Morgunblaðið - 20.12.2001, Page 64

Morgunblaðið - 20.12.2001, Page 64
64 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ er orðin táknræn venja á stærri frímerkjaasýningum, að þjóð- höfðingjar landanna séu verndarar þeirra. Þannig gegndi Margrét II Danadrottning þessu hlutverki á HAFNIU 01. Kom hún eina morg- unstund á sýninguna og gekk um hana í fylgd með forystumönnum sýningarinnar. Ekki veit ég um áhuga drottningar á frímerkjum almennt, en hún mun einkum hafa sýnt áhuga á því listræna, sem þar mátti sjá, og eins ýmiss konar grænlenzkum iðnaði og bátasmíði Færeyinga, sem sýnt var á sýningarsvæðum þeirra. Drottningin er líka kunn fyrir áhuga á listum og sjálf hefur hún teiknað danskt frímerki. Þá dvaldist drottn- ingin góða stundi í herbergi því, sem nefndist „Skatkammeret“. Þar mátti sjá hlið við hlið málverk danskra og færeyskra listamanna og svo stækk- aðar myndir af dönskum og færeysk- um frímerkjum, en myndefni þeirra var sótt til þessara málverka. Sjálfur get ég borið að þetta herbergi var sérlega hlýlegt og ekki sízt fyrir það, að á upphækkuðum palli á miðju gólfi var píanó, þar sem listamenn léku lágværa og notalega tónlist, meðan menn virtu fyrir sér málverkin og frí- merkin. Þarna var hægt að setjast og hvíla lúin bein, enda ekki vanþörf á á stórum frímerkjasýningum. Ekki virtust samt að jafnaði margir fara inn á þennan kyrrláta stað. Var þess vegna hægt að njóta þar næðis utan við þann ys og þys sem yfirleitt ríkir á frímerkjasýningum. Vönduð sýningarskrá var gefin út, þar sem birt voru ávörp forstöðu- manns danska póstsins, Helge Israel- sen, og eins forseta Alþjóðasambands frímerkjasafnara, Knud Mohr, sem er þekktur danskur frímerkjasafnari og var um langt árabil og er raunar enn forystumaður meðal danskra safnara. Í síðasta þætti um HAFNIU 01 var þess getið sérstaklega, að ekki hafi farið mikið fyrir framlagi okkar héð- an, mælt í römmum, ef svo má orða það. Engu að síður var söfnum okkar vel tekið og þau vöktu athygli. Nefndi ég þar sérstaklega til söfn Indriða Pálssonar og Þjóðskjalasafnsins. Þessu til staðfestingar get ég ekki stillt mig um að taka hér upp ummæli Ibs Krarups Rasmussens, sem hann viðhafði í DFT, blaði danska lands- sambandsins, en hann veitti ásamt öðrum starfsmönnum viðtöku þeim söfnum, sem bárust. Hann segir í stuttu máli frá sýningunni og störfum við undirbúning hennar og uppsetn- ingu. Hann kemst svo að orði um ís- lenzka efnið: „Ég verð þá að játa, að þegar Jón Aðalsteinn Jónsson kom með íslenzku söfnin, var ekki mikið að gera þá stundina. En móttakan, stöðvaðist næstum alveg um hríð. Þessu ollu bæði hin ótrúlegu skild- ingabréf, sem Þjóðskjalasafn Íslands hafði lánað í heiðursdeildina, og eins hið aðdáunarverða safn Indriða Páls- sonar: Klassisk Ísland og eigið safn Jóns Aðalsteins Jónssonar af tvílitu dönsku frímerkjunum.“ Þessi um- mæli eru að mínum dómi meira virði fyrir íslenzka „fílatelíu“ en verðlauna- gripir, þótt góðir séu. En vel á minnzt. Þegar verðlaun eru nefnd, get ég ekki annað en dáðst að því, hversu snjöll sýningarnefndin danska var við að leysa það mál. Þar sem ég hef tekið þátt í sýningum, hafa verðlaunagripir verið af margvísleg- um toga, en greindir í sundur eftir verðlaunastigum, allt frá stóru gulli og niður í brons. En hér brugðu hinir dönsku „kollegar“ okkar á annað ráð, sem ég hef a.m.k. ekki vitað um áður. Þeir veittu sannkallaðan nytjagrip sem verðlaun, þ.e. hið fallegasta arm- bandsúr. Skífan er úr „gulli“, eins og það er orðað innan gæsalappa eða öðru nafni afsökunarmerkja. Ég læt lesendum svo eftir að ráða í það, hvers konar gull það er. Á skífuna er grafin mynd af fyrsta danska frímerkinu, FIRE R.B.S., frá 1851, í hægra efra horni, en til vinstri við það er grafið HAFNIA 01, COPENHAGEN 2001. Neðst er síðan grafið nafn verðlauna- hafans og svo vel til þess vandað, að mitt nafn er t.d. rétt stafað, þ.e. ó er á sínum stað og eins ð, en ekki d, svo sem yfirleitt er venja og raunar lítt við að segja á erlendri grund. Um- búnaður um úrverkið og skífuna er svo á ýmsa vegu eftir því verðlauna- stigi, sem safn sýnandans hefur hlot- ið. Ég tel víst, að sýnendur hafi þenn- an verðlaunagrip á armi sínum, a.m.k. við hátíðleg tækifæri, til minja um þátttöku í þessari skemmtilegu al- heimssýningu, HAFNIU 01. Ljóst var á öllu, að Danir höfðu lagt metnað sinn í að gera þessa heims- sýningu sem minnilegasta á allan hátt, enda var verið að heiðra elzta frímerki Danmerkur og raunar allra Norðurlandanna. Var sýnilega engu til sparað, að svo yrði. Ekki varð ann- að séð en hugsað væri fyrir öllum hlutum, sem slíkri sýningu sæmdi, og þá ekki sízt að draga athygli sem flestra að Bella Center, meðan sýn- ingin stæði yfir. Ég held, að allir þeir, sem komu héðan að heiman, geti verið mér sam- dóma um það, að HAFNIA 01 var bæði skemmtileg og fróðleg sýning og á allan hátt Dönum til sóma. Varð ég ekki var við annað í samtölum við þá. Þau frímerkjablöð, sem ég hef séð til þessa frá öðrum Norðurlöndum, taka einnig í sama streng. Eitt mun samt hafa skyggt nokkuð á, en það var aðsókn almennings. Ég heyrði talað um, að sýningarnefndin hefði vonazt eftir mjög mikilli aðsókn, allt að 50 þúsund manns og jafnvel snöggtum fleiri en það, en raunin mun hafa orðið sú, að gestirnir urðu um 35 þúsund. Ritstjóri sænska blaðsins Nordisk Filateli skrifar grein, sem ber yfirskriftina: HAFNIA O1 – átti skilið fleira fólk. Síðan hugleiðir hann, hvers vegna svo fór. Hann bendir á, að í sömu viku og sýningin var haldin, hafi danskir skól- ar haft haustleyfi. Þannig varð ekkert úr því, sem ráðgert var, að skólanem- endur sæktu sýninguna, enda fóru margar fjölskyldur úr borginni þessa daga. En ritstjóranum dettur svo önnur skýring í hug, sem vissulega er orðin mörgum frímerkjasöfnurum áhyggjuefni. Hún er sú, að slíkar frí- merkjasýningar laði fólk ekki lengur að sér. Þessi staðreynd hefur komið fram, segir ritstjórinn, víðs vegar um heiminn. Frá þessu er að hans sögn undantekning á stórum alþjóðasýn- ingum í Asíu. En það var ýmislegt fleira að sjá en frímerki og annað þeim skylt. Póststjórnir Norðurlandanna voru með sölubása og kynntu þar frí- merkjaútgáfur sínar. Sænska póst- stjórnin var t.d. sýningu á því, hvern- ig frímerkin eru „grafin“, og þar var m.a. sjálfur höfuð„smiðurinn“ Czesl- aw Slania við vinnu sína. Virtust margir sýna honum og eins Martin Mörck og Lars Sjöblom mikla at- hygli. Þegar á allt er litið tókst HAFNIA 01 mjög vel, og er ástæða til að óska Dönum til hamingju með eftirminni- lega frímerkjasýningu. Enn um HAFNIU 01 Frímerki Alþjóðafrímerkjasýningin HAFNIA 01 í Danmörku Frá heimssýningunni HAFNIA 01. Jón Aðalsteinn Jónsson. jaj@simnet.is Bridsfélag Hafnarfjarðar Hinn 17. desember var spilaður einn leikur í aðalsveitakeppni Bridgefélags Hafnarfjarðar og að honum loknum var spilaður jólatví- menningur á 7. borðum. Hæsta skor í sveitakeppninni hinn 17. desember fengu eftirtaldar sveit- ir. Sv. Unnars Atla Guðmundssonar 25 Sv. Sigurjóns Harðarsonar 25 Sv. Friðþjófs Einarssonar 23 Staðan eftir 5 umferðir: Sv. Unnars Atla Guðmundssonar 106 Sv. Friðþjófs Einarssonar 94 Sv. Huldu Hjálmarsdóttur 89 Sv. Sigurjóns Harðarsonar 87 Úrslit úr jólatvímenningi: Meðalskor var 84 N-S Leifur Aðalsteinss. – Halldór Þórólfss. 105 Ómar Olgeirsson – Arnar Ægisson 96 Kristján Sigurðsson – Helga Sturlaugsd. 86 A-V Guðni Ingvarsson – Hrafnhildur 01 Njáll Sigurðsson – Hrund Einarsdóttir 88 Unnar Atli Guðmundss. – Haukur Árnas. 86 Næsta spilakvöld hefst á nýju ári eða 7. janúar og þá heldur aðalsveitakeppnin áfram. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsfélag Suðurnesja LAUGARDAGINN 15. des. var haldið fjáröflunarmót. Spilaður var einmenningur og dregið um fulltrúa þeirra fjölmörgu fyrirtækja og stofnana sem styrktu félagið af þessu tilefni. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir, stigahæsti spilari síð- asta árs sannaði yfirburði sína og átti 3 toppa á næstu menn. Úrslit: Guðjón Svavar Jensen 117 Heiðar Sigurjónsson 100 Karl Einarsson 100 Svavar spilaði fyrir Verslunar- mannafélag Suðurnesja og fær fé- lagið skjöld til varðveislu. Heiðar spilaði fyrir Olís og Karl fyrir Spari- sjóðinn. Jólamót í Firðinum Árlegt jólamót Sparisjóðs Hafnar- fjarðar og Bridsfélags Hafnarfjarð- ar fer fram 29. desember. Spilað verður í Hraunholti, Dals- hrauni 15, Hafnarfirði. Keppnisstjóri er Sveinn Rúnar Ei- ríksson. Veitt verða vegleg verðlaun fyrir fimm fyrstu sætin bæði í N-S og A-V, spilamennska hefst kl. 11.00. Keppnisgjald á keppanda er 3.000 kr., innifalið í keppnisgjaldi er kaffi og meðlæti, keppnisgjald og keppn- isstjórn. Spilað verður með forgefin spil. Hægt er að skrá sig í síma 699- 1364 dagana 27.–29. desember eða hjá keppnistjóra hinn 29. desember og væri þá gott að mæta tímanlega. Sjáumst í jólaskapi.Jólafrí hjá BSÍ Skrifstofa BSÍ verður lokuð milli jóla og nýárs. Bridssamband Íslands óskar öll- um landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári og þakkar sam- starfið á árinu sem er að líða. www.kringlan.is upplýsingasími 588 7788 skrifstofusími 568 9200 150 verslanir, veitingastaðir og þjónustuaðilar. Opið til 22.00 Jólasveinar skemmta börnunum kl. 15.00 og 17.00 alla daga til jóla. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S K RI 1 63 19 12 /2 00 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.