Morgunblaðið - 06.04.2003, Síða 38

Morgunblaðið - 06.04.2003, Síða 38
UMRÆÐAN 38 SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ NÚ ER landsfundur Sjálfstæð- isflokksins liðinn. Þar mættu þús- und Íslendingar á samkomu í hina fjölnota Laugardalshöll. Í höllinni hafa margar íþróttahetjurnar verið hvattar til dáða, auk þekktra lista- manna, svo sem hinn heimsfrægi tenór Jose Carreras, sem hylltur var þar á liðnu ári af aðdáendum sínum. Ekki voru fagnaðarlætin minni í kjölfar vakningarræðu formanns Sjálfstæðisflokksins, ef marka má frásagnir af setningu landsfundar- ins, enda flutti formaður ljóð um stríð undir slagorði, sem myndi sóma sér á hvaða landsleik sem væri – Áfram Ísland. Það er í hæsta máta eðlilegt að formaður Sjálfstæðisflokksins sam- gleðjist flokkssystkinum sínum á landsfundi, enda hefur mörgu góðu verið áorkað í stjórnartíð hans. Það vekur hins vegar ætíð tortryggni þegar lofræðum er ætlað að breiða yfir staðreyndir, einkum og sér í lagi þegar þær eru á allra vitorði. Af nógu er að taka úr ræðu for- manns til að nefna sem dæmi um slíkt. Þar ber fyrst á góma einurð flokksleiðtogans til að styðja stríðs- rekstur Bandaríkjanna og Bret- lands af sömu dyggð og hann verndaði hinn friðelskandi forseta Kína fyrir Falun Gong-iðkendum. Stríðskafla ræðunnar var síðan fylgt úr hlaði með ljóðlínum eftir Tómas Guðmundsson, sem voru sjálfsagt betur til þess fallnar að viðhalda stemningunni en ljóð Kristjáns frá Djúpalæk, Slysaskot í Palestínu. Þá tók við langhundur um skattamál þar sem prósentur af ýmsum toga voru lagðar fram til stuðnings fullyrðinga um að skattar hafi lækkað undir forystu for- manns. Í þeim kafla vitnar formað- ur af sinni landsþekktu lítilsvirð- ingu í kollega sinn, formann Samfylkingarinnar Össur Skarp- héðinsson, þar sem hann nefnir hann „einn af aðaltalsmönnum Samfylkingarinnar“. Hafi þetta verið tilraun til gamansemi, þá virðist eitthvað hafa fallið á egg hinnar hárbeittu kímnigáfu, sem formaðurinn sýndi af sér á dögum útvarps Matthildar, eða hvað hann nú hét sá ágæti þáttur. Eftir stendur að stjórn formanns hagnast nú um 14 milljarða á ári vegna þess að persónuafsláttur hef- ur ekki fengið að fylgja launaþró- un. Þá verða allar launahækkanir hjá almennum launþegum fyrir 60– 70% raunsköttun vegna áhrifa jað- arskatta. Það skal því engan undra þótt unnt sé að lækka skatta, en að sama skapi hlýtur hver kjósandi að velta fyrir sér hvernig í ósköpunum stendur á því að ætíð skortir fé til heilbrigðis- og velferðarmála. Í miðri skattaumræðunni skýrð- ist hvers konar stjórnmálamaður formaður er. Hann er athafna- stjórnmálamaður, ekki umræðu- stjórnmálamaður. Þessu verður seint mótmælt. Það eru ófá dæmi um athafnir formanns sem ekki fengu umræðu fyrirfram. Til að forðast stílbrot sá formað- ur til þess að skattamálum lyki ekki án þess að lítilsvirða ein- hverja, í þessu tilfelli hagfræðinga, sem hann uppnefndi hagtækna og vændi um að þykja 199 króna vín- berin súr. Næst ber hæst kaflann um illar tungur. Þar kvartar formaður sáran undan því að einhverjir hafi veist að persónu hans og gert hana tortryggilega. Kannski halda illar tungur því fram að hann sé bara fortæknir. Þessi kafli heldur sig við efnið, þ.e.a.s. illar tungur, nema hvað hið illa umtal verður um R- listann og fjármál Reykjavíkur- borgar, og er fylgt úr hlaði með stuðlum og höfuðstöfum. Nú kemur að því sem formaður fullyrðir að vel hafi reynst. Hér er ekkert til sparað, svo landsfund- argestir fái sem besta innsýn í þau málefni sem vel hafa reynst. Það er hvorki meira né minna en fimm lín- um varið í ræðu formanns til um- ræðu um stöðu og framtíð landbún- aðar. Svo mörg voru þau orð um einn undirstöðuatvinnuveg þjóðar- innar, sem nú þarf sex milljarða króna ríkisframlag til að hann legg- ist ekki af. Í beinu framhaldi af því tjáði for- maður viðstöddum að almenn sátt væri um sjávarútvegsstefnu lands- ins, nema hvað andstæðingar flokksins hefðu hvað eftir annað flutt ræður og ályktanir af full- komnu ábyrgðarleysi í garð þess- arar mikilvægu atvinnugreinar. Hverjar voru svo helstu áhyggj- ur formanns vegna þessara ábyrgð- arlausu ályktana? Ekki voru það atvinnumöguleikar í sjávarbyggð- um landsins, ekki rýrnun á verð- mæti eigna fólks á landsbyggðinni þegar kvóti hefur verið seldur burt, eða hin gríðarlega eignatilfærsla sem á sér stað þegar einstaklingar selja gjafakvóta og fara með hundruð, jafnvel þúsundir milljóna skattfrjálst úr landi. Nei, ekkert af þessu angrar formann. Það sem veldur áhyggjum formanns er hugsanlegt hrun á veðhæfni sjáv- arútvegsins. Við sem ekki berum fálkaflokks- skírteinið getum varla sett okkur í spor korthafa. Við spyrjum í for- undran hverjir eru svona sáttir við sjávarútvegsstefnu Sjálfstæðis- flokksins? Eina augljósa svarið er: Þeir sem fengu auðlindina gefins og var gert kleift að hagnast um ótrúlegar upphæðir á því að selja eða leigja gjöfina frá sér. Það er við hæfi að rifja upp af þessu tilefni nokkrar ljóðlínur úr kvæði Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi, Söngur loddarans, sem hann orti fyrir munn ónefnds at- hafnastjórnmálamanns. Ég blæs í lyginnar lúður og leik á hégómans strengi, og hræsninnar bumbu ber ég, svo bergmálið hljómi lengi … Söngur loddarans Eftir Sigurð Inga Jónsson „Við sem ekki berum fálkaflokks- skírteinið getum varla sett okkur í spor kort- hafa. Við spyrjum í for- undran hverjir eru svona sáttir við sjávarútvegs- stefnu Sjálfstæðis- flokksins?“ Höfundur er oddviti Frjálslynda flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Í dag milli kl 14 og 16 verður opið hús í Garðastræti 16 jarðhæð. Um er að ræða góða 56 fm 2ja her- bergja íbúð með sérinngangi, flísar og parket á gólfum, góðar innrétting- ar. Húsið verður málað í sumar og er það gert á kostnað seljanda, þetta er góð eign í miðbænum þannig að núna er bara að drífa sig og skoða. Verð 8,1 millj Garðastræti 16 - Opið hús Skúlagata 17, Rvk,  595 9000 Hlíðasmári 15, Kóp.,  595 9090 holl@holl.is • www.holl.is Opið virka daga kl. 9-18, laugard. kl. 12-14. GSM 896 8232 AUSTURBRÚN - RVÍK Stórglæsilegt samtals 212,9 fm (m. bílskúr) nýlegt parhús á þessum frábæra stað. Rúm- gott og vel skipulagt hús, skemmtilegur lok- aður garður. Verð 27 millj. KJARRMÓAR - GBÆ Nýkomið í einkasölu mjög gott 85 fm raðhús (+fm undir súð efri hæðar). Frábær staður þar sem er stutt í alla þjónustu. Bílskúrsrétt- ur. HÓLMATÚN - ÁLFTANESI Mjög fallegt og bjart um 130 fm (m. bílskúr) raðhús á einni hæð. 3 svefnherbergi, byggt árið 2000. Hellulagt plan og góð verönd með skjólveggjum. Rólegt og gott umhverfi, stutt í skóla og leikskóla. Verð 17 millj. SJÁVARGRUND - GBÆ Nýkomin í einkas. sérlega falleg 146 fm hæð ásamt bílageymslu í þessu vinsæla húsi. Íbúðin er á einni hæð (fyrstu) og svo er geymsla o.fl. ásamt inngangi úr bílageymslu í kjallara. SKÓLAGERÐI - KÓP. Góð 78 fm 4ra herb. á 2. hæð í vesturbæ Kópavogs. Nýtt baðherb., ágætar innrétting- ar. Þvottahús í íbúð, geymsla í kjallara. Verð 11,9 millj. NÝBÝLAVEGUR - NÝTT Mjög góðar og vel skipulagðar 85 fm nýjar íbúðir í nýju 5 íbúða húsi á þessum gróna stað. Skilast fullbúnar án gólfefna 1. desem- ber 2003. Möguleiki á bílskúr. Teikningar hjá Garðatorgi. OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-17 Höfum til sölu glæsilega 98 m², 3ja herb. íbúð á jarðhæð með sérgarði og verönd, ásamt 22 m² bílskúr. Húsið er 2ja hæða með 6 íbúðum. Verð kr. 10.500.000. Upplýsingar veitir: Eignaland ehf., Hlíðasmára 9, Kóp., Guðmundur Þórðarson hdl. og lögg. fast.sali. Símar 568 3040 og 891 6768. 3ja herb. íbúð og bílskúr við Bakkastaði í Reykjavík Hörkugott, bjart og skemmtilegt verslunarrými á jarðhæð, 54,2 fm, á þessum frábæra stað með sérinngangi í reisulegu og fallegu húsi. Rafmagn nýlega endurnýjað. Nýlegar lagnir fyrir tölvur og síma. Sérgeymsla í kjallara fylgir. Hugsanlegt að breyta í íbúð. Rýmið opið fyrir utan wc og starfsmannaaðstöðu. Eign sem býður uppá skemmtilega möguleika. Verð 6,7 millj. Áhv. ca 4,7 millj. Myndir á www.holl.is. Frekari upplýsingar á skrifstofum Hóls eða hjá Björgvin í síma 595 9012. Af sérstökum ástæðum er til sölu ein rótgrónasta og glæsilegasta blómabúðin í dag. Verslunin selur fjölbreytta blómaflóru og mjög vandaða gjafavöru. Verslunin er sérlega vel staðsett. Traustur kúnnahópur og föst verkefni. Góð velta. Starfsemin í traustu rúml. 100 fm húsnæði. Fullkominn blómakælir, allar innréttingar, tæki og tól til reksturs- ins fylgja með í kaupunum. Heildarverð ásamt lager er aðeins 10.0 millj. (Lager er rúml. 6 millj.). Hér er frábært tækifæri fyrir rétta aðila. Ýmiss skipti athugandi. Myndir á www.holl.is. Frekari uppl. á skrifstofum Hóls eða hjá Björgvin í síma 595 9012. Grundarstígur - jarðhæð Blómið Grensásvegi - Verð 10 millj. m/lager Skúlagata 17 - Sími 595 9000 Hlíðarsmári 15 - Kópavogur - Sími 595 9090 holl@holl.is - www.holl.is Opið virka daga kl. 9-18, laugard. kl. 12-14 Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17 Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 Íbúðin er á tveimur hæðum, ein- staklega fallega innréttuð 4ra til 5 herbergja ásamt stæði í lokuðu bíl- skýli. Sérþvottahús í íbúðinni, sérsmíðuð eldhúsinnrétting með innbyggðri upp- þvottavél og ís- skáp, halogen- lýsing o.fl. Opið hús í dag frá kl. 14 og 17 hjá Rögnu og Ágústi. NAUSTABRYGGJA 27 OPIÐ HÚS - FULLBÚIN „PENTHOUSE“-ÍBÚÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.