Morgunblaðið - 12.11.2004, Blaðsíða 64
64 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10.
M.M.J.
Kvikmyndir.com
H.J. Mbl.
Shall we Dance?
Richard Gere Jennifer Lopez Susan Sarandon
Það er aldrei of seint að setja tónlist í lífið aftur
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 10.
NÆSLAND
Sýnd kl. 8.
Einu sinni
var...
Getur gerst
hvenær
sem er.
HILARY DUFF CHAD MICHAEL MURRRAY
KRINGLAN
Sýnd kl. 4.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8, 10.10 og 11.15. B.i. 16 ára.
Frábær rómantísk gamanmynd með Richard Gere,
Jennifer Lopez og Susan Sarandon í aðalhlutverki.
LEIKSTJÓRN FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON
Ó.H.T. Rás 2
Kvikmyndir.is
H.J.Mbl.
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4. Ísl. tal.
Búið ykkur undir að öskra.
Stærsta opnun á hryllingsmynd
frá upphafi í USA.
*ATH. Aukasýning kl. 11.15
Stórskemmtileg rómantísk
gamanmynd um öskubuskuævintýrið
sem þú hefur aldrei heyrt um!Funheit og spennandi með John Travolta
og Joaquin Phoenix í aðalhlutverki!
ROKKTRÍÓIÐ Cream var fyrsta
krafttríóið („power trio“) og sam-
anstóð af þeim Eric Clapton, Jack
Bruce og Ginger Baker. Sveitin var
stofnuð árið 1966 en hætti rúmum
tveimur árum síðar. Áhrif sveit-
arinnar voru engu að síður mikil og
segja má að hún hafi lagt grunninn
að harðri rokktónlist og síðar
þungarokki. Önnur plata Cream,
Disraeli Gears (’67) þykir vera
meistaraverk sveitarinnar, en þar
er sýrurokki og blús blandað saman
á áhrifaríkan máta. Tónleikar sveit-
arinnar þóttu þá með eindæmum
kraftmiklir en annað eins hafði ekki
sést, hvað þá heyrst, fram að þeim
tíma.
Samkvæmt heimildum Billboard
er nú líklegt að tríóið muni koma
saman á nýjan leik og spili nokkra
tónleika í Royal Albert Hall í Lond-
on á næsta ári – en einmitt þar fóru
lokatónleikar sveitarinnar fram, í
nóvember 1968. Cream kom síðast
fram saman árið 1993, er hljóm-
sveitin var innlimuð í frægðarhöll
rokksins.
Samkvæmt Billboard ætlar sveit-
in að hefja æfingar í byrjun næsta
árs og er áætlað að halda tónleika á
hverju kvöldi í heila viku. Ekki er
vitað hvort framhald verður á starf-
semi sveitarinnar eftir það.
Tónlist | Cream kemur saman aftur
Þeytt á ný?
Cream: Baker, Bruce og Clapton.
TÓNLISTINN ræður ríkjum á Ung-
list, listahátíð ungs fólks, í Tjarnar-
bíói í kvöld. Þar verður haldið Fram-
sækniskvöld SPECAP eða SLÁTUR,
samtök listrænt ágengra tónlistar-
manna umhverfis Reykjavík í annað
sinn og má búast við því óvænta á
tónlistarlegum vettvangi.
„Þetta verður spennandi,“ segir
Guðmundur Steinn Gunnarsson, um-
sjónarmaður kvöldins, og upplýsir að
fjögur atriði verði á dagskrá. Fyrstan
má nefna „Elvar Auxpan, sem hefur
getið sér gott orð fyrir noise-tónlist.“
Líka stígur á svið trommuleikarinn
og tónsmiðurinn Ólafur Björn Ólafs-
son ásamt Önnu S. Þorvaldsdóttur en
þau útskrifuðust saman frá tón-
smíðadeild LHÍ síðasta vor.
„Ég veit í raun ekkert um þetta at-
riði. Það kemur alveg í ljós,“ segir
Steini, eins og hann er kallaður, og er
það allt hluti af því að stuðla að fram-
sækninni að skipta sér ekki af því
hvað fólk hyggist gera. „Ég spyr bara
fólk hvort það vilji gera eitthvað.“
„Ekki nóg með að við höfum liðs-
mann úr Kanada (Óli Björn) heldur
kemur fram hjómsveitin Adanak,
sem er Kanada aftur á bak,“ segir
Steini en hljómsveitin er skipuð
djassistunum Helga Svavari Helga-
syni trommara, Davíð Þór Jónssyni
hljómborðsleikara, Róbert Reyn-
issyni gítarleikara og Hrafni Ásgeirs-
son saxófónleikari. „Þetta verður
mest djasslegt af því sem verður á
dagskránni en það sem þeir hafa gert
saman hefur farið í ýmsar áttir. Þeir
eru með rafhljóð í þessu og flakka á
milli stíla. Það verður forvitnilegt að
sjá hvað gerist.“
Steini er sjálfur með atriði á dag-
skrá ásamt Páli Ivani Pálssyni en
þeir eru saman í hljómsveitinni Hest-
bak, sem var að senda frá sér plötuna
Gratín. Í þetta skipti koma þeir fram
sem dúettinn Steypa.
„Þetta er spunaverk þar sem tólf
manns verða að spila,“ segir Steini en
fólkinu verður skipt upp í þrjá fjög-
urra manna hópa. „Þetta er mikil til-
raun,“ segir Steini, en hann og Páll
Ivan eru báðir á síðasta ári í tón-
smíðanámi í Listaháskólanum.
Steini segir að samtökin SLÁTUR
sé „hattur sem við höfum til að reka
heimasíðu og halda tónleika öðru
hvoru. Menn sem koma úr ólíkum
geirum og hópum eru oft að pæla í
svipuðum hlutum og geta sameinast í
samtökunum. Þetta er hópur með
framsækni að markmiði.“ Steini er
þakklátur fyrir að vera með í Unglist.
„Það er þvílíkur munur að geta haldið
tónleika í góðu húsnæði og hljóðkerfi
með stuðningi frá Hinu húsinu.“
Unglist | Tónlistarkvöld SLÁTUR í Tjarnarbíói
Morgunblaðið/Golli
Framsæknir og vel lesnir: Páll Ivan Pálsson, Róbert Reynisson, Guð-
mundur Steinn Gunnarsson og Elvar Már Kjartansson (Auxpan).
Framsækni að markmiði
Framsækniskvöldið hefst í Tjarn-
arbíói kl. 20 og er aðgangur
ókeypis .
www.unglist.is
www.specap.com
ingarun@mbl.is