Morgunblaðið - 12.11.2004, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2004 37
UMRÆÐAN
Vinnustofa SÍBS
Sími 5628500
bréfabindin
www.mulalundur.is
NOVUS B 225
Gatar 25 síður.
Má læsa í geymslustöðu
eftir notkun. Verð 535 kr/stk
Hafðu tengda-
mömmu hjá þér.
Novus B 80
til að ná heftum úr.
Verð 59 kr/stk
FYRIRHUGAÐ er að halda
stofnfund heildarsamtaka fólks
sem glímir við offitu á Íslandi.
Staður og stund hafa ekki verið
ákveðin. Fundartími verður ákveð-
inn þegar við höfum
fengið þær und-
irtektir sem við þurf-
um til að halda stofn-
fund. Nú þegar
höfum við fengið
mörg tölvuskeyti frá
fólki sem tilbúið væri
að vera í samtökunum
og einnig hef ég feng-
ið mjög mörg símtöl í
gegnum upplýs-
ingasíma samtakanna.
Síminn er 824-6622
og er alltaf opinn fyr-
ir fólk sem glímir við
offitu. Fólk getur allt-
af hringt og fengið góð ráð. Í
fyrstu ætluðum við að hafa símann
opinn eingöngu fyrir þá sem hefðu
farið í offituaðgerð á Íslandi en
ákváðum seinna að víkka hringinn
og hafa hann opinn öllum þeim er
glíma við offitu og afleiðingar
hennar.
Stýrihópur hefur verið í gangi
vegna samtakana. Við höfum ekki
hist oft en þeim mun meira verið í
tölvupóstssambandi. Það sem ég
auglýsi eftir núna er einhverjir
góðir aðilar sem til væru í að vera
í stjórn samtakanna. Stjórninni
hefði þá verið ætlað það hlutverk
að halda utan um fundi, sjá um
fjármál samtakana og margt,
margt fleira er viðkemur svona
rekstri. Þannig að ef einhverjir
eru tilbúnir að hjálpa til við rekst-
ur samtakanna þá er sú hjálp vel
þegin.
Við höfum einnig á und-
anförnum dögum og vikum verið
að leita eftir styrkjum frá hinum
og þessum fyrirtækjum hér á
landi. Við höfum leitað til banka
og stærstu fyrirtækja hér á landi
eftir smá peningum til að halda
starfsemi okkar uppi. Það hefur
nú ekki gengið vel sannast sagna.
Það eru ekki margir viljugir til að
styrkja samtök okkar, en vonandi
er að það breytist. Það má samt
geta þess að við feng-
um höfðinglega gjöf
frá tölvufyrirtækinu
Einari J. Skúlasyni.
Fyrirtækið gaf sam-
tökunum mjög full-
komna fartölvu sem
mun nýtast okkur vel
til komandi verka. Ég
vil hér þakka for-
svarsmönnum Einars
J. Skúlasonar kær-
lega fyrir þeirra
framlag til samtak-
anna.
Ég og við sem er-
um að koma þessum
samtökum af stað höfum fengið
mjög góðar viðtökur á und-
anförnum vikum. Við fáum alls
staðar gott orð í okkar garð. Enda
allir ánægðir með það að svona
samtök skuli vera að fara í gang.
Enda ekki vanþörf á hér á landi.
Það sem við þurfum núna að
verða okkur úti um er fundaað-
staða. Við þurfum einhvers staðar
að funda. Ef það eru einhverjir
aðilar hér í Reykjavík sem eru til í
að leyfa okkur að vera með funda-
aðstöðu þá væri mjög gott ef haft
yrði samband við mig í síma
661-1113. Við erum eins og sagt er
á götunni, hvergi með fast hús-
næði.
Það sem okkur hefur langað til
er að fara í grunnskóla landsins
og spjalla við ungu kynslóðina sem
mun erfa þetta land. Það er alveg
hræðilegt að sjá hvað unga kyn-
slóðin er að fitna og þyngjast.
Þessu viljum við breyta.
En að lokum: Þeim sem vilja
ganga til liðs við samtökin er bent
á að hægt er að senda okkur
tölvupóst á netfangið adgerd-
@hotmail.com. Einnig getur fólk
hringt í mig í síma 517-7661 eða
661-1113. Þá er upplýsingasími
samtakanna alltaf opin. Númerið í
upplýsingasímanum er 824-6622.
Stöndum nú þétt saman og stofn-
um öflug og heilsteypt heildar-
samtök fólks, sem glímir við of-
fitu, og aðstandenda.
Upplýsingasími samtakanna er
824-6622.
S. 517-7661 valgeirp@internet.is
S. 661-1113 adgerd@hot-
mail.com
Fyrirhugaður stofnfundur
heildarsamtaka fólks sem
glímir við offitu á Íslandi
Valgeir Matthías Pálsson
fjallar um stofnfund fólks sem
glímir við offitu ’Það er alveg hræðilegtað sjá hvað unga kyn-
slóðin er að fitna og
þyngjast.‘
Valgeir Matthías
Pálsson
Höfundur er nemandi.
SAMRÁÐ olíufé-
lagana olli því að allar
vísitölur í landinu eru
rangar. Skuldir heim-
ilanna eru hærri vegna
rangra vísitalna. Fisk-
verð í landinu er hærra
vegna rangs olíuverðs,
svo mætti lengi telja.
Afleiðingar svikanna
eru mun viðtækari en
unnt er að gera sér
grein fyrir í fljótu
bragði.
Hvað ætla stjórnvöld
að gera til þess að leið-
rétta vísitöluútreikning
landsins?
Ekkert hefur heyrst
frá ráðamönnum
þjóðarinnar um það
hvernig eigi að bregð-
ast við. Oft hafa þeir
látið í sér heyra af
minna tilefni. Krafa landsmanna
hlýtur að vera að leiðrétting fari
fram.
Þessir þrír forstjórar hljóta að
teljast landráðamenn. Hvað á að
gera við eignir
þeirra? Eru þær ekki
í raun eign þjóð-
arinnar? Hvað um
olíufélögin sjálf, er
ekki rétt að gera þau
upptæk til ríkisins?
Nefnd hafa verið ol-
íufélögin: Olíufélagið
hf., Olís hf. og Skelj-
ungur hf. Hvað með
Orkuna er hún ekki
eign Skeljungs? Atl-
antsolía er eina olíu-
félagið sem er fyrir
utan þessi svik. Því
ættu landsmenn að
beina viðskiptum sín-
um til þess félags.
Vonandi setur Atl-
antsolía upp starfs-
stöð norðan heiða
sem fyrst, þannig að
sem flestir lands-
menn geti beint við-
skiptum sínum þang-
að.
Ef þú skyldir
álpast inná bensínstöð gömlu félag-
anna, mundu þá að kaupa „bara
bensín“.
Hvað gera
stjórnvöld?
Ragnar Hólm
Bjarnason fjallar
um olíumálið
Ragnar Hólm
Bjarnason
’Ef þú skyldirálpast inná
bensínstöð
gömlu félag-
anna, mundu þá
að kaupa „bara
bensín“.‘
Höfundur er rekstrarfræðingur.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Úrslitin úr
spænska boltanum
beint í
símann þinn