Morgunblaðið - 12.11.2004, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2004 65
PLATA Brain Police frá því í
fyrra, sem var þeirra önnur,
tókst vonum framar – skotheld
rokkskífa þar sem meðlimir
Brain Police náðu loks að fanga
feitan og kröftugan eyðimerk-
urrokkhljóminn almennilega og
koma honum á
plast. Laga-
smíðarnar voru
allflestar eftir
bókinni ef svo
má segja,
dæmigert
trukkandi eyði-
merkurrokk og smíðarnar vissu-
lega nokkuð einsleitar á köflum.
Slíkt er þó ekki uppi á ten-
ingnum hér. Brain Police hafa,
sem betur fer, séð að í raun var
ekki hægt að fara lengra með
hljóðheim síðustu plötu, slíkt
hefði að öllum líkindum leitt til
afkáralegrar endurtekningar. Í
stað þess sér maður hljómsveit-
ina næstum því fyrir sér sitj-
andi á rökstólum, setjandi sam-
an áætlun um hvernig hægt
væri að þróa sig áfram án þess
að fórna einkennishljómnum.
Þess lags áætlun hefur auð-
heyranlega verið hrint af stokk-
unum og það er gleðilegt frá því
að segja að hún gengur upp.
Heyra má að menn hafa gefið
sér tíma til hljóðversdútls. Lög-
in eru margræðari en áður og
heildarsvipurinn er á margan
hátt rólegri, án þess að dragi
eitthvað úr kraftinum. Tilraunir
eru gerðar með hljóm, hvort
heldur það er í kringum gítara
eða trommur (sjá t.d. trommur í
„2113 (Sea Weed)“) og
skemmtilegar gítar- og bak-
raddapælingar lyfta lögum oft
upp. Þetta er þannig innhverf-
ara verk og meiri völundarsmíð
en fyrri útgáfur Brain Police.
Hljómborð/orgel setja þekkileg-
an svip á sum lagana, og er
nettur Doors/Black Sabbath
andi yfir þeim (mér verður ein-
hverra hluta vegna alltaf hugs-
að til lagsins „Planet Caravan“
með Black Sabbath af Paranoid
þegar orgelið kemur inn). Öll
þessi tilraunamennska, þessi
leikur að eyðimerkurrokkinu
sem er fremur rígbundið form,
gengur vel upp og platan vex
jafnt og þétt með hverri
hlustun.
Hljóðfæraleikur er pottþéttur
svo og söngur. Brain Police er
orðið þrusuþétt band og sú
staðreynd hefur greinilega ýtt
undir þetta frelsi sem þeir gefa
sér hér. Þetta verkefni, erfiða
verkefni vil ég segja, er nefni-
lega leyst af býsna miklu öryggi
Umslagið – hannað af Þor-
móði Aðalbjörnssyni – er stór-
glæsilegt, það besta sem ég hef
séð á árinu.
Þessi plata gæti mögulega
verið á kostnað einhverra aðdá-
enda en gróðinn er fólginn í því
að allir sem einn geta Brain
Police-liðar staðið keikir við
þetta verk. Electric Fungus er
metnaðarfull plata og sýnir
visst hugrekki. Á henni sannar
Brain Police að hún er „alvöru“
hljómsveit, líkleg til frekari
stórræða ef vindarnir fara að
blása þannig.
Skipt um sand
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Í Brain Police eru Gunnlaugur Lár-
usson (gítar, píanó, hljóðgervlar, bak-
raddir, „vélin“), Hörður Stefánsson
(bassi), Jón Björn Ríkarðsson (tromm-
ur) og Jens Ólafsson (söngur). Öll lög
eru eftir Brain Police, Upptökustjóri
var Alex „Flex“ Árnason ásamt Brain
Police og á hann einnig hlut í einu
lagi. Hrafn Thoroddsen; The Flex-
meister og Arnar Sigurðsson aðstoð-
uðu í sínu laginu hver. Platan kemur
einnig út í takmörkuðu upplagi ásamt
mynddiski.
Brain Police – Electric Fungus
Arnar Eggert Thoroddsen
Bók um söngflokkinn Nylonvar að koma út. Hún ersamnefnd nýju plötunni ogheitir 100% Nylon og er
fjallað um líf Ölmu, Emilíu, Stein-
unnar og Klöru frá ýmsum sjón-
arhornum. Höfundur bókarinnar er
Marta María Jónasdóttir, sem starf-
að hefur sem blaðamaður og stílisti
hjá Fróða síðastliðin fjögur ár á blöð-
um á borð við Mannlíf, Séð og heyrt
og Hús og híbýli. „Kristján B. Jón-
asson, þróunarstjóri hjá Eddu, hafði
samband við mig og bað mig um að
taka þetta verkefni að mér. Ég hugs-
aði mig ekki tvisvar um og fannst
þetta mjög spennandi,“ segir hún en
bókin er gefin út af Vöku-Helgafelli.
Stelpur með fullt að segja
„Maður heyrði það þegar verkefnið
fór af stað að fólk skildi ekki hvað
væri hægt að skrifa um, því þetta
væri allt svona nýtt. En þetta eru
fjórir einstaklingar sem áttu tilveru
áður en þær byrjuðu í Nylon og þær
hafa fullt að segja,“ segir Marta
María.
„Þegar við gerðum þessa bók skoð-
aði ég ekki neinar gamlar hljómsveit-
arbækur. Þetta er bara þeirra til-
vera. Mér fannst mjög nauðsynlegt
að það væri veglegur kafli um hverja
og eina,“ segir hún, en líklegt er að
aðdáendum þyki mestur fengur í
kaflanum „Nylon fyrir Nylon“ þar
sem hver stúlka um sig rekur ævi
sína og birtar eru gamlar fjöl-
skyldumyndir.
Marta María hefur eins og gefur
að skilja eytt miklum tíma með stelp-
ununum og kaus að tala við þær
hverja fyrir sig. „Þegar fleiri en tvær
stelpur koma saman vilja þær oft tala
hver ofan í aðra. Ég sá að við mynd-
um aldrei skrifa neina bók ef við vær-
um alltaf allar fimm saman. Ég vann
þetta heima hjá mér og þær voru hjá
mér ein og ein í einu og við áttum
góða stund saman. Þetta var mjög
heimilislegt,“ segir hún en á undan
þeim kafla er byrjunin rifjuð upp.
Í kaflanum „Sumarið“ er rakin at-
burðarás síðasta sumars og
fyrir Mörtu Maríu fólst
nokkur heimildarvinna í
því. „Eins og sést á bók-
inni var þetta mjög stíft
prógramm og þær fara
úr því að vera al-
gjörlega óþekktar í
það að vera frægar
á skömmum tíma.
Það sást á útgáfu-
tónleikunum í
síðustu viku að
þær eiga mjög
þéttan aðdá-
endahóp og
mér finnst
mjög gleði-
legt að
þetta
skuli
hafa
þróast
svona.“
Síðan er
að finna í bókinni
prófið „Hvaða Nylonstelpu
líkist þú?“, textana af plötunni,
fylgst er með stelpunum í hljóðveri
og fleira.
Mikið lagt upp úr útlitinu
Það sem síðast en ekki síst ein-
kennir bókina er fjöldinn allur af
myndum, sem Nylon-aðdáendur
verða áreiðanlega þakklátir fyrir.
Marta María valdi myndirnar í sam-
vinnu við hönnuð bókarinnar, Krist-
ínu Agnarsdóttur, en mikið er lagt
upp
úr
öllu út-
liti bók-
arinnar.
„Ari
Magg tók
myndir sér-
staklega fyr-
ir bókina,
sem marka
upphafið að
flestum köfl-
unum. Svo er
þarna að finna
mynd- ir frá stelpunum
sjálfum og úr myndatökum fyrir
hitt og þetta,“ segir Marta María.
„Þetta var mjög skemmtilegt. Mér
finnst eins og ég hafi eignast fjórar
yngri systur.“
Nylon | Bók um söngflokkinn komin út
Eignaðist fjór-
ar yngri systur
ingarun@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
Marta María Jónasdóttir, blaðamað-
ur og stílisti, er höfundur nýju bók-
arinnar um stelpurnar í Nyl-
on sem heitir 100%
Nylon.
Kvikmyndir.is
H.J.Mbl.
H.L.Mbl.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.50.
Shall we Dance?
Richard Gere Jennifer Lopez Susan Sarandon
Það er aldrei of seint að setja
tónlist í lífið aftur
Frábær rómantísk gamanmynd með
Richard Gere, Jennifer Lopez og
Susan Sarandon í aðalhlutverki.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
LAND
Einu sinni
var...
Getur gerst
hvenær
sem er.
HILARY DUFF CHAD MICHAEL MURRRAY
PIERCE BROSNAN
SALMA HAYEK
WOODY HARRELSON
DON CHEADLE
Frá leikstjóra RUSH HOUR og RED DRAGON
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6. Ísl tal.
KRINGLAN
Sýnd kl. 4, 6, og 8.
KRINGLAN
Sýnd kl. 3.50.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6. Ísl tal.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B.i. 16 ára.
ÁLFABAKKI
kl. 5.50, 8 og 10.10.
SÝND Í LÚXUS VIP KL. 3.40, 5.50, 8 OG 10.20.
LEIKSTJÓRN FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON
Ó.H.T. Rás 2
Búið ykkur undir að öskra.
Stærsta opnun á hryllingsmynd
frá upphafi í USA.
Búið ykkur undir að öskra.
Stærsta opnun á hryllingsmynd
frá upphafi í USA.
Stórskemmtileg rómantísk
gamanmynd um öskubuskuævintýrið
sem þú hefur aldrei heyrt um!
Funheit og spennandi með John Travolta
og Joaquin Phoenix í aðalhlutverki!
ÁLFABAKKI
Sýnd kl.4 og 6. Ísl tal./ kl. 4, 6, 8 og 10.10. Enskt tal.