Morgunblaðið - 18.05.2001, Síða 60
DAGBÓK
60 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Rich-
mond Park kemur í
dag. Skógafoss fer í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Er-
idan fór í gær.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 14
bingó.
Árskógar 4. Föstudag-
inn 18. og laugardaginn
19. maí verður hin ár-
lega handverkssýning
í félagsmiðstöðinni.
Undirbúningur fyrir
sýninguna verður alla
þessa viku og mun því
hin venjulega dagskrá í
handavinnustofunum
vera í lámarki af þess-
um sökum. Margt muna
verður á sýningunni,
skemmtiatriði verða
báða dagana og mun
Gerðubergskórinn koma
og syngja fyrir gesti á
föstudag kl. 14.30 og á
laugardaginn mun Hall-
dóra Björnsdóttir leik-
kona flytja vorljóð kl.
14.30. Kaffi og meðlæti
verður selt á meðan
sýningin er. Sýningin
verður opin milli kl. 13
og 17 báða dagana.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30 böð-
un, kl. 9 bókband, kl. 9–
16 handavinna og fóta-
aðgerðir, kl. 13 vefnaður
og spilað í sal.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, á Kjalarnesi og
í Kjós. Félagsstarfið á
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og föndur.
Pútttímar í íþróttahús-
inu að Varmá kl. 10–11 á
laugard. Jóga kl. 13.30–
14.30 á föstud. í dvalar-
heimilinu Hlaðhömrum.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun, hárgreiðslu-
stofan og handavinnu-
stofan opin, kl. 9.45 leik-
fimi, kl. 13.30
gönguhópur. Handa-
vinnusýning föstudag og
laugardag frá kl. 13-17
kaffiveitingar.
Félagsstarfið Sléttu-
vegi 11-13. Handa-
vinnusýningin verður
föstudaginn 18. maí kl.
13.30-18. Allir velkomn-
ir.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl. 10.30 guðþjónusta,
kl. 13 „opið hús“, spilað
á spil.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Púttæfingar á Hrafn-
istuvelli kl. 14–16. Á
morgun, laugardags-
gangan kl. 10. Ferð á
Njáluslóðir fimmtudag-
inn 7. júní nk. og 3 daga
ferð til Hornafjarðar 9.
júlí Skráning hafin, allar
upplýsingar í Hraunseli
sími 555 0142. Vegna
verkfalls Hlífar verður
fyrirhugaðri sýningu á
handverki eldri borgara,
er átti að vera 17., 18.
og 19. maí, frestað um
óákveðinn tíma, fylgist
með fréttum.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10–13. Matur í hádeg-
inu. Miðvikudagur:
Göngu-Hrólfar fara í
létta göngu frá Hlemmi
kl. 9.45. Þriðjudaginn
29. maí verður farin
stutt vorferð í Hafn-
arfjörð og Heiðmörk.
Lagt verður af stað kl.
13. og leið lögð um
Hafnarfjörð og þar lit-
ast um undir leiðsögn
Rúnars Brynjólfssonar.
Síðan er ekið um Heið-
mörkina, staldrað þar
við og Vatnsveita
Reykjavíkur skoðuð. Að
lokum eru kaffiveitingar
í boði Orkuveitu
Reykjavíkur. Brottför
frá Glæsibæ kl. 13.
Leiðsögn Páll Gíslason
og Pálína Jónsdóttir.
Skráning hafin. 6.-8.
júní ferð til Vest-
mannaeyja. Skoð-
unarferðir um eyjuna.
Gisting á Hótel Þórs-
hamri. Nokkur sæti
laus. Ath. lækkað verð.
10.-12. júní Skaftafells-
sýslur. Þriggja daga
ferð um Skaftafells-
sýslur, komið að Skóga-
fossi o.fl. fallegum stöð-
um á Suðurlandi. Gist á
Hótel Eddu,
Kirkjubæjarklaustri.
Ath. þeir sem pantað
hafa pláss í Vest-
fjarðaferð 2.-7. júlí vin-
samlegast staðfestið
sem fyrst, vegna fjölda
þátttakenda. Upplýs-
ingar í síma 588 2111
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 13 opin
vinnustofa, kl. 9.30
gönguhópur, kl. 14
brids. Árleg vorsýning,
sýnishorn af afrakstri
vetrarins, margvísleg
handmennt, föstudaginn
18. maí opið kl. 9-16.30,
kl. 15 syngja kátir karl-
ar, laugardag 19. maí
opið frá kl. 13-17, á
mánudag 21. maí opið
frá kl. 9–16.30. Félags-
vist fellur niður á mánu-
dag.
Gerðuberg, Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar frá
hádegi, spilasalur opinn.
Veitingar í kaffihúsi
Gerðubergs. Allar upp-
lýsingar um starfsemina
á staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm- og silfur-
smíði, kl. 13 bókband,
kl. 9.15 vefnaður.
Hraunbær 105. Kl. 9–12
baðþjónusta og út-
skurður, kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 9–12.30
bútasaumur, kl. 11 leik-
fimi og spurt og spjall-
að.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
baðþjónusta og hár-
greiðsla, kl. 9–12.30
bútasaumur, kl. 11 leik-
fimi. Handavinnusýning
verður sunnudaginn 20.
og mánud. 21. maí.
Skemmtiatriði, harm-
ónikkuleikur og karla-
kórssöngur, veislukaffi
opið báða daga frá kl.
13-17. Allir velkomnir.
Norðurbrún 1. Kl. 9
hárgreiðsla, kl. 9–12.30
útskurður, kl. 10 boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15 handavinna, kl.
13 sungið við flygilinn,
kl. 14.30 dansað í að-
alsal. Miðvikudaginn 23.
maí eru pönnukökur
með rjóma í kaffitím-
anum, föstudaginn 25.
maí verður veislukaffi
og dansað í kaffitím-
anum undir stjórn Sig-
valda. Gott með kaffinu.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
bókband og morgun-
stund, kl. 10 leikfimi og
fótaaðgerðir, kl. 13.30
bingó.
Þjónustuíbúðir aldr-
aðra, Dalbraut 27. Báta-
sýning. Diðrik Jónsson,
Dalbraut 27, fæddur
1914, sýnir bátasmíði
sína frá undanförnum
árum á Dalbraut 27.
Sýningin verður opnuð
föstudaginn 18. maí nk.
og verður opin virka
daga frá kl. 13-16. Upp-
lýsingar gefur Arndís í
síma 568-5377
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Spilað kl. 13.15.
Allir eldri borgarar vel-
komnir.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára 13
kl. 10 á laugardögum.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur
verður á morgun kl. 21 í
Konnakoti, Hverfisgötu
105, Nýir félagar vel-
komnir. Muni gönguna
mánudag og fimmtudag.
Kiwanisklúbburinn
Geysir í Mosfellsbæ
heldur spilavist í kvöld
kl. 20.30 í félags-
heimilinu Leirvogs-
tungu. Kaffi og meðlæti.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum (16-25
ára) að mæta með börn-
in sín á laugardögum kl.
15–17 á Geysi, kakóbar,
Aðalstræti 2 (gengið inn
Vesturgötumegin). Opið
hús og kaffi á könnunni,
djús, leikföng og dýnur
fyrir börnin.
Seyðfirðingar. Aðal-
fundur Seyðfirðinga-
félagins verður haldinn
sunnudaginn 20. maí kl.
15 á Gjábakka, Fann-
borg 8. Mætum vel og
stundvíslega.
Haukar, öldungaráð.
Sumarferðin er 13. júní.
Skráning í símum 555-
0176 eða 555-0852.
Skagfirðingafélagið í
Reykjavík verður með
boð fyrir eldri Skagfirð-
inga í Reykjavík og ná-
grenni í Drangey,
Stakkahlíð 17, sunnu-
daginn 20. maí kl. 14.
Söngsveitin Drangey
kemur og syngur.
Í dag er föstudagur 18. maí, 138.
dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Hafið gát á, að enginn missi af
Guðs náð, að engin beiskjurót
renni upp, sem truflun valdi,
og margir saurgist af.
(Hebr. 12, 15.)
Víkverji skrifar...
KRÓNAN þykir eiga undir höggað sækja um þessar mundir.
Þær raddir eru farnar að heyrast að
best sé að kasta krónunni og fara að
huga að því að laumast með einhverj-
um hætti inn í evruna. Þeir eru þó
fleiri sem telja að rétt sé að halda í
krónuna. Fæstir hafa hins vegar átt-
að sig á því að til er þriðja leiðin og má
þakka hana evrunni. Svo vill til að
brátt losna nokkrir gjaldmiðlar, sum-
ir mjög öflugir, og þeirra máttkastur
sennilega þýska markið.
Ljóst er að það myndi styrkja
stöðu íslensks efnahagslífs mjög að
hafa sterkari gjaldmiðil en krónuna.
Evran mundi taka frá okkur dýrmætt
hagstjórnartæki, en með því að taka
upp þýska markið þegar það losnar
væri engu fórnað í þeim efnum.
Það er næsta víst að hægt yrði að
fá miklar birgðir af þýskum mörkum,
bæði seðlum og mynt, fyrir lítið fé
þegar þar að kemur – þótt ekki væri
nema fyrir þær sakir hvað Þjóðverjar
eru meðvitaðir um umhverfi sitt og
hlynntir endurnýtingu.
Óhætt er að segja að þýska mark-
inu myndu fylgja ýmsir kostir. Hér er
um að ræða vörumerki sem nýtur
mikils trausts. Mætti því ætla að hinn
nýji gjaldmiðill Íslendinga yrði mjög
eftirsóttur og biði Seðlabankinn þá
það óvænta hlutskipti að þurfa sífellt
að selja gjaldeyri í stað þess að kaupa.
Þá mundi það virka sem agn á
Þjóðverja, sem eru fastheldnir á hefð-
ir og munu án efa sakna síns gamla
gjaldmiðils, að vita af því að þýska
markið sé í fullu gildi uppi við heim-
skautsbaug. Mætti búast við því að
þeir ferðuðust í auknum mæli til Ís-
lands til að endurupplifa þá gömlu til-
finningu að geta notað þýsk mörk.
Síðan væri hægt að ákveða gengi
marksins með þeim hætti að Þjóð-
verjunum fyndist sem þeir væru að fá
gríðarlega mikið fyrir peninginn á Ís-
landi og vega þannig upp á móti hinni
þýsku sparnaðarhneigð.
Ekki má heldur gleyma lykil-
hlutverki marksins í að tryggja
stöðugleika evrunnar. Það þyrfti síð-
ur en svo að breytast þótt þýska
markið yrði gjaldmiðill á Íslandi.
Hagfræðin segir að ekki borgi sig
að geyma öll eggin í sömu körfunni og
því væri óþarfi að treysta eingöngu á
þýska markið. Við gætum einnig
tryggt okkur réttinn að franska
frankanum, hollenska gyllininu og
fyrir spaugs sakir ítölsku lírunni. Síð-
an væri hægt að efla samskiptin við
viðkomandi þjóðir með því að hafa
franska, hollenska eða ítalska mynt-
mánuði. Þær Evrópuþjóðir, sem eru í
þann mund að fórna gjaldmiðlum sín-
um á altari Evrópuhugsjónarinnar,
munu fyllast þakklæti í garð eyþjóð-
arinnar í norðri og myndi þessi hlý-
hugur án nokkurs vafa skila sér þeg-
ar við loks komumst aftur inn í
söngvakeppni Evrópu.
Um leið gætum við með þessum
hætti snúið við taflinu í Evrópumál-
unum. Í stað þess að standa með nefið
við gluggann og horfa inn í veisluna í
hinum eftirsótta Evrópuklúbbi hefð-
um við tögl og hagldir í evrópsku
efnahagslífi. Og þá er bara að vona að
við kunnum með það vald að fara.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 skjálfa, 4 ber að, 7
kjána, 8 úrkomu, 9 for, 11
einkenni, 13 grasflötur,
14 snupra, 15 ómjúk, 17
stöð, 20 reykja, 22 reiði,
23 blæs kalt, 24 vesæll, 25
skynfærið.
LÓÐRÉTT:
1 orða, 2 doka við, 3 kven-
fugl, 4 urgur, 5 snjó-
koma, 6 hroki, 10 sælu, 12
land, 13 hryggur, 15
aftra, 16 tölum um, 18
erfið, 19 mergðin, 20
hugarburður, 21 kasta
mæðinni.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 strekking, 8 föggur, 9 náðug, 10 ann, 11 skarn,
13 aurar, 15 stund, 18 saggi, 21 ónn, 22 nánös, 23 æfing,
24 brandarar.
Lóðrétt: 2 tugga, 3 ekran, 4 kenna, 5 níðir, 6 afls, 7 Æg-
ir, 12 Rán, 14 una, 15 senn, 16 unnur, 17 dósin, 18 snæða,
19 gripa, 20 Inga.
MIG langar að senda
stjórnendum á Hrafn-
istu í Hafnarfirði og alls
hins góða starfsfólks
sem þar vinnur, þakk-
læti mitt. Sérstaklega
langar mig að þakka
Böðvari Magnússyni,
sem sér um að halda
uppi fjöri. Hann stofn-
aði Hrafnistukórinn 21.
september árið 2000 og
hefur kórinn farið víða
til þess að syngja fyrir
eldri borgara og gefa af
sér á þeim vettvangi.
Og ekki má gleyma
góðu konunum í fönd-
ursal fyrir þeirra hlýju.
Ég gæti haldið svona
lengi áfram, því af
mörgu er að taka.
Þakka fyrir mig,
Njótandi.
Nýi heilbrigðis-
og trygginga-
ráðherrann
ÖRYRKI skrifaði Vel-
vakanda eftirfarandi.
Það eru miklar vonir
bundnar við að nýi heil-
brigðisráherrann klári
dæmið gagnvart okkur
öryrkjum og öldruðum
og sýni okkur að það sé
fólk í fyrirrúmi, en ekki
annars flokks þegnar í
þessu þjóðfélagi. Bætur
eiga að fylgja launavísi-
tölunni. Hvernig væri
nú að skattleggja þá
sem raka saman gróða
á Íslandi í dag, og nota
þá fjármuni til að bæta
kjör aldraðra og ör-
yrkja? Það er nú einu
sinni þannig, að sam-
starfsflokkur framsókn-
ar ræður ferðinni í fjár-
málum, en ráðherra
framsóknar fær óvin-
sælustu og erfiðustu
ráðherrastöðuna. Jón
Kristjánsson er ekki öf-
undsverður af því ráðu-
neyti, sem honum er
falið og þurfa að sækja
allt fjármagn til fjár-
málaráðherra til að
deila bróðurlega út til
aldraðra og öryrkja.
Samt sem áður er mik-
ils vænst af Jóni Krist-
jánssyni til að bæta
kjör aldraðra og ör-
yrkja. Megi góður guð
hjálpa honum að ná
settu marki.
Tapað/fundið
Gleraugu í óskilum
GLERAUGU fundust í
Garðabæ (Silfurtúni),
sunnudaginn 13. maí sl.
Upplýsingar í síma 896-
0311.
Hálsmen tapaðist
SILFURHÁLSMEN,
sem er stjarna með
hring í kringum, tapað-
ist 7. maí sl. Gæti hafa
tapast í Leið 3 frá Ár-
múlaskóla að Borgar-
spítala. Fundarlaun.
Upplýsingar í síma 553-
1833.
Dýrahald
Þrjá kettlinga
vantar heimili
ÞRÍR litlir kettlingar
fást gefins á góð heim-
ili. Þeir eru kassavanir.
Uppl. í s. 565-3422.
Hefur einhver séð
Jón svartfót?
KÖTTURINN Jón
svartfótur hvarf af
heimili sínu, Flókagötu
62, 12. maí sl. Hann er
bröndóttur, svartur og
hvítur, auðþekkjanlegur
af svörtum bletti á nef-
inu. Hann er með rauða
ól og merktur. Þeir sem
geta gefið uppl. um af-
drif hans eru vinsam-
legast beðnir um að
hringja í síma 865 2297
eða 562 8389.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þakkir til
Hrafnistu í
Hafnarfirði
SAMHLIÐA ofurmótinu í
Dos Hermanas fór fram
lokað mót sem var skipað
prýðilegum stórmeisturum.
Staðan kom upp á milli
tveggja þeirra. Hvítt hafði
Oleg Korneev (2572) gegn
Manuel Rivas Pastor
(2429). 19. Rcxe4! Db6
19...dxe4 er svarað með 20.
Dc3 og drottning svarts
fellur. Framhaldið varð: 20.
Rxc5! Dxc5 21. Hxf7 Kg8
og svartur gafst upp um
leið enda verður staða hans
ekki fögur á að líta eftir 22.
Hg7! Kh8 23. Hxh7 Kg8 24.
Hg7 Kh8 25. Re6 og hvítur
mátar. Lokastaða flokksins
varð þessi: 1. Daniel H
Campora 6 ½ vinning af 9
mögulegum. 2. Oleg Korn-
eev 6 v. 3. Kevin Spraggett
5 ½ v. 4. Roberto Cifuentes
Parada 5 v. 5. Manuel Riv-
as Pastor 4½ v. 6.–7. Jose
Luis Fernandez Garcia og
Javier Moreno Carnero 4 v.
8. Ismael Teran Alvarez
3½ v. 9.–10. Josep Oms
Pallise og Fernando Vega
Holm 3 v. Skákfélag Ak-
ureyrar heldur atskákmót
sem hefst kl. 20:00 á Hótel
KEA á Akureyri í kvöld,
18. maí. Keppninni verður
framhaldið á morgun.
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
SKÁK
Hvítur á leik.