Morgunblaðið - 23.03.2002, Page 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 23. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Valur í úrvalsdeild
eftir árs fjarveru / B2–B3
Lilleström kaupir
Davíð Þór Viðarsson / B1
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r23.
m a r s ˜ 2 0 0 2
STEFNT er að því að ný miðstöð
leitar- og björgunaraðgerða taki til
starfa á næsta ári samkvæmt sam-
starfssamningi ríkislögreglustjóra,
Flugmálastjórnar og Slysavarna-
félagsins Landsbjargar. Miðstöðin
mun heita Landsbjörgunarmiðstöð
Íslands og verður starfrækt vegna
leitar loftfara og leitar- og björgunar-
aðgerða á landi. Jón Birgir Jónsson,
ráðuneytisstjóri í samgönguráðu-
neytinu, skýrði frá þessu í gær á ráð-
stefnu á vegum yfirstjórnar leitar og
björgunar á hafinu og við strendur
landsins undir yfirskriftinni Ný
tækni – aukið öryggi.
Fram kom í erindi Jóns Birgis að
Flugmálastjórn hyggist leggja til
flugstjórnarvinnustöð í björgunar-
miðstöðinni og ríkislögreglustjóri
muni setja upp vinnustöð fyrir lög-
regluaðgerðir í miðstöðinni auk þes
sem Landsbjörg muni setja upp
vinnustöðvar. Flugmálastjórn fer
með forræði í miðstöðinni vegna leit-
ar að loftförum en ríkislögreglustjóri
fer með forræði vegna leitar- og
björgunaraðgerða á landi.
Á sama hátt hafa ríkislögreglu-
stjóri og Almannavarnir gert með sér
samkomulag um samnýtingu á hús-
næði o.fl. þar sem Landsbjörgunar-
miðstöð Íslands verður til húsa.
Sagði Jón Birgir að samstarfssamn-
ingar þessir væru mikill áfangi í sam-
starfi þeirra aðila sem vinna að leitar-
og björgunarstörfum og stuðlaði að
auknu samstarfi og bætti verulega
skipulag leitar- og björgunarað-
gerða.
Fram kom í erindinu að skipurit
leitar- og björgunarmála breyttist
verulega með væntanlegum sam-
starfssamningum.
Aðgerðastjórnstöðvar
renna saman í eina miðstöð
Samkvæmt núgildandi skipuriti
munu þrjár aðskildar aðgerðastjórn-
stöðvar hjá ríkislögreglustjóra, Flug-
málastjórn og landstjórn björgunar-
sveita renna saman í Miðstöð leitar-
og björgunaraðgerða með samræm-
ingarstöð Almannavarnaráðs. Eftir
sem áður mun Landhelgisgæslan
verða með sér aðgerðastjórnstöð.
Kom fram hjá Jóni Birgi að stjórn-
unarferli eftir breytinguna muni
batna verulega og verða bæði örugg-
ara og hagkvæmara.
Þrátt fyrir umræddar breytingar
geta fimm stjórnendur verið í stjórn-
stöð.
Ætlað að bæta verulega stjórnun leitar og björgunar
Landsbjörgunar-
miðstöð á næsta ári
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frá ráðstefnunni í flugskýli Landhelgisgæslunnar. Boðaðar eru breyt-
ingar í skipulagi leitar og björgunar með samstarfssamningum.
MÉR finnst vera meiri hugur og al-
vara í mönnum á þessari ráðstefnu
en ég átti von á og menn eru raunar
einnig að koma sér saman um raun-
hæfari tillögur,“ segir Geir H.
Haarde fjármálaráðherra sem situr
fund þjóðarleiðtoga um þróunarað-
stoð í Monterrey í Mexíkó. „Mér
sýnist greinilegt að Bandaríkjamenn
leggi mikla áherslu á þessa ráð-
stefnu sem verður að teljast frekar
óvenjulegt um svona málefni. Hér
eru bæði forseti Bandaríkjanna og
utanríkisráðherrann og raunar fjár-
málaráðherrann líka og þeir hafa
lagt fram miklar hugmyndir og til-
kynningar um áform sín í þessum
efnum. Hér eru einnig framkvæmda-
stjórar stóru alþjóðlegu stofnananna
eins Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Al-
þjóðabankans og Alþjóðaviðskipta-
málastofnunarinnar.“
Geir segir það óvenjulegt að öllum
þessum aðilum skuli safnað saman á
svona vettvang og það gefi ákveðin
fyrirheit um nánara samstarf og að
menn taki vandamál fátækra ríkja
fastari tökum. „Ætlunin er að sam-
þykkja sérstaka yfirlýsingu, sem
verður kennd við fundinn hér í Mont-
errey, um fjármögnun þróunarmála
eða þróunaraðstoðar. Um það virðist
vera góð samstaða. En það eru
margar hliðar á því verkefni að auka
tekjur og bæta lífskjör í fátækustu
löndum heimsins. Hér er ekki ein-
ungis verið að fjalla um framlög og
þróunarhjálp heldur einnig aðra
mjög mikilvæga þætti eins og frjáls
viðskipti, fjárfestingar í þróunar-
löndunum og einnig um atriði eins
stefnu þessara ríkja heima fyrir í
efnahagsmálum, stjórnarfar og bar-
áttu þeirra gegn spillingu og raunar
margt fleira.“
Ekki breytingar á
framlögum Íslendinga
Hvað framlög Íslands varðar segir
Geir að það muni varla koma neitt
nýtt fram í þeim efnum af hálfu Ís-
lands annað en það að tekið verði al-
mennt undir þau markmið sem verið
sé að leggja fram á fundinum. „Þetta
er frekar ítrekun á því sem sam-
þykkt var á fundi þjóðarleiðtoga árið
2000 og fundurinn nú byggist á því
starfi.“
Geir segir að á fundinum sé ein-
göngu verið að ræða þróunaraðstoð í
beinu fjárhagslegu samhengi: „Það
er verið að ræða um miklu flóknara
samhengi og það sem er ánægjulegt,
að því er mér finnst, er að það er
ákveðin viðhorfsbreyting í röðum
þróunarríkjanna sjálfra gagnvart
því hvernig eigi að vinna úr svona
málum. Þeir eru opnari fyrir því að
nota frjáls viðskipti sem tæki í þessu
skyni og að opna löndin fyrir fjár-
festingum. Og reyndar líka að taka
til í eigin ranni að því er varðar
stjórnarfar og efnahagsstefnu. Þetta
er allt mjög breytt í ljósi þess að hin
alþjóðlega hugmyndasamkeppni
milli frjálsa markaðskerfisins og
miðstýrðra búskaparhátta er ein-
faldlega horfin af sjónarsviðinu.“
Geir segir að á fundinum sé aðeins
ein rödd sem tali fyrir miðstýrðum
búskap og það sé rödd Fidels Castr-
os. Hann sé mælskur og steli sen-
unni en hann njóti mjög lítils stuðn-
ings. „En það var auðvitað dálítið
gaman að hafa hann þarna á fund-
inum í græna búningnum sínum.“
Fundur þjóðarleiðtoga um þróunaraðstoð í Monterrey í Mexíkó
Meiri alvara þjóðarleiðtoga
Baldur Guðlaugsson ráðuneytisstjóri, Þorsteinn Ingólfsson, sendiherra
Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, og Geir H. Haarde fjármálaráðherra.
MORGUNBLAÐINU í
dag fylgir auglýs-
ingablað frá Rétti dags-
ins ehf. Blaðinu verður
dreift á höfuðborg-
arsvæðinu.
LIÐ Menntaskólans í Reykjavík
hafði betur í úrslitaviðureign við lið
Menntaskólans við Sund í spurn-
ingakeppni Ríkisútvarpsins og
framhaldsskólanna, Gettu betur,
sem fram fór í íþróttahúsinu í
Smáranum í gær. Þetta er í tíunda
skiptið í röð sem lið MR sigrar í
keppninni. „Þetta gat farið á báða
vegu, en endaði með sigri okkar,“
sagði Snæbjörn Guðmundsson, einn
liðsmanna, í samtali við Morg-
unblaðið í gær. „Ástæðan fyrir
þessari sigurgöngu MR er góð og
mikil þjálfun og hefðin sem er orðin
fyrir því að vinna.“
Keppnin var jöfn framan af og
byrjaði lið MS-inga betur, var fimm
stigum yfir þegar mest var. Liði MR
tókst hins vegar að jafna í bjöllu-
spurningum og sigraði að lokum
með 22 stigum gegn 18 stigum MS-
inga.
Að venju var mikil stemmning
meðal áhorfenda og fagnaðarlát-
unum ætlaði aldrei að linna er úr-
slitin réðust á síðustu stundu.
Lið MR er skipað, auk Snæbjarn-
ar, Atla Frey Steinþórssyni og Oddi
Ástráðssyni, sem allir eru nem-
endur í 4. bekk og að keppa í fyrsta
sinn í Gettu betur. Þeir segjast því
eiga tvö ár eftir í keppninni.
22 lið framhaldsskóla víðsvegar
um landið hófu keppni þetta árið í
Gettu betur sem var fyrst í stað út-
varpað á Rás tvö. Markús Örn Ant-
onsson útvarpsstjóri afhenti sig-
urliðinu Hljóðnemann, farandbikar
keppninnar, sem hlýtur að vera
orðinn frekar hagvanur í húsa-
kynnum MR í miðbænum.
Morgunblaðið/Sverrir
Sigurlið MR ásamt liðsstjóranum Helga Hrafni Guðmundssyni. Liðið
var að keppa í Gettu betur í fyrsta sinn.
MR sigraði í tíunda sinn
TVEIR lögreglumenn í Reykjavík
hafa stefnt lögreglustjóra sínum,
dómsmálaráðherra og fjármálaráð-
herra fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur,
vegna vangreiddra launa sem nemur
rúmlega einni milljón króna.
Annar mannanna krefst greiðslu
vangreiddra launa að fjárhæð 577
þúsund kr. en hinn 443 þúsund kr.
Málavextir eru þeir að lögreglu-
mennirnir, sem störfuðu í upplýs-
inga- og eftirlitsdeild lögreglunnar í
Reykjavík, voru í fyrravor lánaðir í
ár yfir á aðrar deildir sem glímdu við
mikinn málafjölda og manneklu. Áð-
ur en til þessa kom, í janúar 2001,
hafði verið samið við lögreglumenn í
upplýsinga- og eftirlitsdeild um
greiðslu 50 yfirvinnustunda á mán-
uði óháð vinnuframlagi.
Þegar lögreglumennirnir voru
lánaðir var þeim tilkynnt að ekki yrði
greitt samkvæmt samningum frá og
með 1. júní 2001. Telja lögreglu-
mennirnir að brotið hafi verið á þeim
þegar þeir lækkuðu í launum við um-
ræddan flutning.
Stefna
vegna van-
greiddra
launa