Morgunblaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2005 57
MENNING
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Bingó alla föstudaga
og ýmsar uppákomur. Vinnustofa og
baðstofa opna kl. 9, allir velkomnir.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14. Handa-
vinna kl. 9–12. Smíði/útskurður kl. 13–
16.30.
Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10–
13 námskeið, kl. 11.15–12.15 matur, kl.
14–15 söngstund, kl. 14.30–15.30
kaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist er spiluð í kvöld kl 20.30 í
Gjábakka.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Fræðslunefnd FEB verður með
fræðslufund kl. 15.30 í Ásgarði í
Glæsibæ. Undir yfirskriftinni Meðöl
eða morgunganga,, Tveir kunnir
fræðarar tala um það sem snertir
þessi mál. Guðmundur Björnsson
endurhæfingarlæknir og Ólafur Jó-
hannesson íþróttafræðingur.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Skvettuball verður haldið í Gullsmára
laugardaginn 16. apríl kl. 20–23. Allir
velkomnir á gömlu góðu ballskónum
og með góða skapið með sér. Kaffi,
bjór og gos á hóflegu verði. Þorvaldur
Halldórsson leikur fyrir dansi. Síðasta
Skvettuball vetrarins.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Gleðigjafarnir syngja á föstudaginn
kl. 14–15. Allir velkomnir. Heitt á könn-
unni.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Slökunarjóga og teygjur kl. 10.30 og
11.30, félagsvist kl. 13 í Garðabergi.
Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa-
vinna, bútasaumur. Útskurður. Hár-
greiðsla. Kl. 10 fótaaðgerð. Kl. 12 há-
degismatur. Kl. 14 bingó. Kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Frjáls aðgangur
að opinni vinnustofu – postulínsmáln-
ing. Myndbandasýning kl. 13:30 sýnt
verður myndbandið „The Notebook“,
í hléi verður selt kaffi og nýbökuð vín-
arbrauð. Böðun virka daga fyrir há-
degi. Fótaaðgerðir.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Betri stofa og Lista-
smiðja. Gönuhlaup 9.30. Bridge
13.30. Hárgreiðslustofa 568 3139.
Gönguferð frá Hæðargarði kl. 10 í
fyrramálið.
SÁÁ félagsstarf | Félagsvist og dans
verður í sal I.O.G.T að Stangarhyl 4,
laugardaginn 16. apríl. Spila-
mennskan hefst kl. 20.00 og síðan
verður dansað fram eftir nóttu. Fjöl-
mennum og tökum með okkur gesti.
Félagsstarf SÁÁ.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir, kl. 9.15–14.30 hann-
yrðir, kl 11.45–12.45 hádegisverður, kl
13.30–14.30 sungið v/flygilinn, kl.
14.30–15.45 kaffiveitingar, kl. 14.30–
16 Dansað í aðalsal.
Vesturgata 7 | Kl. 13:30 sungið við
flygilinn við undirleik Sigurgeirs, kl.
14:30–16:00 dansað við lagaval Sig-
valda, kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, leirmótun og hárgreiðsla kl. 9,
morgunstund og fótaaðgerðir kl.
9.30, bingó kl. 13.30. Allir velkomnir.
Kirkjustarf
Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn
kl. 10–12 alla föstudaga.
Hallgrímskirkja | Starf með öldr-
uðum alla þriðjudaga og föstudaga kl.
11–15. Súpa, leikfimi, kaffi og spjall.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Kirkja
unga fólksins fellur niður vegna ung-
lingamóts í Kirkjulækjarkoti. Sjá nán-
ar á www.filo.is.
Laugarneskirkja | Hin árlega gisti-
nótt 8. bekkjar haldin í safnaðar-
heimilinu. Mikið gaman og full alvara.
Sjá: laugarneskirkja.is.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
NÆSTKOMANDI laugardagskvöld
16. apríl kl. 20:30 munu fjölskyldu-
meðlimir frá Ásólfsskála ásamt Guð-
jóni Halldóri Óskarssyni standa fyr-
ir hljóðfæraleik og söng í Ásólfs-
skálakirkju.
Fimmtíu ár eru frá vígslu Ásólfs-
skálakirkju, sem ákveðið var að
minnast með viðgerð og endurbótum
á kirkjunni. Gluggar verða end-
urnýjaðir, útveggir klæddir að utan
og kirkjan máluð ef fjármagn fæst
til þess.
Fjársöfnun sóknarinnar fyrir
þessum endurbótum á kirkjunni
hefst með þessum tónleikum. Vel-
unnarar kirkjunnar eru hvattir til að
leggja þessu lið með því að koma á
tónleikana og leggja þannig fram
sitt framlag til kirkjunnar. Einnig er
hægt að leggja inn á reikning kirkj-
unnar 0182 26 3480, kt.: 430169-
2549.
Sóknarnefnd Ásólfsskálakirkju.
Fjáröflunartón-
leikar í Ásólfs-
skálakirkju und-
ir Eyjafjöllum
Ásólfsskálakirkja
4. flokki 1992 – 46. útdráttur
4. flokki 1994 – 39. útdráttur
2. flokki 1995 – 37. útdráttur
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
Koma þessi bréf til innlausnar 15. júní 2005.
Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu.
Auk þess liggja upplýsingar frammi hjá Íbúðalánasjóði,
í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
Útdráttur
húsbréfa
Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími 569 6900 Fax 569 6800 www.ils.is
David Berkowitz í banastuði.
Norður
♠D5
♥9643 A/NS
♦763
♣K964
Suður
♠ÁK102
♥ÁKG1052
♦–
♣D82
Sveit Richards Schwartz varð
Vanderbilt-meistari í Pittsburgh, en
Vanderbilt-sveitakeppnin er stærsta
og virðulegasta mót vorleikanna. Með
Schwartz spiluðu: Mike Becker, Larry
Cohen, David Berkowitz, Andrea Bur-
atti og Massimo Lanzarotti. Þeir tveir
síðastnefndu eru Ítalir og hafa orðið
Evrópumeistarar með þjóð sinni.
Í spilinu að ofan varð David Berkow-
itz sagnhafi í sex hjörtum eftir þessar
sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
– – 2 tíglar Dobl
5 tíglar Pass Pass 5 hjörtu
Pass 6 hjörtu Allir pass
Sagnir AV eru eðlilegar og útspilið
var tígulás, sem Berkowitz trompaði
með tíu, lagði niður trompásinn og
austur reyndist eiga drottninguna
staka.
Hvernig myndi lesandinn halda
áfram?
Berkowitz fann fallega leið. Hann
spilaði litlu trompi á níuna og stakk tíg-
ul hátt. Spilaði svo laufi á kóng, sem
átti slaginn, og stakk síðasta tígulinn,
aftur hátt.
Með þessu hafði Berkowitz byggt
upp öfugan blindan og gat nú nýtt
fjórða spaðann sem þvingunarspil.
Hann tók öll trompin og endaði heima
með ÁK102 í spaða og staka lauf-
drottningu, en í borði átti hann D5 í
spaða og þrjú smá lauf. Vestur átti
augljóslega laufásinn, en ef hann var
líka með Gxxx í spaða, varð hann að
fara niður á ásinn blankan.
Berkowitz las stöðuna rétt – tók á
spaðadrottningu og sendi vestur inn á
laufás. Slemman vannst, en því miður
átti austur gosann þriðja í spaða, svo
snilldin reyndist óþörf – slemman hefði
alltaf unnist.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. Rf3 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 d5 4. d4
Bb4 5. cxd5 exd5 6. Bg5 h6 7. Bh4 g5
8. Bg3 Re4 9. Rd2 Rxc3 10. bxc3
Bxc3 11. Hc1 Bb2 12. Bxc7 De7 13.
Bd6 De6 14. Da4+ Rc6 15. Hc2 Ba1
16. Rb3 Dxd6 17. Rxa1 0–0 18. e3
Bf5 19. Hc5 Hac8 20. Bb5
Staðan kom upp á meistaramóti
Danmerkur sem lauk fyrir skömmu í
Køge. Lars Schandorff (2.497) hafði
svart gegn Christian K. Pedersen
(2.396). 20. … Rxd4! 21. exd4 Hxc5
22. dxc5 De5+ 23. Kd2 Db2+ 24.
Rc2 24. Ke3 hefði verið vel svarað
með annaðhvort 24. … a6 eða 24. …
d4+. Eftir textaleikinn verður hvít-
ur peði undir og með tapað tafl.
24. … Bxc2 25. Dxc2 Dxb5 26. Hb1
Da5+ 27. Ke2 Da6+ 28. Kf3 Df6+
29. Ke2 De5+ 30. Kf1 Dxh2 31. f3
He8 32. Df5 He6 33. Dd3 g4 34. Dd4
gxf3 35. gxf3 De2+ 36. Kg1 Hg6+
og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
15. apríl
Lýsingarorð eru sykur bókmenntanna og atviksorð saltið.
Henry James 1843 (Bandaríkin)
Önnur afmælisbörn dagsins:
Tomas Tranströmer 1931 (Svíþjóð)
Árbók bókmenntanna
KJARVALSSÝNINGUNNI Úr
Kjarvalssafni lýkur á sunnudaginn
en þá verður í fyrsta sinn um langt
árabil gert nokkurra mánaða hlé á
sýningu á verkum Jóhannesar Kjar-
vals í Listasafni Reykjavíkur – Kjar-
valsstöðum. Sýningin Úr Kjarvals-
safni var opnuð árið 2000, en þar
getur að líta margar af gersemum
Kjarvals sem sett hafa svip sinn á
listasögu samtímans.
Næsta sýning á verkum Kjarvals
verður opnuð á Kjarvalsstöðum 15.
október en þar er um að ræða viða-
mikla yfirlitssýningu í öllum sölum
hússins í tilefni af 120 ára fæðing-
arafmæli listamannsins. Sýningunni
er ætlað að bregða nýju ljósi á verk
listamannsins fyrir nýjar kynslóðir,
en á sama tíma kemur út ný bók um
Kjarval á vegum Nesútgáfunnar.
Fram að opnun nýrrar Kjarvals-
sýningar verður á Kjarvalsstöðum
sýning útskriftarnema Listaháskóla
Íslands (7.–29. maí) og í júní hefst
sumarsýning Kjarvalsstaða, með
glæsilegu úrvali myndlistar í eigu
Listasafns Íslands, þar sem brugðið
er upp mynd af innlendri listasögu
20. aldar. Sýningin er samstarfs-
verkefni Listasafns Íslands og
Listasafns Reykjavíkur.
Kjarval í frí
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Slunkaríki
Innsetningu Guðrúnar Veru
Hjartardóttur, Vöxtur, í Slunka-
ríki á Ísafirði lýkur á sunnudag-
inn. Þetta er fantasía unnin í rým-
ið með plastilína leirlíki, MDF og
veggmálningu sem sýnir ýmis
stig þróunar eða vaxtar efnis og
anda.
Sýningum
lýkur
Bjargvætturinn í grasinu e. J.D.
Salinger er komin út hjá Skruddu
í þýðingu Flosa Ólafssonar
Bjargvætturinn í grasinu (Catcher
in the Rye) eftir J. D. Salinger er
tímamótaverk í skáldsagnagerð 20.
aldarinnar. Sagan vakti miklar deil-
ur þegar bókin kom fyrst út árið
1951 og var um tíma bönnuð í
Bandaríkjunum. Bókin kom fyrst út
á íslensku í snilldarþýðingu Flosa
Ólafssonar 1975 og hefur lengi ver-
ið ófáanleg.
Í bókinni, sem er þekkt fyrir
fjölda tilbúinna slangurorða, segir
frá Holden Caulfield, bituryrtum
sextán ára unglingi, sem er rekinn
úr skólanum og fer til New York áð-
ur en önninni lýkur. Þar þarf hann
að horfast í augu við foreldra sína
en fyrst ætlar hann að sletta úr
klaufunum í nokkra daga.
Skáldsaga