Morgunblaðið - 12.11.2004, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.11.2004, Blaðsíða 18
PALESTÍNSK yfirvöld hafa lýst yfir fjörutíu daga þjóðarsorg vegna andláts Yassers Ara- fats, helsta leiðtoga Palestínumanna til margra áratuga, en fljúga átti með lík hans til Kaíró í Egyptalandi í gærkvöldi. Útför hans fer svo fram í dag. Mikil sorg ríkti meðal Pal- estínumanna í gær vegna fráfalls Arafats, ekki aðeins á heimastjórnarsvæðum Palest- ínumanna heldur einnig í flóttamannabúðum í Líbanon og Jórdaníu. Þúsundir manna komu saman í Ramallah á Vesturbakkanum, en þar eyddi Arafat tveim- ur síðustu árunum áður en hann veiktist fyrir skömmu og var fluttur á sjúkrahús í París, þar sem hann andaðist í fyrrinótt. Fólkið gekk fylktu liði til höfuðstöðva Arafats í miðborg- inni og í virðingarskyni við hinn látna leiðtoga báru margir höfuðklút í líkingu við þann sem Arafat jafnan bar. „Hann skipti okkur meira máli en nokkur önnur manneskja. Við lifðum við hlið hans, borðuðum með honum og vorum hér í Muq- ataa [höfuðstöðvum Arafats í Ramallah] á meðan umsátur [Ísraela] varði,“ sagði Taha al-Farrar, liðsmaður öryggissveita Arafats í Ramallah. „Þegar palestínsk börn byrja að tala þá er nafnið Abu Ammar það fyrsta sem þau segja,“ bætti hann við en Arafat gekk einnig undir þessu nafni meðal Palest- ínumanna. „Höldum baráttu þinni áfram“ Í Ramallah mátti sjá hágrátandi konur fall- ast í faðma þegar fréttir um andlát Arafats bárust frá París. „Þetta getur ekki verið satt, þetta getur ekki verið satt,“ heyrðist ein segja harmi slegin. Að minnsta kosti þrjú þúsund manns gengu saman um stræti Ramallah flautandi og syngj- andi til skiptis og kallaði fólkið nafn Arafats. „Yasser, Yasser, við komum til þín,“ söng fólkið og í bakgrunni mátti heyra hvar byssu- skotum var hleypt af og lesið var upp úr kór- aninum. „Maðurinn Arafat er nú dáinn en sem tákn baráttu okkar þá mun hann lifa að ei- lífu,“ sagði átján ára námsmaður í Ramallah, Mariam Shuuman. „Við erum nú eins og týndur sauður sem leitar sér að nýjum hirði,“ sagði annar þátt- takandi í göngunni í Ramallah, Evangelia All- awi. „Hann var leiðtogi allra múslíma, ekki bara Palestínumanna,“ heyrðist einn liðs- maður samtakanna Íslamskt jíhad segja. Fréttirnar um andlát Arafats fengu svipuð viðbrögð í flóttamannabúðunum Ain El- Helweh í Líbanon en þar búa sennilega um 250 þúsund Palestínumenn. „Abu Ammar, nú hefur þú fengið þína hvíld en við höldum bar- áttu þinni áfram,“ söng fólk þar er það gekk fylktu liði um búðirnar. Fáir Ísraelar syrgja Arafat Fáir Ísraelar syrgja hins vegar Yasser Ara- fat og Tommy Lapid, dómsmálaráðherra Ísr- aels, fagnaði raunar dauða hans, kvaðst hafa hatað Arafat vegna alls þess fjölda gyðinga sem fallið hefðu í ódæðisverkum öfgahópa Palestínumanna. „Öll þessi hryðjuverk [í heiminum] eru afleiðing gjörða Arafats og veröldin er betri staður án hans,“ sagði Lapid. „Farið hefur fé betra,“ sagði leigubílsstjóri í Jerúsalem, Yoram Abergel, og Shimon Ben Ezra, annar gyðingur í borginni, sagðist hafa orðið himinlifandi er hann frétti af andláti Arafats. Shimon Peres, leiðtogi stjórnarandstöð- unnar í Ísrael, fór einnig gagnrýnum orðum um Arafat. „Yasser Arafat gerði mistök þegar hann hélt áfram á braut hryðjuverka og við höfum öll goldið fyrir það,“ sagði Peres sem deildi friðarverðlaunum Nóbels árið 1994 með Arafat og Yitzhak Rabin, þáverandi forsætis- ráðherra Ísraels. „Ég veit ekki af hverju en ég er hryggur,“ sagði hins vegar Ísraelinn Ortal Maman. „Kannski er það af því að jafnvel þó að Arafat væri óvinur okkar þá vorum við öll vön því að hann væri til staðar.“ Reuters „Arafat mun lifa að eilífu“ Mikill harmur kveðinn að palestínsku þjóðinni vegna andláts Yassers Arafats Ramallah, Ain El-Helweh, Jerúsalem. AFP. 18 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, minntist í gær baráttu Yassers Arafat fyrir því að umheimurinn viðurkenndi rétt Pal- estínumanna til sjálfstæðs ríkis. Sagði Annan að með því að undirrita friðarsamninga við Ísrael 1993, sem kenndir hafa verið við Ósló, hefði Ara- fat tekið „stórt skref í þá átt að fá draum sinn uppfylltan. Það er sorg- legt að hann skuli ekki hafa lifað nógu lengi til að sjá það gerast.“ Þjóðarsorg var lýst yfir í mörgum Arabalöndum vegna fráfalls Arafats og Javier Solana, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, sagði að minn- ingu Arafats yrði best haldið á lofti með því að menn legðu nú aukið kapp á að ná fram friði í Mið-Austurlöndum og stofnun sjálfstæðs palestínsks rík- is. Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, tók í sama streng. Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, kallaði Arafat „öfluga mannlega táknmynd“ palestínskrar þjóðar sem þráði eigið ríki og Nelson Mandela, fyrrverandi forseti S-Afr- íku, sagði að Arafat hefði verið „einn af fremstu frelsisbaráttumönnum sinnar kynslóðar“, maður sem helgað hefði líf sitt málstað þjóðar sinnar. Arafats minnst víða um heim París. AFP. ARABÍSKIR fréttaskýrendur létu í gær í ljósi áhyggjur af óvissunni og tómarúminu í palestínskum stjórn- málum eftir fráfall Yassers Arafats. Fréttaskýrendurnir veltu því fyrir sér hverjir eða hvað myndi fylla upp í tómarúmið sem myndaðist við andlát Arafats, sem var gæddur miklum persónutöfrum, var óumdeildur leið- togi Palestínumanna og holdtekja baráttu þeirra í tæpa fjóra áratugi. Flestir fréttaskýrendurnir sögðust bera kvíðboga fyrir því hvernig eft- irmönnum Arafats farnaðist er þeir tækjust á við það erfiða verkefni að reyna að semja frið við Ísraela og stofna palestínskt ríki. „Framtíð Palestínu er í algjörri óvissu eftir dauða Arafats, vegna þess að hver sem tekur við af honum mun aldrei geta veitt það sem Arafat gaf palestínsku þjóðinni,“ sagði pal- estínski rithöfundurinn Jihad al- Hazen. Margir fréttaskýrendur lögðu áherslu á að enginn annar leiðtogi gæti notið jafnmikillar virðingar heima fyrir og sigrast á innbyrðis ágreiningi Palestínumanna með sama hætti og Arafat. „Arafat var tákn baráttu Palest- ínumanna á tveimur mikilvægum skeiðum í sögu þeirra, þegar Fatah- hreyfingin var stofnuð [1958] og þeg- ar hann sneri aftur til Gaza [eftir frið- arsamningana við Ísraela 1993],“ sagði egypski stjórnmálaskýrandinn Magdi Abdel Hamid. „Það er alltaf hægt að skipta um leiðtoga en ekkert kemur í staðinn fyrir forystu Arafats,“ sagði stjórn- málaskýrandinn Mohammed al- Khuli. „Arafat var ekki aðeins kjörinn forseti Palestínumanna. Hann hafði gripið til vopna með stríðsmönnunum áður en hann varð stjórnmálamaður og sameinaði báða kostina,“ sagði annar egypskur stjórnmálaskýrandi, Mohammed Shafei. Mistök að sniðganga Arafat Flestir arabísku fréttaskýrend- urnir sögðu að stjórnvöldum í Ísrael og Bandaríkjunum hefðu orðið á „herfileg mistök“ með því að ákveða að sniðganga Arafat sem leiðtoga Palestínumanna og koma fram við hann sem „hluta af vandamálinu en ekki hluta af lausninni“. „Stjórn Bandaríkjanna valdi ranga leið þegar hún ákvað að hætta öllum samskiptum við hann,“ sagði Imad Gad, fræðimaður við rannsókn- arstofnun í Kaíró. „Enginn af palest- ínsku forystumönnunum, sem taka við af honum, getur talið Palest- ínumenn á að afsala sér því sem Ara- fat neitaði að gefa eftir,“ bætti Gad við. Hann skírskotaði meðal annars til kröfunnar um að palestínskir flóttamenn fengju að snúa aftur til fyrri heimkynna sinna. Ísraelar telja líklegt að Mahmud Abbas, sem stofnaði Fatah með Ara- fat og tók við formennsku í Frelsis- samtökum Palestínumanna (PLO) eftir andlát hans, taki sveigjanlegri afstöðu en Arafat til friðarsamninga við Ísraela. Gad sagði þetta misskiln- ing. „Stjórnvöld í Egyptalandi og öll- um öðrum arabaríkjum hafna þessum möguleika,“ sagði hann. Óttast stjórnleysi Ghassan Sharbal, ritstjóri arabíska dagblaðsins Al-Hayat í London, sagði hins vegar að við fráfall Arafats gæf- ist tækifæri til að knýja fram breyt- ingu á hugarfari Palestínumanna. „Palestínumenn þurfa að viðurkenna að þeir hafa ekki lengur neinn, sem slíkur ljómi leikur um, og þeir þurfa að velta fyrir sér leiðum til að blása nýju lífi í palestínska málstaðinn.“ Óttast er að fráfall Arafats leiði til stjórnleysis vegna valdabaráttu pal- estínskra fylkinga. Sharbal skoraði á allar fylkingarnar að leita raunsærra lausna á deilunum og hvatti íslömsku hreyfinguna Hamas til að „sýna ábyrgð“ og viðurkenna að stefna hennar næði ekki fram að ganga. Stjórnmálaskýrendur hafa varað við því að Hamas kunni að notfæra sér pólitíska tómarúmið eftir fráfall Arafats til að komast til valda, en hreyfingin hefur staðið fyrir mann- skæðum árásum á Ísraela og hvatt til þess að Ísrael verði tortímt. Óttast tómarúmið eftir fráfall Arafats Reuters Palestínskur öryggisvörður syrgir Arafat í Gaza-borg í gær. Kaíró. AFP. ’Það er alltaf hægt aðskipta um leiðtoga en ekkert kemur í staðinn fyrir forystu Arafats.‘
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.