Morgunblaðið - 06.04.2003, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 06.04.2003, Qupperneq 17
Jónsson, að gert yrði ráð fyrir hljóm- sveitargryfju í aðalsal hússins, og þar með möguleika á óperuflutningi. Í ályktun aðalfundarins var sagt að stefnt yrði að því að hönnun hússins yrði lokið fyrir árslok 1987. Eins og sjá má hefur ágreiningur um óperuflutn- ing í tónlistarhúsinu verið lífseigur lengi, þótt aldrei hafi almennilega á hann reynt. Vera má að tónlistarmenn og áhugafólk um tónlist hafi litið á það sem forgansverkefni að sýna því sam- stöðu að knýja á um byggingu hússins og að framkvæmdir gætu hafist. Sátt var um það að húsið yrði fyrst og fremst heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands, og tæpast hægt að segja að Íslenska óperan væri búin að slíta barnsskónum og festa sig í sessi sem fullburða atvinnustofnun í tónlist. Lít- ið heyrðist frá Samtökunum næstu ár- in, en 1991 komst aftur skriður á mál- in, þegar þau efndu til fjáröflunar til stuðnings byggingunni. Í mars það ár, sagði fulltrúi fjáröflunarnefndarinnar í viðtali við Morgunblaðið að fyrsta skólflustungan yrði væntanlega tekin þá um sumarið. Húsið yrði fyrsta sér- hannaða tónlistarhúsið hérlendis. Rúmu ári síðar voru framkvæmdir enn ekki hafnar, þegar Samtök um byggingu tónlistarhúss óskuðu eftir viðræðum við borgaryfirvöld um nýja lóð fyrir tónlistarhúsið, og þá við Ing- ólfsgarð við Reykjavíkurhöfn. Þá voru uppi hugmyndir um að tengja tónlist- arhús fyrirhugaðri byggingu ráð- stefnumiðstöðvar við höfnina. Árið 1994 var enn allt með kyrrum kjörum og ekkert varð af fyrstu skóflustungu hússins fyrirheitna sumarið 1991. Þó voru Samtök um byggingu tónlistar- húss greinilega vel vakandi, og aug- lýstu opna skrifstofu alla daga frá kl. 10–15. Tónlistarhúsið kosningamál Í mars 1994 kom fram í kosninga- stefnuskrá R-listans í Reykjavík, að það yrði skoðað sem eitt af forgangs- verkefnum í menningarmálum að byggja tónlistarhús í borginni, og að listinn myndi sjá til þess að farið yrði af stað á kjörtímabilinu í samvinnu við ríkið og nágrannasveitarfélög. Þar með tóku vinstri menn undir ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins frá árinu áður um að flokkurinn styddi við áform um byggingu tónlistarhúss, og vonir um pólitíska samstöðu um málið glæddust. Enn leið þó tíðindalítið ár. Í maí 1995 sagði Björn Bjarnason menntamálaráðherra í Morgunblaðs- viðtali að taka yrði ákvörðun um tón- listarhús á kjörtímabilinu og reyna að koma því á einhvern rekspöl. Björn sagði eðlilegt að bygging hússins yrði samstarfsverkefni margra öflugra að- ila. Síðar um sumarið lýsti Vladimir Ashkenazy píanóleikari og hljómsveit- arstjóri áhyggjum sínum af deyfð í málefnum tónlistarhússins, og bauðst til að leggja hönd á plóginn. Það voru ekki orðin tóm. Bæði menntamálaráð- herra og formaður Samtaka um bygg- ingu tónlistarhúss þökkuðu Ashken- azy velviljann opinberlega, og átti Ashkenazy eftir að reynast vel sem ráðgjafi um byggingu hússins á kom- andi misserum. Næsta vetur, eða í febrúar 1996 var verkefnaáætlun menntamálaráðuneytisins fyrir kjör- tímabilið sett fram, og þar kom fram að tekin yrði ákvörðun á kjörtíma- bilinu um það hvort reisa skyldi tón- listarhús. Þá um haustið skýrði Gunn- ar Birgisson bæjarfulltrúi í Kópavogi svo frá því að fyrsti sérhannaði tón- listarsalur landsins myndi rísa í Kópavogi. Salurinn myndi rúma um 300 manns. Þá var orðið ljóst að stóra tónlistarhúsið yrði ekki fyrsta tónlist- arhúsið á höfuðborgarsvæðinu, því auk fyrirhugaðs tónlistarhúss í Kópa- vogi hafði Karlakór Reykjavíkur enn- fremur hafið byggingu sérstaks tón- listarhúss í Skógarhlíð í Reykjavík. Tónlistarhús skal rísa en Óperan dregur sig í hlé Það dró loks til tíðinda í júní 1997 þegar nefnd menntamálaráðherra um tónlistarhús skilaði áliti sínu, þar sem mælt var með því að byggt yrði tónlistarhús í Reykjavík. Lagðir voru fram þrír kostir um staðsetningu hússins: í Laugardal, við Hótel Sögu, eða í Öskjuhlíð. Tveir síðarnefndu kostirnir gerðu ráð fyrir því að tón- listarhúsið yrði reist í tengslum við ráðstefnuaðstöðu. Nefndin gerði ráð fyrir því að tveir tónleikasalir yrðu í húsinu, fyrir 1.200–1.300 manns og fyrir 300–400 manns. Ekki var gert ráð fyrir óperuflutningi í húsinu, þar sem Íslenska óperan taldi stærri sal- inn of stóran fyrir íslenskar aðstæð- ur, auk þess sem hætta væri á að leik- sviðsaðstaða gerði hljómburð fyrir sinfóníska tónlist lakari. Kostnaður var áætlaður að lágmarki 1.550 millj- ónir króna. Mánuði síðar samþykkti ríkisstjórn Íslands tillögu mennta- málaráðherra um að fá sérfræðilegt mat á kostum og göllum þeirra þriggja kosta sem lágu fyrir bygg- ingu tónlistarhússins. Ákveðið var að samráð yrði haft við Samtök um byggingu tónlistarhúss og þá sem störfuðu að ferðamálum. Kallað var eftir aðstoð sérfræðinga frá Banda- ríkjunum og Danmörku. Um haustið skipaði samgönguráðherra svo nefnd til að kanna möguleika á byggingu ráðstefnumiðstöðvar í tengslum við ’ „Á fimmta áratug síðustu aldar varfarið að efna til tónleika til styrktar byggingu tónlistarhúss.“ ‘ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2003 17 Tvö sóltjöld fylgja öllum bílstólum til páska. Acidophilus H á g æ ð a fra m le ið sla A ll ta f ó d ýr ir Fyrir meltingu og maga FRÁ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.