 mönnum sem hugðu á framboð.
það sem sigur fyrir harðlínuöflin
minnki fylgi hans verulega.
Khatami fékk ríflega 20 milljónir
atkvæða af um 29 milljónum í kosn-
ingunum 1997. Talið er að mjög erf-
itt verði fyrir forsetann að ná svip-
uðu kjörfylgi í baráttunni við svo
marga frambjóðendur, þeirra á
meðal einn af virtustu ráðherrum
hans, Ali Shamkhani varnarmála-
ráðherra.
Líklegt er að Shamkhani fái mik-
ið fylgi meðal hermanna og araba í
heimahéraði hans, Khuzestan.
Hann hefur lofað að koma á umbót-
um og berjast gegn trúarofstæki en
stefna hans er að mörgu leyti óljós.
Hann hefur verið í nánum tengslum
við Ali Khamenei erkiklerk og talið
er að hann fái stuðning afturhalds-
samra klerka.
Sex frambjóðendanna eru ein-
dregnir stuðningsmenn harðlínu-
manna sem hafa barist gegn um-
bótum Khatamis. Þeirra á meðal
eru þrír fyrrverandi ráðherrar –
Ahmad Tavakoli, Hassan Ghafuri-
Fard og Ali Fallahian – og fyrrver-
andi varaforseti landsins, Mansur
Razavi. Heiðursrektor Frjálsra ísl-
amskra háskóla, Abdollah Jasbi, og
Shahabeddin Sadr, fyrrverandi
þingmaður, hafa einnig stutt harð-
línuöflin.
Varaforseti Írans, Mostafa Hash-
emi-Taba, sem er álitinn hófsamur,
og frjálslyndur lagaprófessor,
Mahmud Kashani, fengu einnig að
bjóða sig fram.
Umbótasinnar hafa sakað einn
ráðherranna fyrrverandi, Ali Fall-
ahian, sem fór með málefni leyni-
þjónustunnar, um að hafa fyrirskip-
að morð á fjórum andófsmönnum
árið 1998. Hann hefur vísað þessu á
bug og neitað að koma fyrir þing-
nefnd sem rannsakar morðin.
Harðlínuöflin ráða yfir ríkisfjöl-
miðlunum, dómstólunum, lögregl-
unni og hernum og hafa látið loka
meira en 30 blöðum, sem studdu
umbótastefnu forsetans. Tugir
stuðningsmanna hans, þeirra á
meðal leiðtogar námsmanna og
blaðamenn, hafa verið fangelsaðir.
Mjög hægt hefur gengið að koma
á umbótum og margir ungir stuðn-
ingsmenn Khatamis eru því von-
sviknir. Hið sama er að segja um
kaupsýslumenn sem hafa séð lítinn
árangur af tilraunum stjórnarinnar
til að bæta efnahaginn, minnka at-
vinnuleysið og draga úr ríkisaf-
skiptum.
Kosið verður á milli tíu manna í forsetakosningunum í Íran eftir þrjár vikur
Khatami spáð sigri en
minna fylgi en síðast
Reuters
Mohammad Khatami, forseti Írans.
Teheran. AFP, Reuters, AP.
24 konur höfðu óskað eftir því að fá
að bjóða sig fram en engin þeirra
hlaut náð í augum kosningaráðsins.
Þekktasta konan í þessum hópi,
Farah Khosravi, ákvað reyndar að
hætta við framboð áður en ráðið
birti listann og hún kvaðst hafa
gert það til að koma í veg fyrir að
atkvæðin dreifðust um of.
Ráðið útskýrði ekki hvers vegna
konunum var hafnað en í síðustu
kosningum var konum meinað að
bjóða sig fram á þeirri forsendu að
stjórnarskráin heimilaði ekki fram-
boð kvenna.
A.m.k. sex harðlínumenn
í framboði
Flestir spá því að Khatami nái
endurkjöri en jafnvel þótt þær spár
rætist þykir líklegt að margir líti á
29 MANNS fórust í flugslysi í Ír-
an í gær, þeirra á meðal sam-
gönguráðherra landsins, tveir að-
stoðarráðherrar og sjö þingmenn.
Samgönguráðherrann og fylgd-
arlið hans voru á leið frá Teheran
til bæjarins Sari í norðurhluta
landsins til að opna nýjan flugvöll
þegar flugvél þeirra hrapaði.
Enginn mun hafa komist lífs af.
Vélin var af gerðinni Yak-40 og
smíðuð í Rússlandi. Flugmaður
vélarinnar hafði samband við flug-
umferðarstjóra um klukkustund
eftir flugtakið til að skýra frá því
að hann þyrfti annaðhvort að
fljúga vélinni aftur til Teheran eða
nauðlenda henni í Sari vegna
slæms veðurs.
Ekki var vitað um orsök slyss-
ins. Flugvélar Írana eru orðnar
gamlar og flestar þeirra voru
keyptar fyrir íslömsku byltinguna
1979. Þeir hafa því þurft að leigja
margar flugvélar af fyrrverandi
lýðveldum Sovétríkjanna.
29 manns farast
í flugslysi
Teheran. Reuters.
GRÆNLENSKA heimastjórnin
reynir nú með öllum ráðum að fá
grænlensku íþróttasamtökin til að
hætta við fyrirhugaðan vináttulands-
leik við Tíbeta í fótbolta sem fram á
að fara í Danmörku í næsta mánuði.
Óttast Grænlendingar að leikurinn
stefni í voða rækjuútflutningi þeirra
til Kína en stjórnvöld þar hafa mót-
mælt leiknum.
Utanríkismálaskrifstofa heima-
stjórnarinnar hefur sent bréf til
íþróttasamtakanna þar sem þau eru
hvött til að íhuga vandlega afleiðing-
ar þess að spila við Tíbeta.
Íþróttasambandið hefur ákveðið
að koma að leiknum þar sem hann sé
„pólitískt spennandi og áhugaverð-
ur“, nokkuð sem varð til þess að í
bréfi heimastjórnarinnar er það tek-
ið fram að utanríkismál Grænlands
heyri ekki undir íþróttasambandið.
Danska fótboltasambandið vill
ekki koma nálægt leiknum þar sem
hann telst brot á leikreglum Alþjóða-
knattspyrnusambandsins, FIFA.
Ástæðan er sú að aðildarlönd FIFA
mega ekki skipuleggja leiki við lönd
utan sambandsins, en hvorki Græn-
land né Tíbet eru í FIFA. Grænlend-
ingar fagna hins vegar athyglinni
sem málið hefur fengið, þar sem þeir
vonast til þess að það geti orðið til
þess að þeir fái aðild að sambandinu.
Á meðal þeirra sem að leiknum
standa eru aðilar sem styðja sjálf-
stætt Tíbet og vilja með honum vekja
athygli á pólitísku ástandi landsins.
Óttast afleiðingar
vináttulandsleiks
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
FJÁRMÁLASTJÓRI Danadrottn-
ingar er í ótímabundnu leyfi frá
störfum eftir að hann var hand-
tekinn í matvöruversluninni Netto,
grunaður um búðarhnupl.
Lögreglan rannsakar nú málið og
segir að líða kunni allt að mán-
uður þar til rannsókn ljúki og
ákveðið verði hvort fjármálastjór-
inn, Søren Sveistrup, verður
ákærður.
Sveistrup var stöðvaður í versl-
uninni á mánudag, sakaður um að
hafa ekki greitt fyrir allar vörurn-
ar sem hann bar í poka með sér.
Sveistrup mun hafa brugðist hinn
versti við sem aftur varð til þess
að hann var færður í handjárn og
fluttur á næstu lögreglustöð.
Sveistrup tilkynnti hirðinni
sjálfur um atburðinn og óskaði
eftir leyfi. Hirðmarskálkurinn,
Søren Haslund-Christensen, segir
ekkert vera ákveðið um framtíð
Sveistrups fyrr en málið liggur
ljóst fyrir. Lýsti hann í gær samúð
sinni með fjármálastjóranum sem
hann sagði „miður sín“.
Fjármálastjóri
drottningar sakaður
um búðarhnupl
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.