Morgunblaðið - 15.06.2002, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2002 9
UM HELGINA verður haldið á
Stöðvarfirði ættarmót niðja Hans
Jónatans og Katrínar Antoníusar-
dóttur, en mótið er haldið nú þegar
200 ár eru liðin frá því að Hofs og
Stadsretten í Kaupmannahöfn neitaði
Hans um frelsi og dæmdi hann til
baka í þrældóm til Vestur Indía –
þrátt fyrir að þrælahald væri bannað í
Danmörku á þessum tíma. Hans Jón-
atan, sem fæddist 1784 á eyjunni St.
Croix í Karíbahafi í Vestur-Indíum,
var þræll dansks aðalsfólks að nafni
Schimmelmann, en Major General
Ludvig Heinrich Von Schimmelmann
var landstjóri Dana í Dönsku Vestur-
Indíum á þessum tíma, segir á heima-
síðu ættarmótsins.
Á fæðingarvottorði var Hans Jón-
atan sagður sonur ritara á plantekr-
unni Constitution Hill og blökku-
stúlku. Nafn hennar er ekki nefnt en
hún hét Emiliane Regina og vann
sem þjónustustúlka landstjórans. Við
skírn drengsins upplýsti móðirin ekki
um faðerni hans.
Barðist fyrir Dani í orrustu
við Englendinga
Röð atburða varð til þess að Hans
Jónatan hélt til Íslands. Sem barn í
Vestur-Indíum hlaut hann menntun
en þegar fjölskylda Schimmelmanns
fluttist heim til Danmerkur fóru
mæðginin með. Í manntali frá Kaup-
mannahöfn 1801 er þeirra mæðgina
getið og þau sögð vera þjónn og stofu-
stúlka frú Schimmelmann, en Majór
Schimmelmann lést árið 1793. Hans
Jónatan var baldinn við gömlu ekkj-
una og árið 1801 strauk hann frá
henni og fór til þess að taka þátt í orr-
ustu Dana við Englendinga um eyjun
Reden á Eyrarsundi. Hann varð há-
seti á herskipinu Charlotte Amalie og
gat sér gott orð í orrustunni þrátt fyr-
ir að hún hafi tapast. Að launum fyrir
frammistöðu sína fékk Hans Jónatan
15 ríkisdali og vilyrði frá krónprins
Dana um að hann fengi frelsi að laun-
um fyrir framgöngu sína. Ekkjan var
hins vegar ekki sátt við þessi málalok
og þegar Hans Jónatan sneri til baka
setti hún hann í stofufangelsi og neit-
aði að gefa honum frelsi nema varn-
armálaráðuneytið greiddi henni 402
ríkisdali sem hún sagðist hafa orðið
að gefa í afslátt af plantekru þeirra
hjóna á St. Croix vegna þess að þau
höfðu tekið Hans Jónatan með sér til
Danmerkur. Fékk hún því framgengt
að hann yrði settur í gæsluvarðhald
þar sem hann sat í rúman mánuð og
reyndi hún eftir það að fá hann hand-
tekinn á ný en eftir að Hans Jónatan
hafði borið vitni neitaði lögreglustjór-
inn í Kaupmannahöfn að handtaka
hann aftur.
Dæmdur til að flytjast í
þrældóm á sykurplantekrur
Gekk lengi á með bréfaskriftum
milli varnarmálaráðuneytisins og
ekkjunnar vegna þessara mála og
sköpuðust af þessu miklar lagaflækj-
ur þar sem þrælahald var ekki leyft í
Danmörku en var hinsvegar leyft í
nýlendum Dana. Ekkjan hélt því
fram að eignarhald hennar væri ótví-
rætt þar sem hún hefði eignast Hans í
Vestur-Indíum.
Að lokum greip ekkjan til þess ráðs
að fá dómsúrskurð þess efnis að Hans
Jónatan yrði fluttur nauðugur tilbaka
til Vestur-Indía en hann krafðist þess
á móti að á grundvelli ummæla krón-
prinsins og þess að þrælahald væri
bannað í Danmörku þá bæri honum
frelsi. Ekkjan neitaði staðfastlega og
endaði málið með réttarhöldum. Með-
al dómara í málinu var maður að nafni
A.S. Örsted er síðar varð frægur
hæstaréttardómari í Danmörku en
var alltaf í vafa hvort hann hefði
dæmt rétt í máli Hans Jónatans.
Dómur féll 31. maí 1802 á þann veg að
Hans Jónatan var dæmdur til að flytj-
ast í þrældóm á sykurplantekrur
Vestur-Indía. Eftir dóminn hvarf slóð
Hans Jónatans og fór engum sögum
af honum fyrr en hann birtist sem
starfsmaður verslunarinnar Örums &
Wolf á Djúpavogi um 1816, en það er
sama ár og ekkja Schimmelmanns
lést í Kaupmannahöfn.
Sagan segir að við komuna til
Djúpavogs hafi Hans Jónatan haft
með sér 3 ættargripi til sönnunnar
um uppruna sinn – þeir eru nú týndir
og er talið að einn af gripunum, tób-
akspungur með skjaldarmerki, hafi
farið með einum af afkomendum hans
til Bergen í Noregi snemma á þessari
öld.
Danskir fjölmiðlar
sýna málinu áhuga
Árið 1824 kvæntist Hans Jónatan
Katrínu Antoníusdóttur frá Hálsi í
Berufirði. Þau eignuðust tvö börn
sem fengu nöfnin Ludvig Jónatan
Jónatansson og Hansína Regina Jón-
atansdóttir. Telja afkomendurnir að
nöfn barnanna ásamt mikilli leynd um
föður Hans megi telja ákveðna vís-
bendingu um faðerni hans. Afkom-
endur Hans Jónatans eru nú mörg
hundruð og eru dreifðir um Ísland,
Ameríku, Mexíkó, Brasilíu, Dan-
mörku, Ástralíu og Noreg.
Um þessar mundir er statt hér á
landi kvikmyndatökulið frá Dan-
mörku sem er að gera heimildarmynd
um ævi Hans Jónatans auk þess sem
sögu hans hefur verið gerð skil í
dönskum fjölmiðlum undanfarið.
Afkomendur manns frá Vestur-Indíum halda
ættarmót á Stöðvarfirði um helgina
Dæmdur í þrældóm
fyrir 200 árum
Fæðingarstaður Hans Jónatans í Vestur-Indíum.
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
KARÍBAHAF - 12 d.
hálfvirði = 2 fyrir 1
Heimsklúbbur Ingólfs-PRÍMA
HÆSTIRÉTTUR hefur vísað frá
dómi máli sem Náttúruverndarsam-
tök Íslands og þrír einstaklingar
höfðuðu gegn íslenska ríkinu þar
sem þeir kröfðust þess aðallega að
úrskurður umhverfisráðherra um
mat á umhverfisáhrifum Kára-
hnjúkavirkjunar yrði felldur úr gildi
og ráðherra gert að staðfesta úr-
skurð Skipulagsstofnunar sem hafði
lagst gegn framkvæmdinni.
Segir í dómi Hæstaréttar að um
aðild að dómsmáli, sem höfðað er
um ákvörðun stjórnvalds á grund-
velli laga um mat á umhverfisáhrif-
um, fari eftir almennum reglum.
Þar á meðal þeirri grunnreglu að
dómstólar leysi ekki úr sakarefni
nema sýnt sé að það skipti að lögum
máli fyrir stöðu stefnenda að fá dóm
um það. Ekkert þeirra atriða sem
stefnendur hafi haldið fram í mál-
inu, því til stuðnings að þeir hafi
hagsmuni af því að fá úrlausn dóm-
stóla um aðalkröfu sína, sé þess eðl-
is að þeir geti talist hafa slíka lög-
varða hagsmuni af því að
efnisdómur gangi um kröfuna. Þeg-
ar af þeirri ástæðu verði að vísa
henni frá héraðsdómi.
Hagsmunir vegna
varakröfu
Varakrafa stefnenda var reist á
því að meðferð ráðherra á málinu
hafi verið andstæð lögum og segir í
dómnum að stefnendur skorti ekki
lögvarða hagsmuni af því að fá úr-
lausn dómstóla um varakröfuna. Þar
sem kröfunni hafi á hinn bóginn
ekki verið beint að Landsvirkjun
eða öðrum, sem hefðu hagsmuna að
gæta af úrlausn þess, verði einnig að
vísa þessari kröfu frá héraðsdómi.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Markús Sigurbjörnsson, Árni
Kolbeinsson, Gunnlaugur Claessen,
Haraldur Henrysson og Pétur Kr.
Hafstein.
Atli Gíslason hrl. flutti málið fyrir
stefnendur en Skarphéðinn Þóris-
son hrl. var til varnar.
Leysir úr sakarefni ef
hagsmunir eru fyrir hendi
Sportlegur og sparilegur fatnaður
fyrir þjóðhátíðardaginn
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Vorum að fá ljósar gallabuxur
og sumarboli
Ljósar sumardragtir
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230
Opið í dag kl. 10-14
Laugavegi 58 - Smáralind,
sími 551 3311 - 528 8800
Köflóttu töskurnar komnar
Gallatöskurnar
fást hjá okkur.
Sendum í póstkröfu.
Svört og rauð bönd
4.900
5.900
3.900
Útilegustóll
með örmum, glasahaldara
og skemil
2.590 kr.
Í dag, laugardaginn 15. júní frá kl. 17-18, verður
Ásmundur Gunnlaugsson með kynningu fyrir áhuga-
sama á næstu jógakennaraþjálfun sem hefst helgina
21.–23. júní. Þjálfunin er ekki aðeins fyrir þá sem vilja
gerast jógakennarar heldur einnig öflugt sjálfsþekkingar-
og þroskanámskeið. Sjá nánar á www.yogastudio.is
Auðbrekku 14, Kópavogi.
Sími 544 5560
Kynningarfundur í dag