Morgunblaðið - 06.04.2003, Side 55
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2003 55
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 49.965
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Flug, gisting, skattar, 27. apríl, 24 nætur.
Ofangreint verð er staðgreiðsluverð.
Alm. verð kr. 52.460.
Verð kr. 59.950
M.v. 2 í íbúð, 27. apríl, 24 nætur.
Flug og gisting, skattar.
Ofangreint verð er staðgreiðsluverð.
Alm. verð kr. 62.950.
Ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Costa
del Sol þann 27. apríl í 24 nætur. Nú getur þú notið fegursta tíma
ársins á þessum vinsælasta áfangastað Íslendinga í sólinni og búið
við frábæran aðbúnað. Þú bókar núna og tryggir þér síðustu sætin,
og 4 dögum fyrir brottför hringjum við í þig og tilkynnum þér hvar
þú býrð. Að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra
Heimsferða allan tímann.
Síðustu sætin
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Stökktu til
Costa del Sol
27. apríl - 24 nætur
frá kr. 49.965
ÞETTA var rétti leikurinn hjá
henni, að leita á ný mið, hvíla sig (og
okkur) aðeins á kraftballöðunum. Það
eru því engin „My Heart Will Go On“
hér, því hún hefur kosið að leita til
meistara iðnaðarpoppsins, helstu
fjöldaframleiðenda handhægra og
auðmeltra dægur-
flugna, sem búið er
að sannreyna útfrá
vísindalegum stöðl-
um að límast við
heila hlustenda,
hvort sem þeim lík-
ar betur eða verr. Við erum auðvitað
að tala um Svíana, dúxana í Abba-
skólanum, þá Max Martin og félaga,
en eins og margir vita er íslenski Sví-
inn Arnþór Birgisson í þeim mæta og
eftirsótta hópi. Ef ég á að vera alveg
hreinskilinn þá valdi hún Celine
blessunin sér alveg hárréttan fé-
lagsskap, því fyrir vikið er hún orðin
miklu viðkunnanlegri og lögin mörg
hver á One Heart bara býsna fín.
Ekki nóg með það heldur beitir hún
röddinni á mun smekklegri máta en
áður, hefur blessunarlega afráðið að
róa sig heilmikið í öllum þessum slauf-
um og dúllum, og er meira farin að
prófa ný og settlegri stílbrigði. Ég er
ekki að segja að hún muni hér vinna á
sitt band þá sem hafa látið hana fara í
sínar fínustu í gegnum tíðina en One
Heart er þó hin prýðilegasta popp-
platan sem mun vafalítið viðhalda vin-
sældum hennar. Tónlist
Celine og
sænsku dúxarnir
Celine Dion
One Heart
Columbia
Tólfta platan frá þessari kanadísku
drottningu kraftballaðanna. Minni kraft-
ur, færri ballöður, betri plata.
Skarphéðinn Guðmundsson
Á DÖGUNUM efndi
markaðsdeild Morg-
unblaðsins til bíóleiks
á mbl.is fyrir áskrif-
endur Morgunblaðs-
ins. Gafst þeim kost-
ur á að spreyta sig á
nokkrum laufléttum
spurningum er allar
tengdust rómantísku
gamanmyndinni Man-
hattanmær á einn eða
annan máta. Fjöldi
glæsilegra vinninga
var í boði. Þeir
glöggu en um leið
heppnu sem dregnir
voru úr potti réttra svara voru
Hólmfríður Sigurðardóttir og
Ragnar Stefánsson. Í vinning
fengu þau bæði ársbirgðir af Diet
Coke, rómantískan pakka frá Rad-
isson SAS Hótel Sögu og Mecca
Spa, boðsmiða fyrir tvo á Man-
hattanmey og gjafabréf frá Zik
Zak tískuhúsi.
Markaðsdeild Morgunblaðsins
þakkar öllum sem tóku þátt og
óskar vinningshöfum til hamingju.
Manhattanmær á mbl.is
Frá vinstri eru Jón Gunnar Geirdal hjá kvik-
myndasviði Norðurljósa, Ragnar, Hólmfríður og
Jón Agnar hjá markaðsdeild Morgunblaðsins.
Morgunblaðið/Kristinn
NEMENDUR starfsbrautar fjöl-
brautaskólans FNV á Sauðárkróki
hafa ávallt tekið virkan þátt í dag-
skrá „opinna daga“ og árshátíð skól-
ans. Það er auðvitað hið besta mál og
þykir ekki sæta neinum tíðindum.
Hins vegar er það örugglega mjög
sjaldgæft að maður sem er lögblind-
ur, með minna en 10% sjón, skuli
hafa tekið þátt í gerð stuttmyndar.
Þetta gerði Gunnlaugur Dan ásamt
skólafélögum sínum og það sem er
ennþá merkilegra er það að hann sá
algerlega um upptökuna sjálfur og
með aðstoð góðra manna annaðist
hann einnig myndvinnsluna.
Nemendur starfsbrautar FNV gerðu stuttmynd
Upptöku-
maðurinn
lögblindur
Á myndinni eru, talið frá vinstri:
Heiðar Örn Heimisson, Dóra
Rebekka Sævarsdóttir, Viðar
Aðalsteinsson og Gunnlaugur Dan
Sigurðsson.
Sauðárkróki. Morgunblaðið.
ATVINNA mbl.is