Morgunblaðið - 18.05.2001, Page 64
FÓLK Í FRÉTTUM
64 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er auðséð á
plötusölu síðustu viku
að margir hafa mætt í
Evróvisjónteiti síð-
ustu helgar vopnaðir
safnskífunni Pottþétt
Eurovision. Þrátt fyrir
að stigafjöldi íslenska
lagsins hafi verið eitt-
hvað takmarkaður er
víst að það hefur ver-
ið sungið hátt með mörgum öðrum lögum af
þessari safnplötu. Evróvisjónkvöldið í ár hverf-
ur okkur Íslendingum víst seint úr minni, hvort
sem það var vegna Two Tricky-ævintýrisins eða
stuðsins sem þessi plata veitti að lokinni
keppni.
Evróvisjón,
bros og tár
BANDARÍSKA rokk-
sveitin Godsmack
stekkur beint upp í
fimmta sæti Tón-
listans með aðra
plötu sína, Awake.
Íslenskir aðdá-
endur hennar hafa
líklega verið afar
óþolinmóðir í bið
sinni þar sem plat-
an kom út í Bandaríkjunum í fyrra. Hljómsveitin
sló í gegn hér á landi með lögunum „Whatever“
og „Keep away“ og verður spennandi að sjá
hvort nýja platan nær að fylgja vinsældum
þeirra laga eftir.
Godsmack
snýr aftur!
HÚN Vonda
Shepard
skaust upp
á stjörnu-
himininn
þegar hún
var ráðin
sem fasta-
gestur í sjón-
varpsþáttunum um hina örþunnu lögfræðings-
snót Ally McBeal sem Calista Flockhart leikur.
Hún hafði þó áður gefið út þrjár plötur en aldrei
náð sérlegum vinsældum. Það er greinilegt að
aðdáendur þáttanna kunna að meta tónlist
hennar því að nú er þriðja platan komin út og
fer hún beint í áttunda sæti Tónlistans.
Sjónvarps-
snót!
JÁ, hún Janet Jackson
lætur ekki bíða eftir
sér eins lengi og stóri
bróðir. Sex ár eru síð-
an Michael Jackson
sendi frá sér nýtt efni
en á þeim tíma hefur
Janet gefið út tvær
breiðskífur. Auglýs-
ingaherferðir þeirra
systkina ganga víst út
á ólíka hluti en það er
líklega bara vegna þess að Michael er ekki
með nægilega stór brjóst til þess að mynda
skoru. Á endanum hlýtur þó tónlistin að skipta
höfuðmáli. Eða er það ekki?
Janet skorar
á þig!
!
"
# $ %
&
# '
!
&
( $)%
!*
+
$ %
#$ ,-
.
%
$
#
$
/0
!" #$
%! &
' (
)!* +, -
,
.,/*! 0
1 2
3
,
4 &5 6
6
4! 7, !
68
$% !3 9:::
88;8 8;8 8 "
* %$
' )
6
,
& 1 !<
4
=
"
98
8
8
>8
?8
@8
A8
B8
:8
9C8
998
98
98
9>8
9?8
9@8
9A8
9B8
9:8
C8
98
8
8
>8
?8
@8
A8
B8
:8
C8
1
2
3
0
4
3
5
0
6
47
1
45
83
3
46
8
9
08
0
48
49
48
0
03
5
07
57
4
0
05
&
:;
&
:;
/
#
/
<
(
#
(=,
<
+$>
)=
# =
#
(=,
)=
/
(=,
<
#
/
#
(
<
(=,
(=,
"0
/
/
?@'
$A
B > C
D
CE
@'
& F
$ #-
'$A
C
=
-CC>
C
G)' ! H)'
HI $H+$>)
H+$>.
H+$> H=J>
=
!
K
H=J> =
='H#
'
.
H#>
.
H#>
03
98
8
8
>8
?8
@8
A8
B8
:8
9C8
998
98
98
9>8
9?8
9@8
9A8
9B8
9:8
C8
98
8
8
>8
?8
@8
A8
B8
:8
C8
'
(
)
0
9
4
1
L
5
49
09
8
43
47
44
3
6
2
41
42
40
06
45
46
07
34
L
01
11
00
L
50
97
PLATAN sem hér um ræðir er önn-
ur plata sænsku unglingasveitarinn-
ar A*Teens en hún er skipuð fjórum
ungmennum, tveimur stúlkum og
tveimur strákum. Hér er um þó
nokkra framför að ræða frá fyrra
verki en árið 1999 kom út platan
The Abba Generation, frekar vafa-
söm plata, uppfull af ABBA tökulög-
um í ekkert sérlega beisnum út-
gáfum. Eitt hundrað %
markaðsplott sem gekk líka eitt
hundrað % upp. Platan hefur nú
selst í um þremur milljónum eintaka
og í kjölfarið fór sveitin, þá skipuð
16 og 17 ára unglingum, í tónleika-
ferðalög um Bandaríkin með ekki
ómerkara fólki en N’Sync og Britn-
ey Spears.
En fyrir plötuna nýju, Teen Spir-
it, var afráðið að venda poppkvæði í
kross og styðjast við frumsamið
efni. Og það er sannarlega um auð-
ugan garð að gresja í Svíaríki hvað
fagurfræði poppframleiðslu viðvík-
ur, hver hagleiks-smellasmiðurinn á
fætur öðrum á kyn sitt að rekja
þangað um þessar mundir. Platan
ber þess og merki – svona að mestu
leyti. Ja…reyndar bara að hálfu
leyti.
Við þurfum strax í upphafi að átta
okkur á því að fyrirbæri eins og
A*Teens lýtur að flestu, ef ekki að
öllu leyti, lögmálum framleiðslu. Að
selja er númer eitt; hið listræna
gildi mætir afgangi þó það sé vissu-
lega kostur ef það slæðist með. Það
lætur reyndar blessunarlega á sér
kræla á þessari plötu en var víðs-
fjarri á þeirri fyrstu.
Þetta er ég ekki að tiltaka af ein-
hverjum fordómum, síður en svo.
Þetta er einfaldlega staðreynd og
hefur lítið að gera með upplifun
hlustandans. Ég átti margar góðar
æskustundir með Mini-Pops og í
dag eru sveitir eins og t.a.m West-
life að búa til, eða öllu heldur er búið
til fyrir þá, frábær popptónlist.
Fyrirbæri líkt og A*Teens er afar
ímyndavænt og jafnan mikil vinna
lögð á það hvaða skilaboð eigi að
gefa til markaðarins. Í þessu skyni
er athyglisvert að bera fyrri plötuna
saman við þessa. Á The Abba Gen-
eration er greinilega verið að höfða
til krakka 11 - 14 ára, kynþroskinn
svona rétt handan við hornið. Á
plötunni nýju er verið að spila á ögn
breyttar nótur, markhópurinn er
13-16 ára, kynhvatirnar á blússandi
siglingu og rómantíkin komin í spil-
ið. Meðlimir eru enda á aldrinum
16-18 ára, stúlkurmar orðnar gjaf-
vaxta og strákarnir hinir stæðileg-
ustu.
Platan byrjar nú bara harla vel.
Smáskífulagið „Upside Down“ er
vísindalega hannað popplag sem
grípur strax við fyrstu hlustun.
Endingartíminn er þó að sama skapi
ekki sérlega beysinn. „Halfway
Around The World“, „Firefly“ og
„Sugar Rush“ eru líka skotheldir
smellir, taka opnunarlaginu nokkuð
fram að gæðum, og framan af rúll-
aði þetta bara snurðulaust áfram.
Síðan tekur nokkuð að halla und-
an fæti. Fyrir utan hina frábæru
ballöðu, „Around The Corner Of
Your Eye“ er frekar tómlegt að lit-
ast um á seinni helmingi verksins.
Það er líkt og allt púðrið hafi farið í
skotheldu smíðarnar og restin af
lögunum er fremur fátækleg, metn-
aðarlaus iðnaðarframleiðsla, því
miður.
Textarnir eru einhvers konar
dagbókarbrot þess sem ástin hefur
klófest. Hvolpaástin er megintemað,
saklausar vangaveltur um hvort þú
komir og hvenær og yfirlýsingar um
að þá bíði ég nú eftir þér. Athygl-
isverð uppbrot eru í hinu frábæra
„Firefly“ og „Slammin’ Kinda
Love“, hvar lúmskum kynlífstilvís-
unum er beitt. Besta setning disks-
ins er svo hiklaust þessi hér: „Ég er
ólögráða á minn fullveðja hátt.“ (e.
„I’m minor in a major kinda way“).
Á heildina litið er allt á hreinu
hvað tónlistarflutninginn sjálfan
varðar, fagmennskan þar í fyrir-
rúmi. Söngurinn er svona og svona,
sérstaklega eru strákarnir litlir
söngfuglar. Allt slíkt er þó plástrað
að mestu með nútímatækni, röddum
lyft upp eða kæfðar með tölvu-
tækninni sem við á. Beitt, popprænt
innsæi þeirra laga sem getið var í
byrjun gerir svo að verkum að plat-
an sleppur fyrir horn, nokkuð
naumlega þó.
Að síðustu vil ég nefna umslag
plötunnar sem er afar vel heppnað
og stílhreint; þjónar meðalinu næsta
fullkomlega.
En um framhaldið er vandi að
spá. Nafnið A*Teens á eftir að
hljóma hjákátlega er meðlimir verða
komnir á þrítugsaldurinn, sem ekki
er óravegu í burtu. Í svipaðri að-
stöðu lentu New Kids On The Block
fyrir um áratug en nafni sveitarinn-
ar var breytt í N.K.O.T.B. er með-
limir tóku að reskjast og ímyndin
stokkuð rækilega upp. Allt kom fyr-
ir ekki og sveitina þraut örendi
skömmu síðar. Þetta virðast vera
örlög og eðli unglingasveitanna.
Á A*Teens eftir að hverfa snögg-
lega, líkt og eldflugan sem sungið er
um í laginu „Firefly“, þegar mark-
aðurinn verður mettur? Alveg
örugglega. En svona er þessi bransi
nú einu sinni.
ERLENDAR
P L Ö T U R
Arnar Eggert Thoroddsen
fjallar um aðra plötu unglinga-
sveitarinnar A*Teens, Teen
Spirit.
Á leið til
þroska A*Teens: Dhani, Marie, Amit og Sara.