Morgunblaðið - 18.05.2001, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 18.05.2001, Qupperneq 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2001 29 ELÍAS B. Halldórsson opnar sýn- ingu á olíumálverkum í Listasetr- inu Kirkjuhvoli, Akranesi, á morgun, laugardag. Elías er fæddur í Borgarfirði eystra árið 1930. Hann stundaði nám í myndlist í Reykjavík, Stutt- gart og Kaupmannahöfn. Elías hefur haldið fjölda einkasýninga og verið samferða í samsýn- ingum. Sýningunni lýkur 4. júní. Lista- setrið opið alla daga nema mánu- daga kl. 15–18. Elías B. Halldórsson við verk sín. Olíumálverk í Listasetrinu LISTAMENNIRNIR Jóhanna Þórðardóttir og Jón Reykdal standa þessa dagana að samsýningu í Lista- safni ASÍ. Sýning þeirra er bæði í Ás- mundarsal og Gryfjunni, en lista- mennirnir hafa hér kosið að deila rýminu á þann hátt að verk þeirra hanga hlið við hlið í sýningaraðstöðu safnsins. Verk Jóns eru öll unnin á striga, en Jóhanna hefur valið myndverkum sínum viðargrunn. Verk þeirra beggja einkennast af mikilli litagleði sem gerir það að verkum að samsýn- ingin virkar nokkuð heilsteypt á að líta og þótt litagleðin sé einkennandi fyrir þau bæði eru verk þeirra engu að síður ólík að öðru leyti. Jón velur sér fígúratíf viðfangsefni, en Jóhanna vinnur með form og liti og minna sum verka hennar um margt á textíl á meðan önnur leita svolítið inn á svið lágmynda. Tré- grunninum er þar hleypt upp með munsturáferð líkt og sjá má í verk- unum Indígó og Bylgja. Blár litur er ráðandi í báðum myndum, dökkblár í fyrra verkinu en ljósari í því síðar- nefnda og mismunandi lágmynda- áferð verkanna stuðlar, ásamt ólíkum tónum bláa litarins, að þeim ólíku áhrifum sem nást fram. Í öðrum verkum Jóhönnu eru lit- irnir og abstraktformin látin tala sínu máli og líkt og áður sagði er ekki laust við að textíláferð einkenni nokkur verkanna. Það á t.d. við um myndina Blástreymi, þar er blái liturinn enn á ný ríkjandi, en að þessu sinni fylgja honum hvítir ferningar er brjóta upp litaflötinn og veita efniskennda áferð vefnaðar. Og í verkinu Blásól, enn annarrar blárrar myndar, málar Jó- hanna einlitan, heiðbláan flöt, sem einungis er brotinn upp af appelsínu- rauðum ferningi í hægra horni verks- ins. Þangað leitar síðan auga sýning- argesta og veita mislit litalögin, sem vinna hvert í gegnum annað - gul, rauðleit og appelsínugul - þægilegt mótvægi við einsleitnina sem myndin annars byggir á. Líkt og áður sagði hafa listamenn- irnar kosið að hengja verk sín upp saman og deila þannig rými sýning- arsalanna og tekst sú skipan nokkuð vel. Þetta á sérstaklega við í Gryfj- unni, en myndir þeirra falla þar vel að verkum hins og vinna bláir, gulir, rauðir og grænir litatónar verka þeirra Jóns og Jóhönnu vel saman. Í fyrstu kann að virðast sem fígúratíf verk Jóns krefjist athygli sýningar- gesta á kostnað abstrakt mynda Jó- hönnu, en verk hennar reynast er á reynir lífseig í huga áhorfanda. Fígúratíf verk Jóns sýna ýmist kvenfyrirsætur eða um er að ræða kyrralífsmyndir, m.a. af könnum og er nokkuð sterkari heildarsvipur með kyrralífsmyndunum. En verkið Par, er sýnir tvær könnur, gula og blá- græna, standa hlið við hlið á sterkgul- um fleti, er ágætis dæmi um þær myndir. Konur Jóns einkennast hins vegar af meiri fjölbreytni og eru ýmist naktar eða klæddar einföldum kyrtl- um. Nokkur munur er á þessum verkum og byggja nektarstúdíurnar þannig á flatari myndflötum og sterk- ari litum en kyrtilklæddu konurnar, sem einkennast af meira raunsæi, dýpt og mýkri litanotkun er veitir myndunum rómantískt yfirbragð. Dama, eitt verka Jóns í Gryfjunni er af naktri konu á flötum appelsínugul- um grunni. Konan snýr hér baki í áhorfendur og virðist sem hún sé greipt í grunn myndarinnar. Ljóð- elsk, önnur nektarstúdía í Gryfjunni byggir á sömu tækni og þó dýpt myndarinnar kunni hér að vera örlít- ið meiri er ljóst að hún er ekki meðal mikilvægari þátta verksins. Kona á bláu nær einkar skemmtilega að sam- eina þá ólíku þætti er annars ein- kenna konur Jóns og hefur teygður, kyrtilklæddur líkami konunnar yfir sér vissa dýpt á sama tíma og hann viðheldur nafnleysi nektarstúdíanna. Verk Jóns í Ásmundarsal eru stærri en þau sem Gryfjan geymir og fjölbreytni þeirra gerir það að verk- um að hér nær ekki alveg að ríkja sami heildarsvipur yfir sýningunni. Kyrtilklæddum konum á sítrusgulum og grænum grunni, líkt og sjá má í verkunum Maríufiskur og Fífil- brekka, er þar teflt gegn myndum á borð við Eftir baðið, túrkisgrænni nektarstúdíu á bláum grunni og Yng- ismær, er minna mest á verk franska fauvistans Henri Matisse og eru sterkir, ágengir litirnir viss mótsögn við sítruslita pasteltónana. Verk þeirra Jóns og Jóhönnu njóta sín engu að síður ágætlega í samneyti hvors annars og sú hugmynd lista- mannanna að sýna verk sín saman eykur á fjölbreytni sýningarinnar um leið og hún veitir henni sterkari heild- arsvip. Morgunblaðið/Árni Sæberg Kona á bláu eftir Jón Reykdal. Litaglöð samsýningMYNDLISTL i s t a s a f n A S Í Sýningin er opin alla daga nema mánudaga frá kl.14–18. Henni lýkur 20. maí nk. JÓHANNA ÞÓRÐAR- DÓTTIR OG JÓN REYKDAL Morgunblaðið/Árni Sæberg Verkið Blástreymi eftir Jóhönnu Þórðardóttur. Anna Sigríður Einarsdótt ir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.