Morgunblaðið - 22.12.2001, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2001 67
DAGBÓK
Gistihús Regínu
Mjölnisholti 14, 3. hæð, símar 551 2050 og 898 1492
Það verður opið að venju hjá okkur um jólin og
áramót frá 13. des. til 5. janúar við óskum
öllum landsmönnum nær og fjær gleðilegra jóla,
árs og friðar.
Verð á herb. og íbúðum yfir hátíðarnar:
Stúdíóíbúð kr. 5.000 nóttin
eða kr. 20.000 vikan.
2ja manna herb. með aðgangi að baði
nóttin kr. 4.000,- eða kr. 15.000 vikan.
Eins manns herb. kr. 2.500 nóttin
eða kr. 15.000 vikan
Ekki er um morgunverð að ræða
á þessu tímabili.
Gleðileg jól.
Samkvæmisfatnaður
Ný sending - Úrval af náttfatnaði
Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433
Opið laugardag kl. 11-18,
sunnudag kl. 11-18 og
aðfangadag kl. 10-13
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð fjölhæf og
fljóthuga sem kemur ykkur
í koll þegar fyrirhyggjan
er lítil sem engin.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Öllum breytingum fylgir
nokkurt rót. Látið það ekki
fara í taugarnar á ykkur held-
ur takið því sem sjálfsögðum
hlut. Breytingar eiga að
bæta.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ykkur finnast sumar per-
sónulegar skoðanir starfs-
félaganna út í hött. Reynið
samt að láta þær liggja á milli
hluta og sinnið starfi ykkar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Nú er komið að því að þið
reynið eitthvað sem þið hafið
aldrei upplifað áður. Látið
það gerast og árangurinn
mun koma ykkur skemmti-
lega á óvart.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Haldið ró ykkar á hverju sem
gengur og lítið bara á björtu
hliðarnar. Hláturinn bætir og
lengir lífið. Elska er vinátta
en ekki valdbeiting.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Starf ykkar mun kynna ykk-
ur fyrir mörgu nýju fólki.
Verið opin gagnvart því en
gætið þó fyllstu varkárni, því
alltaf er varinn góður.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þið þurfið að leggja ykkur
sérstaklega fram til þess að
ná tilskildum árangri. Verið
hvergi smeyk því þið hafið
alla burði til að vinna verkið.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er farsælla að velta hlut-
unum fyrir sér heldur en að
bregðast strax við. Verið viss
um hvað þið viljið, þegar á
hólminn er komið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Eftir stormasama tíð eruð þið
nú að sigla málum í örugga
höfn. Það er full ástæða til
þess að gleðjast vegna þess
og gera sér nokkurn daga-
mun.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ykkur hefur tekist að sann-
færa starfsfélagana um ágæti
verka ykkar. Nú er bara að
sýna dirfsku og staðfestu og
sigla málunum í örugga höfn.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þið verðið að taka afleiðing-
um gjörða ykkar og munið að
til að ná árangri þurfið þið að
leggja ykkar af mörkum.
Ekkert fæst án fyrirhafnar.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Takið höndum saman við þá
sem deila framtíðarsýn ykk-
ar. Verið óhrædd við breyt-
ingar því þær eru nauðsyn-
legur þáttur til að bæta
tilveruna.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ykkur líður eins og ykkur
haldi engin bönd svo notfærið
ykkur velgengnina en varist
að framkvæma hlutina að óat-
huguðu máli. Fall er farar-
heill!
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3
Rg4 7. Bc1 Rf6 8. Be3 Rg4 9.
Bg5 Rc6 10. h3 Da5 11. Rxc6
bxc6 12. Bd2 Re5 13. f4 Rd7
14. Bc4 Hb8 15. Bb3 g6 16.
De2 Bg7 17. 0-0-0 0-0 18.
Kb1 Rc5 19. g4 Be6 20. f5
Bxb3 21. cxb3
Staðan kom upp á heims-
meistaramóti FIDE. Kiril
Georgiev (2.695) hafði
svart gegn Lasaro
Bruzon (2.573). 21.
...Rxb3! Með þessari
fórn tryggir svartur
stórsókn meðfram b-
línunni og veldi bisk-
upsins á g7 verður eng-
um vafa undirorpið. 22.
axb3 Hxb3 23. Kc2
Hfb8 24. Hb1 Db4 25.
Hhc1 d5 26. exd5 cxd5
27. Kd1 Dd6 28. Ha1 d4
29. Re4 d3 30. Df2 Dd5
31. Df3 Kh8 32. Ha5
Dd4 33. Hac5 Dg1+ 34.
Be1 d2 35. Hc8+ Bf8 36.
Rxd2 Hxf3 37. Rxf3 Db6 38.
Re5 Kg8 39. Bd2 Dg1+ 40.
Ke2 Dh2+ 41. Kd1 Dxe5 42.
Bh6 Dd5+ 43. Ke1 Da8 44.
Hxb8 Dxb8 og hvítur gafst
upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
FRÆG er sagan af frúnni
sem átti út gegn sjö grönd-
um breska meistarans
Harrison-Gray. Hún doblaði
ekki, en tók þó á ásinn sinn.
„Af hverju doblaðirðu
ekki?“ spurði undrandi
áhorfandi. „Herra minn –
þér þekkið ekki Harrison-
Gray. Hann redoblar bara!“
Suður gefur; AV á hættu.
Norður
♠ –
♥ ÁD9832
♦ KDG1054
♣8
Vestur Austur
♠ ÁKG4 ♠ D97632
♥ 1074 ♥ K65
♦ 732 ♦ 96
♣1092 ♣65
Suður
♠ 1085
♥ G
♦ Á8
♣ÁKDG743
Pólski spilarinn Jacek
Pszczola hefði betur fylgt
ráðum þessarar ágætu konu
í þessu spili gegn öðrum
margfrægum meistara –
sjálfum Benito Garozzo.
Vestur Norður Austur Suður
Pszczola Dupont Zia Garozzo
– – – 1 lauf
Pass 1 hjarta Pass 3 lauf
Pass 3 tíglar Pass 3 grönd !?
Pass 6 tíglar Pass 6 grönd !??
Dobl ??? Pass Pass 7 lauf
Dobl Allir pass
Spilið er frá Blue Ribb-
ons-tvímenningnum í Las
Vegas í síðasta mánuði.
Makker Pólverjans er Zia
Mahmood, en í norður er
Lea Dupont, eiginkona Gar-
ozzos. Það er augljóst að
Dupont fær ekki að spila
mörg spil í þessu pari.
En dobl „Pepsíkóla“ var
illa tímasett. Garozzo hafði í
tvígang meldað grönd á
tíuna þriðju í spaða og þótt-
ist vita á hverju doblið væri
byggt. Og breytti í sjö lauf
til að lágmarka tapið.
Út kom spaðaás og það
glaðnaði heldur betur yfir
meistaranum þegar frúin
lagði upp einspil í laufi og
engan spaða: 13 slagir og
1630 í dálkinn.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Ljósmyndaverið Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 11. ágúst sl. í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík af sr.
Sigurði Pálssyni Hildur
Stefánsdóttir og Jónas Páll
Jónasson.
Ljósmyndaverið Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 14. júlí sl. í Bústaða-
kirkju af sr. Pálma Matth-
íassyni Hulda Guðmunds-
dóttir og Þór Eiríksson.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 18. ágúst sl. í Digra-
neskirkju af sr. Gunnari Sig-
urjónssyni Sigrún Rafns-
dóttir og Daði Þór Einars-
son. Heimili þeirra er að
Fyrrevænget 12, 6900 –
Skjern, Danmark.
Ljósmyndaverið Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 22. september sl. í
Kotstrandarkirkju af sr.
Theódóri Birgissyni Sólrún
Margrét Stefánsdóttir og
Markús Jóhannesson.
LJÓÐABROT
Svo frjáls vertu móðir sem vindur á vog,
sem vötn þín með straumunum þungu,
sem himins þíns bragandi norðljósa log
og ljóðin á skáldanna tungu.
Og aldregi aldregi bindi þig bönd,
nema bláfjötur Ægis við klettótta strönd.
Steingrímur Thorsteinsson
Morgunblaðið/Kristján
Þessar duglegu stúlkur á Akureyri héldu hlutaveltu á dög-
unum og söfnuðu 4795 krónum sem þær færðu Rauða
krossdeildinni á Akureyri að gjöf. Þær heita Ásdís Rósa
Frímannsdóttir, Lena María Eyþórsdóttir, Hildur Rík-
harðsdóttir, Linda Margrét Einarsdóttir og Sigríður Rósa
Frímannsdóttir.
Hlutavelta
Veistu nokkuð, tengda-
mamma? Ef furutré
væri með sama ummál
og þú þá væri það 40
metra hátt.
Maður er vissulega
miklu nær tunglinu í
þessum háhýsum.
NEI, þetta getur ekki
beðið í nokkra daga.
FRÉTTIR
OTTÓ Magnússon íslistamaður mun
skapa listaverk úr klaka laugardag-
inn 22. desember frá hádegi og til kl.
22 í Kringlunni, við hlið inngangs hjá
Nýkaupi.
Helgistund verður á vegum Frí-
kirkjunnar kl. 11, Ketkrókur er á
ferðinni kl. 17, lifandi jóladjass,
strengjakvartett, píanóleikur, Solla
stirða frá Latabæ og fleiri. Fjöldi
tónlistarmanna og rithöfunda kynnir
og áritar bækur og plötur, t.d. mun
Ólafur Jóhann Ólafsson árita bók
sína við Pennann kl. 15.
Opið verður til 23 á Þorláksmessu,
segir í frétt frá Kringlunni.
Íslistamaður
í Kringlunni
JÓLASVEINNINN Askasleikir
heimsækir Seltjarnarnesið í dag,
laugardaginn 22. desember, upp úr
klukkan tvö. Með honum verða
tveir aðstoðarjólasveinar.
Hljóðfærasláttur og söngur
verður á svæðinu meðan jólasvein-
arnir eru í heimsókn ásamt margs-
konar sprelli.
Skátafélagið Ægisbúar setur
upp „kakó- & vöfflu“-veitingahús
við Rauða ljónið og selur veitingar
til styrktar starfsemi skátafélags-
ins. Þeir gæta friðarlogans fyrir
Vesturbæinga, segir í fréttatil-
kynningu.
Askasleikir
á Eiðistorgi
ATVINNA mbl.is