Morgunblaðið - 18.05.2001, Blaðsíða 40
MINNINGAR
40 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
V
ísast er það rétt hjá
forsætisráðherra og
skósveinum hans;
gæti menn ekki hófs í
svartagallsrausinu
geta þeir talað þjóðina inn í alls-
herjar kreppu. Fyrir slíku er lítil
hefð á Íslandi. Í lýðveldinu hafa
tiltekin fyrirbrigði löngum verið
upphafin með linnulitlu tali um
ágæti þeirra. Þetta fyrirkomulag
hefur reynst Íslendingum vel. Í
seinni tíð hafa hlutabréf t.a.m.
verið „töluð upp“ og fjölmargir ís-
lenskir listamenn hafa öðlast
frama og frægð með þessu móti.
Á hinn bóginn eru kreppuein-
kenni auðfundin á Íslandi nú um
stundir.
Þannig verður ekki betur séð en
íslenska menntakerfið riði til falls.
Á dögunum skýrðu fjölmiðlar frá
því að meira en hundrað bílastæði
vantaði við Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja. Nemendur hafa komið
áhyggjum sínum á framfæri með
því að safna undirskriftum til að
andmæla þessu ófremdarástandi.
Vestur á Melum þar sem Há-
skóli Íslands
er til húsa rík-
ir sama hörm-
ungar-
ástandið. Þar
er bílastæða-
skorturinn
slíkur að hætta er talin á alvar-
legum atgervisflótta og allir
þekkja gjörla hvaða afleiðingar
slíkt getur haft. Stjórnmálamenn-
irnir hafa upplýst landsmenn um
að þjóð, sem ekki sinnir unga fólk-
inu og menntuninni, standist ekki
samanburð á tímum hnattvæð-
ingar; hennar bíði aðeins sam-
dráttur og kreppa.
Sérstakt þjóðarátak í bíla-
stæðamálum íslenskra mennta-
stofnana verður augljóslega ekki
umflúið.
Blessunarlega er nóg af bíla-
stæðum við höfuðstöðvar Ís-
lenskrar erfðagreiningar enda
hefur þjóðin falið því fyrirtæki það
háleita hlutverk að sjá til þess að
stórmenntaðir Íslendingar geti
snúið aftur til fósturjarðarinnar að
námi loknu.
Þar hefur viðbúnaður gegn
kreppu og óáran skilað tilætluðum
árangri.
Margir hafa til marks um fall-
andi gengi, að íbúar Evrópu hafi
hafnað stórglæsilegu framlagi Ís-
lendinga í Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva. Vissu-
lega var það áfall að þjóðir Evrópu
skyldu kjósa að upphefja mið-
aldra, enskumælandi blökkumann
frá Eistlandi í stað þess að taka
fagnandi framlagi skapandi lista-
manna frá Íslandi. Raunar var
ljóst hvert stefndi þegar ítarlegar
fréttir voru sagðar af því að Two
Tricky-flokkurinn hefði átt við-
ræður við gamla rokkgoðið, Alice
Cooper, í nærfataverslun í Kaup-
mannahöfn.
Sá fundur gat vart verið ávísun
á annað en ógæfu.
Skömmu áður en þau ósköp riðu
yfir höfðu þær skuggalegu fréttir
borist úr þingsölum að kjörnir
fulltrúar þjóðarinnar hefðu ákveð-
ið að láta rannsaka sérstaklega
hvernig það gerðist að end-
urbætur á skrifstofuhúsnæði Al-
þingis reyndust tvöfalt dýrari en
áætlanir gerðu ráð fyrir. Það hlýt-
ur að vera eitt skýrasta dæmið um
yfirvofandi kreppu að þingmenn
og ráðherrar hafi komist að þeirri
niðurstöðu að einhverju skipti
hvernig farið er með peninga
skattgreiðenda á Íslandi. Sjálfum
grundvelli valdakerfis og póli-
tískrar menningar er í voða stefnt
þegar stjórnmálastéttin missir
sjálfstraustið. Það sama gerðist í
Sovétríkjunum og skömmu síðar
reið ógæfan yfir þar eystra með
alkunnum afleiðingum.
Í því viðfangi rifjast upp að því
er ítrekað haldið fram í blaða-
greinum nú um stundir að komm-
únistar stjórni Íslandi.
Stjórnvöld sjálf eru ekki
barnanna best þrátt fyrir varn-
aðarorð forsætisráðherra um
krepputal. Þannig kynnti Siv
Friðleifsdóttir, samstarfsráðherra
Norðurlanda, nýjan þjónustusíma
á dögunum, sem ætlaður er þeim
Íslendingum, er vilja flytjast bú-
ferlum innan Norðurlanda. Með
ólíkindum er að stjórnvöld greiði
skipulega fyrir því að Íslendingar
yfirgefi lýðveldið nú þegar kreppa
er í nánd og reynir á krafta og
samtakamátt íslenskrar þjóðar.
Ef til vill er ólíkur málflutn-
ingur ráðherranna tveggja til
marks um þá „auknu spennu á
stjórnarheimilinu“, sem stjórn-
arandstaðan hefur ítrekað greint
frá. Hitt kann að vera að hér sé
einungis á ferðinni reglubundinn
og þjóðlegur öldugangur í bekk-
eni.
Til allrar hamingju reyndist
samkeppni á bensínmarkaði
skammlíft fyrirbrigði enda hefðu
slík vatnaskil í sögu þjóðarinnar
verið vísbending um að kreppa
væri í aðsigi. Hefði þjóð, sem hef-
ur sérstaka unun af því að láta yf-
irvöld og auðvald hlunnfara sig,
knúið fram fráhvarf frá okri og
verðsamráði hefði mátt ætla að
hrikta tæki í sjálfum undirstöðum
þjóðskipulagsins á Íslandi.
En í svartnættinu miðju kemur
íslenskt menningarlíf til bjargar
nú sem endranær. Þar verða eng-
in kreppumerki greind enda al-
þekkt að menningin reynist oftar
en ekki haldreipi á erfiðum tímum.
Nú geta menn loksins farið í leik-
hús og keypt niðurgreiddan miða
til að hlusta á konur ræða um kyn-
færi sín af innlifun og elju. Slík
djörfung er vart til marks um
kreppu; að minnsta kosti hlýtur að
vekja vonir og væntingar að Ís-
lendingar séu tilbúnir til sjálf-
sagðra og óþvingaðra tjáskipta,
sem eru fjölmenningarsamfélag-
inu svo óendanlega mikilvæg.
Sjálfgefið er að skattgreiðendur
taki þátt í að niðurgreiða kynfæra-
talið enda við hæfi að blása til
stórsóknar á sviði íslenskrar
menningar þegar að kreppir.
Líkt og áður fara íslenskir lista-
menn fyrir þjóðinni og leiða hana
fram á veg af þeirri djörfung og
þrótti, sem rismikilli þjóðmenn-
ingu er eiginleg.
Og þarna kann að vera fundin
leið til að draga úr áhrifum krepp-
unnar, sem er á næsta leiti. Ef til
vill væri ráð að stofna karla- og
kvennaklúbba um slíkar samræð-
ur svipaða saumaklúbbum, sem
löngum hafa verið taldir áhrifa-
mikið tæki til að tryggja sam-
heldni og einingu í íslensku þjóð-
lífi. Þar með gæfist ekki einungis
tækifæri til að tala illa um annað
fólk og gleðjast á þjóðlegan hátt
yfir ógæfu annarra, heldur kynnu
skipulegar og hispurslausar kyn-
færasamræður að leiða athygli Ís-
lendinga frá samdrætti, verkföll-
um og veikri krónu, sem fallin er
til þess eins að draga þor og kjark
úr þjóðinni.
Auðvitað ætti þetta íslenska
efni fullt erindi í sjónvarpið.
Tímasprengjur tifa og kreppu-
merkjum fjölgar. Fyrir liggur að
um inntak og náttúru þeirrar
kreppu gildir að fæst orð hafa
minnsta ábyrgð.
Krepputal
Þjóðarátak í bílastæðamálum
íslenskra menntastofnana verður
augljóslega ekki umflúið.
VIÐHORF
Eftir Ásgeir
Sverrisson
asv@mbl.is
✝ Jónína SólveigJónsdóttir fædd-
ist 14.9. 1917 á
Mannskaðahóli í
Hofshreppi í Skaga-
firði. Hún lést á
Grensásdeild Land-
spítalans að morgni
11. maí síðastliðins.
Foreldrar hennar
voru Jón Jónsson,
bóndi á Mannskaða-
hóli, og kona hans,
Sigríður Halldórs-
dóttir. Systkini Sól-
veigar eru: Efemía,
var gift Sigmundi
Baldvinssyni, bónda á Þöngla-
bakka, en þau eru bæði látin.
Halldór, en hann lést ungur,
Anna, gift Eiríki Frímann Jen-
sen, húsasmíðameistara í Rvík,
þau eru bæði látin. Björn, hús-
vörður í Miðbæjarbarnaskólan-
um í Rvík, kvæntur Jóhönnu
Bjarnadóttur, en þau eru bæði
látin, Garðar, skólastjóri á Hofs-
ósi, var kvæntur Guðrúnu Sig-
fúsdóttur, en hún er látin, Ragn-
heiður, gift Jóni Þorsteinssyni,
en hann er látinn, bóndi á Mýra-
koti í Hofshreppi, og Halldór,
bóndi á Mannskaðahóli, kvæntur
Lilju Egilsdóttur.
Eftirlifandi eiginmaður Sól-
veigar er Egill Jó-
hannesson, f. 7.3.
1923, en foreldrar
hans voru Jóhannes
Egilsson, bóndi á
Syðra-Ósi í Hofs-
hreppi, og kona
hans, Þóra Sigur-
geirsdóttir. Þau
Sólveig og Egill
eiga eina dóttur,
Sigríði, sem gift er
Ingva Ingasyni,
framkvæmdastjóra
Rafha. Börn þeirra
eru þrjú: Sólveig
Heiða, maki hennar
Arnar Valur Grétarsson og eiga
þau börnin Viktor Örn, Rebekku
Sif og Sigríði Þóru; Kristinn
Þór, sem á börnin Anettu Sigdísi
og Ragnar Ingva; og Egill Jó-
hann, sambýlismaður hans er
Sigurður Hrafn Sigurðsson.
Þau Sólveig og Egill fluttust
til Keflavíkur þar sem Egill hef-
ur stundað alla almenna verka-
mannavinnu en Sólveig hafði
auk húsmóðurstarfanna sauma-
skap að atvinnu í 12 ár en vann
síðan við fiskverkun í fjölda-
mörg ár.
Útför Sólveigar fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Elsku amma mín. Nú ertu farin
á vit forfeðra þinna. Með fátækleg-
um orðum mínum langar mig til að
minnast þín, en orð mín verða allt-
af smá þegar ritað er um svo stóra
persónu sem þú varst.
Margar góðar stundir átti ég
heima hjá þér og afa á Ásabraut-
inni í Keflavík, og er margs að
minnast eins og til dæmis hve
óþreytandi þú varst að gefa mér
hollan og góðan mat, minnst þrjár
ostsneiðar á brauðið, lýsi á morgn-
ana og mikið af mjólk að drekka.
Og þrátt fyrir að ég sem ungur
drengur hafi ekki alveg skilið þetta
hef ég reynt að koma þessum venj-
um til barna minna í dag.
Og hve oft fórum við til Þing-
valla? Ekki veit ég það, en ég veit
það þó að öll þau skipti sem við
tjölduðum á Öfugsnáða var lítill
ömmuhnokki í gleðivímu yfir þeim
samverustundum sem við áttum.
Það var svo notalegt að koma heim
í tjaldið eftir veiðikeppni við afa og
fá brauð og mjólk og smeygja sér í
lopapeysu sem þú hafðir prjónað.
En það er líka óteljandi allir þeir
lopasokkar, lopavettlingar og lopa-
peysur sem þú prjónaðir handa
mér og mínum börnum, aldrei
munaði þig um að skvera fram
einu pari af vettlingum ef þess
þurfti.
Þig skorti aldrei kraftinn og út-
haldið, við þeystum upp um fjöll og
firnindi, og þótt ég hafi haft ung-
dóminn og þróttinn var það yf-
irleitt ég sem þurfti að hvíla lúin
bein.
Elsku amma mín, ég mun geyma
og varðveita vandlega allar okkar
minningar saman, alla leikina okk-
ar, öll ferðalögin, öll matarboðin,
öll heilræðin, dillandi hláturinn og
þig.
Við biðjum að heilsa Títlu.
Við viljum votta afa, mömmu og
öðrum aðstandendum okkar
dýpstu samúð og vona að ykkar
andlegi styrkur muni leiða ykkur
út úr óhjákvæmilegri sorg ykkar.
Amma, þú varst, ert og verður
alltaf mín fyrirmynd um það
hvernig aðrar ömmur eiga að vera.
Kristinn Þór Ingvason.
SÓLVEIG
JÓNSDÓTTIR
✝ Valdís BáraValdimarsdóttir
fæddist á Álfhólum,
Vestur-Landeyjum í
Rangárvallasýslu
27. nóvember 1956.
Hún lést á Land-
spítalanum 11. maí
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Valdimar Jónsson
bóndi í Álfhólum, f.
14. des. 1891, d. 31.
maí 1985, og
Hrefna Þorvalds-
dóttir frá Skúms-
stöðum í sömu sveit, f. 7. febr.
1923. Sambýlismaður Hrefnu er
Michael og Cathryn Wesneski.
Systur Valdísar Báru eru Sigríð-
ur bóndi í Álfhólum, f. 30. nóv.
1953, hennar dóttir er Sara Ást-
þórsdóttir, f. 6. júní 1974. Rósa
matreiðslumaður, f. 2. okt. 1955,
hennar maður er Ómar Jóhanns-
son bifreiðastjóri, f. 6. jan. 1959,
og eru börn þeirra Valdimar, f.
3. apríl 1982, Hrefna María, f.
20. des. 1983, og Fannar Örn, f.
29. jan. 1986. Hálfbróðir Val-
dísar Báru er Þorvaldur Örn
Árnason kennari, f. 15. des.
1947. Kona hans er Ragnheiður
E. Jónsdóttir fóstra, f. 10. ágúst
1956, og dóttir þeirra er Eyþrúð-
ur, f. 24. júní 1994. Sonur Þor-
valdar af fyrra hjónabandi er
Haraldur Darri, f. 27. okt. 1973.
Útför Valdísar Báru verður
gerð frá Grafarvogskirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan 15.
Trausti Friðbertsson,
f. 26. júlí 1917. Eig-
inmaður Valdísar
Báru er James Wesn-
eski, tölvunarfræð-
ingur frá Bandaríkj-
unum, f. 8. mars
1963. Börn þeirra
eru Gígja Hlín, f. 22.
maí 1986, Mirra El-
ísabet, f. 17. júlí
1988, og Karl Eð-
varð, f. 27. ágúst
1990. Foreldrar Ja-
mes eru Carl II og
Elizabeth Wesneski í
Maryland í Bandaríkjunum.
Systkini James eru Carl III,
Hinsta kveðja til þín, elsku systir.
Þinni jarðvist hér á jörðu er lokið og
þrátt fyrir mikinn baráttuhug dugði
það ekki gegn illvígum sjúkdómi sem
hrjáði þig seinustu ár. Eftir sitjum
við með sorg og söknuð í huga.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því.
Þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margt að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Guð geymi þig, elsku Bára.
Þín
Rósa.
Í dag er mín kæra skólasystir og
vinkona Valdís Bára Valdimarsdóttir
til hinstu hvílu lögð. Það var haustið
1972 að leiðir okkar Báru lágu saman
í Menntaskólanum á Laugarvatni.
Með okkur tókst strax einstök vin-
átta sem hvorki fjarlægð í tíma né
rúmi fékk hnekkt. Bára var miklum
persónutöfrum gædd og gleymist
seint þeim er henni kynntust. Sér-
stætt yfirbragð hennar vakti athygli
og var fremur sem hún kæmi frá
Austurlöndum fjær en sunnlenskri
sveit uppi á Íslandi. Bára skipaði
fljótlega eitt af forystusætum bekkj-
arins í máladeild ML þetta haustið.
Námshæfileikar hennar komu strax
fram og hlaut hún hæstu einkunn í
fögum eins og latínu og þýsku. Þegar
hugur hennar stóð til frekara náms
hélt hún til Þýskalands og hóf nám í
þýskum bókmenntum. Á námsárun-
um þar kynntist hún eftirlifandi eig-
inmanni sínum, James Wesneski.
Eftir að námi lauk í Þýskalandi flutt-
ust Bára og James heim til Íslands
og eignuðust þar börnin sín þrjú,
Gígju, Mirru og Karl. Í byrjun árs
1995 fluttust þau vestur um haf og
settust að í Boston. Það var síðan
snemma árs 1999 að reiðarslagið
kom er Bára greindist með hinn ill-
víga sjúkdóm. Við tóku erfiðir tímar
og reyndust örlögin grimm. Í veik-
indum sínum var Bára sterk og sýndi
ótrúlegan styrk og oftar en ekki
færði hún í tal við mig hvort við gæt-
um ekki hvílt nálægt hvor annarri að
þessu lífi loknu. James reyndist
Báru einstakur eiginmaður og stóð
ætíð sem klettur við hlið hennar,
ekki síst í hennar langa og stranga
stríði við sjúkdóminn sem nú hefur
lagt hana að velli. Fjölskyldur þeirra
beggja lögðust á eitt við að styðja
þau og styrkja í þessum mikla harm-
leik. Móðir Báru, Hrefna, lét hvergi
bugast og hjúkraði dóttur sinni þar
til yfir lauk.
Á 25 ára stúdentsafmælinu okkar
nú í vor munum við samstúdentar
þínir, kæra Bára, minnast þín með
söknuði og að leiðarlokum þakka ég
þér innilega fyrir samveruna.
Minningin um þig mun lifa.
Ég votta ykkur, elsku Gígja,
Mirra, Kalli og James, svo og öðrum
aðstandendum Báru, mína dýpstu
samúð.
Sigrún Davíðs.
Bára, fallega Bára, eins og ævin-
týraprinsessa frá Austurlöndum.
Ég, stelputrippi sem fékk að vera í
sveitinni á Álfhólum, man hvað ég
gladdist þegar frændfólk okkar
sagði mér að ég líktist dálítið frænku
minni, henni Báru á Álfhólum. Það
var alltaf einhver ævintýraljómi í
kringum þig. Hver dagur sem þú
varst heima í sveitinni varð að litlu
ævintýri. Þú sýndir mér bækurnar
þínar, sagðir mér frá fjarlægum
stöðum sem þig langaði til að heim-
sækja. Þú lést drauma þína rætast,
ferðaðist og dvaldir lengi erlendis.
Seinna þegar við hittumst kynntir þú
James fyrir mér, sýndir mér stolt
börnin þín og heimurinn brosti til
þín. En bros heimsins fór að fölna, ég
fékk fréttir af alvarlegum veikindum
þínum, fylgdist með hetjulegri bar-
áttu þinni og fjölskyldu þinnar við
VALDÍS BÁRA
VALDIMARSDÓTTIR