Morgunblaðið - 18.05.2001, Page 66
FÓLK Í FRÉTTUM
66 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Lífrænn
barnamatur
• Engin aukaefni.
• Enginn viðbættur sykur.
• Eins og heimatilbúinn matur.
• Fyrir börn á öllum aldri.
Ert þú að gefa
barninu þínu
það besta?
Niko heildverslun hf • Sími 568 0945
Bragð náttúrunnar
– og ekkert annað
Dreifing: Lyfjaverslun Íslands hf. • Sími 540 8100
„ÞETTA er mitt fimmta skipti hér
á Cannes“, segir Baltasar að-
spurður þar sem hann situr í mak-
indum úti undir berum himni í
grænum og notalegum garði við
skrifstofu norrænu kvikmynda-
sjóðanna.
„Þetta verður bæði í senn ann-
asamara og auðveldara fyrir
mann. Hátíðin snýst um að byggja
upp sambönd og komast í kynni
við fólk í faginu. Það er eina leiðin
til þess að koma sér áfram í þess-
um óháða kvikmyndabransa. Hing-
að koma fulltrúar allra framleið-
enda og dreifingaraðila, líka þeirra
stóru í Hollywood og því getur
maður sparað sér ferðalögin með
því að hitta þá alla hér á einum
stað, í sólinni við þessa fallegu
strönd.“
Ánægður með dr. Artaud
Baltasar segir þetta einnig
verða minna og minna hark eftir
því sem oftar er mætt. Fyrstu
skiptin fari næstum alfarið í það
að átta sig á aðstæðum og stofna
til nýrra kynna. Það breytist mikið
þegar maður hafi komist að því
hvernig þessi bransi virkar.
„Svo er áhuginn náttúrlega orð-
inn meiri þegar maður er búinn að
sýna að maður getur eitthvað.“
Baltasar hefur í mörg horn að
líta í ár því hann þarf að vera í
þremur hlutverkum, sem leik-
arinn, leikstjórinn og framleiðand-
inn. Hann leikur eitt helsta hlut-
verkið í No Such Thing, mynd
Bandaríkjamannsins Hals Hart-
leys, sem frumsýnd var á hátíðinni
á dögunum. Baltasar segist hafa
haft gaman af því að leika þetta
hlutverk ruglaða vísindamannsins
dr. Artaud og vera býsna ánægður
með útkomuna þótt hann segist
átta sig vel á að myndin kunni að
falla í misjafnan jarðveg enda hafi
verk Hartleys aldrei verið allra.
Á leikstjórnarvellinum segist
Baltasar vera aðallega að kynna
tvö verkefni í Cannes, Hafið og A
Little Trip To Heaven.
„Svo eru nokkur önnur sem
fengu að fljóta með en þau eru
mun skemur á veg komin.“
Hvað Hafið varðar þá segir
Baltastar handrit þeirra Ólafs
Hauks Símonarsonar, höfundar
upprunalega leikverksins, vera á
lokastigi. Spurður um leikara-
skipan í myndinni segist Baltasar
vera nýbyrjaður að skipa í hlut-
verkin en of snemmt sé að gefa
upp nöfn
„Við skulum bara segja að
myndin muni skarta landsliðinu.“
Baltasar segist ákveðinn í að
taka myndina upp á Íslandi og á
íslensku þrátt fyrir að hafa verið
hvattur eindregið af erlendum
fjárfestum að heimfæra söguna í
enskumælandi land: „Það hefði
vissulega verið freistandi, til að
bæta dreifingarmöguleikana, en
hitt er annað mál hvort sagan tapi
því sem gerir hana góða við stað-
færsluna. Ég vil alls ekki hætta á
það.“ Baltasar bætir við að hin
mikla krafa um að myndir séu á
ensku sé dapurleg staðreynd fyrir
leikara sem mæla á annarri tungu.
Kostnaðaráætlun við myndina er
160 milljónir og Baltasar segir út-
lit fyrir að tekist hafi að fjár-
magna hana að fullu.
Skroppið til himna
A Little Trip To Heaven verður
gerð eftir handriti Baltasars sem
hann byggir á eigin hugmynd: „Ég
vil ekki gefa mikið upp um söguna
en þetta er tryllir með kómísku
ívafi sem byggður er á glæpamál-
inu um tvímenningana sem keyrðu
fram af klettunum í Hvalfirðinum
og brutu lappirnar hvor á öðrum í
þeim tilgangi að ná út tryggingafé.
Myndin er um par sem stendur í
slíku svindli en hann reynir að
svíkja út sína eigin líftryggingu,
sem skýrir titilinn.“ Sigurjón Sig-
hvatsson keypti handritið af Balt-
asari eftir að fleiri höfðu borið ví-
urnar í það, að hans sögn.
Baltasar mun sjálfur leikstýra
myndinni og hún kemur til með að
skarta enskumælandi leikurum:
„Ég tel rangt að fara að básúna á
þessu stigi hvaða leikara við höf-
um í sigtinu en þeir eru flestum ef
ekki öllum af góðu kunnir, eru
nafntogaðir Hollywood-leikarar.“
Baltasar segist feginn því að
geta haft Sigurjón sér innan hand-
ar á meðan hann fótar sig í Holly-
wood, þar sem Sigurjón sé þar öll-
um hnútum kunnugur. „Það er
gott að geta haft einhvern til þess
að tala við á íslensku þarna, geta
sparkað upp hurðinni hjá honum á
sunnudagsmorgnum og svona,“
segir Baltasar og hlær við.
Hann segist hafa lagt á það ríka
áherslu að fá að stjórna sem flestu
um gerð myndarinnar. Hann hafi
t.a.m. farið fram á að fá Karl Júl-
íusson leikmyndahönnuð til verks-
ins og eigi það uppáskrifað að
hann eigi lokasvarið ef breyta
þurfi handritinu. Um þessar
mundir er Bandaríkjamaðurinn
Andrew Chapman að endurskrifa
handritið og Baltasar heldur vest-
ur um haf að lokinni Cannes-
hátíðinni til þess að liggja yfir því
með honum. Kostnaður við mynd-
ina segir Baltasar að komi líklega
til með að vera á bilinu 5 til 10
milljónir dollara. Hann segist ekk-
ert vera uggandi yfir svo hárri
tölu: „Ég væri það kannski ef ég
væri að fara að gera 50 milljón
dollara mynd. Þetta er eðlilegt
skef upp á við frá 101 Reykjavík
sem kostaði 2 milljónir dollara og
þar vann ég með stjörnu líka.
Kostnaðurinn kemur í raun til með
að ráðast af því hvaða launaflokki
leikararnir sem við fáum um borð
eru í en framleiðsluumsvifin verða
í sjálfu sér ekkert mikið meiri en í
101 Reykjavík.“
Allt að gerast
Tökur á myndinni munu að öll-
um líkindum fara fram í Kanada.
Baltasar segir útlit fyrir að önnur
hvor myndanna fari í tökur í
haust, en það komi til með að velta
á hvernig undirbúningsvinnan og
leikaraleitin fyrir A Little Trip To
Heaven gangi: „Það er alveg ljóst
að ég geri ekki báðar myndirnar í
einu en það skiptir svo sem engu
máli hvora ég geri fyrst, hin bíður
bara aðeins á meðan.“
Til viðbótar við leikinn og leik-
stjórnina er Baltasar einnig kom-
inn í framleiðendastólinn því hann
hefur fallist á það að gerast með-
framleiðandi að næstu mynd Sól-
veigar Anspach, Stormy Weather,
fyrir nýstofnað fyrirtæki hans og
eiginkonunnar Lilju Pálmadóttur,
sem ber heitið Sögn á Íslandi en
Blue Eyes Productions á al-
þjóðavettvangi: „Sólveig hreifst af
vinnubrögðum mínum sem fram-
leiðandi 101 Reykjavíkur og þótti
hún líta vel út. Myndin verður
bæði tekin í New York og á Ís-
landi og Blue Eyes mun hafa yf-
irumsjón með þeim framleiðslu-
þætti sem snýr að Íslandstök-
unum.“
En hefur Baltasar einhvern tíma
til að sinna upphaflega starfinu,
leiklistinni? „Það er búið að bjóða
mér fjögur hlutverk hérna úti; í
finnskri, ítalskri, kanadískri og
spænskri bíómynd. Leikaraferill-
inn er orðinn ansi fyndinn,“ segir
Baltasar að lokum og kímir.
Með mörg
járn í eldinum
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Baltasar Kormákur nýtur veðurblíðunnar í Cannes.
skarpi@mbl.is
Það er alltaf meira og meira að gera hjá Baltasar
Kormáki í hvert sinn sem hann mætir á kvik-
myndahátíðina í Cannes. Skarphéðinn Guðmunds-
son er staddur á hátíðinni og ræddi við Baltasar.
Baltasar Kormákur hefur í nógu að snúast í Cannes