Morgunblaðið - 12.11.2004, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.11.2004, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MÖRG af stærri þróunarverkefnum Þróunar- samvinnustofnunar Íslands hafa ekki skilað varanlegum árangri. Þetta var meðal þess sem fram kom á málþingi stofnunarinnar um þró- unaraðstoð Íslendinga í veiðum og sjávarút- vegi sem haldið var í þessari viku. Þar var hvatt til nánara samstarfs opinberra aðila og einka- fyrirtækja í þróunaraðstoð. Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) hefur haft umsjón með rúmlega 20 verkefnum á sviði sjávarútvegs í 5 samstarfslöndum á liðn- um 20 árum. Fystu samstarfsverkefnin voru unnin á Grænhöfðaeyjum, þau hófust árið 1981 og lauk árið 1999. Nú starfar ÞSSÍ í fjórum Afríkuríkjum sunnan Sahara-eyðimerkurinn- ar; Malaví, Mósambík, Úganda og Namibíu en í hverju þessara landa hefur verið ráðist í verk- efni á sviði fiskimála í samvinnu við stjórnvöld. Viðamestu verkefnin felast í aðstoð við upp- byggingu sjómanna- og fiskeldisskóla, rann- sóknum á sviði gæðamála í sjávarútvegi og uppsetningu tæknilega fullkominna rann- sóknastofa, sérfræðiráðgjöf við sjávarútvegs- ráðuneyti, gagnasöfnun og þjálfun sérfræð- inga. Jónas Haralz hagfræðingur sagði á mál- þinginu að í þremur stærstu verkefnum ÞSSÍ til þessa, þ.e. á Grænhöfðaeyjum, Malaví og Mósambík, hefði ekki náðst varanlegur árang- ur í þróunarstarfinu, aðeins tímabundinn. Þar væri fyrst og fremst um að kenna veikleika í stjórnfari viðkomandi landa, einkum þegar kemur að tekjuöflun þeirra. Þannig hefði ÞSSÍ ítrekað rekið sig á að heimamenn voru ekki til- búnir að byggja áfram á þeim verkefnum sem stofnunin réðst í. Þannig yrðu til dæmis haf- og fiskirannsóknaverkefni að tengjast eflingu fiskveiða og fiskveiðistjórnun í viðkomandi landi en slíkt hefði sjaldnast verið fyrir hendi. Sagði Jónas að áhersla ÞSSÍ í þessum efnum hefði þannig breyst á undanförnum árum, stofnunin einbeitti sér nú í ríkari mæli að tak- mörkuðum verkefnum, s.s. að gæðaeftirliti og menntun. Mikil áhersla hefur verið lögð á stuðning ÞSSÍ við sjávarútvegsverkefni og er það í sam- ræmi við eitt af meginmarkmiðum stofnunar- innar um að þróunaraðstoð sé veitt á sviði þar sem sérþekking Íslendinga nýtist. Þó hefur hlutfallslegt vægi fiskiverkefna í tvíhliða þró- unaraðstoð minnkað um rífan helming á tæp- um áratug, farið úr því að vera 60% af heildar- framlagi ÞSSÍ árið 1996 í 24% á síðasta ári. Að sama skapi hefur aukist stuðningur við verk- efni á sviði félags-, heilbrigðis- og menntamála sem ráðist hefur verið í að ósk stjórnvalda sam- starfslandanna. Til framtíðar er einnig horft til samstarfs um orkumál, einkum á sviði jarðhita. Opinber framlög Íslands til þróunarmála á síðasta ári voru 1.400 milljónir króna eða 0,17% af vergri þjóðarframleiðslu. Af því runnu um 470 milljónir til tvíhliða þróunaraðstoðar ÞSSÍ. Heildarframlög til þróunarmála á árinu 2004 hækkuðu í 1.645 milljónir króna og fór rúmlega þriðjungur þeirrar fjárhæðar til ÞSSÍ. Þá gera fjárlög ársins 2005 ráð fyrir umtalsverðri aukn- ingu, en framlög og styrkir til þróunaraðstoðar munu samkvæmt fjárlagafrumvarpinu hækka sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu úr 0,19% árið 2004 í 0,21% árið 2005. Ágúst Einarsson hagfræðiprófessor sagði á málþinginu að framlag Íslendinga til þróunar- mála væri ekki í samræmi við ríkidæmi lands- ins. Þannig veittu önnur Norðurlönd tvisvar til fimm sinnum meira til þróunaraðstoðar en Ís- land, mælt sem hlutdeild af landsframleiðslu. Hann sagði framlagið þó hafa verið að aukast á allra síðustu árum. Ágúst sagði Íslendinga hafa margt gott til málanna að leggja í þessum efn- um, enda væru þeir stórþjóð í sjávarútvegi og bæri þannig skylda til að leggja sitt af mörkum. Nefndi hann nokkur atriði sem sköpuðu Ís- landi sérstöðu í sjávarútvegi og gætu nýst í þróunaraðstoð. Sagði hann að hér væri m.a. mikil fjölbreytni í atvinnugreininni, hún væri mikilvæg í hagkerfi þjóðarinnar, einkum vegna gjaldeyrisöflunar. Þá væru hér lítil umhverf- ismál og nokkuð góð sátt um þau innanlands. Jafnframt nefndi Ágúst að hér væri hátt tækni- stig í veiðum, vinnslu og sölu sjávarafurða og vel virkar opinberar rannsókna- og þjónustu- stofnanir. Þá væri menntunarstig gott og hér væru góðir vísindamenn á mörgum sviðum, sumir á heimsmælikvarða. Samstarf við einkafyrirtæki En Ágúst sagði gott markaðskerfi íslensks sjávarútvegs geta komið að mestu gagni í þró- unarstarfi. Sagði hann Íslendinga geta þar hjálpað mikið til, til dæmis með hjálp stórra sölufyrirtækja, s.s. SÍF, SH og Samherja. Auðbjörg Halldórsdóttir, sendiráðunautur í utanríkisráðuneytinu, ræddi samstarf opin- berra og einkaaðila á málþinginu. Hún sagði ekki hafa farið mikið fyrir slíku samstarfi til þessa en ljóst væri að áhugi einkaaðila á því væri að aukast. Hins vegar þyrfti að skoða með hvaða hætti væri hægt að virkja krafta, þekk- ingu og áhuga íslenska einkageirans og félaga- samtaka í þágu þróunarstarfs og sagði hún það beinlínis tímabært í ljósi aukinnar útrásar ís- lenskra fyrirtækja. Hún minnti á að ÞSSÍ hefði aukið nokkuð samstarf við félagasamtök, fyr- irtæki og stofnanir en þó væri ljóst að ákveðinn farveg vantaði til að koma á markvissara og auknu samstarfi. Fiskihöfnin í Maputo, höfuðborg Mósambík. Skilaði ekki varan- legum árangri Hvatt til samstarfs við einkaaðila á málþingi Þróunarsamvinnustofnunar Íslands VERIÐ GUÐJÓN Andri Gylfason, þriðja árs nemi í lífefnafræði við Háskóla Íslands, ætlar að dvelja næstu tvær vikur um borð í skútunni Song of the Whales í Miðjarðarhafi. Skútan er gerð út af Alþjóðlegum velferðarsjóði dýra (International Fund for Animal Welfare – IFAW). Að sögn Guðjóns er ætlunin að skoða og stunda rannsóknir á búrhvölum og athuga lífshætti þeirra í Miðjarðarhafi. Við rannsóknirnar verður aðallega beitt sónar- tækni og hlustunartækjum. „Markmið þessara rannsókna er að sýna fram á að hægt sé að stunda hvalarannsóknir án þess að drepa dýrin,“ sagði Guðjón Andri. Aðspurður hvort þekking hans í lífefnafræði nýttist á einhvern hátt, sagðist hann ekki vita til þess að tekin yrðu nein lífsýni. „Ég er að- allega að svala forvitni minni um rannsókn- araðferðirnar sem þessi samtök beita. Þau hafa stundað dýrarannsóknir í mörg ár og skútan sem ég verð á var við Íslandsstrendur á liðnu sumri.“ Guðjón Andri hyggst halda úti vefdagbók um ferðalagið. Rannsakar búrhvali í Miðjarðarhafi TENGLAR ....................................................... Vefdagbók: www.gandri.tk UNGLINGURINN á lands- byggðinni, verkefni sem sam- tökin Landsbyggðin lifi (LBL) hefur unnið að meðal 13–18 ára unglinga út um land, vakti mikla athygli á byggðaþingi finnskra systursamtaka LBL og norrænu samtakanna Hela Norden Skal Leva (HNSL). Fríða Vala Ás- björnsdóttir, frumkvöðull stofn- unar LBL og stjórnarmaður í HNSL, kynnti veggspjöld sem unnin voru á grundvelli fyrri hluta verkefnisins á þinginu sem haldið var í Närpes í Finnlandi, 29. til 30. október sl. Að sögn Fríðu Völu er um að ræða verkefni sem tekur tvö ár. Leitað var til unglinga í grunn- og framhaldsskólum á landsbyggð- inni. Voru þeir beðnir um að lýsa því hvað þeim þætti vanta til að heimabyggð þeirra yrði betri til búsetu eða eftirsóknarverðari að flytjast til. Bestu ritgerðirnar úr hverjum landshluta voru verð- launaðar í vor er leið. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi for- seti Íslands og verndari samtak- anna LBL og HNSL, afhenti verðlaunin sem útgáfufélagið Edda hf. gaf. Útbúin voru fimm veggspjöld með ljósmyndum frá landshlut- unum og texta sem sóttur er í rit- gerðir unglinganna. Sérstaka at- hygli fengu sveitarfélög verðlaunahafanna í hverjum landshluta. Svör unglinganna voru borin saman eftir lands- hlutum og athugað hvort greina mætti mismun á hugsunarhætti. Fríða Vala sagðist vona að sveit- arstjórnarmenn tækju hug- myndir unglinganna til greina, því þar væri mörg gullkorn að finna. „Krakkarnir komu með snilld- arlausnir,“ segir Fríða Vala. „Ráðstefnugestir í Närpes stopp- uðu við spjöldin og gáfu sér tíma til að grúska í þessu. Ísland fékk mikla athygli fyrir hugmyndir unglinganna um byggðamál.“ Veggspjöldin má skoða á heimasíðu LBL. Ljósmynd/FVA Fríða Vala Ásbjörnsdóttir sýndi veggspjöld verkefnisins Ungling- urinn á landsbyggðinni á byggðaþingi í Finnlandi. Byggðasjónarmið íslenskra unglinga vakti athygli TENGLAR ................................................ www.landlif.is HEFÐI lyftugangur í húsi við Lindargötu 5 í Reykjavík verið hannaður í samræmi við reglu- gerð hefði maður, sem var að gera við lyftuna, ekki orðið fyrir alvarlegu slysi árið 2000 sem hefur haft víðtæk áhrif á líf hans. Örorka hans vegna slyssins er metin 60%. Þetta er niður- staða Héraðsdóms Reykjavíkur sem á þriðju- dag dæmdi Vinnueftirlitið og Reykjavíkurborg til að greiða manninum 11,5 milljónir í bætur. Fyrir slysið var maðurinn við góða heilsu, hljóp langhlaup og hafði m.a. hlaupið maraþon- hlaup og síðast „Laugaveginn“ milli Land- mannalauga og Þórsmerkur, mánuði áður en slysið varð. Eftir slysið hefur hann átt við margvíslega líkamlegan og geðrænan vanda að stríða og segir í dómnum að hann muni að öll- um líkindum þurfa að láta af störfum fyrir ald- ur fram. Málsatvik eru þau að Reykjavíkurborg sótti um undanþágu vegna lyftuganganna en yfir þeim er íbúðarhæð sem takmarkar öryggis- rými fyrir ofan lyftuna. Rýmið var aðeins 20 sentímetrar en átti samkvæmt reglugerð að vera minnst 70 sentímetrar. Öryggisbúnaður var settur ofan á lyftuna, m.a. öryggisslá sem átti að reisa upp þegar viðgerðir eða skoðanir fóru fram, en sláin var 90 sentímetra löng. Vinnueftirlitið veitti undanþáguna. Klemmdist á milli Í ágúst árið 2000 var maðurinn að gera við lyftuna og kraup vegna þess á lyftuþakinu. Fyrirtækið sem hann vann hjá hafði þá nýverið tekið við viðhaldi á lyftum í húsinu. Þegar lyft- an fór í gang lá maðurinn ofan á lyftunni og öryggishnappur, sem getur stöðvað lyftuna var fyrir aftan hann. Maðurinn kvaðst hafa verið rólegur í fyrstu enda þekkti hann vel reglur um öryggisbil og treysti því að það væri til staðar í lyftuganginum. Hann hafi vart verið kominn á fjóra fætur þegar þakið hvolfdist yfir hann, en við það klemmdist hann á milli. Mikill þrýst- ingur kom á brjóstkassa en höfuð klemmdist ekki. Við slysið fékk maðurinn m.a. heila- áverka, ásamt áverkum á hrygg og fleira. Geðslag hans hefur auk þess breyst til hins verra. Maðurinn höfðaði mál gegn Reykjavíkur- borg, Vinnueftirliti ríkisins, vinnuveitanda sín- um og tryggingafélagi hans. Í niðurstöðum héraðsdóms um sök Vinnueft- irlitsins segir að hefði frágangur lyftuganga verið í samræmi við reglugerð hefði ekki komið til slyssins. Því bæri Vinnueftirlitið sök á slys- inu með því að „hafa veitt ólögmæta undan- þágu frá fortakslausu ákvæði reglugerðarinn- ar.“ Sök var felld á Reykjavíkurborg þar sem ákvæði sömu reglugerðar voru ekki virt og ör- yggisbúnaði að „öðru leyti áfátt og aðstæður stórhættulegar hverjum þeim sem á lyftuþak- inu var.“ Fram kom að engar merkingar voru á eða við lyftuna um að öryggisbil væri minna en venjulega. Vinnuveitandi mannsins, Íselekta hf., var á hinn bóginn sýknaður og ekki var tal- ið að maðurinn ætti nokkra sök á tjóni sínu. Allan V. Magnússon kvað upp dóminn. Frið- jón Örn Friðjónsson hrl. flutti málið f.h. mannsins en til varnar voru hæstaréttarlög- menn Ólafur Haraldsson, Óskar Thorarensen og Valgeir Pálsson. Borgin og Vinnueftirlitið dæmd til að greiða 11,5 milljónir í bætur vegna vinnuslyss við lyftu Ólögmæt undanþága og engar merkingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.