Morgunblaðið - 18.05.2001, Síða 53
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2001 53
Reykjavík,
Laugardagur 19. maí.
Grasagarður, kl. 10-12
og 13-15 leiðsögn í
Grasagarði (mæta við
garðskála).
Elliðaárdalur, kl. 10
fræðslustígur genginn
(mæta v. Minjasafn
Orkuveitunnar).
Skólpa við Ánanaust,
opið fyrir gesti frá 13-16.
Sunnudaginn 20. maí n.k. munu
umhverfisráð Kópavogs og
umhverfis- og heilbrigðisnefnd
Reykjavíkur standa fyrir gönguferð
umhverfis Elliðavatn.
Gangan hefst kl. 13.00 við
Elliðahvamm við sunnanvert vatnið
(sjá skilti við Vatnsendaveg) og
verður gengið þaðan austur og
síðan norður með vatninu. Með í för
verða leiðsögumenn sem munu
fræða göngufólk um náttúru, lífríki
og sögu svæðisins. Áætlað er að
göngunni ljúki við Elliðahvamm um
kl. 16.00 og verður þar boðið upp á
kaffi og veitingar.
Bessastaðahreppur
Laugardagur 19. maí kl. 11
Á umhverfisdegi höfuðborgarsvæðisins
verður laugardaginn 19. maí nk. í
Bessastaðahreppi boðið upp á gönguferð
frá Kasthúsatjörn kl. 11:00. Gengin verður
strandlengjan í fylgd Önnu Ólafsdóttur
Björnsson, sagnfræðings. Endað verður í
Haukshúsi, þar sem boðið verður upp á
kaffi og meðlæti. Þar mun Anna fjalla um
örnefni í sveitarfélaginu, fyrr og nú.
Sunnudagur 20. maí kl. 12 til 16
Hjólreiðatúr fyrir fjölskylduna frá Seltjarnarnesi í
Hafnarfjörð með viðkomu í Reykjavík, Kópavogi og
Garðabæ. Ferðaáætlun er sem hér segir:
Lagt af stað frá Sundlaug Seltjarnarness kl. 12:00
Fjölskyldugarður í Laugardal kl.13:30
Engihjalli Kópavog kl. 14:30
Garðatorg Garðabæ kl. 15:30
Endað við Víðistaðatún Hafnarfjörður kl. 16:00
Tímasetningar miðast við þegar lagt er
af stað frá viðkomandi áningarstöðum,
nema í Hafnarfirði
Þátttakendum er í sjálfsvald sett
hversu langt þeir vilja hjóla
Á áfangastöðunum verður boðið
upp á léttar hressingu.
Stórkostlegt ævintýri fyrir alla fjölskylduna.
Garðabær
Sunnudagur 20. maí kl: 13 til 16
Við Vífilsstaðavatn
Dagskrá í umsjón umhverfisnefndar og
skátafélagsins Vífils í tilefni 25 ára afmælis
kaupstaðaréttinda Garðabæjar.
Samkomustaður við Vífilsstaðavatn, þar verður
reist samkomutjald.
Kl: 13 Fjallahjólakeppni barna á aldrinum
9 til 13 ára. Veitt verða verðlaun.
Kl: 13 Leikir fyrir börn yngri en 9 ára,
við samkomutjaldið.
Veiði í Vífilsstaðavatni er í boði Garðabæjar.
Í boði umhverfisnefndar verður Bjarni Jónsson
vistfræðingur við vatnið og fjallar um lífríki
Vífilsstaðavatns einnig verður fjölskyldan
aðstoðuð við veiðar.
Rútuferðir verða frá Flataskóla og
Hofsstaðaskóla frá kl: 12.30
og á meðan dagskrá stendur.
Hafnarfjörður
Laugardagur 19 maí kl. 13
Straumsvík
Dagskrá í umsjá umhvefisnefndar
Hafnarfjarðar. Samkomustaður:
Listamiðstöðin Straumi. Lovísa
Ásbjörnsdóttir verður
leiðsögumaður.
Kl. 13.00 Mæting að Straumi þar
sem leiðsögumaður mun ganga
um fjörur og strendur
Straumsvíkur. Svæðið er á náttúru-
minjaskrá vegna einstæðra
lífsskilyrða og mikils fuglalís.
Kl. 15.00 Kaffi og kleinur
að Straumi.
Umhverfis- og útivistardagar
á höfuðborgarsvæðinu
19. og 20. maí
H j ó l u m s a m a n u m s v e i t a r f é l ö g i n
Kópavogur og Reykjavík
Sunnudagur 19. maí kl. 13
Seltjarnarnes
Sunnudagur 20. maí
11.00 Opið hús í Náttúrugripasafni
Seltjarnarness í Valhúsaskóla
Almenn kynning á safninu og fræðsla
um fugla, steina, og aðra hluti sem má
skoða í safninu. Auk þess kynning á
ýmsum fræðibókum í eigu safnsins.
12.15 Fuglaskoðun
Safnast saman á horni Suðurstrandar
og Lindarbrautar og gengið að
Bakkatjörn og um fjörur Suðurness
undir stjórn Stefáns Bergmanns og
Herdísar Erlu Gunnarsdóttur.
Þátttakendur hafi með sér kíki og búi
sig eftir aðstæðum.
Sundlaug
Seltjarnarnes
Fjölskyldu-
garðurinn
Engihjalli
Garðatorg
Víðistaðatún
FYRIR skömmu var birt niður-
staða svissneskrar rannsóknar sem
gaf til kynna að svonefndar UV-síur,
sem notaðar eru í fjölda sólvarnar-
efna, gætu verið hættulegar heilsu
manna. Umhverfisverndarsamtök
græningja blésu málið upp í dönsk-
um fjölmiðlum og yfirvöld beindu
þeim tilmælum til verslana að taka
efni með umræddum UV-síum tíma-
bundið úr sölu. Í kjölfarið urðu mikl-
ar umræður um málið í dönskum fjöl-
miðlum og komust flestir álitsgjafar
að þeirri niðurstöðu að skaðsemi efn-
anna væri langt í frá sönnuð og of
langt hefði verið gengið með því að
hætta sölu á þeim. M.a. lýsti stjórn-
andi svissnesku rannsóknarinnar, dr.
Margret Schlumpf, furðu sinni á við-
brögðum danskra yfirvalda og sagði
að þær vísbendingar sem kæmu fram
í rannsókninni réttlættu ekki að um-
rædd sólvarnarefni yrðu tekin úr
sölu. Í fréttatilkynningu sem hún
hefur sent frá sér af þessu tilefni seg-
ir að slíkar aðgerðir séu ótímabærar
og enn sem fyrr sé mælt með því að
fólk noti sólvarnarefni og aðrar
þekktar aðferðir til varnar gegn sól-
argeislum.
Fljótfærni Hollustuverndar
Víkur nú sögunni til Íslands. Sama
dag og fregnir bárust af umfjöllun
um málið í dönskum fjölmiðlum fór
Hollustuvernd ríkisins fram á það við
heildsala að þeir hættu sölu á öllum
tegundum sólvarnarefna, sem hugs-
anlega gætu verið skaðleg. Kaup-
menn og neytendur tóku tilmæli
stofnunarinnar alvarlega og treystu
því að þessar aðgerðir væru byggðar
á traustum grundvelli en ekki getgát-
um. Síðar kom í ljós að með þessum
sterku viðbrögðum var Hollustu-
vernd í raun að bregðast við frétta-
flutningi af málinu hérlendis og er-
lendis í stað þess að meta niðurstöður
rannsóknarinnar með faglegum
hætti.
Tilmæli Hollustuverndar voru gef-
in út 25. apríl eða sama dag og fregn-
ir bárust af viðbrögðunum í Dan-
mörku. Tilmælin voru því gefin út í
mikilli skyndingu og bendir ekkert til
þess að stofnunin hafi gefið sér tíma
né lagt nokkra vinnu í að leggja sjálf-
stætt eða faglegt mat á umrædda
rannsókn eða niðurstöðu hennar.
Með þessum vanhugsuðu aðgerðum
fékk íslenskur almenningur þau
skilaboð frá Hollustuvernd að sól-
vörn væri óhollt og jafnvel skaðlegt
efni. Þar sem umræddar UV-síur er
að finna í fjölmörgum tegundum sól-
varnarefna er hætt við að margt fólk
líti allar tegundir sólvarnar hornauga
hér eftir og takmarki notkunina eða
hætti henni alveg. Dæmin sanna að
þegar slíkt efni hefur einu sinni verið
gert tortryggilegt getur liðið óratími
þar til það ávinnur sér traust al-
mennings á ný.
Það er afar mikilvægt að almenn-
ingur geti treyst því að opinberar
stofnanir eins og Hollustuvernd
byggi aðgerðir sínar á traustum
grundvelli en svo var því miður ekki í
þessu tilviki. Ekki er sannað að sól-
varnarefni með umræddum UV-síum
valdi fólki heilsutjóni en hins vegar
er það fullsannað að sólböð geta verið
hættuleg heilsunni ef ekki eru notuð
sólvarnarefni. Áhætta vegna hugsan-
legs skaða vegna notkunar sólvarnar
er því miklu minni en sú áhætta sem
fólk tekur ef það hættir notkun slíkra
efna.
Aðgát skal höfð
í nærveru sólar
Ljóst er að húðkrabbamein er vax-
andi vandamál hér á landi. Hafa
læknar varað fólk við miklum sólböð-
um og bent á að góð sól-
vörn sé áhrifaríkasta
leiðin til að draga úr
hættu á húðkrabbameini
og öðrum húðsjúkdóm-
um. Hinn langi íslenski
vetur gerir það að verk-
um að fölir Íslendingar
eru næmari fyrir sterk-
um sólargeislum en
margar aðrar þjóðir og
þurfa því fremur að hafa
sólvarnir sínar í lagi. Sól-
varnarefni eru því sann-
kallaðar heilsuvörur og
mikill ábyrgðarhluti hjá
opinberri stofnun að
rýra trú almennings á
þær að lítt athuguðu
máli. Eru það óneitanlega sérkenni-
leg vinnubrögð að rjúka til og vara
fólk við tegundum sólvarnarefna,
sem hafa verið á
markaði hérlendis ár-
um og áratugum sam-
an, án þess að kanna
málið ofan í kjölinn.
Hollustuvernd dró
tilmæli sín til baka
með fréttatilkynningu
27. apríl eða tveimur
dögum eftir að tilmæl-
in voru send út. Í til-
kynningunni kemur
fram að umrædd efni
geti ekki verið hættu-
leg við skammtíma-
notkun heldur sé um
að ræða „hugsanleg
skaðleg langtíma-
áhrif“. Þá tekur stofn-
unin fram að ekki liggi fyrir upplýs-
ingar um að efnin séu skaðleg fyrir
fólk í því magni sem þau eru leyfð í
sólvarnarefnum og ráðleggur fólki að
nota viðeigandi sólvarnarvörur til að
verjast sólbruna.
Vítaverð vinnubrögð
Umrædd fréttatilkynning Holl-
ustuverndar tekur af öll tvímæli um
að betra er fyrir fólk að nota sólvarn-
arvörur en sleppa þeim. Hins vegar
er ljóst að fljótfærnisleg viðbrögð
stofnunarinnar hafa valdið innflytj-
endum sólvarnarefna skaða og lík-
lega dregið úr trú neytenda á slíkar
vörur. Í ljósi þessa gagnrýna Samtök
verslunarinnar vinnubrögð Hollustu-
verndar ríkisins í nýafstöðnu sól-
varnarefnamáli og telja það vera
skólabókardæmi um slæm vinnu-
brögð við slíkar aðstæður.
Kapp er best
með forsjá
Stefán S.
Guðjónsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Samtaka verslunarinnar – FÍS.
Hollustuvernd
Samtök verslunarinnar
gagnrýna vinnubrögð
Hollustuverndar rík-
isins í nýafstöðnu sól-
varnarefnamáli, segir
Stefán S. Guðjónsson,
og telja það vera skóla-
bókardæmi um slæm
vinnubrögð.