Morgunblaðið - 18.05.2001, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 18.05.2001, Qupperneq 61
50 ÁRA afmæli. Ámorgun 19. maí verð- ur fimmtugur Guðmundur Karl Tómasson, rafvirkja- meistari, Efstahrauni 18, Grindavík. Í tilefni þess taka hann og kona hans, Kristrún Bragadóttir, á móti gestum í Sjávarperl- unni í Grindavík kl. 19-23. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2001 61 DAGBÓK Árnað heilla 70 ÁRA afmæli. Ámorgun laugardag- inn 19. maí verður sjötug Hulda A. Kristjánsdóttir, Hjarðartúni 1, Ólafsvík. Hún tekur á móti gestum í félagsheimilinu Klifi, Ólafs- vík, frá kl. 17–21. 60 ÁRA afmæli. Nk. mánudag 21. maí verða sextugirbræðurnir Hólmsteinn og Unnsteinn Arasynir. Þeir taka á móti gestum laugardaginn 19. maí í Samkomuhúsinu í Borgarnesi frá kl. 20. Rúta frá Sæmundi Sigmundssyni fer frá BSÍ kl. 19.30 og til baka síðar um kvöldið. STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake NAUT Afmælisbarn dagsins: Samviskusemi og heiðarleiki eru þitt aðalsmerki og þú ert þekktur fyrir að standa við orð þín. Skjól heimilisins er þér ákaflega mikilvægt. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það er góð regla að skrifa niður verkefnalistann þegar margt er á döfinni. Síðan er að ganga skipulega til verks. Naut (20. apríl - 20. maí)  Hvar sem þú kemur rekurðu þig á vegg þegar þú berð upp spurningar þínar. Breyttu um aðferð og vertu ögn þol- inmóðari í framsetningu. Þá færðu svör. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þótt mörg verkefni hafi hlað- ist upp hjá þér er engin ástæða til að örvænta. Þú hefur alla burði til að leysa þau auðveldlega og tafar- laust. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Það er margt að gerast í kringum þig og þú mátt hafa þig allan við að straumurinn hrífi þig ekki með sér. Vertu staðfastur og þá fer allt vel að lokum. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Varastu að láta hugmynda- flugið hlaupa með þig í gön- ur. Reyndu að koma skikki á hlutina og skila því starfi sem þér er ætlað. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú ert að brjótast í þeim málum sem þér finnast þér ofvaxin. En vertu þolinmóður því sannleikurinn stendur nær þér en þú heldur. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Það er eitthvert sambands- leysi sem veldur því að þú ert ekki í þeim sporum sem þú vildir helst standa. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Það er ósköp notalegt að finna það að aðrir geta glaðst yfir velgengni manns. Sýndu því öðrum það sama og taktu þátt í þeirra hamingju. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Nú er ekkert sem heitir að þú verður að taka til á skrif- borðinu þínu og klára öll þau verk sem þú hefur tekið að þér. Annars fer allt úr bönd- unum hjá þér. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú átt að þekkja reglurnar í samfélaginu og vita að þær eru ekki settar þér til höfuðs heldur til þess að vernda fólk gegn þeim sem ekki virðir rétt annarra. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Eitt og annað nýstárlegt mun reka á fjörur þínar. Vertu óhræddur við að kanna þessa hluti og draga síðan af þeim lærdóm sem þú getur nýtt þér til framtíðar- innar. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það fer þér ekki að troða þér í annarra skó. Þér vegnar best ef þú ert bara þú sjálfur. Mundu að grasið er ekkert grænna handan hornsins. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Bridsfélag Reykjavíkur Þriðjudagskvöld Síðasta keppni BR á þriðjudögum var þriggja kvölda Sumar Monrad Barómeter með þátttöku 28 para. Lokastaða efstu para varð þessi: Friðjón Þórhallss. – Símon Símonars. +180 Vignir Hauksson – Guðjón Bragason +124 Aðalsteinn Sveinss. – Sigurjón Karlss. +109 Hallgr. Hallgrímss. – Guðm. Baldurs. + 95 Ísak Örn Sigurðsson – Ómar Olgeirsson+ 63 Stefanía Sigurbjörnsd. – Páll A. Jónss. +63 Þetta var síðasta keppni félagsins í vetur. Sumarbrids að hefjast Sumarbrids hefst fimmtudaginn 17. maí. Spilað verður fjóra daga vik- unnar, mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga. Byrjað er að spila kl. 19 og spiluð verða 27–28 spil á hverju kvöldi. Spilafyrirkomu- lag verður Mitchell, Howell og Monrad Barómeter. Notuð verða forgefin spil hvert kvöld og verður reiknuð út staða hvers kvölds eftir hverja umferð. Spilarar fá afhenta spilagjöf eftir hvert kvöld og úrslit verða birt í textavarpi sjónvarpsins á síðu 326 og á Netinu á vefslóðinni www.islandia.is/svenni Vikudagskráin verður þannig til að byrja með: Mánud.: Mitchell-tvímenningur Þriðjudagur: Mitchell-tvímenn- ingur og verðlaunapottur. Fimmtud.: Monrad Barómeter Föstudagur: Mitchell-tvímenning- ur og miðnætursveitakeppni. Veitt verða vegleg verðlaun fyrir sigurvegara hvers kvölds auk þess sem boðið verður upp á aukaverð- laun og verðlaunakeppnir allt sum- arið. Dagskráin gæti breyst þegar líða tekur á sumarið en verður þá auglýst vel hverju sinni. Stefnt verður að minnst einu hraðspilamóti svo dæmi sé tekið. Keppnisgjald er 700 kr. á spilara á hverju kvöldi. Spilarar sem eru 20 ára og yngri spila frítt í boði Brids- sambands Íslands. Umsjónarmaður Sumarbrids í umboði Bridssam- bands Íslands er Sveinn Rúnar Ei- ríksson (s. 899 0928). BRIDS U m s j ó n A r n ó r G . R a g n a r s s o n Mini NM, Stokkhólmi Um næstu helgi verður spilað svo- kallað Mini-NM í Stokkhólmi, en þetta er æfingamót fyrir Evrópu- mótið á Tenerife í júní. Öll Norður- löndin senda landslið til keppninnar, en fyrir Íslands hönd spila Þorlákur Jónsson – Matthías Þorvaldsson og Magnús E. Magnússon – Þröstur Ingimarsson. Hægt verður að fylgjast með mótinu á heimasíðu Bridssambands- ins www.bridge.is Bridsdeild Barðstrendinga og Bridsfélag kvenna Mánudaginn 14. maí sl. var síðasta spilakvöld okkar á þessu vori. Spil- aður var Mitchell-tvímenningur. 26 pör mættu. Meðalskor var 312 stig. Bestu skor í N/S Jón St. Ingólfss. – Loftur Péturss. 368 Arngunnur Jónsd. – Soffía Daníelsd. 354 Hjálmar S. Pálss. – Gísli Steingrímss. 336 Halldóra Magnúsd. – Hulda Hjálmarsd. 336 Bestu skor í A/V Guðlaugur Sveinss. – Guðlaugur Nielsen 377 Haraldur Ingas. – Hafþór Kristjánss. 364 Jón Stefánss. – Torfi Ásgeirss. 351 Hermann Friðrikss. – Kristinn Þóriss. 346 Þátttakendur í vetur voru 1.422. 193 spilarar skiptu með sér 11.069 bronsstigum. Bronsstigameistari kvenna varð María Haraldsdóttir. Bronsstigameistari karla varð Guð- laugur Sveinsson. Spilakvöld í vetur voru 30. Sendum bestu óskir um gleðilegt sumar. 90ÁRA og 85 ÁRA afmæli. Í dag 18. maí verður níræðurSigurbergur Frímannsson og 85 ára Aðalheiður Kristinsdóttir. Þau bjuggu í Skíðsholtum í Hraunhreppi á Mýrum um 30 ára skeið. Sigurbergur hefur dvalið í Dval- arheimili aldraðra í Borgarnesi en Aðalheiður búið hjá dóttur sinni í Svíþjóð. Þau eyða deginum með ættingjum og vinum á heimili sonar síns og tengdadóttur í Frostafold 117, Rvík. GEFNAR hafa verið út margar bækur með heilræð- um fyrir bridsspilara. Jón Baldursson var eitt sinn fenginn til að gefa slíkt heil- ræði og grunntónninn í því var þessi: „Vertu virkur í sögnum.“ Allir sem þekkja Jón vita að pass er ekki eft- irlætissögnin hans – hann meldar ef hann mögulega getur. En hver eru rökin? Þau eru mörg. Til dæmis má nefna að virkni í sögnum einfaldar oft vörnina. Hér er spil frá síðasta hálfleiknum í Bikarkeppni Norður- landanna, þar sem Ísland mætti Færeyjum. Jón var í vestur – á óhagstæðum hættum – en gat þó ekki stillt sig um að stinga inn sögn á fimm hunda í hjarta. Það hafði úrslitaáhrif á framvinduna: Suður gefur; AV á hættu. Norður ♠ D ♥ ÁKD95 ♦ 852 ♣ D1063 Vestur Austur ♠ ÁG9 ♠ 1087532 ♥ 87643 ♥ 102 ♦ DG4 ♦ 93 ♣ G2 ♣ Á98 Suður ♠ K64 ♥ G ♦ ÁK1076 ♣ K754 Spilað var á sex borðum og þetta var algengasta sagnröðin: Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 1 tígull Pass 1 hjarta Pass 2 lauf Pass 2 spaðar * Pass 2 grönd Pass 3 grönd Allir pass Eftir þessar sagnir kom vestur iðulega út með hjarta en sagnhafi átti þá létt verk fyrir höndum og fékk 11 slagi. Jón átti djarflega innákomu á hjarta: Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 1 tígull 1 hjarta PASS Pass Dobl Pass Pass 1 spaði 2 lauf Pass 2 spaðar Pass 2 grönd Pass 3 grönd Allir pass Norður gildrupassaði hjartainnákomuna og sat svo í einu hjarta dobluðu. Karl Sigurhjartarson, makker Jóns, flúði þá í spað- ann og síðan lá leið NS upp í þrjú grönd. Hjartaútspil kom nú ekki lengur til álita og Jón lagði niður spaðaás- inn! Sem er eina útkoman sem drepur samninginn. Sagnhafi dúkkaði næsta spaða, fékk svo á kónginn og gat ekki annað en farið í laufið. Karl komst inn á ás- inn og tók fríspaðana – tveir niður. Karl þakkaði makker út- spilið og hið „útspilsfrávís- andi“ hjartaströgl. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson LJÓÐABROT HIN MIKLA GJÖF Hin mikla gjöf, sem mér af náð er veitt og mannleg ránshönd seint fær komizt að, er vitund þess að verða aldrei neitt. Mín vinnulaun og sigurgleði er það. Margt getur skeð. – Og nú er heims stríð háð, og hönd hvers manns er kreppt um stál og blý. En eitt er til, sem ei með vopni er náð, þótt allra landa herir sæki að því. - - - Steinn Steinarr. 75 ÁRA afmæli. Í dagföstudaginn 18. maí, verður 75 ára Gísli G. Ís- leifsson, hæstaréttarlög- maður, Snekkjuvogi, Stokkseyri. Hann verður að heiman á afmælisdaginn. Með morgunkaffinu Af hverju í ósköpunum kemur þú aldr- ei yfir til að kvarta? Laugavegi 54 - Sími 25201 Kvartbuxur frá 3.990 Skokkar frá 2.990 Sumarbolir frá 1.990 stærðir 36-44 Elín Sigurðardóttir hefur opnað snyrtistofu í Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði, sími 555 6255 SUMARÚTSALA Skólavörðustíg 14 Við mætum óvissunni í efnahags- málum með því að bjóða upp á sumarútsölu. Mikil verðlækkun á góðum vörum Byrjum á morgun, laugardag, kl. 11.00—17.00
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.