Morgunblaðið - 20.12.2001, Síða 69
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001 69
UNDANFARNAR vikur hefur
kjarabarátta flugumferðarstjóra
verið mikið í umræðunni. Ekki er
allt sem sýnist í þeim efnum.
Ýjað hefur verið að því, ef ekki
beinlínis sagt, að nám flugumferð-
arstjóra sé stutt, launað nám og
laun í stéttinni hærri en gengur og
gerist í stéttum með sambærilega
menntun. Við sem nemar í flug-
umferðarstjórn viljum leiðrétta
þennan misskilning.
Námsferlið hefst á nokkrum inn-
tökuprófum sem miða að því að sía
frá þá sem að ekki eru hæfir til að
gegna starfinu. Starf flugumferð-
arstjóra er ekki á færi hvers sem
er, sem sést vel á því að yfirleitt
eru yfir hundrað sem sækja um en
aðeins komast 6–10 að í hvert
skipti. Auk þess má geta þess að
nám í flugumferðarstjórn er ekki
líklegt til þess að nýtast á öðrum
sviðum atvinnulífsins þar sem það
er ákaflega sérhæft.
Að inntökuprófum loknum tekur
við 6 mánaða nám erlendis. Kostn-
aður og uppihald er greitt af Flug-
málastjórn. Þar á eftir tekur við 8–
12 mánaða ólaunað, lánshæft,
starfsnám. Það nám fer ekki fram
á hefðbundnum dagvinnutíma
heldur er vaktaskipt og meðal
annars unnið á næturvöktum. Inn í
þetta starfsnám fléttast æfingar í
flugstjórnarhermi og próf þeim
tengdum.
Hæfniskröfur flugumferðar-
stjóra miðast þó ekki einungis við
þekkingu þeirra. Flugumferðar-
stjóri þarf að standast læknisskoð-
un einu sinni á ári, og á 6 mánaða
fresti eftir 40 ára aldur, hann þarf
að vera í góðu líkamlegu og and-
legu jafnvægi því ekkert svigrúm
er til mistaka.
Hvenær sem er á námstímanum
eiga menn það á hættu að detta út
úr námi og það jafnvel af ástæðum
sem þeir ráða ekkert við. Flug-
umferðarstjórar vinna vaktavinnu
alla daga ársins hvort sem það er
17. júní eða aðfangadagur. Þeir
verða að vera vel hvíldir þegar
þeir mæta til vinnu og í andlegu
jafnvægi.
Ýmsar tölur hafa verið nefndar
undanfarið í tengslum við laun
flugumferðarstjóra. Staðreyndin
er sú að grunnlaun 24 ára gamals
flugumferðarstjóra sem hefur lok-
ið námi eru 171.000 krónur á mán-
uði og inní þeirri tölu er uppbót
vegna skertrar starfsævi, flugum-
ferðarstjórum er skylt að hætta 60
ára. Þar að auki er ekki greitt
aukalega fyrir vinnu á stórhátíð-
um, eins og tíðkast hjá öðru vakta-
vinnufólki.
Fegin vildum við sjá 500–900
þúsund krónur í launaumslaginu,
það myndi hjálpa til við að greiða
af námslánunum.
En þannig er það ekki.
LÁRUS MAGNÚSSON,
Blönduhlíð 35, Reykjavík,
MAGNÚS SVEINSSON,
Eiðistorgi 1, Reykjavík,
HILDUR ALBERTSDÓTTIR,
Barónstíg 25, Reykjavík.
900 þúsund, já, takk
Frá Lárusi Magnússyni,
Magnúsi Sveinssyni og
Hildi Albertsdóttur:
VIÐ upphaf síðustu aldar þjáð-
umst við af vanefnum. Seinni part
aldarinnar var hungrið búið að
færa okkur yfir hollustumörk og
við byrjuð að þjást af velferðar-
sjúkdómum. Við
höfum mögu-
leika á að finna
jafnvægi á nýju
öldinni. Hvernig
viljum við halda
fyrstu jól nýrrar
aldar? Hvað vilj-
um við að ein-
kenni jólahald á
nýrri öld? Gæti
Harry Potter
lagt okkur lið?
Hvort sem það eru bækurnar eða
bíomyndin, af þessu er margt að
læra. Til dæmis fékk uppeldisbróð-
ir Harrys fjall af gjöfum og þótti
lítið til gjafanna koma. Harry fékk
bara eina gjöf og var alsæll með
hana. Harry leggur áherslu á gildi
vináttunnar og veit að það kostar
hugrekki að vera heiðarlegur og
sannur. Sögurnar hafa glatt marga
og gera sitt í að brúa kynslóðabilið
en það er svo mikilvægt.
Höfundurinn hefur haft mikil
áhrif á börn og bókalestur. Þegar
sonur minn var níu ára fannst hon-
um hundrað síðna bók fráhrind-
andi, en það var ekkert mál að lesa
Harry Potter sem var þrjúhundr-
uð síður. Foreldrar, systkini,
ömmur og afar geta notið lestr-
arins saman, er það ekki einmitt
andi jólanna? Talandi um anda
jólanna, þá eru hér nokkrar hug-
myndir um hvernig hægt er að
njóta jólanna enn betur á einfald-
an hátt: Hvað er það sem gerir jól-
in sérstök hjá þér? Gerðu þér
grein fyrir hvað þér líkar ekki við
jólin. Að gefa öðrum tíma sinn er
dýrmæt gjöf. Á að fækka jólapökk-
unum, líka til barnanna? Minna en
samt meira. Það er margsannað að
því meira sem barnið á af leik-
föngum því minni er sköpunargleði
þess. Leyfið yngstu börnunum að
opna pakkana á sinn máta á sínum
hraða, annað er óheilbrigt fyrir
þau. Ef þau hafa þörf fyrir tíma
fram í janúar eða febrúar þá leyfið
þeim það.
Við erum heppin því eins og oft
áður hafa margar áhugaverðar
bækur komið út fyrir þessi jól. Til
dæmis Einfaldaðu líf þitt, eftir
Elaine St. James. Höfundurinn
hefur hjálpað mörgum og eru hug-
myndirnar hér að framan úr einni
bóka hennar. Ég einfalda líf mitt
einfaldlega til að lifa af. Hamingj-
an í húfi eftir dr. Phillip C.
McGran, samskiptaráðgjafa í þátt-
um Oprah Winfrey, er bók sem
hjálpar hjónum og pörum að skoða
og rækta sambandið. Við höfum
lært það á síðustu áratugum að
það að samband lifi er ekki sjálf-
gefið.
ÓLAFUR GRÉTAR
GUNNARSSON.
Harry fékk eina
gjöf og var alsæll
Frá Ólafi Grétari Gunnarssyni:
Ólafur Grétar
Gunnarsson
Engjateigi 5, sími 581 2141
15%
afsláttur af
öllum kápum
Glæsilegt úrval
af stígvélum,
handtöskum
og skóm
Kringlunni, sími 553 2888
ÚTSALA - LAGERSALA
Laugavegi 55, sími 561 3377
Frábært verð – gerið
góð kaup fyrir jólin!
Útsalan byrjar í dag, fimmtudag
Verðdæmi:
20-60% afsláttur
Ullarkápur áður 12.900 nú 6.900
Pils áður 4.900 nú 2.500
Buxur áður 4.900 nú 2.500
HELGI FILIPPUSSON ehf
HEILDVERSLUN
Tunguhálsi 7. Sími: 567 1210
Margt fallegt
til jólagjafa
á góðu verði
Glös - Kerti - Borðar - Silkiblóm -
Jólavörur - Skreytingarefni og margt fleira
Verið velkomin
Opið virka daga
13-18
laugard. og sunnud.
11-17 til 22des.
Lager-
sala
í Árbæ
að Tunguhálsi 7.