Morgunblaðið - 06.12.2003, Side 28
Jólakort Kvenfélagsins | Kven-
félag Keflavíkur hefur um árabil
verið með jólakortasölu fyrir jólin til
tekjuöflunar en
jólakortasalan
er ein af helstu
fjáröfl-
unarleiðum
kvenfélagsins.
Mismunandi
myndir eftir
ýmsa listamenn
hafa skreytt
jólakortin frá
ári til árs. Að
þessu sinni er
mynd af lista-
verki eftir Írisi Jónsdóttur framan á
kortinu. Hægt er að nálgast kortin
hjá kvenfélagskonum.
SUÐURNES
28 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Reykjanesbær | Yfir eitt hundrað
manns er á biðlista eftir að komast í
hljóðfæra- og söngnám hjá Tónlist-
arskóla Reykjanesbæjar. Um 650
nemendur eru nú í skólanum, þar af
rúmur helmingur í forskólanámi í
húsnæði grunnskólanna fjögurra.
Nú er uppskerutími í tónlistar-
skólum landsins. Það heyrist meðal
annars í húsnæði Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar, tónlist ómar úr
stofunum. Hljómsveitirnar og ein-
stakir hljóðfæranemendur halda
tónleika fyrir jól-
in, til að leyfa fjöl-
skyldunum og
bæjarbúum að
heyra hvað bæst
hefur við þekk-
inguna.
„Öll börn í
fyrsta og öðrum
bekk grunnskól-
anna eru í for-
skóla á vegum
Tónlistarskólans,“ segir Haraldur
Árni Haraldsson, skólastjóri Tónlist-
arskóla Reykjanesbæjar. Kennslan
fer fram í húsnæði grunnskólanna.
Einnig hljóðfærakennsla þeirra
nemenda grunnskólanna sem halda
áfram, allt upp í sjötta til sjöunda
bekk, en sú kennsla er hluti af sam-
felldum skóladegi. Haraldur segir að
starfsaðstaðan hafi gjörbreyst við
einsetningu skólanna. Við þær
breytingar hafi verið gert ráð fyrir
aðstöðu fyrir tónlistarnámið og nú
séu þrjár stofur fyrir hljóðfæra-
kennslu í öllum grunnskólunum auk
stofu fyrir forskólakennslu. „Við er-
um ákaflega stolt af því hvað vel hef-
ur verið staðið að þessu,“ segir Har-
aldur.
Önnur hljóðfærakennsla fer fram í
húsnæði Tónlistarskólans á Austur-
götu 13 í Keflavík þar sem Tónlist-
arskóli Keflavíkur var til húsa fyrir
sameiningu skólanna og Þórustíg 7 í
Njarðvík þar sem Tónlistarskóli
Njarðvíkur hafði starfsemi sína.
Haraldur Árni segir að aðstaðan í
þessum húsum sé afar bágborin
enda hafi þau verið byggð sem at-
vinnu- og íbúðarhúsnæði. Mikil
þrengsli séu þar síðdegis, þegar
nemendur komi í bóklega tíma og á
hljómsveitaæfingar og eldri nem-
endur mæti í hljóðfæra- og söng-
tíma, auk þess sem mikill hljóðleki sé
milli stofa, einkum við Austurgötu.
Þetta stendur þó til bóta því í und-
irbúningi er bygging tónlistarmið-
stöðvar þar sem aðstaða verður fyrir
tónlistarskólann og Poppminjasafn
Íslands. Nefnd á vegum bæjaryfir-
valda vinnur að undirbúningi máls-
ins og hefur meðal annars það verk-
efni að athuga hvort hægt sé að
koma slíkri aðstöðu upp í tengslum
við félagsheimilið Stapa.
Haraldur Árni segir að miðað við
áform um þróun byggðarinnar í
Reykjanesbæ sé staðsetning tónlist-
arskólans við Stapa ágæt. Ekki sé
langt í að sá staður verði miðsvæðis í
Reykjanesbæ. Einnig sé góðra
gjalda vert að nýta sal félagsheim-
ilisins sem tónleikasal en hann tekur
fram að til þess að það verði unnt
verði að leggja í mikinn kostnað við
breytingar á honum. Þá segir Har-
aldur mikilvægt að húsið verði þann-
ig hannað að hægt verði að halda op-
inberar skemmtanir í Stapa án þess
að sá umgangur sem því fylgi tengist
húsnæði tónlistarskólans.
Haraldur segist sannfærður um
að vel verði að byggingunni staðið.
„Bæjaryfirvöld hafa mikinn metnað í
skólamálum. Þau hafa sýnt að þau
gera allt sem þau geta til að búa vel
að starfseminni. Það er svo hlutverk
okkar fagfólksins í skólunum að nýta
aðstæðurnar og gera eins vel og við
getum í okkar fagi,“ segir skólastjór-
inn.
Það er þekkt að nokkuð brottfall
er úr tónlistarnámi. Haraldur segir
að oft finnist nemendum að nóg sé
komið í tónlistarnámi við fimmtán
eða sextán ára aldur og hætti. „Við
veltum þessu oft fyrir okkur því á
þessum aldri eru nemendur oft
komnir vel á veg í tónlistarnámi sínu.
Þau eru þá komin yfir vissa þrösk-
ulda og komin með vissa færni til að
leika það sem þau langar til,“ segir
Haraldur og bætir því við að vissu-
lega sé námið orðið meira krefjandi á
þessum árum, erfiðari verkefni og
meiri tími fari í æfingar. „Þegar
kennari finnur að los er að koma á
nemandann er mikilvægt að hann
geri námið aðlaðandi fyrir viðkom-
andi, reyni að hafa það eins og hægt
er á hans nótum. Oft dugar það til að
fleyta nemandanum yfir þessi ár og
hann hættir við að hætta.“
Blástur og popp
Sterk popphefð er í Keflavík. Har-
aldur Árni staðfestir að það komi að
nokkru leyti fram í tónlistarskólan-
um. Þannig sé mikill áhugi á gítar-
námi. Fyrir fjórum árum hófst
kennsla á rafmagnsgítar. Nú er
kennari í fullu starfi við þá kennslu
og nokkrir tugir nemenda á biðlista
eftir að komast að. Töluverð ásókn
er einnig í að læra á rafmagnsbassa.
„Við erum þó enginn poppskóli. Að-
aláherslan er á hefðbundið hljóð-
færanám, eins og í öðrum tónlistar-
skólum,“ segir hann. Skólinn býður
upp á nánast allar hugsanlegar
námsgreinar í tónlist, á öllum stig-
um, allt til framhaldsprófs.
Sterk blásarahefð er í Reykja-
nesbæ og kemur það einnig fram í
starfi tónlistarskólans. Þar eru starf-
andi lúðrasveitir og léttsveitir. Þær
leika mikið við ýmis tækifæri í bæj-
arfélaginu og víðar. Hægar hefur
gengið að efla strengjasveitastarfið
þótt markvisst hafi verið að því unn-
ið. „En við sjáum fram á bjartari
tíma þar,“ segir Haraldur og vísar til
þess að stefnt sé að ráðningu fiðlu-
kennara í hálft starf til viðbótar til að
auka við þá kennslu og er það hluti af
markmiðum skólans við uppbygg-
ingu strengjadeildar.
Yfir hundrað bíða eftir að komast í nám hjá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
„Enginn poppskóli“
Haraldur Árni
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Rétti tónninn: Gítarleikararnir Aðalsteinn og Sigfús spila saman undir handarjaðri Aleksöndru og Ragnheiður kennir Önnu Katrínu Klukknahljóm.
Reykjanesbær | Hið árlega Bóka-
konfekt Bókasafns Reykjanesbæjar,
menningarfulltrúa Reykjanesbæjar,
Miðstöðvar símenntunar á Suð-
urnesjum og Pennans-Bókabúðar
Keflavíkur verður í dag, laugardag, í
sal Listasafns Reykjanesbæjar í Du-
ushúsum.
Þeir höfundar sem lesa úr verkum
sínum eru Úlfar Þormóðsson, Linda
Vilhjálmsdóttir, Guðmundur Stein-
grímsson og Jón Kalman Stef-
ánsson. Þá mun Alexandra Cherny-
shova, sópransöngkona frá Úkraínu,
syngja nokkur einsöngslög við und-
irleik Ragnheiðar Skúladóttur.
Bókakonfektið hefst kl. 16 og eru
allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Boðið verður upp á kaffi og konfekt
og verk höfundanna verða til sölu á
staðnum.
Bókakonfektið hald-
ið í Duushúsum í dag
Harmóníkuball í Sandgerði |
Haldið verður harmóníkuball í Sam-
komuhúsinu í Sandgerði í kvöld. Fé-
lagar úr Félagi harmóníkuunnenda
á Suðurnesjum þenja nikkurnar sér
og öðrum til ánægju. Gestir úr
Harmóníkufélagi Reykjavíkur mæta
einnig með sín hljóðfæri.
Harmóníkuböll voru algeng á
Suðurnesjum um miðja síðustu öld
en þetta mun vera fyrsta ballið af
þessu tagi sem haldið er á svæðinu í
mörg ár.
Félag harmóníkuunnenda á Suð-
urnesjum hefur starfað í mörg ár og
komið fram við ýmis tækifæri.
Jólaljósin tendruð | Kveikt verð-
ur á ljósunum á jólatrénu við Tjarn-
argötutorg í Keflavík við athöfn sem
hefst klukkan 18 í dag. Jólatréð er
gjöf frá vinabæ Reykjanesbæjar,
Kristiansand í Noregi, og mun Gutt-
orm Vik sendiherra afhenda tréð.
Blásarasveit og söngvarar frá
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
skapa jólastemmninguna með söng
og leik, Björk Guðjónsdóttir, forseti
bæjarstjórnar, ávarpar samkomuna
og Guðrún Ólöf Olsen, nemandi í
Heiðarskóla, tendrar jólaljósin. For-
eldrafélag Tónlistarskólans býður
heitt kakó.
Handverk í Saltfisksetri | Sýn-
ing á handverki verður í húsnæði
Saltfiskseturs Íslands um helgina,
laugardag og sunnudag, báða dag-
ana frá klukkan tólf til hálfsex síð-
degis.
Sýningin er í sal á efri hæð Salt-
fisksetursins. Þar eru fimmtán bás-
ar, allir fullmannaðir. Sýnendur eru
úr Grindavík, úr heimahúsum, Gall-
erý Gesthúsum og Sjólist. Sýningin
er sölusýning.
„MIG langaði að læra á hljóð-
færi og var oft búin að leika
mér á píanó hjá frænda mín-
um,“ sagði Anna Katrín Gísla-
dóttir, 10 ára, þegar hún var
spurð af hverju hún hefði byrj-
að að læra á píanó. Anna var í
píanótíma hjá Ragnheiði
Skúladóttur þegar blaðamaður
heimsótti Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar. Anna sagði
að það væri ekkert sérstaklega
erfitt að læra á píanó. „Hún er
dugleg þessi stelpa, áhugasöm
og þá gerist margt,“ skaut
Ragnheiður inn í samtalið.
Ragnheiður hefur kennt á pí-
anó í fjörutíu ár en eldmóð-
urinn hefur aldrei verið meiri
en nú. „Mér fannst þetta held-
ur leiðinlegt starf í fyrstu. Ég
var nítján ára þegar ég byrjaði
að kenna og hafði meiri áhuga
á að spila sjálf en kenna. Þetta
verður skemmtilegra eftir því
sem líður,“ sagði Ragnheiður.
Áttatíu nemendur eru í pí-
anódeildinni og Ragnheiður
segist hafa frábært samstarfs-
fólk. Hún getur þess að fjórir
nemendur skólans hafi tekið
þátt í keppni ungra píanóleik-
ara sem Íslandsdeild samtaka
evrópska píanóleikara efndi til
fyrir skömmu. Keppendur
voru alls liðlega þrjátíu þannig
að framlag Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar var gott.
„Verð að kunna á gítar“
Aðalsteinn Axelsson og Sig-
fús Árnason voru í gítartíma
hjá Aleksöndru Pitak. Þetta er
annar veturinn þeirra í gít-
arnámi. „Sennilega af því að
mér leist ekki á neitt annað,“
sagði Aðalsteinn þegar þeir fé-
lagarnir voru spurðir hvers
vegna gítarinn hefði orðið fyr-
ir valinu. „Þetta er búið að
vera lengi í ættinni hjá mér.
Pabbi er Vestmanneyingur og
maður verður að kunna á gít-
ar,“ sagði Sigfús.
„Dugleg
þessi
stelpa“