Morgunblaðið - 22.12.2001, Side 26
ERLENT
26 LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ef þú hefur aldrei smakkað tælenskan mat,
prófaðu þá þessa rétti, 10 tegundir
Nýtt í örbylgjuna. Tælenskir skyndiréttir. Uppskriftir
frá veitingahúsinu Ban-Thai, Laugavegi 130.
Framleitt samkvæmt GÁMES-staðli (HACCP)
sem tryggir öryggi og gæði
Fást í verslunum Hjarðarhaga, Lágmúla, Austurstræti, Glæsibæ, Baronstíg og Engihjalla.
Finndu bragð af Tælandi
TÆLENSKIR SKYNDIRÉTTIR
Góð viðbót við jólamatinn
T & D ehf., Bergholt 2 - 270 Mosfellsbær - Sími 896 3536 - Fax 566 8978 - Netfang tomasb@simnet.is
VEGNA eldsneytisskorts í Kabúl
hafa margir íbúar borgarinnar
gripið til þess ráðs að tína
spýtnabrak, pappír og ýmiss kon-
ar rusl af götunum til að geta
kveikt arinelda á heimilum sínum
í vetrarkuldanum. Afgönsk börn
leita hér að eldiviði í húsasundi í
afgönsku höfuðborginni.
AP
Nýta ruslið til
að orna sér
BANDARÍSKIR hermenn standa
nú fyrir umfangsmikilli leit í hellun-
um í Tora Bora, helstu bækistöðvum
al-Qaeda, hryðjuverkasamtaka
Osama bin Ladens, í Afganistan.
Verður notast við sérútbúin tæki til
að ryðja burt brakinu en búist er við,
að þetta mikla og hættulega verk
muni taka margar vikur eða mánuði.
Bandaríska varnarmálaráðuneyt-
ið hafði í huga að biðja afganska
bandamenn sína að leita í hellunum
en frá því hefur verið horfið. Er
ástæðan sú, að leitin er mjög erfið
vegna afleiðinga loftárásanna og þar
að auki hafa Afganarnir lítinn áhuga
á henni nú þegar búið er að sigrast á
herjum talibana og al-Qaeda.
Þótt stríðið í Afganistan hafi ein-
kennst af hátæknihernaði mun hella-
leitin líklega hafa í för með sér marg-
ar sömu hættur og mættu
bandarískum hermönnum í glímunni
við „gangarotturnar“ í Víetnam og
við japönsku varnarsveitirnar á Ok-
inawa 1945.
Þegar búið verður að ryðja frá
hellismunnunum er áætlað að senda
inn einhvern hugaðan mann með
vasaljós og skammbyssu. Þótt al-
Qaeda-liðarnir séu flestir fallnir eða
flúnir er samt vonast til að finna ein-
hverja á lífi inni í lokuðum hellunum.
Þá er líka búist við, að þar sé að finna
mikilvægar upplýsingar og lík fall-
inna al-Qaeda-liða. Hugsanlegt er,
að sjálfur bin Laden eða lík hans
komi í leitirnar, og til að hægt sé að
ganga úr skugga um það hafa
Bandaríkjamenn orðið sér úti um
erfðaefni frá fjölskyldu hans.
Ekki er nóg með, að bandarísku
hermennirnir geti búist við átökum
við al-Qaeda-liða og sprengjugildr-
um, heldur eru allar aðstæður uppi í
fjöllunum mjög erfiðar. Þau eru allt
að 4.000 metra há og þar ríkir nú
heljarkuldi. Hefur suma bandarísku
hermannanna, sem þar eru nú, kalið
á höndum og fótum.
Erfitt að koma
við stórum tækjum
Hundruð hella kögra hlíðar
tveggja dala og munnar margra
þeirra lokuðust í loftárásum Banda-
ríkjamanna. Mjög erfitt verður að
koma þangað stórvirkum tækjum
enda eru vegirnir ekki annað en slóð-
ar og lyftikraftur þyrlna verður lítill
í mikilli hæð. Þar fyrir utan yrði erf-
itt að beita tækjunum í bröttum hlíð-
unum. Af þessum sökum verður lík-
lega að nota minni tæki, loftpressur,
keðjusagir og annað í þeim dúr. Það
mun krefjast mikils mannafla og erf-
iðis og taka langan tíma.
Margir hellanna í Tora Bora eru
litlir, á við lítið herbergi, en al-Qaeda
réð líka yfir öðrum hellum, sem
tengdir voru saman með göngum og
miklu stærri en áður var talið.
Sagt er, að bin Laden hafi haft að-
setur í helli í Ghryeki Khiel-fjöllum,
sem eru í sex tíma múlasnaferð frá
Tora Bora, og hafi hann einna helst
minnt á neðanjarðarhótel. Hugsan-
legt er, að einhverjir al-Qaeda-liðar
séu þar enn og í öðrum stórum
hellum.
Hellarnir í Tora
Bora grafnir út
eftir loftárásirnar
Washington. Los Angeles Times.
Reuters
Afganskir hermenn ylja sér við eld í fjalli í Tora Bora í austurhluta Afganistans.
Margra mánaða leit framundan í
heljarkuldanum í fjöllunum
’ Innilokaðir al-Qaeda-liðar og
sprengjugildrur
geta beðið þeirra
sem fara fyrstir inn í
hellana ‘
MARGIR hafa leitt getum að því
að Osama bin Laden hafi flúið yfir
snævi þakin fjöll Austur-Afganist-
ans fyrir rúmri viku og leitað á
náðir pakistanskra ættbálka sem
séu vinveittir hryðjuverkaforingj-
anum. Margir Pakistanar telja
þetta athyglisverða kenningu,
enda er þetta einfaldasta flótta-
leiðin, en segja að hún sé ekki
miklu trúverðugri en aðrar kenn-
ingar sem fram hafa komið.
Íbúar pakistönsku héraðanna
við landamærin að Afganistan
segja að þótt margir af liðsmönn-
um al-Qaeda komi frá þessu svæði,
sem er einkum byggt Pastúnum,
sé erfiðara fyrir bin Laden að
leynast þar en margir vestrænir
fjölmiðlamenn telja.
„Það er hugsanlegt að hann
dvelji á svæðum ættbálkanna, en
ekki mjög lengi,“ sagði Lateef
Asridi, fyrrverandi þingmaður frá
einu landamærahéraðanna. „Pak-
istönsk stjórnvöld leita hans,
Bandaríkjamenn leita hans, Bret-
ar líka, og þeir vita að þeir þurfa að
leita hans hérna.“
Þótt margir íbúa landamæra-
héraðanna séu hallir undir herská-
ar trúarskoðanir bin Ladens þykir
ólíklegt að þeir vilji stofna ætt-
bálki sínum í hættu með því að
skjóta skjólshúsi yfir bin Laden
eða múllann Mohammed Omar,
leiðtoga talibana, sem hefur einnig
horfið. Í þessum menningarkima
eru hagsmunir fjölskyldunnar og
ættbálksins alltaf í fyrirrúmi.
Í Kasmír eða Tsjetsjníu?
Íbúar landamærahéraðanna
virðast sammála um að það sé
tímasóun að setja fram kenningar
um fylgsni bin Ladens en viður-
kenna um leið að þeir eyði tals-
verðum tíma í að velta þessu fyrir
sér.
„Hægt er að komast yfir fjöllin
alla leiðina frá Tora Bora til Kasm-
ír,“ sagði Mumtaz A. Bangash,
prófessor við Peshawar-háskóla.
Hann taldi hugsanlegt bin Laden
dveldi nú meðal íslamskra skæru-
liða sem berjast gegn indverskum
yfirráðum í Kasmír.
Flestir telja mjög ólíklegt bin
Laden sé í Íran því flestir Íranar
eru shíta-múslímar en bin Laden
súnníti. Einnig þykir ólíklegt að
hann hafi fengið athvarf í grann-
ríkjunum Túrkmenistan, Tadsjik-
istan eða Úsbekistan vegna náinna
tengsla þessara landa við and-
stæðinga talibana í Afganistan.
Að öllum líkindum væri örugg-
ast fyrir bin Laden að leynast í
Tsjetsjníu þar sem ólíklegt er að
trúbræður hans þar fengjust til að
framselja hann Rússum eða að
Bandaríkjamenn fengju að senda
hersveitir inn í héraðið. Hins veg-
ar þykir ólíklegt að bin Laden hafi
komist til Tsjetsjníu vegna fjar-
lægðarinnar.
Undir verndarvæng pakist-
önsku leyniþjónustunnar?
Sumir telja að bin Laden sé enn
í Afganistan, annaðhvort í Paktia
eða Khost-héraði.
Aðrir hafa leitt getum að því að
bin Laden hafi laumast í gegnum
Baluchistan-hérað í Pakistan til
Arabíuflóa og farið þaðan með
skipi til Súdans, eða Sómalíu, eða
Egyptalands, eða Indónesíu, eða
Filippseyja eða Marokkó.
Ennfremur hefur komið fram
samsæriskenning um að bin Lad-
en sé undir verndarvæng pakist-
önsku leyniþjónustunnar, sem hef-
ur haft mjög náin tengsl við
talibana. Útsendarar leyniþjón-
ustunnar hafi laumað bin Laden
frá Tora Bora, klippt hár hans,
rakað af honum skeggið, ef til vill
sett á hann sólgleraugu, og séð
honum fyrir öruggu fylgsni í pak-
istanskri borg, til að mynda Kar-
achi eða Lahore.
Fjölmargar
kenningar
um fylgsni
bin Ladens
Peshawar. Los Angeles Times.