Morgunblaðið - 20.12.2001, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 20.12.2001, Qupperneq 54
UMRÆÐAN 54 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ                                                                ÞAÐ hlýtur að vera ánægjulegt fyrir hverja ríkisstjórn að vita til þess, að alltaf má níðast á einhverj- um minni máttar þeg- ar á bjátar. Núna á að rétta ríkiskassann við með því m.a. að láta borgarana greiða meira fyrir læknis- þjónustu og auka skatta á bíla. Fyrra til- fellið hindrar eldri borgara í því að leita sér læknishjálpar vegna kostnaðar. Það er í fullu samræmi við stefnu núverandi stjórnvalda, sem er sú, að því færri gamlingjar sem fá ókeypis læknis- hjálp, þeim mun fleiri aldraðir muni deyja drottni sínum, og þar með minnka útgjöld ríkisins. Þetta er mjög einföld staðreynd. Hitt er að það að auka skatta á bíla kemur að sjálfsögðu verst niður á þeim sem minnst nota bílana, en geta illa án þeirra verið vegna hreyfihömlunar eða elli. Þar eru að sjálfsögðu fremstir í flokki aldraðir, sem ekki keyra mikið, en skyldu- tryggingar og skattar vega þyngst í þeirra útgjöldum við að reka bíl. Skattlagning ríkisvaldsins ásamt augljósu samráði tryggingarfélag- anna um iðgjöld hindrar það að þeir, sem fæstum tjónum valda, njóti þess í lægri iðgjöldum. Þeir gömlu eru látnir blæða af því að þeir eru heiðarlegir og borga alltaf sitt. Tryggingafélög vita það fullvel að þeim gömlu má treysta, þeir valda ekki tjóni. Það furðulega við þetta allt saman er það, að til er í landinu stofnun, sem ég held að heiti að nafninu til samkeppnisstofnun, en gerir ekkert í þessum málum, og þó kostar það ríkissjóð ótaldar milljónir á hverju ári að reka þessa stofnun! Skrípaleikurinn á Alþingi um daginn, að hækka útgjöld um 2,2 milljarða og svo að draga það allt til baka daginn eftir, er ekki til þess fallinn að auka traust á Alþingi. Það eru vafalaust fleiri en ég, sem núna hafa end- anlega sannfærst um það að Alþingi er að- eins afgreiðslustofnun valdherranna. Nýjasta útspilið er að hækka húsaleigu og matarkostnað á dval- arheimilum „til samræmis við verð- bólgu“, en ellilífeyrir fylgir ekki þessari verðbólgu, og þannig er ver- ið að sauma ennþá betur að þeim sem minnst mega sín. Þetta leyfir ríkisstjórnin sér að gera í skjóli þess að hafa alltaf haft meirihluta í skoðanakönnunum, og hún kemst upp með það! Það er því engin furða þó að aldr- aðir hugsi alvarlega um það, að það eina sem þeir eiga þó ennþá eftir er atkvæðisrétturinn. Nýsamþykkt fjárlög á kostn- að hvers? Pétur Guðmundsson Fjárlög Það eru vafalaust fleiri en ég, segir Pétur Guð- mundsson, sem núna hafa endanlega sann- færst um það að Alþingi er aðeins afgreiðslu- stofnun valdherranna. Höfundur er verkfræðingur og í stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Í stefnuyfirlýsingu Sjálfstæðisflokksins stendur: „Með því að virkja framtak einstaklinga í þágu aukinnar verð- mætasköpunar verður áfram stuðlað að hag- sæld“ og á öðrum stað: „Stefna flokksins miðast við það að menn fái notið ávaxta verka sinna og sjái tilgang í því að leggja sig alla fram.“ Í stefnuyfirlýsingu Framsóknarflokksins stendur: „Að hlúa að nýsköpun og rannsóknum hjá opinberum aðil- um sem einkaaðilum.“ Þetta eru allt góðar yfirlýsingar, en hver skyldi raunin vera fyrir venju- legt fólk með gott hugmyndaflug og vilja til að koma hugmyndum sínum á framfæri? Því miður er staðreyndin sú að allt of margar hindranir, í formi skriffinnsku og skilningsleysis, eru á veginum til þess að hugmynd verði að veruleika, t.d. að vöru. Það á sér stað markviss hugmynda- slátrun í þessu íslenska kerfi. Ástæð- urnar eru aðallega tvenns konar: í fyrsta lagi að þeir sem eiga að meta hugmyndirnar hafa oft ekki víðsýni hugvitsmannsins, og í öðru lagi fallast mönnum hendur þegar þeir þurfa sjálfir að gera flóknar viðskiptaáætl- anir. Af hverju eyðir kerfið svona miklum tíma og peningum í að kenna hugmyndasmiðum að gera viðskipta- áætlanir til þess að hugmyndir þeirra verði gjaldgengar? Fyrir marga er þetta jafnfáranlegt eins og að segja: „Farðu heim og lærðu latínu þá getum við talað sam- an“. Þar að auki virðist útlit og upp- setning viðskiptaáætl- unarinnar skipta meira máli en hugmyndin sjálf. Hvað enda marg- ar góðar hugmyndir aft- ur í skúffunum eftir um- fjöllun þessa kerfis? Hugvitsmenn eiga það sameiginlegt að vera hugmyndaríkir, en eru ekki endilega við- skiptafræðingar. Flestir félagsmenn okkar hafa gefist upp á kerfinu sem ekki hlust- aði. Þeir hafa komið hugmyndum sínum í framkvæmd af eigin rammleik og þrjósku. Þó að fyrirtæki þeirra séu ekki skráð á almennum hlutabréfamarkaði þá eru sum að velta nokkrum milljörð- um, skapa atvinnu og tekjur fyrir ís- lenska samfélagið. „Af hverju viljið þið (LHM) alltaf vera útundan?“ var ég spurð um dag- inn af framkvæmdastjóra ákveðins peningasjóðs. Við viljum alls ekki vera það en við erum höfð útundan. Landssamband hugvitsmanna hefur boðið forsvarsmönnum stofnana og fjárfesta á hugmyndafundi um hvern- ig stuðningskerfi hugvitsfólks getur litið út, en ekkert hefur komið út úr þessari vinnu fyrir okkar félagsskap. Menn ganga ótrauðir af þessum fund- um og hugsa: „Góð hugmynd, nú get ég“. Árið 1994 gengu fyrrverandi stjórnarmenn hugvitsmanna með ít- arlega skýrslu á milli helstu stofnana, bæði fjármála og ríkis, um hvernig stuðningskerfi við hugvitsfólk ætti að líta út, með von um að verða þátttak- endur í þeirri skipulagningu. Reynsl- an varð önnur því árið 1999 opnaði ákveðin stofnun þjónustumiðstöð fyr- ir uppfinningamenn og frumkvöðla án þess að reyna að hafa félag hugvits- manna með í ráðum. Þeir höfðu jú skýrsluna undir höndum, og af hverju þá að hafa okkur með! Þetta er því miður alltof algengur hugsunarháttur í íslensku samfélagi. Menn eigna sér hugmyndir annarra í skjóli valds og peninga, meira að segja þrátt fyrir að einkaleyfi og/eða höfundarréttur séu á hugmyndunum. „Ég myndi aldrei ráða til mín upp- finningamann,“ sagði framkvæmda- stjóri stofnunar sem metur hugmynd- ir. „Uppfinningamenn eru til vand- ræða“ er haft eftir einum fyrrverandi ráðherra. Hvað segir þetta? Lýsir þetta ekki því virðingarleysi sem íslenskt hug- vitsfólk býr við. Ísland er of lítið fyrir hugvitsfólk. Í því sem kalla á stuðningskerfi fyrir hugvitsmenn þekkjast allir og það er fljót að berast gróusagan um ósam- vinnuþýðni Jóns eða Jónu, sem leiðir til þess að hann/hún fær hvergi hljóm- grunn. Eða að stuðningskerfið lætur vini sína frétta af góðri hugmynd sem þeirra fyrirtæki gæti notað, þ.e. mis- notað, því Jón eða Jóna verða ekki með. Vald, peningar og ríkiseinokun ráða för. Er það eðlilegt að helsti ríkisrekni fjármögnunaraðili hugmynda á Ís- landi, heldur keppni, metur hug- myndir, veitir lán, og á stjórnarmenn og hluti í helstu fyrirtækjum lands- ins? Hvernig er farið með þær trún- aðarupplýsingar sem þangað berast? Er ekki freistandi fyrir þessa menn þegar þeir sjá hugmynd fyrir fyrir- tæki sem þeir eiga hlut í, að láta upp- Hugmyndaslátr- un á Íslandi? Elinóra Inga Sigurðardóttir Hugvit Á meðan kerfið er eins og það er, segir Elinóra Inga Sigurðardóttir, á sér stað markviss hug- myndaslátrun. VIÐ áramót fögnum við komandi tímum og kveðjum liðnar stundir, oft- ast í faðmi fjölskyldunnar. Að því loknu halda fjölskyldumeðlimir oft hver í sína átt, foreldrarnir í gleðskap með vinum og kunningjum og börnin í pössun eða verða eftir, ein heima. Margir eru á ferli eftir miðnætti og fæstir allsgáðir. Fyrir börnin sem eru ein heima er freistandi að fá til sín vini og kunningja til að halda upp á þessi tímamót. Oft er það gert með vitund og vilja foreldra sem gjarna vilja opna heimili sitt fyrir vinum barna sinna og treysta þeim til þess að halda sig innan fyrirfram ákveðins ramma. Allt er þetta í sjálfu sér já- kvætt en þó fylgir böggull skammrifi. Þó að við getum treyst börnunum okkar þá er þeim ekki ætlandi að bera ábyrð á hópi jafnaldra og þaðan af síður á hópi ungmenna sem eldri eru. Eftirlitslausir ungling- ar, hvort sem þeir eru úti við eða í heimahúsi, eiga á hættu að lenda í alls kyns hremmingum, sérstak- lega ef þeir eru undir áhrifum áfengis eða ann- arra vímuefna. Er hér sérstaklega bent á ótíma- bæra og ofbeldisfulla kynlífsreynslu og ofbeldi. Barnið þarf að lifa með minningu um þessa slæmu lífsreynslu til framtíðar en ekki foreldr- arnir sem véku sér undan ábyrgð. Við þekkjum öll sögur af sakleysislegum gleðskap unglinga í heimahúsi sem fer úr böndum af því að gestirnir, boðnir eða óboðnir, reynast ekki traustsins verðir. Við vitum um íbúðir sem hafa nánast verið lagðar í rúst, húsbúnaði, tækjum og jafnvel bílum stolið. Barninu, sem var treyst, reyn- ist um megn að ráða við aðstæður og það situr eftir með gífurlega sektar- kennd og mikið fjárhagslegt tjón. Hér er verið að leggja of mikla ábyrgð á herðar barninu sem verður eftir eitt heima. Foreldrar! Íslensk börn búa við mikið framboð ólöglegra vímuefna af ýmsu tagi sem öll eiga það sameig- inlegt að vera framleidd í skúmaskot- um án eftirlits með hreinlæti og efnis- innihaldi. Það hefur komið í ljós við efnagreiningu á þessari framleiðslu að innihaldslýsing er ófögur, má þar m.a. sjá rottueitur. Enda bera fram- leiðendur þessara efna ekki ábyrgð á börnunum okkar, það gerum við, for- eldrarnir. Inni á geðdeildum á Íslandi eru einstaklingar sem aðeins prófuðu einu sinni! Foreldrar bera ábyrgð á börnum sínum og börn teljast þau til 18 ára aldurs. Ef foreldrar einhverra hluta vegna Kristbjörg Hjaltadóttir Bergþóra Valsdóttir Ábyrgð – afleiðing Ungbarnafatnaður Komdu í bæinn og skoðaðu úrvalið og verðið. Allt fyrir mömmu. Þumalína, Pósthússtr. 13, s. 551 2136.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.