Morgunblaðið - 23.03.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.03.2002, Blaðsíða 1
69. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 23. MARS 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 23. MARS 2002 Bush reyndi að sannfæra um 50 þjóðarleiðtoga, er sátu ráðstefnuna, um hugmynd að „nýrri sátt“ ríkra og fátækra þjóða. Slík „sátt“ myndi fyrst og fremst snúast um baráttu gegn spillingu, fjárfestingar í mennt- unarmálum og áherslu á viðskipta- frelsi sem forsendur hagvaxtar. Bush svaraði einnig fullum hálsi þeim er gagnrýnt hafa bandarísk stjórnvöld fyrir að vera nísk á þróun- araðstoð. Bandaríkjamenn hafa lengi verið atyrtir fyrir að veita ein- ungis 0,1% af þjóðarframleiðslu sinni til aðstoðar við fátæk ríki, sem er með því lægsta sem gerist hjá þróuð- um iðnríkjum. „Í marga áratugi hef- ur árangur þróunaraðstoðar einung- is verið metinn eftir því hversu mikið er veitt, en ekki þeim árangri sem náðst hefur.“ Sagði Bush tilgangs- laust að halda áfram að veita við sömu, óviðunandi aðstæðurnar. Sagði Bush að þjóðarleiðtogarnir á ráðstefnunni yrðu allir að einbeita sér að því, sem í raun og veru kæmi sér vel fyrir þá fátækari. Þar myndu Bandaríkjamenn ganga á undan með góðu fordæmi. Kynnti Bush fyrir- ætlanir sínar um að auka þróunarað- stoð Bandaríkjamanna um 50% í rúmlega 16 milljarða dollara frá og með 2006. Yrði viðbótin sett í sér- stakan sjóð sem yrði aðgengilegur þjóðum sem ynnu að umbótum. Þrátt fyrir þetta tókst Bush ekki að þagga niður alla gagnrýni. „Þetta er of lítið,“ sagði Charles Josselin, þróunarmálaráðherra Frakklands. „Evrópa hefur þegar lagt þrefalt meira af mörkum og hyggst lofa því að leggja til jafnvel enn meira. Bandaríkjamenn ætla að fara úr 0,10 prósentum í 0,13 prósent, Evrópa fer úr 0,33 prósentum í 0,39 prósent.“ Í lok fundar þjóðarleiðtoganna var skrifað undir Monterrey-samþykkt- ina, sem kveður á um aukna aðstoð við þróunarlönd sem skuldbinda sig til heilbrigðs stjórnarfars, opinna markaða og lýðræðis. Í samþykkt- inni er hvorki kveðið á um fjárhæðir né tímamörk, og hafa óháð baráttu- samtök gagnrýnt samþykktina og sagt hana vera marklaust plagg. Framkvæmdastjóri SÞ, Kofi Ann- an, var meðal þeirra sem komu sam- þykktinni til varnar, og sagði hana „ekki kraftlaust plagg“, nema því að- eins að ekki yrði farið eftir henni. „En ef við efnum þau fyrirheit sem í henni eru gefin, og höldum áfram að starfa saman að þeim getur hún valdið þáttaskilum í lífi fátæks fólks um allan heim.“ Monterrey-samþykktin kveður á um aukna þróunaraðstoð Bush heitir því að sýna gott fordæmi Monterrey í Mexíkó. AFP. AP Forsætisráðherra Frakklands, Jacques Chirac, hlustar á ræðu Bush Bandaríkjaforseta í gær. UNG, ísraelsk hjón, sem féllu í sprengjutilræði Palestínumanns í fyrradag, voru borin til grafar í gær og var fjöldi syrgjenda við jarð- arförina. Fulltrúum Ísraela og Palest- ínumanna mistókst að semja um langþráð vopnahlé á fundi sínum í gær en urðu hins vegar ásáttir um að halda áfram viðræðum um helgina. Þykir það góðs viti í ljósi þess að Palestínumenn hafa haldið áfram sjálfsmorðsárásum sínum á ísraelsk skotmörk í vikunni á meðan viðræður hafa staðið yfir. Ákveðið var að funda í gær þrátt fyrir að palestínskur öfgamaður hefði sprengt sjálfan sig í loft í mið- borg Jerúsalem á fimmtudag, með þeim afleiðingum að þrír Ísraelar biðu bana og fjörutíu særðust. Ákváðu ísraelsk stjórnvöld að halda að sér höndum en sögðu þó, að þol- inmæði þeirra ætti sér takmörk. Tiltölulega rólegt var um að litast í gær en einn Palestínumaður lést þó er hann sprengdi sjálfan sig í loft upp við eftirlitsstöð Ísraelshers á Vesturbakkanum. Hafði maðurinn, sem var liðsmaður al-Aqsa-hreyf- ingarinnar, en þær stóðu fyrir ódæðinu í Jerúsalem í fyrradag, ver- ið að reyna að komast inn í Ísrael er hann var stöðvaður af hermönnum. Viðræðum haldið áfram um helgina AP  Styðja Arafat/24 PÓSTMAÐUR í þorpinu Withington í Gloucester-skíri í Bretlandi hefur hvað eftir annað orðið fyrir árásum skapmikils fashana, og segir póst- urinn, Geoffrey Sandles, að fuglinn hafi setið fyrir sér nokkrum sinn- um. Greint er frá þessu á fréttavef BBC. Árásirnar hófust daginn eftir að pósturinn ók yfir annan fugl. „Hann leyfir mér ekki að fara að sumum húsunum í þorpinu,“ hefur BBC m.a. eftir Sandles, sem hefur borið út póst í 24 ár og nokkrum sinnum orðið fyrir hundsbiti, en fuglar hafa hingað til látið hann í friði. Til að byrja með fannst Sandles þetta bara dálítið sniðugt en gam- anið fór að kárna þegar fuglinn herti árásirnar einn daginn og flaug beint framan í póstmanninn. Þá hef- ur fuglinn ítrekað elt bíl Sandles og stundum hefur legið við slysi. Sandles kveðst hafa staðist mátið að kveða niður hefndarhug fuglsins. Fashani of- sækir póst ELIZABETH Butler-Sloss, dómari við yfirrétt í Bretlandi, úrskurðaði í gær að 43 ára gömul kona, sem haldið hefur verið lifandi með hjálp öndunarvélar, mætti sjálf ákveða að tækið yrði tekið úr sambandi og henni þannig leyft að deyja. Nafn konunnar hefur ekki verið gefið upp, hún er því í fjölmiðlum nefnd „ungfrú B“. Butler-Sloss sagði að niðurstaðan merkti að konan fengi nú að deyja í friði og með reisn. Ungfrú B er lömuð frá hálsi og niður úr vegna þess að æð í hálsi hennar brast fyrir ári en hún er við fulla meðvitund og andleg heilsa hennar óskert. Aðeins um 1% líkur eru sagðar á því að henni geti batnað. Lögfræðingar hennar hafa haldið því fram að hún hafi sama rétt og aðrir sjúklingar til að hafna meðferð, en læknar á sjúkrahúsinu sögðu að þar eð hún væri ekki dauðvona væri það brot á siðareglum að stöðva öndunarvélina. Lögfræðingar stofnunarinnar segja að úrskurðinum verði þó ekki áfrýjað. Talsmenn samtaka gegn líknardrápi and- mæltu í gær niðurstöðunni og sögðu hana vara- samt fordæmi. Mál ungfrú B er að því leyti ólíkt þekktu máli Diane Pretty að Pretty, sem er með ólæknandi taugasjúkdóm, á að sögn lækna aðeins eftir að lifa í nokkra mánuði. Til þess að Pretty deyi þarf að gefa henni banvænt lyf af ásettu ráði, það er fremja beinlínis líknarmorð. Gert er ráð fyrir að ungfrú B verði nú flutt á annan spítala þar sem læknar samþykki að láta að óskum hennar. Fram kom í frétt BBC að ungfrú B vildi ekki fá tækifæri til að taka önd- unarvélina sjálf úr sambandi þar sem ættingjar hennar myndu þá fá á tilfinninguna að hún hefði fyrirfarið sér. Öndunarvél tekin úr sambandi Lamaðri, breskri konu verður leyft að deyja London. AFP. GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti hvatti þjóðarleiðtoga á fá- tæktarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Mexíkó í gær til að krefjast þess af fátækum ríkjum, er leita efnahagsaðstoðar, að þau komi á pólitískum og efnahagslegum umbótum, og kvaðst Bandaríkjaforseti myndu ganga á undan með góðu fordæmi. Bush sagði m.a. í ræðu sinni á ráðstefnunni, er haldin er í borginni Monterrey: „Þróun- arlöndin eiga ekki einungis rétt á að deila auði okkar heldur ber þeim líka skylda til að ýta undir það sem skapar auð; viðskiptafrelsi, stjórnmálafrelsi, réttarfar og mannréttindi.“  Meiri alvara/ 2 ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.