Morgunblaðið - 18.05.2001, Side 63
BIRGI Andréssyni myndlistar-
manni voru nýlega veittir Ullarvett-
lingar Gallerís Áhaldahússins 2001.
Honum var veitt staðfestingarskjal
þess efnis við látlausa en hátíðlega
athöfn á horni Klapparstígs og
Grettisgötu. Þetta er í fyrsta sinn
sem viðurkenningin er veitt.
Gallerí Áhaldahúsið hefur verið
starfandi í tvö ár með heimili og
varnarþing nokkuð víða. Nú sem
stendur er það starfrækt í vasa
framkvæmda- og sýningastjóra
þess, Benedikts Gestssonar. Gallerí-
ið hefur reynt að halda uppi öflugri
starfsemi í þágu myndlistar í land-
inu, og eru viðurkenningin Ullar-
vettlingarnir einn liður í því, en
stefnt er á að veita þá ár hvert héð-
an í frá.
Til þess að standa vörð um þjóð-
legar hneigðir og forn gen sem
leynst gætu með íslenskum mynd-
listarmönnum var ákveðið að veita
viðurkenningu þeim myndlistar-
manni sem ræktar hvað frumlegast
slíkan arf í myndsköpun sinni, og
uppfyllir Birgir Andrésson öll þau
skilyrði.
Í því skyni var ákveðið að prjóna
ullarvettlinga úr íslenskum lopa í
þeim litum sem hvað ríkulegastir
hafa verið í prjónlesi þjóðarinnar
allt frá landnámi.
Benedikt segir ástæður þess að
ákveðið var að hafa viðurkenn-
inguna í formi ullarvettlinga vera
þrjár. Fyrst það að hráefnið sjálft
er fengið af reyfi sannanlegrar land-
námsrollu. Í annan stað vegna hins
grípandi forms vettlinganna, og í
þriðja lagi vegna þeirrar vísunar
sem prjónaskapur hefur til list- og
handmennta á íslenskum baðstofu-
loftum allt til vorra daga. „Og síðast
en ekki síst vegna þess að myndlist-
armönnum á Íslandi hefur alltaf
verið kalt,“ bætir framkvæmda-
stjórinn Benedikt við að lokum.
Gallerí Áhaldahúsið veitir Ullarvettlingana
Vísun í hand-
menntir á bað-
stofuloftum
Birgir Andrésson veitir viðurkenningarskjalinu viðtöku hjá sýningar-
og framkvæmdastjóra Gallerís Áhaldahússins, Benedikt Gestssyni.
Ljósmynd/Odd Stefán
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2001 63
Hálft í hvoru
Vesturgötu 2, sími 551 8900
Nýr matseðill,
léttir og spennandi réttir
EINS OG áður hefur komið fram í
Morgunblaðinu hélt Borgarholts-
skóli í Grafarvogi spurningakeppni
fyrir grunnskólana í Grafarvogi og
Mosfellsbæ nú í byrjun maí. Til-
gangurinn með keppninni var að
vekja athygli á framhaldsskólanum
í hverfinu og ekki síður að leita eft-
ir efnilegum kandídötum í framtíð-
arlið Borgarholtsskóla í Gettu bet-
ur, spurningakeppni fram-
haldsskóla.
Hamraskóli sigraði Rimaskóla í
úrslitaviðureign. Bæði liðin komu
vel undirbúin en úrslitin voru af-
gerandi.
Í Hamraskóla varð mikill fögn-
uður, ekki síður en í Borgarholts-
skóla fyrr, eftir að skólinn hafði
sigrað í þessari skemmtilegu
keppni. Jafnt yngstu nemendurnir
sem hinir eldri horfðu með aðdáun-
araugum á voldugan verðlaunagrip
sem skólinn fékk að launum.
Sigursveit Hamraskóla skipuðu
Guðrún Lísa Einarsdóttir, Hildur
Sif Haraldsdóttir og Jónas Örn
Helgason.
Lið Rimaskóla var ánægt með keppnina og eigin frammistöðu: Daníel
Ólafsson, Helga Aradóttir og Ívar Kristleifsson.
Sigurlið Hamraskóla með forláta verðlaunagrip sem unninn var af
málmsmíðadeild skólans. Guðrún Lísa, Hildur Sif og Jónas Örn ásamt
Yngva Hagalínssyni skólastjóra.
Spurningakeppni grunnskólanna í Grafarvogi
Afgerandi úrslit
Í KVÖLD er seinasta sýningin í vor
á einleiknum Kontrabassanum
eftir Patrick Süskind, þar sem Ell-
ert A. Ingimundarson leikur
kontrabassaleikara í sinfóníu-
hljómsveit.
„Ég á alveg örugglega eftir að
sakna hans,“ segir Ellert. „Það er
búið að vera alveg meiriháttar að
fá að vera einn með honum og fólk
að fylgjast með. En þetta er líka
sérstök reynsla þar sem maður
hefur engan annan að treysta á en
sjálfan sig,“ segir Ellert og lofar
að þeir sem enn hafa ekki fengið
að kynnast kontrabassaleikaran-
um, vonbrigðum hans og sigrum í
lífinu, fái tækifæri til þess í haust
þegar hann stígur aftur upp á svið.
Hvernig hefurðu það í dag?
Svolítið kvefaður.
Hvað ertu með í vösunum í augna-
blikinu?
Lyklana og veskið.
Ef þú værir ekki leikari hvað vild-
irðu þá helst vera?
Ég veit það ekki. Ef það
hefur einhvern tímann
verið eitthvað annað, þá
er svo langt síðan að ég
man það ekki.
Wham eða Duran Duran?
Ha, ha, ái... þetta er sárt. Hvað
er það nú eiginlega? Var ekki Dur-
an Duran með James Bond-lag?
Ég held upp á James Bond þannig
að ég kýs Duran Duran út á það.
Hverjir voru fyrstu tónleikarnir
sem þú fórst á?
Það var skólaball með Rooftops
hm... í kringum 1970. Það var æð-
islegt.
Hver er þinn helsti veikleiki?
Það er hversu gaman ég hef af því
að ferðast. Ég verð alltaf að vera á
in the Dark. Það er engin skömm
að því.
Finndu fimm orð sem lýsa per-
sónuleika þínum vel
Áræðinn, vinur vina minna, fjöl-
skyldumaður, afslappaður og ég
hef gaman af hraða.
Hvaða lag kveikir blossann?
Ég set bara Dean Martin á.
Og þá dofna ljósin...
Hvert er þitt mesta
prakkarastrik?
Það er svo ljótt að ég
vil helst ekki segja
það. Ég sýndi hund-
unum í sveitinni hvar
músaholan var. Ég
skammast mín ennþá
fyrir það. Það var bara af
því að strákurinn sem var
með mér í sveit vildi það ekki.
Þetta var meira kvikindisskapur
en prakkaraskapur.
Hver er furðulegasti matur sem
þú hefur bragðað?
Kæstur hákarl.
Hvaða plötu keyptirðu síð-
ast?
Silungakvintettinn eftir
Schubert.
Hvaða leikari fer mest í
taugarnar á þér?
Eric Roberts, bróðir Júl-
íu. Hann er ömurleg-
ur.
Hverju sérðu mest
eftir í lífinu?
Ég sé ekki eftir
neinu.
Trúirðu á líf eftir
dauðann?
Já. Það hlýtur að
vera líf eftir dauð-
ann. Það er ekki bara
þetta.
Á ferð og flugi
SOS
SPURT & SVARAÐ
Ellert A.
Ingimundarson
ferð og flugi.
Hefurðu tárast í bíó?
Já, iðulega. Ég táraðist á Dancer