Morgunblaðið - 12.11.2004, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
MULTIDOPHILUS
Ómissandi fyrir meltinguna
PÓSTSENDUM
www.islandia.is/~heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889
fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum,
Árnesaptóteki Selfossi,
Yggdrasil Kárastíg 1.
Fjarðarkaupum
Borgartúni 24
ÍBÚAR í Eyjafirði og Suður-Þing-
eyjarsýslu hafa mismikla trú á já-
kvæðri þróun eigin byggðarlaga á
næstu árum að því er fram kemur í
þjóðmálakönnun Rannsóknastofn-
unar Háskólans á Akureyri. Könn-
unin, sem var símakönnun, náði til
970 manns á aldrinum 18 til 80 ára
og var gerð 1. til 24. október síðast-
liðinn. Könnunin náði til fólks í
Eyjafirði en að auki voru til staðar
upplýsingar úr könnun meðal fólks í
Suður-Þingeyjarsýslu.
Grímseyingar eru einkar bjart-
sýnir, því allir sem einn, eða 100%
höfðu trú á að byggðarlagið myndi
þróast með jákvæðum hætti á næstu
árum. Næstir koma íbúar Grýtu-
bakkahrepps, 92% þeirra trúa því að
þróunin verði jákvæð í sveitarfé-
laginu á næstu árum. Ólafsfirðingar
höfðu minnsta trú allra Eyfirðinga
varðandi jákvæða þróun, einungis
40% töldu að sú yrði raunin á næstu
árum og fast á hæla þeirra koma ná-
grannar þeirra í Dalvíkurbyggð.
Þar töldu 58% að þróunin yrði já-
kvæð. Kjartan Ólafsson, sérfræð-
ingur hjá RHA, sagði að gera mætti
ráð fyrir að íbúar tengdu bjartsýni
sína á jákvæða þróun á því sem væri
að gerast í samfélaginu og atvinnu-
lífinu. Þannig hefði lyfjaverksmiðja
tekið til starfa á Grenivík og kvóta-
staða væri með ágætum í Grímsey.
Ýmis óveðursský hefðu hins vegar
hrannast upp við utanverðan Eyja-
fjörð, á Dalvík og Ólafsfirði og þar
hefðu menn ýmsa fjöruna sopið þeg-
ar að atvinnumálum kæmi.
Í því samhengi vekti nokkra at-
hygli hversu Siglfirðingar eru trú-
aðir á jákvæða þróun byggðalags-
ins, en 73% þeirra telja bjart
framundan á næstu árum. Það sama
er uppi á teningnum varðandi íbúa
Svalbarðsstrandarhrepps. Í öðrum
sveitarfélögum á svæðinu töldu á
bilinu 80 til 90% íbúanna að þróunin
yrði með jákvæðum hætti á næstu
árum.
Í könnuninni kemur fram að kon-
ur eru almennt jákvæðari en karlar
og yngra fólkið hefur síður trú á að
þróunin verði jákvæð en það eldra.
Þjóðmálakönnun RHA um jákvæða þróun í byggðamálum
Mismikil trú á jákvæðri
þróun byggðarlaganna
Morgunblaðið/Kristján
Könnun Kjartan Ólafsson gerði grein fyrir niðurstöðu könnunarinnar.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Styrktarkvöldverður | Veitinga-
staðurinn Fiðlarinn er 15 ára um
þessar mundir. Í kvöld, föstudags-
kvöld, og annað kvöld verður boðið
upp á sælkeramatseðil á veitinga-
staðnum og mun allur ágóði af mat-
arsölunni renna til Hetjanna, Félags
foreldra langveikra barna á Norður-
landi. Boðið er upp á glæsilegan og
fjölbreyttan matseðil en 6 mat-
reiðslumeistarar leiða saman hesta
sína við matargerðina.
Málþing um geðheilbrigði | Nýtt
afl leysist úr læðingi þegar fagmenn
og notendur geðheilbrigðisþjónustu
vinna saman á jafningjagrunni er
yfirskrift málþings sem haldið verð-
ur í Ketilhúsinu á Akureyri á morg-
un, laugardaginn, kl. 14 til 17.
Fyrirlesarar verða þær Elín Ebba
Ásmundsdóttir, forstöðuiðjuþjálfi á
geðdeild LSH og lektor við Háskól-
ann á Akureyri, sem unnið hefur til
verðlauna í geðrækt á alþjóðlegum
vettvangi og Auður Axelsdóttir iðju-
þjálfi sem hefur komið með nýja
nálgun inn í heilsugæsluna varðandi
geðheilbrigðismál auk þess sem
meðlimir frá Hugarafli koma með
nýjan tón inn í umræður um gæða-
eftirlit í geðheilbrigðismálum.
Saga Hugarafls verður rakin, en
það er starfshópur geðsjúkra í bata
er stofnaður var í fyrra. Markmið
þess eru að skapa hlutverk, auka
áhrif notenda, vinna gegn fordómum
bæði hjá sjálfum sér og öðrum, að
geðsjúkir taki þátt í verðmæta-
sköpun í þjóðfélaginu.
Sykursýki | Samtök sykursjúkra
halda fræðslufyrirlestra í þriðja sinn
á Fiðlaranum 4. hæð laugardaginn
13. nóvember, í tilefni af alþjóðadegi
sykursjúkra. Fyrirlestrarnir verða
um óhefðbundnar lækningar, ný við-
horf í mataræði og hvernig hugsa á
um fætur. Með fræðslu er talið að
hægt sé að minnka líkur á því að fólk
fái sykursýki.
Skjaladagur | Norræni skjaladag-
urinn er á morgun, laugardag, 13.
nóvember og er þema hans árið
1974. Héraðsskjalasafnið á Akureyri
verður opið frá kl. 12 til 17 og þar
verður sýning á skjölum, myndum
og munum sem tengjast árinu 1974 í
anddyri hússins og mun hún standa í
eina viku. Dregin verða fram sýnis-
horn af skjölum sem tengjast því
sem var að gerast á Akureyri og
Eyjafjarðarsvæðinu þetta ár í dag-
legu lífi, svo sem í tónlist, leiklist,
plötuútgáfu, bókaútgáfu, kvikmynd-
um og íþróttum. Rifjaðar verða upp
framkvæmdir og framfarir og síðast
en ekki síst sýnt ýmislegt sem teng-
ist Þjóðhátíð Eyfirðinga í Kjarna-
skógi. Einnig verður sýnd af mynd-
bandi heimildamynd sem Vilhjálmur
Knudsen gerði um Akureyri á ár-
unum 1973–1975.
AKUREYRI
Hafnarfjörður | Fyrirhugað er að
reisa sjálfsafgreiðsluhótel í Hafnar-
firði, nánar tiltekið á Völlum við
Reykjanesbraut, og yrði það hið
fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.
Að hugmyndinni standa innlendir
aðilar í samvinnu við aðila í ferða-
þjónustu í Sviss og Þýskalandi, en
Reynimelur ehf. hefur fengið úthlut-
aða lóð við Vellina í Hafnarfirði. Að
sögn fulltrúa hópsins, sem ekki vildi
láta nafns síns getið, hafa viðræður
staðið yfir um nokkurt skeið við bæj-
aryfirvöld í Hafnarfirði um að fá góð
lóð undir hótel með mörgum her-
bergjum, sem byði upp á lægra verð
á gistingu en tíðkast hefur.
Bæjaryfirvöld hafa gefið fyrirtæk-
inu fyrirheit um lóð á Völlum eins og
fram er komið og telur fulltrúi hóps-
ins að hótelið komi til með að styrkja
ferðaþjónustu í Hafnarfirði. Hann
segir hótelið munu blasa við farþeg-
um sem séu á leið frá Keflavíkurflug-
velli, þar sem það sé við fyrirhugaða
sundlaug á svæðinu, fallegt göngu-
svæði og steinsnar frá golfvellinum á
Hvaleyrarholti.
Hluti af franskri hótelkeðju
Hótelið er hluti af Etap-hótelkeðj-
unni, sem er frönsk og heyrir undir
Accor-hótelkeðjuna. Í Evrópu eru
311 Etap hótel, flest í Frakklandi. Að
sögn fulltrúa Reynimels ehf. verður
fyrirhuguð hótelbygging á þremur
hæðum, 2.766 fermetrar með um 120
herbergjum, flestum tveggja manna.
Herbergin verða öll í smærri kant-
inum eða um 10 fermetrar að stærð
og miðar allt hótelskipulag að því að
hafa alla þætti þess sem einfaldasta
og ódýrasta.
Hótelstarfsfólki verður haldið í
lágmarki og mun ekkert starfsfólk
starfa á hótelinu á kvöldin og næt-
urnar, en húsvörður verður á hót-
elinu í öryggisskyni. Einnig starfar
hótelstjóri á hótelinu á morgnana
fram að hádegi. Annars skrá hótel-
gestir sig inn í hálfgerðan hraðbanka
þar sem þeir panta hversu margar
nætur þeir ætla að gista, hvort þeir
vilji morgunmat o.s.frv., svo greiða
þeir einfaldlega fyrir gistinguna með
greiðslukorti.
Tölvukerfið sér svo um að úthluta
lausu herbergi, prentar út herberg-
isnúmerið og kóða sem er notaður til
þess að komast inn í herbergið. Ann-
ars fara bókanir hótela af þessari
gerð að langmestu leyti í gegnum
Netið, og er hægt að panta sér gist-
ingu þrjú ár fram í tímann ef svo ber
undir. Öll þrif verða boðin út til verk-
taka sem geta skráð sig inn í tölvu-
kerfi hótelsins og séð hvaða herbergi
þurfi að þrífa hvern dag.
Unnið er að því að teikna hótelið
og er ætlunin að byggja það í tveim-
ur áföngum. Vonast er til að fram-
kvæmdir geti hafist á fyrri hluta
næsta árs og að húsið verði komið
upp og unnið að innréttingu þess
næsta haust. Ætlunin er svo að
kynna hótelið ferðaheildsölum á
Vest-norden ferðakaupstefnunni,
sem er haldin á hverju hausti. Ef allt
gengur að óskum mætti búast við að
hótelið myndi opna um áramótin
2005/06 að sögn fulltrúa Reynimels
ehf.
Ætla að reisa sjálfsafgreiðsluhótel
Styrkir ferða-
þjónustuna
Miðborg | Það er eins gott að klæða
sig vel þegar farið er niður að
Tjörn til að gefa öndunum brauð
eftir að daginn er tekið að stytta.
Fuglarnir á Tjörninni eru alltaf
þakklátir fyrir brauðbitann á vet-
urna og oft mikil samkeppni um
hverja örðu sem lendir í vatninu. Þá
er eflaust gott að vera stór svanur
með langan háls til að grípa allt
sem kemur nálægt. Það þurfa end-
urnar að reyna.
Morgunblaðið/Sverrir
Andabrauð fyrir svanina á Tjörninni
Reykjavík | Blómavali í Sigtúni
verður lokað og verslunin mun
flytja í ný húsakynni í Skútuvogi
14, við hlið Húsasmiðjunnar,
haustið 2005, en eigendur Blóma-
vals höfðu áður óskað umsagnar
borgaryfirvalda varðandi bygg-
ingu á umræddri lóð. Að sögn
Ólafs Þórs Júlíussonar, fram-
kvæmdastjóra hjá Húsasmiðj-
unni, verður nýja verslunin um-
talsvert stærri en núverandi
verslun og verður vöruúrval
Blómavals aukið til muna við
flutninginn.
„Verslunin í Sigtúni er samsett
úr nokkrum gróðurhúsum sem
skeytt hefur verið saman þannig
að það nýtist ekki mjög vel plássið
í henni, segir Ólafur Þór. „Nýja
verslunin er hönnuð frá grunni
með þarfir Blómavals í huga og
húsið verður því betur nýtt en nú-
verandi húsnæði.“ Unnið er að
hönnun nýju verslunarinnar, en
framkvæmdir hefjist á næsta ári.
Blómaval flytur úr
Sigtúni í Skútuvog
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Kópavogur | Rekstur Dvalar, at-
hvarfs fyrir geðfatlaða í Kópavogi,
hefur verið tryggður til næstu
tveggja ára. Samningur þess efnis
var undirritaður í Dvöl nýverið. Að
rekstri Dvalar standa Kópavogs-
deild Rauða kross Íslands, Kópa-
vogsbær og Svæðisskrifstofa mál-
efna fatlaðra á Reykjanesi. Með
undirritun samningsins axla Kópa-
vogsbær og svæðisskrifstofan stærri
fjárhagslegar byrðar en áður en
Kópavogsdeild sér áfram um rekst-
ur athvarfsins, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Athvarfið var opnað árið 1998.
Rekstur Dvalar
tryggður