Morgunblaðið - 18.05.2001, Side 34
LISTIR
34 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
„ÞAÐ tekur tryggðinni í skóvarp,
sem tröllum er ekki vætt,“ orti
Stephan G. Stephansson, er hugur
hans leitaði yfir hafið og heim til Ís-
lands. Nú hefur Sigrid Carole
(Thorsteinson) Davis, eins og hún
titlar sig í efnisskrá, leitað heim til
átthaga forfeðra sinna og söng
heimamönnum söngva sína í Salnum
sl. miðvikudagskvöld. Það er eins og
opnast hafi flóðgátt, fyrir tilstilli
landafundaævintýrisins og nú vilja
menn vita hver af öðrum, austan
hafs og vestan, við hér heima leitum
uppi ættfólk okkar og vestanmenn
heimsækja forfeðranna slóðir.
Sigríður (Sigrid) hóf tónleikana
með þremur sönglögum eftir Moz-
art, Als Luies, Dans un Bois og An
Chloë og síðan komu þrjú lög eftir
Faure, Clare de Lune, Les Roses
d’Isphan og Les Berceaux. Sigríður
hefur þokkafulla rödd, fer vel með
en þó var söngur hennar heldur ris-
lítill og fékk auk þess litla aðstoð
frá píanistanum, fyrir einstaklega
daufan undirleik. Þessi daufleiki
var sérlega áberandi í a-moll ron-
dóinu K. 511 (ekki 551, Júpíter-
sinfónían) eftir Mozart, sem undir-
leikarinn Harold Brown lék. Held-
ur brá til meiri átaka í þremur
lögum úr Des Knaben Wunderhorn
eftir Mahler, Ich ging mit lust,
Scheiden und Meiden og Nicht
Wiedersehen, enda eru þessi fal-
legu lög sérlega gagnsæ og féll tón-
túlkun Sigríðar vel að þessum lög-
um.
Eftir hlé voru á efnisskránni tvö
lög við indíánatexta, Ástarsöngur og
Góðviðrasöngur, þokkafull tónlist en
of evrópsk til að eiga samleið með
því sem gæti átt við frumstæðan og
sérkennilegan indíánasöng. Vel
hefði Sigríður mátt syngja meira af
kanadískum söngvum, Því um þá
kunnum við næsta lítið, hér uppi á
Íslandi.
Allur seinni hluti söngskrárinnar
var byggur upp af íslenskum söng-
lögum og þar gat að heyra Við
Vatnsmýrina eftir Sigfús Halldórs-
son, Komdu, komdu kiðlingur eftir
Emil Thoroddsen, Hvert örstutt
spor eftir Jón Nordal, Vísur Vatns-
enda-Rósu (Augun mín og augun
þín) eftir undirritaðan (að engu get-
ið í efnisskrá), Draumalandið og
Sofnar lóa eftir Sigfús Einarsson,
Karl sat undir kletti og Ungling-
urinn í skóginum eftir Jórunni Við-
ar. Sem millispil flutti undirleikar-
inn Intermezzo (millspil) op. 118, 2
og 119, 1 eftir Brahms og er óþarfi
að fjalla nokkuð um leik hans, sem
var daufur og ekki „brahmslegur“ í
hljóman.
Sigríður söng íslensku lögin af
þokka og það sem var óvenjulegt,
sérlega veikt (sotto voce), er gaf lög-
unum töluverðan innileika, sérstak-
lega í Komdu, komdu kiðlingur og
Hvert örstutt spor, en einstaklega
fallega í Sofnar lóa, þar sem Sigríði
tókst að túlka mjög vel náttúru-
kyrrð texta og lags. Sama má segja
um Við Vatnsmýrina, þó þar væri
framburður hennar mjög óskýr,
sem var í öðrum íslensku lögunum
oft nokkuð vel mótaður. Sigríður
mun halda tónleika víða um land og
kynnast landi og þjóð forferða sinna
og fylgja hér með góðar ferðakveðj-
ur.
TÓNLIST
S a l u r i n n
Sigrid Carole (Thorsteinson)
Davis og Harold Brown fluttu
verk eftir evrópsk, kanadísk
og íslensk tónskáld. Miðvikudag-
urinn 16. maí 2001.
EINSÖNGUR OG
PÍANÓLEIKUR
Á forfeðranna
slóðum
Jón Ásgeirsson
ÞRENNIR einsöngstónleikar
Söngskólans í Reykjavík verða
næstu daga í Tónleikasal Söng-
skólans, Smára, Veghúsastíg 7.
Tónleikarnir eru liður í burtfar-
arprófi frá skólanum. Á efnis-
skránni eru m.a. íslensk söngljóð,
erlendir ljóðasöngvar, lög úr söng-
leikjum og aríur úr óperettum.
Tónleikar
Kristveigar Sig-
urðardóttur
sópransöngkonu
verða á morgun,
laugardag, kl.
17. Undirleikari
á píanó er Elín
Guðmundsdótt-
ir.
Kristveig hef-
ur sl. þrjú ár
stundað framhaldsnám við Söng-
skólann í Reykjavík hjá Elísabetu
F. Eiríksdóttur og Elínu Guð-
mundsdóttur.
Tónleikar
Auðar Guðjohn-
sen mezzó-sópr-
ansöngkonu
verða á sunnu-
dag kl. 15. Und-
irleikari á píanó
er Ólafur Vignir
Albertsson.
Auður hefur
verið í söngnámi
við Söngskólann
í Reykjavík frá hausti 1996 og hef-
ur hún frá upphafi verið nemandi
Dóru Reyndal en einnig notið leið-
sagnar píanóleikaranna Kolbrúnar
Sæmundsdóttur og Ólafs Vignis
Albertssonar.
Tónleikar Sig-
urlaugar Jónu
Hannesdóttur
sópransöngkonu
verða nk. þriðju-
dagskvöld kl. 20.
Undirleikari á
píanó er Ólafur
Vignir Alberts-
son.
Sigurlaug
Jóna hóf söng-
nám í Söng-
skólanum haustið 1996, þar sem
hún nam hjá Valgerði Jónu Gunn-
arsdóttur og Elínu Guðmundsdótt-
ur en hefur nú í vetur verið nem-
andi Ólafar Kolbrúnar Harðar-
dóttur og Ólafs Vignis Alberts-
sonar.
Undirleikararanir eru kennarar
við skólann.
Nýi tónlistarskólinn
Gyða Björg-
vinsdóttir lýkur
8. stigsprófi frá
Nýja tónlistar-
skólanum með
söngtónleikum í
Gerðubergi í
kvöld, föstu-
dagskvöld, kl.
20. Richard
Simm verður
við píanóið.
Gyða syngur innlend og erlend
ljóð, Händel og aríu úr óperunni
Faust e. Gounod.
Tónleikar Strengja- og kamm-
ersveitar skólans verða á morgun,
laugardag, kl. 14, í sal skólans.
Tónleikar yngri nemenda verða á
mánudag kl. 18 og tónleikar eldri
nemenda kl. 18 á þriðjudag, og al-
mennir söngtónleikar kl. 19.30
sama kvöld.
Útskriftartónleikar
FÍH
Útskriftar-
tónleikar Þor-
gríms Jóns-
sonar
bassaleikara
frá djassdeild
FÍH, Rauða-
gerði 27,
verða í dag,
föstudag, kl.
17.
Þorgrímur
hefur stundað
nám við tónlistarskólann frá 1993
undir handleiðslu Gunnars
Hrafnssonar, Sigurðar Flosason-
ar, Hilmars Jenssonar og Ólafs
Jónssonar en allir eru þeir kenn-
arar við tónlistarskólann. Þor-
grímur hefur einnig spilað mikið
með hinum ýmsu tónlistarmönn-
um. Meðleikarar hans á tónleik-
unum verða Ólafur Jónsson saxó-
fónleikari, Eyþór Kolbeins
básúnuleikari, Ómar Guðjónsson
gítarleikari og Erik Qvick
trommuleikari.
Dagskráin samanstendur af
verkum eftir Þorgrím auk laga eft-
ir þekkta erlenda bassaleikara.
Einsöngs- og
útskriftartónleikar
Kristveig
Sigurðardóttir
Auður
Guðjohnsen
Sigurlaug
Jóna Hann-
esdóttir
SÍÐASTA sýning á gleðileiknum
Skáldanótt eftir Hallgrím Helga-
son verður á morgun, laugardag,
á stóra sviði Borgarleikhússins.
Leikritið Skáldanótt er að miklu
leyti skrifað í bundnu máli. Leik-
félag Reykjavíkur frumsýndi
verkið í nóvember og hefur það
gengið fyrir nær fullu húsi í allan
vetur.
Leikar eru Árni Pétur Guð-
jónsson, Bergur Þór Ingólfsson,
Björn Ingi Hilmarsson, Edda
Björg Eyjólfsdóttir, Eggert Þor-
leifsson, Ellert A. Ingimundarson,
Gunnar Hansson, Katla Margrét
Þorgeirsdóttir, Sigrún Edda
Björnsdóttir, Steinn Ármann
Magnússon, Theodór Júlíusson,
Þór Tulinius.
Leikstjóri sýningarinnar er
Benedikt Erlingsson.
Skáldanótt af sviðinu
Benedikt Gröndal og Steinn Steinarr stumra yfir
Jónasi Hallgrímssyni í leikritinu Skáldanótt.
VÖLUSPÁ Þórarins Eldjárns og
Möguleikhússins var valin af sjö
manna dómnefnd leiklistar-
gagnrýnenda og annarra sér-
legra barnaleikhúsaðilja, til að
vera fulltrúi Íslands á norrænu
barnaleikhúshátíð Assitej-
samtakanna í Falun, sem hefst í
dag, föstudag. John Swedenmark
snaraði textanum yfir á sænsku.
Guðni Franzson samdi og
stýrði tónlistinni í verkinu sem
Stefán Örn Arnarson flytur á
selló. Pétur Eggerz leikur öll
hlutverkin í Völuspá.ns. Leik-
mynda hönnun var í höndum
norska leikmyndahönnuðarins
Anette Werenskiold.
Leikverkið er byggt á Völuspá
og sögum úr norrænni goðafræði
og veitir innsýn í sagnaheim for-
feðra okkar.
Hátíðinni lýkur á mándag.
Völuspá fulltrúi Íslands
á barnaleikhúshátíð
Stefán Örn Arnarson sellóleikari og Pétur Eggerz leikari í Völuspá.
Gyða
Björgvinsdóttir
KRISTINN Sigmundsson
óperusöngvari mun á næst-
unni syngja fyrir landann í
smáhléi frá önnum erlend-
is. Fyrstu tónleikarnir
verða í kirkjunni í Reyk-
holti í Borgarfirði á upps-
tigningardag 24. maí kl.
20.30 og þeir næstu föstu-
daginn 25. maí kl. 21 á
Laugalandi í Holtum í
Rangárvallasýslu.
Að undanförnu hefur Kristinn
sungið mest í Stokkhólmi, Münch-
en, Köln og París þar sem hann tók
m.a. þátt í flutningi á óperu eftir
Händel og var henni út-
varpað hér fyrir skömmu á
Rás 1.
Með honum verður eins
og svo oft áður píanóleik-
arinn Jónas Ingimundar-
son. Þeir Kristinn og Jónas
eiga að baki áralangt sam-
starf.
Efnistökin að þessu sinni
eru íslensk lög eftir Árna
Thorsteinsson og Sigvalda
Kaldalóns, söngvar eftir Schubert,
amerísk lög og ítölsk en tónleik-
unum lýkur á þremur stórum atrið-
um úr óperum eftir Verdi.
Kristinn Sigmunds-
son syngur á Íslandi
Kristinn
Sigmundsson
EBU tónleikar frá Skálholti 29.
apríl síðastliðinn verða endurtekn-
ir á Rás 1 kl. 13.00 á morgun,
sunnudaginn 20. maí.
Í fréttatilkynningu frá Ríkisút-
varpinu er vakin athygli á því að
samstarf evrópskra útvarps- og
sjónvarpsstöða snýst ekki einungis
umEvróvisjón, hina árlegu dæg-
urlagakeppni sem mikið hefur ver-
ið í fréttum upp á síðkastið.
Tónleikunum í í Skálholti var út-
varpað beint til 12 útvarpsstöðva í
Evrópu. Á tónleikunum var fléttað
saman tónlist Snorra Sigfúsar
Birgissonar, miðaldasöng og harm-
sögu Ragnheiðar Brynjólfsdóttur
biskupsdóttur. Viðbrögð í erlend-
um útvarpsstöðvum voru mjög
sterk.
Sænska útvarpið talaði um
flutninginn sem „hreina töfra“ og
danska útvarpið hefur í hyggju að
endurtaka tónleikana vegna ein-
dreginna óska hlustenda. List-
rænn stjórnandi var Sverrir Guð-
jónsson. Flytjendur eru Arnar
Jónsson sögumaður, Hallveig Rún-
arsdóttir sópran, Nora Kornblueh
selló og Voces Thules.
Í upphafi og í lok tónleika heyr-
ist í hinni frægu Íslandsklukku,
líklega elstu klukku á Íslandi. Má
segja að hljómur hennar hafi sleg-
ið í gegn hjá evrópskum útvarps-
stöðvum.
Evróputónleikar
endurteknir
Þorgrímur
Jónsson