Morgunblaðið - 18.05.2001, Side 46
NÚ í lok vetrarstarfsins tökum við
frá tíma til að halda sumarhátíð. Há-
tíðin hefst á morgun, laugardaginn
19. maí, kl. 11 með stuttri helgistund í
Fríkirkjunni. Að henni lokinni mun-
um við grilla pylsur og jafnvel fleira
góðgæti í safnaðarheimili kirkjunnar
við Laufásveg 13.
Fjölskyldur eru hvattar til þess að
koma saman til kirkju og taka þátt í
sumarhátíðinni. Í erli þjóðlífsins eru
samverustundir fjölskyldunnar á
hröðu undanhaldi. Þetta mun ekki
breytast nema við spyrnum við fótum
og tökum frá tíma til þess að sinna
hvert öðru. Margir þekkja þá tilfinn-
ingu að ætla síðar að vera með börn-
um sínum en áður en við er litið eru
þau flogin úr hreiðrinu og foreldrar
og börn hafa þá farið á mis við þá
ánægju og þroska, sem slík samvera
gefur.
Fríkirkjan skerpir nauðsyn þess að
vera saman og eiga samleið. Það er
því von okkar að fjölskyldur komi
saman og skerpi þannig einlægni og
samtal sitt við Guð í kirkju hans. Með
kærleikann og vináttuna að leiðarljósi
göngum við síðan út í lífið, minnug
þess hve nauðsynlegt það er að tala
saman, vera saman og eiga samleið.
Við hvetjum alla til að fjölmenna á
sumarhátíðina.
Víkurkirkja í Mýrdal
GUÐSÞJÓNUSTA verður í Víkur-
kirkju nk. sunnudag, 20. maí, kl.
14:00. Guðsþjónustan er hluti af vor-
ferð Digranessafnaðar í Kópavogi og
verður í umsjón presta, organista og
kórs Digraneskirkju.
Fjölmennum til kirkju og tökum
vel á móti góðum gestum.
Sóknarprestur.
Kvennakirkjan
í Skógum
KVENNAKIRKJAN heldur guðs-
þjónustu í kirkjunni í Skógum undir
Eyjafjöllum laugard. 19. maí kl. 21.
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
predikar og sungin verða kvenna-
kirkjulög við undirleik Þorgerðar
Jónu Guðmundsdóttur organista.
Messan er hluti af vorferð Kvenna-
kirkjunnar að Skógum og er fólk
hjartanlega velkomið að koma til
kirkju á þessu vorkvöldi.
Safnaðarstarf
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45-7.05. Mömmumorgunn kl. 10-12 í
umsjá Hrundar Þórarinsdóttur
djákna. Kaffispjall fyrir mæður, góð
upplifun fyrir börn.
Langholtskirkja. Kirkjan er opin til
hljóðrar bænagjörðar í hádeginu.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í
Strandbergi laugardagsmorgna. Trú
og mannlíf, biblíulestur og kyrrðar-
stund.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9.
Samkomur alla laugardaga kl. 11-
12.30. Lofgjörð, barnasaga, predikun
og biblíufræðsla þar sem ákveðið efni
er tekið fyrir, spurt og svarað. Barna-
og unglingadeildir á laugardögum.
Létt hressing eftir samkomuna. Allir
velkomnir.
Frelsið, kristileg miðstöð. Föstu-
dagskvöld kl. 21 Styrkur unga fólks-
ins. Dans, drama, rapp, predikun og
mikið fjör.
Sjöundadagsaðventistar á Íslandi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíu-
fræðsla kl. 10.Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður frá Andrews University
ásamt Björgvin Snorrasyni.
Safnaðarheimili aðventista, Blika-
braut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður
Maxwell Ditta.
Safnaðarheimili aðventista, Gagn-
heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður
Sigríður Kristjánsdóttir.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnar-
firði: Guðsþjónusta kl. 11. Biblíu-
fræðsla kl. 12. Ræðumaður Gavin
Anthony. Samverustund yfir súpu og
brauði að samkomu lokinni.
Sumarhátíð í
Fríkirkjunni í
Reykjavík
MINNINGAR
46 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Einar Daníelssonvar fæddur á Ísa-
firði 6. september
1927. Hann lést á
Landspítalanum 8.
maí síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Daníel Pétursson sjó-
maður og Kristín Er-
lendsdóttir verka-
kona. Einar ólst upp
hjá ömmu sinni og
afa, Guðnýju Helga-
dóttur og Erlendi
Símonarsyni. Systkin
hans samfeðra eru
Vigdís, f. 1935, Mál-
fríður, f. 1936, Pétur, f. 1938, d.
1979, Helga, f. 1940, Örn, f. 1942,
Friðgerður, f. 1942, Gunnlaugur,
f. 1945, d. 1998, Unnur, f. 1947, og
Kolbrún, f. 1948. Systkin hans
sammæðra eru Ómar og Bylgja
Óskarsbörn. Einar kvæntist Karit-
as Halldórsdóttur frá Vörum í
Garði 6. september 1952. Foreldr-
ar hennar voru Halldór Þorsteins-
son og Kristjana Pálína Kristjáns-
dóttir. Börn þeirra eru 1) Elísabet
Guðný, f. 1952, maki Hermann
Kristjánsson skipstjóri í Vest-
mannaeyjum. Þeirra börn eru
Linda, f. 1973, maki, Ragnar Borg-
þór Torfason, Höfn í Hornafirði.
Barn þeirra Ingibjörg Lúcía, f.
1998. Guðný, f. 1976, maki, Gunn-
ar Björnsson, Garðabæ. Barn
þeirra Elís Már, f. 2001, Herdís, f.
1983. 2) Snorri, f. 1954, maki Mál-
fríður Guðlaugsdóttir, Keflavík.
Þeirra börn eru Guðlaugur, f.
1985, Þorsteinn Grétar, f. 1986,
Sævar Þór, f. 1989, Hildur Dís, f.
1992, Kristjana Margrét, f. 1993.
3) Kristjana Vilborg, f. 1956, maki
Sigurður Ásmundsson, Garði.
Þeirra börn eru Þórunn Thelma, f.
1983, Elísabet Amanda, f. 1987. 4)
Halldór, f. 1957, maki Hrafnhildur
Sigurðardóttir, Garði. Þeirra börn
eru Edda Rún, f. 1983, Karitas
Hildur, f. 1985, Sigurður Vignir, f.
1993, Lára Hanna, f.
1999. 5) Daníel, f.
1959, maki 1, Sigrún
Halldórsdóttir.
Þeirra börn eru Ein-
ar, f. 1982, Rúnar
Dór, f. 1984, uppeld-
isdóttir Emma Bach-
mann, f. 1978. Maki
2, Petra Lind Einars-
dóttir, f. 1971. Þeirra
börn eru Andri, f.
1993, Eva Lind, f.
1999, Aníta Lind, f.
1999. 6) Vilhjálmur
Steinar, f. 1961, maki
Karen Heba Jóns-
dóttir, f. 1960. Þeirra börn eru Eva
Rut, f. 1983, Björn Bergmann, f.
1985, Brynja Lind, f. 1986, Einar
Karl, f. 1988, uppeldisdóttir, Anna
Soffía, f. 1978. 7) Þorsteinn Krist-
inn, f. 1962, maki Kolbrún Edda
Sigfúsdóttir, f. 1960. Þeirra börn
eru Halldór, f. 1987, Gunnar Ingi,
f. 1991, og uppeldisbörn Þórunn
Lilja Ottósdóttir, f. 1976, hennar
börn eru Berglind Anna, f. 1993,
Sævar Þorri, f. 1996, óskírður, f.
2001. Marína Sæunn Ottósdóttir, f.
1981. 8) Þorsteinn Grétar, f. 1964,
maki Erla Dögg Gunnarsdóttir, f.
1967. Þeirra börn eru Ásgeir, f.
1995, Árni Gunnar, f. 1997, upp-
eldisdóttir Sunna Rós, f. 1987. Ein-
ar átti fyrir Björn Heiðar, f. 1948,
með Soffíu Sveinbjörnsdóttur.
Maki Margrét Árnadóttir. Þeirra
börn eru Árni, f. 1968, Birkir, f.
1975. Fyrir átti Karitas Gunnar
Hámundarson Häsler, f. 1950,
maki Brynja Kristjánsdóttir.
Þeirra börn eru Sigríður Björk, f.
1972, Karitas Sara, f. 1974, maki
Karl Hrólfsson. Þeirra barn er
Kamilla Ósk Guðrún, f. 1984. Fyrir
átti Gunnar Óttar Ara með Krist-
ínu Kristmundsdóttur. Hans barn
Jóna Kristín, f. 1998.
Útför Einars fer fram frá Út-
skálakirkju í Garði í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Elsku pabbi, nú þegar þú ert búinn
með líf þitt hér á jörðinni kemur
þakklæti efst í huga mér, þakklæti
fyrir hvað þú varst alltaf geðgóður og
allt sem þú varst Hermanni og börn-
unum mínum og mér. Það er margs
að minnast, fyrsta minning mín er frá
því ég var 4 ára og þú hélst á mér,
lyftir mér upp og leyfðir mér að koma
við rósirnar sem þú málaðir á loftið í
eldhúsinu þegar við áttum heima á
Bjarmalandi. En besta minning mín
frá bernskunni var þegar þú, sem
skipstjóri, sigldir fram hjá Garðinum
til Keflavíkur, þá blikkaðir þú ljós-
kastaranum til okkar heim á Silfur-
túni og við blikkuðum útidyraljósinu
á móti þér. Við hlustuðum á báta-
bylgjuna og vissum hvenær þú varst
að koma og hvað þú hefðir verið að
fiska. Þú talaðir við Valda mág þinn á
Gunnari H. og sagðir oft elskan við
hann og við stríddum þér á því. Það
var oft kátt við eldhúsborðið á Silf-
urtúni og þétt setið.
Minningarnar streyma fram og
alltaf ert þú brosandi og með eitthvað
spaugilegt á vör og glampa í augun-
um.
Elsku pabbi, ég kveð þig eins og þú
kvaddir alltaf, við heyrumst, blessi
þig.
Þín dóttir,
Elísabet.
Elsku hjartans pabbi minn, mikið
er tómlegt hið daglega líf án þín.
Hringingarnar á milli okkar þegar
enski boltinn var í sjónvarpinu, ég
með United og þú með Liverpool,
„litli ágreiningurinn“. Þú að koma í
kaffi, við að hittast hjá mömmu í
kaffisopa á morgnana, þú og mamma
að spila rommý, ég að taka við þegar
mamma fór að elda hádegismatinn,
við borðuðum oftast saman í hádeg-
inu hjá mömmu, þú, ég og mín fjöl-
skylda, Grétar og Erla og þeirra
börn, og alltaf eru nokkur af barna-
börnunum líka, hlé í skólanum og þá
er gott að koma til ömmu Köllu, enda
hefur verið skopast með það að segja
Kaffistofa Köllu. Í mörg ár varstu hjá
okkur á aðfangadagskvöld, borðuð-
um saman og tókum upp pakkana,
það var yndislega gaman. Um síðustu
jól varstu ekki vegna veikinda og það
voru tómleg jól hjá okkur og erfið. En
þú náðir þér svo vel af þeim veik-
indum. Og við vorum öll svo ánægð,
og áttum við frábærar stundir með
þér. En svo veiktist þú aftur, en við
héldum að þú mundir ná þér. En svo
fór ekki. Elsku pabbi minn, það er
margt sem mig langar að segja um
þig. En eins og allir sem hann þekktu
vita var hann alltaf hress og kátur og
þannig skulum við minnast hans í
hjarta okkar. Ég trúi því að þér líði
vel núna, elsku pabbi, og vil ég þakka
þér allar góðu samverustundirnar
okkar saman. Guð geymi þig.
Kristjana Vilborg og fjölskylda.
Elsku afi.
Nú er kveðjustundin runnin upp.
Mikið getur lífið stundum verið órétt-
látt. Þegar ég heyrði að Einar afi
væri látinn var það einhvað svo ótrú-
legt. Skyndilega og svo fyrirvara-
laust kallaður á brott, til Guðs og
englanna hans. Hann sem hafði verið
svo hress í hádeginu, sennilega farinn
að spá í hvað hann ætti að hafa í mat-
inn þegar hann kæmi heim til sín.
Elsku afi minn, mér þykir svo
vænt um þig og vildi ég óska að þú
hefðir getað verið ögn lengur hjá okk-
ur, tekið þátt í lífi okkar og veitt því
alla þá gleði og bjartsýni, sem fylgdi
þér alltaf þegar ég hitti þig. Mér þyk-
ir svo sárt að missa þig, afi minn. Afi,
þú varst alltaf svo góður og vil ég
þakka þér fyrir stundirnar sem við
áttum saman er við sátum við eldhús-
borðið og spiluðum rommí og aðrar
stundir, einnig vil ég þakka þér fyrir
þá væntumþykju sem þú veittir mér.
Hjálpa oss að verða bænheyrsla þín þeim
sem þjást og líða, sakna og syrgja. Hugga
þau sem gráta, reis á fætur þau sem hrasa.
Gef öllum börnum þínum hönd til að styðj-
ast við, huga sem ann og hjarta sem skilur.
Fyrir Jesú Krist, Drottin vorn.
Um leið og ég kveð þig afi minn og
þakka þér fyrir þær góðu minningar
sem ég á um þig, vil ég biðja góðan
Guð um að veita öllum ættingjum og
ástvinum huggun og styrk í sorginni.
Þín dótturdóttir,
Herdís.
Elsku Einar afi okkar. Við viljum
þakka þér fyrir allar góðu og ánægju-
legu samverustundirnar sem við átt-
um með þér. T.d. á jólunum, þú borð-
aðir alltaf með okkur og opnaðir
pakkana. En síðustu jól voru þau
tómlegustu jól sem við höfum nokk-
urn tímann upplifað, því að þú varst á
spítala vegna veikinda. Við vonum að
þér líði sem allra best á þeim stað
sem þú ert kominn á núna. Þú varst
okkur góður afi og áttum við margar
ánægjulegar stundir með þér.
Þú munt ávallt vera í hjarta okkar.
Saknaðarkveðjur.
Þórunn Thelma og
Elísabet Amanda.
Elsku afi Einar minn. Það er sárt
að sjá á eftir þér. Þú sem varst alltaf í
góðu skapi og hlóst að öllu. Og alltaf
varstu góður í þér og vildir gera allt
fyrir mig. En eitt finnst mér leiðin-
legt, það var hvað ég sá þig sjaldan og
gat lítið hitt þig. En þegar ég sá þig,
varst þú oftast hjá ömmu Köllu í há-
deginu. Alltaf varð ég að fylgjast með
þér, bæði þegar þú varst að rúnta í
Garðinum og þegar þú varst með
hvalaskoðun. Þá var ég alltaf í eld-
húsglugganum með kíki að fylgjast
með þér. Og eitt man ég vel þegar ég
var lítil. Þá vorum við krakkarnir hjá
ömmu Köllu í hádeginu og hlupum
alltaf á móti þér þegar þú komst í há-
degismat til að fá tyggjó hjá þér. Og
alltaf fannst þér gaman að gefa okkur
tyggjó, og stundum kölluðum við þig
tyggjó-afa.
En að lokum ætla ég að kveðja þig,
því ekki gat ég það þegar þú varst á
lífi. Ég er ekki enn farin að trúa því
hvað þú fórst snöggt frá okkur öllum.
En þér líður ábyggilega miklu betur
núna. En þú hverfur aldrei úr hjarta
mínu, því get ég lofað. Mér þykir
vænt um þig og ég veit að þér líður
betur núna.
Nú kveð ég þig. Bless, bless, elsku
afi minn.
Þitt barnabarn,
Brynja Lind.
Elskulegur afi minn hefur kvatt
þennan heim. Aldrei hvarflaði það að
mér þegar við kvöddum þig að
morgni 30. apríl á leið okkar austur,
að við myndum ekki heyra né sjá þig
aftur. Minningar um okkar samveru-
stundir streyma fram, þá ert þú alltaf
brosandi og í góðu skapi. Þó svo að
fjarlægðin hafi verið mikil á milli okk-
ar var samband okkar alltaf náið.
Alltaf þegar ég, Boggi og Ingibjörg
komum í Njarðvíkurnar, varst þú
mættur í morgunkaffi til okkar, og
komst þú með nammi í poka handa
henni Ingibjörgu dóttur minni með
þér, enda hlakkaði hún mikið til að fá
hann Einar afa í heimsókn. Ég og
Ingibjörg vorum svo lánsamar að fá
að vera nálægt þér og fjölskyldunni
allri allt síðastliðið ár, erum við þakk-
látar fyrir það.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Við biðjum guð að gefa ömmu,
börnum og fjölskyldum þeirra styrk
á sorgarstundu. Blessuð sé minning
þín.
Linda, Borgþór og
Ingibjörg Lúcía.
Elsku afi, nú ertu farinn yfir í betri
heim. Við minnumst þín með bros á
vör, því alltaf fékkstu okkur til að
hlæja með glensi og gamni. Við syst-
urnar minnumst þess hve spenntar
við vorum þegar þú komst úr sigl-
ingum með ýmsa framandi hluti og
hvítu tyggjóplöturnar sem ávallt
voru í vasa þínum til að gleðja lítil
hjörtu. Elsku afi, hress og kátur
varstu fram á síðustu mínútu og vit-
um við að þú hefðir ekki viljað hafa
það neitt öðruvísi. Við kveðjum þig að
sinni elsku afi á Esjunni.
Þínar
Sigríður og Karítas
(Sigga og Kalla).
Nú er hann fallinn frá, okkar kæri
vinur Einsi Dan. Við erum mjög
þakklát fyrir heimsóknina á stofuna
svo stuttu fyrir andlát hans, þar sem
hann lék á als oddi og sló á létta
strengi, eins og honum var einum lag-
ið. Sýnir það sig, hversu einstakur
hann var þegar hann hét á okkur
starfsfólkið ferð erlendis ef hann ynni
þann stóra í lottóinu. Allir tóku því
auðvitað sem hverju öðru gríni, en
viti menn, það leið ekki á löngu þar til
Einsi mætti með farseðlana og sagði,
jæja stelpur, nú erum við á leið til
Glasgow. Svona var Einsi, stóð alltaf
við sitt.
Það verður tómlegt að sjá hann
ekki koma á stofuna, með sitt góða
skap og kíkja í kaffi eins og hann
gerði svo oft, að við tölum nú ekki um
öll stofupartýin og sumarbústaða-
ferðirnar þar sem hann var ómiss-
andi. Við erum þakklát fyrir að hafa
fengið að kynnast eins góðhjörtuðum
manni og varðveitum við minningu
hans ávallt í hjarta okkar.
Kæra fjölskylda, guð gefi ykkur
styrk í sorginni.
Starfsfólk Hársnyrtingar
Harðar í Keflavík.
EINAR
DANÍELSSON
KIRKJUSTARF
0
&
.9
-1 B8
8
(88
") D5' "
-
7
!8 #
&" E'+'&))! "
9
&
&
79 .91.((88. 45, '"&"
,F
&)'"
&" 5, " 7 '
'+&5, "
0&$ # 5,+ " "
* *, '+* * *,