Morgunblaðið - 12.11.2004, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2004 9
FRÉTTIR
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Jóla- og
árshátíðarfatnaður
Tilboðsmyndatökur
Jólamyndatökur
Hefðbundnar myndatökur
Barnamyndatökur
Pantið tímanlega
Ljósmyndastofa Kópavogs sími 554 3020
Mynd, Hafnarfirði s. 565 4207
www.ljósmynd.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
15% afsláttur
af peysum og buxum
Glæsilegt úrval
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
Tökum upp nýjar
Str. 36-56
vörur frá
Suðurlandsbraut 32
Sími 577 5775
Fundur eða veisla
framundan?
útbúum girnilega brauðbakka
fyrir stórar veislur sem smáar
Tískuverslun Laugavegi 25
Undirkjólar
Samfellur
Opið virka daga kl. 11-18, laugardag kl. 11-15.
Síðumúla 3
AÐHALDS-UNDIRFATALÍNA
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið virka daga frá kl. 10-18
Opið laugardaga frá kl. 10-16
Úlpur fyrir
ungu stúlkuna,
mömmuna, ömmuna
og langömmuna
Dúnúlpur -
Leðurúlpur -
Hattar -
Húfur
Rýmingarsalan
í fullum gangi
50%
afsláttur
af öllum vörum
Glæsibæ – Sími 562 5110.
- Opið virka daga 10-18 og laugardaga 10-16.
Ný sending
af poncho, pilsum og
glæsilegum samkvæmisbuxum
HUGI Hreiðarsson, markaðs- og
kynningarfulltrúi Atlantsolíu, seg-
ist vongóður um að það styttist í
að Samkeppnisstofnun úrskurði í
kærumáli sem Atlansolía lagði
fram gegn Orkunni og Skeljungi
vegna verðlækkana samkeppnisað-
ilanna á bensíni í næsta nágrenni
afgreiðslustöðva Atlantsolíu.
„Þeir munu vafalaust lækka
verðið í stöðvunum í kringum okk-
ur nú,“ segir Hugi og vísar til nýj-
ustu verðlækkana Atlantsolíu.
„Þeir hafa hingað til sameinast um
að lækka sérstaklega verðið í
næsta nágenni við okkur.“
Að sögn hans var kæran til
Samkeppnisstofnunar einfölduð
síðastliðið sumar en hún beindist
áður að öllum olíufélögunum en
beinist núna að Orkunni og Skelj-
ungi eingöngu. Þetta hafi verið
gert til að einfalda málareksturinn
og draga úr kostnaði en verði nið-
urstaða Samkeppnistofnunar sú að
um ólöglegt athæfi hafi verið að
ræða hjá olíufélögunum, muni það
gilda jafnt um hin félögin líka.
„Við erum að vænta þess að
heyra frá þeim fljótlega, þetta at-
riði skiptir okkur gríðarmiklu máli
og með ólíkindum hvernig okkar
samkeppnisaðilar hafa leyft sér að
brjóta samkeppnislög,“ segir
Hugi.
Atlantsolía og
Samkeppnisstofnun
Vongóður
um að
styttist í
úrskurð
UMFERÐARRÁÐ lýsir þungum
áhyggjum vegna þeirra mörgu alvar-
legu slysa sem orðið hafa á undan-
förnum árum þar sem ökumenn og
farþegar hafa ekki verið í bílbelti. Í
ályktun 200. fundar Umferðarráðs,
28. október segir að skv. upplýsingum
frá rannsóknarnefnd umferðarslysa
hefðu 37 manns, sem létust í umferð-
arslysum frá árinu 1998 til október-
loka í ár, átt góða möguleika á að vera
á lífi í dag, hefðu þeir notað bílbelti.
Fjöldi fólks hefur hlotið ævarandi ör-
kuml af sömu ástæðum.
Umferðarráð beinir þeirri ein-
dregnu áskorun til allra þeirra sem
setjast upp í bifreið að nota undan-
tekningarlaust þann mikilsverða ör-
yggisbúnað sem bílbeltin ótvírætt
eru.
Tekið verði á farsímanotkun
Jafnframt beinir Umferðarráð
þeim tilmælum til lögreglu að eftirlit
með notkun öryggisbúnaðar eins og
bílbelta verði verulega hert frá því
sem nú er, og aukin löggæsla þar að
lútandi nái meðal annars til hópbif-
reiða.
Umferðarráð beinir þá þeim ein-
dregnu tilmælum til þeirra ökumanna
sem virða ekki reglur um notkun
handfrjáls farsímabúnaðar að gera nú
bragarbót án tafar. Þá hvetur Um-
ferðarráð lögreglu um allt land til
þess að herða eftirlit með farsíma-
notkun ökumanna. Núverandi ástand
í þessum efnum er að mati Umferð-
arráðs óviðunandi og stórhættulegt
og brýnt að á því verði tekið af festu.
Lýsir þungum
áhyggjum af
alvarlegum slysum
STJÓRN Barnageðs, félags for-
eldra og áhugafólks um geðrask-
anir barna og unglinga, hefur sent
frá sér ályktun þar sem lýst er yfir
miklum áhyggjum af áhrifum lang-
varandi kennaraverkfalls á börn
og unglinga með geðraskanir.
„Stór hópur þessara barna
stundar nám í almennum skólum
eða sérdeildum innan almennra
skóla og er ljóst að þau munu eiga
erfitt með að fóta sig í skólaum-
hverfinu á ný eftir svona langt
hlé,“ segir þar. Skorað er á við-
semjendur að finna lausn á deil-
unni hið bráðasta.
Áhrif
verkfalls
áhyggjuefni
♦♦♦
ATVINNA
mbl.is