Morgunblaðið - 20.12.2001, Page 71
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001 71
DAGBÓK
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbörn dagsins:
Þið hafið gott viðskiptavit
og getið náð langt ef þið
fylgið réttlætiskennd ykkar
í stóru sem smáu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Stundum gerast hlutirnir þeg-
ar maður á síst von á þeim.
Látið því ekkert koma ykkur á
óvart og gefið ykkur tækifæri
á að njóta því það eigið þið
skilið.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Enginn er fær um að lesa ann-
arra hug svo þið verðið að tjá
ykkur um það sem vefst fyrir
ykkur. Ef þið frystið aðra úti
lokið þið á ykkur sjálf um leið.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Allt er undir því komið hvaða
viðhorf þið hafið til hlutanna.
Svo ef þið eruð jákvæð og opin
fyrir nýjungum megið þið
vera viss um að allt fer á besta
veg.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þið viljið tala hreint út við
ákveðna aðila og þá skiptir
öllu máli hvernig þið berið
ykkur að því. Undirbúið ykkur
vandlega og verið málefnaleg.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þótt þið hafið allt ykkar á
hreinu þurfið þið að vera sér-
staklega varkár þegar þið
meðhöndlið mál annarra og
ekki síst ef um fjármál er að
ræða.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það gengur ekki lengur að
sitja með hendur í skauti og
láta tímann líða án þess að að-
hafast nokkuð. Setjið ykkur í
gír og takið þátt í atburðum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þið fáið tækifæri til þess að
hitta skemmtilegt fólk og
skuluð njóta augnabliksins
meðan það gefst. Hugsið ekki
um allt sem þið eigið eftir
ógert.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Forðist að falla í þá freistni að
kaupa hluti sem þið hafið eng-
in not fyrir. Það er svo margt
annað sem gefur lífinu gildi ef
þið bara opnið augun fyrir því.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Allt veltur á góðu samstarfi
svo verið opin fyrir skoðunum
annarra á því hvernig best er
að haga verkinu og látið svo
hendur standa fram úr erm-
um.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Gefið ykkur tíma til að spjalla
við fólk því það getur opnað
augu ykkar fyrir nýjum hug-
myndum sem geta komið sér
vel þótt síðar verði.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þótt ykkur langi til að gera
breytingar heima fyrir skuluð
þið standast freistinguna og
láta þær bíða betri tíma. Gerið
bara gott úr því sem fyrir er.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Allt á sér sinn tíma og nú er
ykkar tími kominn til þess að
sýna hvað í ykkur býr og þið
getið allt sem þið ætlið ykkur
ef þið eruð bara nógu ákveðin.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
TRÖLLASLAGUR
Rýkur, strýkur, fram flaut
á fjöllum öllum með sköllum
geitar sveitar grimm þraut,
geymast því beimar nú heima.
Nölta, tölta um hörð holt
hjarðir, því jarðir nú skarða;
brestur flesta búkost,
baulur í þaula sígaula.
Blikna bönd vinda,
byljirnir afmynda
flyðrubarna fagran völl,
Fjölnis vífs linda,
foldar fjalltinda
flugum niður hrinda.
Jón Guðmundsson í Rauðseyjum
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. Bc4 Rf6
4. d3 Rc6 5. c3 g6 6. Bb3
Bg7 7. 0-0 0-0 8. Rbd2 b6 9.
He1 Ba6 10. Rf1 Re5 11.
Bc2 Dc7 12. h3 e6 13. R3h2
Rc6 14. f4 e5 15. Rg4 Rxg4
16. Dxg4 f5 17. exf5 gxf5 18.
Df3 Re7 19. Rg3 Bb7 20.
Df2 Kh8 21. Bd1 Rg6 22.
Rh5 Hae8 23. Bd2 He7 24.
Bf3 e4 25. Rxg7 Kxg7 26.
dxe4 fxe4 27.
Bh5 d5 28. f5
De5 29. De3
Hxf5 30.
Dh6+ Kg8
31. Bxg6
hxg6 32. Hf1
Hg7 33. Hxf5
gxf5 34. Bf4
De7 35. Bd6
De8 36. Df6
Hg6 37. De5
De6 38.
Dxe6+ Hxe6
39. Bf4 e3 40.
He1 d4 41. h4
He4 42. g3
Staðan
kom upp á
heimsmeist-
aramóti FIDE. Vladimir
Baklan (2.599) hafði svart
gegn Joel Benjamin (2.587).
42. ...Hxf4! 43. gxf4 Bf3! 44.
cxd4 cxd4 45. Kf1 Kf7 og
hvítur gafst upp enda fátt
til varnar.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 20.
desember, er sjötugur Egg-
ert Thorberg Kjartansson,
múrari, Unufelli 9, Reykja-
vík. Kona hans er Hólmfríð-
ur Gísladóttir. Þau taka á
móti gestum á morgun,
föstudaginn 21. desember,
eftir kl. 19 í Tónskóla Hörp-
unnar, Bæjarflöt 17, Grafar-
vogi.
60 ÁRA afmæli. Ámorgun, föstudaginn
21. desember, er sextugur
Þorleifur Hauksson, ís-
lensku- og bókmenntafræð-
ingur. Hann og eiginkona
hans, Guðný Bjarnadóttir
læknir, taka á móti vinum
og vandamönnum á morgun,
frá kl. 17–19 í Reykjavíkur
Akademíunni, Hringbraut
121, 4. hæð.
HJÖRDÍS Eyþórsdóttir
vann „Board-a-match“-
sveitakeppni kvenna á
bandarísku haustleikunum í
Las Vegas í síðasta mánuði.
„Hvert-spil-leikur“ er bein
þýðing á keppnisforminu,
sem er mjög vinsælt í
Bandaríkjunum, en það er í
raun sveitakeppni með tví-
menningsútreikningi. Tvö
stig eru til skiptanna í
hverju spili, sama tala á báð-
um borðum gefur jafntefli,
1–1, en hærri tala gefur
vinningssveitinni bæði stig-
in. Hjördís var í suður í
þessu spili og náði að halda
jöfnu með vandaðri spila-
mennsku:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ –
♥ G1063
♦ ÁK972
♣Á976
Vestur Austur
♠ 97 ♠ DG63
♥ KD92 ♥ Á754
♦ 1064 ♦ D53
♣K1042 ♣DG
Suður
♠ ÁK108542
♥ 8
♦ G8
♣853
Vestur Norður Austur Suður
Levitina Pollack Sanborn Dísa
– 1 tígull Dobl 2 spaðar
3 hjörtu Pass Pass 3 spaðar
Pass Pass Pass
Hjördís er kölluð „Dísa“ í
Bandaríkjunum. Hún er gift
bandaríska atvinnuspilaran-
um Curtis Cheek, en þau
hjónin spila allan ársins
hring á bandarískum mótum
og víðar.
Makker „Dísu“ í kvenna-
sveitinni er Rozanne Poll-
ack. Hér eiga þær í höggi við
Levitinu og Sanborn, þekkt-
ar konur í bridsheiminum.
Vestur kom út með hjarta-
kóng, en skipti síðan yfir í
tígul. Hjördís tók á ásinn og
trompaði hjarta. Fór svo inn
í borð á tígulkóng til að
trompa hjarta aftur. Og
áfram á sömu braut: lauf á
ásinn og hjarta stungið.
Staðan var nú þessi:
Norður
♠ –
♥ –
♦ 972
♣976
Vestur Austur
♠ 97 ♠ DG63
♥ – ♥ –
♦ 10 ♦ D
♣K104 ♣D
Suður
♠ ÁK108
♥ –
♦ –
♣85
Hjördís spilaði laufi og
vestur tók þar tvo slagi.
Spilaði síðan tígli, sem aust-
ur stakk með gosa og Hjör-
dís yfirtrompaði og spilaði
spaðaáttu um hæl. Vestur
fékk slaginn á níuna, en
Hjördís átti síðustu tvo slag-
ina á K10.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Gullsmiðja
Hansínu
Jens
Seljum eingöngu
smíðað af
Hansínu og
Jens Guðjónssyni
Laugaveg 20b
v/ Klapparstíg
sími 551 8448
Íslenskt handverk
Garðar Ólafsson úrsmiður,
Lækjartorgi. S: 551 0081
l i
j i
Samkvæmisfatnaður
Ný sending - Úrval af náttfatnaði
Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433
Opið laugardag kl. 11-18,
sunnudag kl. 11-18 og
aðfangadag kl. 10-13
50 ÁRA afmæli. Fimm-tugur er í dag, 20.
desember, Ólafur Haukur
Johnson. Af því tilefni tekur
hann og eiginkona hans,
Borghildur Pétursdóttir, á
móti ættingjum og vinum í
samkomuhúsi Garðabæjar,
Garðaholti, á milli 17 og 20.
MORGUNBLAÐIÐ birt-
ir tilkynningar um af-
mæli, brúðkaup, ættar-
mót og fleira lesendum
sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100,
sent í bréfsíma 569-
1329, eða sent á netfang-
ið ritstj @mbl.is. Einnig
er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
60 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 20.
des., er sextugur Margeir
Rúnar Daníelsson, Siglu-
vogi 6, Reykjavík, fram-
kvæmdastjóri Samvinnulíf-
eyrissjóðsins. Hann dvelur
ásamt eiginkonu sinni, Unni
Stephensen, á Hótel
D’Angleterre, Kgs. Nytorv
34, DK 1021 Köbenhavn.
FRÉTTIR
NÝLEGA hélt Krabbameinsfélag
Reykjavíkur námskeið fyrir kenn-
ara og aðra sem annast fræðslu
um tóbaksvarnir í grunnskólum.
Þátttakendur voru 20 alls staðar
að af landinu.
Kynnt var námsefnið „Vertu
frjáls – reyklaus,“ sem Krabba-
meinsfélag Reykjavíkur gefur út
með tilstyrk Tóbaksvarnanefndar.
Hefur það verið lagt til grundvall-
ar í tóbaksvarnastarfi frá árinu
1997. Grunnur námsefnisins er frá
Noregi en það var íslenskað og að-
lagað.
Sjö af hverjum tíu nemendum á
aldrinum 11 til 16 ára fengu á síð-
asta skólaári fræðslu sem byggist
á áðurnefndu námsefni. Kannað er
reglulega hjá skólastjórnendum
hvernig háttað er tóbaksvarna-
fræðslu í skólum þeirra. Svarhlut-
fall var 97% í síðustu könnun.
Fram kom í könnuninni að nýt-
ing námsefnisins hefur í heild auk-
ist úr 64% í 69%. Mest er nýtingin
á Vesturlandi eða 84% og á Vest-
fjörðum er hún 78%. Lægst er hún
á Reykjanesi og Suðurlandi,
kringum 60%.
Kennurum kennd-
ar tóbaksvarnir