Morgunblaðið - 20.12.2001, Blaðsíða 28
NEYTENDUR
28 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
EITRUNARMIÐSTÖÐ er starf-
rækt á Landspítala – háskólasjúkra-
húsi. Starfsemi hennar er margþætt
en eitt af aðalhutverkum hennar er
að veita upplýsingar um eiturefni og
ráðgjöf um viðbrögð og meðferð þeg-
ar eitranir verða. Símaþjónusta, þar
sem fagfólk veitir ráðgjöf, er starf-
rækt allan sólarhringinn. Síminn er
525 1111.
Nú þegar jólin eru á næsta leiti er
við hæfi að velta fyrir sér þeim eitr-
unum sem tengjast þeim.
Jólastjarna – inniheldur safa sem
er ertandi fyrir húð og slímhúð.
Snerting við húð getur valdið sviða og
roða og inntaka ógleði, uppköstum og
niðurgangi.
Ilex – kristþyrnir (fleiri en 400 teg-
undir eru til af Ilex, meðal annars
kristþyrnir) – berin eru eitruð.
Buxus – laufin valda snertiofnæmi
og eru eitruð ef þau eru borðuð.
Bergflétta (Hedéra hélix) – allir
hlutar plöntunnar eru eitraðir, sér-
staklega laufin og berin. Snertiof-
næmi getur komið fram.
Hyacinthus – blómlaukurinn inni-
heldur efni sem hafa ertandi áhrif á
meltingarveg og geta valdið snertiof-
næmi.
Gervisnjór – úðabrúsar með gervi-
snjó innihalda oft leysiefni sem við
innöndun geta valdið höfuðverk og
ógleði. Eftir að efnið er orðið þurrt er
það ekki eitrað, það er gervisnjórinn
sjálfur.
Rafhlöður – Í tölvum, tölvuleikj-
um, úrum, heyrnartækjum og ýms-
um leikföngum eru litlar, flatar,
kringlóttar rafhlöður sem stundum
kemur fyrir að börn gleypa. Þær inni-
halda ýmis efni sem eru bæði eitruð
og ætandi. Rannsóknir hafa sýnt að í
flestum tilfellum skiljast rafhlöðurn-
ar út í heilu lagi. Hættan felst hins
vegar í því að rafhlöðurnar festist ein-
hversstaðar á leiðinni, til dæmis í vél-
inda og þessi eitruðu ætandi efni
byrji að leka út.
Alkóhól – er algengt í jóladrykkj-
um, ilmvatni, rakspíra, munnskolum
og fleiru. Eitranir af völdum alkóhóls
eru sennilega algengustu eitranirnar
í heiminum og eitrunareinkennin
þekkja flestir! En hafa þarf í huga að
alkóhól getur verið lífshættulegt ung-
um börnum.
Sjálflýsandi leikföng – í þeim er
efni sem er mjög ertandi fyrir húð og
slímhúð, veldur roða og miklum
sviða.
Hreinsiefni – almennt gildir að
ólíklegt er að lítið magn (1 sopi, 1 te-
skeið, 1 úði) af þvotta- og hreinsiefn-
um sem notuð eru á heimilum, valdi
skaða við inntöku og innöndun, eða ef
efnin lenda á húð eða í augum. Þó eru
nokkrar undantekningar á þessu, til
dæmis þvottaefni fyrir uppþvottavél-
ar, ofnahreinsiefni og stífluhreinsar.
Sum salernishreinsiefni geta verið
ætandi og getur þá lítið magn valdið
miklum skaða. Einnig ber að geta
þess að hreinsiefni sem notuð eru í
iðnaði eru oft mjög sterk og hættu-
leg.
Kerti – jólatré
Kerti – valda ekki eitrun nema ef
mjög mikið er borðað. Þá má búast
við ógleði og uppköstum.
Jólatré – eru ekki eitruð en safinn
og sagið úr trjánum geta valdið hú-
ðútbrotum ef þau liggja lengi á húð-
inni.
Lesið ávallt merkingar á umbúð-
um vel og skoðið hættumerkingar.
Upplýsingar sem gott er að hafa
þegar hringt er í Eitrunarmiðstöðina.
Heiti efnis eða lyfs, best er að
hafa umbúðirnar við hendina.
Aldur og þyngd sjúklings.
Hvenær eitrunin átti sér stað.
Varist eitranir
yfir hátíðirnar
Morgunblaðið/RAX
Jólastjarna – inniheldur safa sem er ertandi fyrir húð og slímhúðir.
Snerting við húð getur jafnframt valdið sviða og roða.
Í VERÐKÖNNUN á jólatrjám sem
birt var á neytendasíðu á þriðjudag
láðist að geta
verðs á trjám hjá
Krónunni. Versl-
anirnar selja nor-
mannsþin, 126–
150 cm og 151–
175 cm, sem kost-
ar 1.995 krónur
og 2.495 krónur.
Jólatré hjá
Krónunni líka
RIT og rækt ehf.
hefur gefið út
jólablað um garð-
yrkju með grein-
um um skreyting-
ar, íslensk jólatré
og hirðingu
þeirra blóma sem
tileinkuð eru
þessum árstíma.
Í blaðinu er einnig innlit í fjóra
einkagarða sem hver hefur sitt svip-
mót og rætt við eigendur þeirra.
„Í Við ræktum er fjöldi gagnlegra
ráða og fallegar ljósmyndir sem
gleðja lesandann. Markmið okkar
var að gefa út jólablað sem lífgaði
upp á myrkustu daga ársins,“ segir í
tilkynningu frá útgefendum.
NÝTT
Garðyrkjurit
með jólasniði
♦ ♦ ♦