Morgunblaðið - 20.12.2001, Qupperneq 65
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001 65
Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10–
12.
Dómkirkjan. Opið hús í safnaðarheimilinu
kl. 14–16. Kaffi og með því á vægu verði.
Ýmsar uppákomur. Imbrudagar á vetri
föstudag kl. 8 árdegis. Messa, altaris-
ganga, bæn fyrir friði. Sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson. Hallgrímskirkja. Kyrrðar-
stund kl. 12. Léttur málsverður í safnaðar-
heimili eftir stundina.
Háteigskirkja. Foreldramorgunn kl. 10.
Stúlknakór kl. 16.30 fyrir stúlkur fæddar
1989 og eldri. Stjórnandi Birna Björnsdótt-
ir. Íhugun kl. 19. Taizé–messa kl. 20.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12. Gunnar Gunnarsson leikur á orgel kirkj-
unnar kl. 12–12.10. Að stundinni lokinni er
málsverður í safnaðarheimili.
Digraneskirkja. Bænastund kl. 12.15. Fyr-
irbænaefnum má koma til kirkjuvarða. Létt-
ur hádegisverður eftir stundina.
Fella- og Hólakirkja. Aðventuhelgistund í
Gerðubergi kl. 14. Þorvaldur Halldórsson
flytur veraldlega og andlega tónlist og verð-
ur með frásögn af eigin reynslu. Sr. Hreinn
Hjartarson flytur bænir og blessun. Lilja G.
Hallgrímsdóttir djákni les jólaguðspjallið.
Sr. Miyako Þórðarson túlkar á táknmáli. Há-
tíðarveitingar í Veitingabúð eftir stundina.
Allir velkomnir. Fella- og Hólakirkja og Fé-
lagsstarf Gerðubergs.
Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–
12. Fræðandi og skemmtilegar samveru-
stundir og ýmiss konar fyrirlestrar. Alltaf
heitt á könnunni, djús og brauð fyrir börnin.
Kópavogskirkja. Starf með eldri borgurum í
dag kl. 14.30–16.30 í safnaðarheimilinu
Borgum. Kyrrðar- og bænastund kl. 17. Fyr-
irbænaefnum má koma til sóknarprests
eða kirkjuvarðar.
Vídalínskirkja. Umræðu- og leshópur starf-
ar í safnaðarheimilinu kl. 20 – 21. Biblíu- og
trúfræðsla fyrir alla. Kyrrðarstund í kirkjunni
kl. 21. Ath. breyttan tíma. Tónlist, ritning-
arlestur, hugleiðing og fyrirbænir. Bænar-
efnum má koma til presta kirkjunnar og
djákna. Hressing í safnaðarheimili eftir
stundina. Allir velkomnir.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT–starf fyrir 10–
12 ára kl. 17–18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn
og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safnaðar-
heimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið hús
fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheimilinu
Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 10–12 ára
börn (TTT) í dag kl. 17. Foreldrastund kl.
13–15. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi
foreldra með ung börn að koma saman og
eiga skemmtilega samveru í safnaðarheim-
ili kirkjunnar.
Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í Varm-
árskóla á fimmtud. frá kl. 13.15–14.30.
Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl. 20.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel-
komnir.
Safnaðarstarf
ÞAÐ ilmar allt af jólum í miðborg
Reykjavíkur. Fimmtudagskvöldið
20. desember verður lúxuskvöld á
Ömmukaffi. Þá mun tónlistin taka
völdin í umsjá Grétars Gunn-
arssonar tónlistarmanns. Hljóm-
sveitin Trompet mun skapa jóla-
stemmningu með kraftmiklum
tónum, ásamt fleira góðu tónlist-
arfólki.
Taktu frá tíma til að minna þig á
kjarna jólanna og njóttu góðrar
stundar í Ömmukaffi, Austurstræti
20 (gamla Hressó). Allir velkomnir.
Ömmukaffi og Miðborgarstarf
KFUM&K.
Gospel á Ömmukaffi
Morgunblaðið/Ásdís
Oddur Carl Thorarensen, Ólafur Schram, Jón Örn Arnarson, Grétar
Þór Gunnarsson, Brynjólfur Snorrason og Einar Sigurmundsson skipa
hljómsveitina Trompet.
FRÉTTIR
SJÓNVARPSKRINGLAN er hætt
að starfa og lagerinn er til sölu á
Langholtsvegi 42. Þar er ritfanga-
verslun og fornbókasala, en forn-
bókamarkaðurinn verður í byrjun
febrúar.
Mikið af tölvuleikjum og geisla-
diskum er á boðstólum.
Lager Sjón-
varpskringl-
unnar seldur
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Handflakarar
Vantar vana ýsuflakara.
Mikil vinna framundan.
Vinsamlegast hringið í Þórð í síma
893 6321 eftir kl. 17.00.
Sætoppur ehf.
Vesturbyggð
óskar eftir að ráða tæknifræðing í starf bygg-
ingafulltrúa til þess að hafa umsjón með verk-
legum framkvæmdum sveitarfélagsins.
Upplýsingar gefur undirritaður.
Vesturbyggð, 18. desember 2001.
Bæjarstjóri.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur Sjómanna-
félags Reykjavíkur
verður haldinn í Skipholti 50D, 3. hæð, föstu-
daginn 28. desember kl. 17.00.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Sjómannafélag Reykjavíkur.
Aðalfundur
Matsveinafélags Íslands
verður haldinn í Skipholti 50D, 3. hæð, fimmtu-
daginn 27. desember kl. 17.00.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Matsveinafélag Íslands.
KENNSLA
Skólaslit
Skólaslit IR verða í Hallgrímskirkju í dag
kl. 14.00.
Aðstandendur nemenda og velunnarar skólans
eru velkomnir.
Skólameistari.
TIL SÖLU
Til sölu
Til sölu er úr búi Burnham á Íslandi hf. ýmiss
skrifstofubúnaður, s.s. skrifborð, skrifborðsstól-
ar, tölvur, skjáir, prentarar, ljósritunarvélar,
símkerfi, borðlampar, reiknivélar auk margra
annarra hluta.
Framangreint lausafé verður til sölu og sýnis
í starfsstöð fyrirtækisins Vegmúla 2, 4. hæð,
Reykjavík, í dag, fimmtudaginn 20. desember,
milli kl. 13 og 16.
Sigurmar K. Albertsson hrl.,
skiptastjóri Burnham á Íslandi hf.
ÞJÓNUSTA
Trésmiður
Trésmíðameistari getur bætt við sig verk-
efnum. Gluggar, hurðir, parketklæðningar
og fleira. Upplýsingar í síma 691 0778.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Útboð
Reykjanesbær óskar efitr tilboðum í verkið
dæluhús við Eyjavelli
— pípulögn og rafbúnaður
Verkið felst í því að setja upp pípulögn í dælu-
hús við Eyjavelli. Pípulögnin er úr ryðfríu stáli
ásamt dælum og tilheyrandi búnaði. Ennfrem-
ur að leggja pípur og loka í jörðu utanhúss og
tengja dæluhúsið við núverandi dreifikerfi. Ein-
nig skal leggja allar raflagnir að vélbúnaði og
stjórnbúnaði.
Verklok 1. maí 2002.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Reykja-
nesbæjar á kr. 5.000, Tjarnargötu 12, 230 Kefla-
vík. Tilboð verða opnuð á sama stað mánudag-
inn 21. janúar 2002 kl. 11.00.
Reykjanesbær.
TILKYNNINGAR
Til viðskiptavina
Iðntæknistofnunar
Lokað verður vegna jólaleyfa frá og með
24. desember til áramóta.
Gleðileg jól.
Hestur í óskilum
Í Öndverðarnesi í Grímsnesi var í óskilum
rauðstjörnóttur hestur, ca 6—8 vetra, á járnum
er hann kom þangað í júlí. Markaður heilrifað
hægra. Hesturinn er nú að Básum í Grímsnesi.
Verði hestsins ekki vitjað innan 3 vikna frá birt-
ingu auglýsingar verður óskað eftir uppboði
hjá sýslumannsembættinu.
Nánari upplýsingar gefur Ólafur í símum
486 4475/892 4546 og skrifstofa sveitarfélags-
ins í síma 486 4400.
Sveitarstjóri.
ÝMISLEGT
Jól í Metró
Jólagjafir fyrir:
✭ Handlagna
Verkfæratöskur, skrúfjárna-, sporjárna- og út-
skurðarsett.
✭ Potteigandann
Ryksugur sem ekki þurfa rafhlöður, fljótandi
glasabakkar.
✭ Jólabörnin
Jólaskraut í miklu úrvali, seríur úti og inni, greni-
greinar, dansandi jólasveinar og snjókarlar.
Ljósaslöngur í metratali og í settum, krossar,
stjörnur, jólatré og bjöllur.
Metró,
Skeifunni 7, s. 525 0800.
Opið alla daga til kl. 19.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20.00.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Ræðumaður: Þórir Haraldsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.samhjalp.is .
MÓTMÆLAFUNDUR verður á
Lækjartorgi í dag, fimmtudaginn
20. desember, kl. 17, um fordæm-
ingu á hernámi Ísraela á palest-
ínsku landi og stuðning við sjálf-
stæða Palestínu. Hernám á
Palestínu hefur staðið í 34 ár í trássi
við samþykktir Sameinuðu þjóð-
anna, segir í fréttatilkynningu.
Mótmæla-
fundur á
Lækjartorgi
♦ ♦ ♦