Morgunblaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 64
64 FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Frábær ævintýrahasarmynd sem líkt hefur verið við
Indiana Jones og James Bond myndirnar.
Nýjasta meistarastykki meistara
Mike Leigh, sem hefur rakað til
sín verðlaunum og hlotið mikið
lof hvarvetna.
Byggð á 1000 sönnum sögum.
Mögnuð og sláandi mynd frá
Kolumbíu en leikkonan
Catalina Sandino Moreno var
tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir
hlutverk sitt í myndinni.
Stórkostleg vegamynd sem hefur
farið sigurför um heiminn, fengið lof
gagnrýnenda og fjölda verðlauna.
3
ÓSKARSTILNEFNINGARH.L. MBL
MBL
Ó.H.T Rás 2
Ó.H.T Rás 2
Ó.H.T Rás 2
Beyond the Sea kl. 5.30 - 8 og 10.30
The Motorcycle Diaries kl. 5.30 og 8
9 Songs kl. 10,30 b.i. 16, Spurt & Svarað með Kieran O´Brien
Napoleon Dynamite kl. 6 - 8 -10
Min Misunderlige Frisör kl. 6
Maria Full of Grace kl. 8 b.i. 14
Vera Drake kl. 10,05
Million Dollar Baby kl. 5,30 b.i. 14
Life and Death of Peter Sellers kl. 8 -10.30
Ævintýri hafa tekið nýja stefnu.
TOPPMYNDIN Í USA
i t ri f te i j stef .
I Í
Sennilega ein hispurslausasta
kvikmynd sem gerður hefur verið,
eftir snillinginn Michael
Winterbottom, um ást, kynlíf og
tónlist. Frábær lifandi tónlist með
Franz Ferdinand, Primal Scream,
Elbow, Dandy Warhols o.fl.
Stranglega bönnuð innan 16 ára og
alls ekki fyrir viðkvæma.
Aðsóknamesta óháða myndin í USA í fyrra.
Ein vinsælasta kvikmyndin á
Sundance kvikmyndahátíðinni.
SPURT OG SVARAÐ
MEÐ KIERAN O'BRIEN
KL. 22:30.
Ein besta mynd ársins eftir
Kevin Spacey sem hlaut Golden Globe
tilnefningu fyrir frammistöðu sína í
hlutverki Bobby Darin.
VALDÍS Anna Jónsdóttir og
Tryggvi Aðalbjörnsson hafa haft
í mörg horn að líta upp á síð-
kastið. Þau eru framkvæmda-
stjórar Birtingar – hátíðar ungs
fólks, sem staðið hefur yfir í höf-
uðstað Norðurlands frá því um
síðustu helgi og lýkur annað
kvöld með Söngkeppni fram-
haldsskólanna í Íþróttahöllinni á
Akureyri.
Valdís Anna er í þriðja bekk
VMA og Tryggvi í þriðja bekk
MA. Lítill tími hefur verið aflögu
til þess að kíkja í skólabækur
síðustu vikur en þau kvíða engu;
(enda gömul vísindi og ný að
reynsla menntaskólaáranna fæst
ekki einungis með skóla-
bókalestri).
„Hmmm... Við látum það nú bara koma í
ljós,“ segir Vopnfirðingurinn Tryggvi þeg-
ar þau eru spurð hvort ekki stefni í að
meðaleinkunnir á vormisseri verði óvenju
lágar. „Við verðum bara dugleg að lesa í
sumar,“ segir þá Akureyringurinn Valdís
Anna og brosir. Spurður um þetta fyr-
irbæri, Birtingu, segir Tryggvi: „Hug-
myndin var upphaflega sú að MA og VMA
settu saman upp leiksýningu vegna þess að
skólarnir voru alltaf að slást um áhorf-
endur...“ Þarna hringir þarfasti þjónn nú-
tímans, gemsinn, og Tryggvi er horfinn úr
stólnum „med det samme“. Það er brjálað
að gera við undirbúning.
„Ég stillti minn á þögn og setti ofan í
tösku,“ segir þá Valdís Anna og hlær.
„Öðruvísi er enginn friður.“ Hún hefur því
orðið að mestu leyti.
Birting hófst sem sagt með frumsýningu
sameiginlegrar leiksýningar framhaldsskól-
anna tveggja í bænum, en vert er að geta
þess að Rígurinn, eins og rokksöngleikur
skólanna heitir, er um ríginn á milli
tveggja framhaldsskóla í 16 þúsund manna
bæjarfélagi norður í landi! En verkefnið
vatt upp á sig: Þau langaði mikið til þess
að bjóða upp á meira en leiksýninguna, og
úr varð einhvers konar listahátíð í heila
viku, tónleikar á hverju kvöldi; djass,
klassík, rokk, gospel... Og boðið upp á list-
sýningar.
Tímaritið Birting kemur út á morgun; rit
um ungt fólk unnið af nemendum fram-
haldsskólanna á Norðurlandi, matreiðsl-
unemar úr VMA verða að störfum í kvöld í
eldhúsi veitingastaðarins Friðriks V og
þjónanemar úr sama skóla í salnum – og
framhaldsskólanemar flytja tónlist í mat-
salnum, nema hvað! – í kvöld verða einnig
stórleikar með Quarashi, Skyttunum,
Kingstone og Múskat í KA-heimilinu og á
morgun fer fram Hönnunarkeppni fram-
haldsskólanna, áður en punkturinn verður
settur yfir i-ið með Söngkeppninni en þar
verður heiðursgestur Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráðherra.
Í framhaldsskólunum tveimur á Ak-
ureyri eru hátt á annað þúsund nemendur
og Birtingarstjórarnir eiga von á tvö til
þrjú þúsund gestum á hátíðina
um helgina, annars staðar af
landinu.
Þau segja mikla samheldni
framhaldsskóla um allt land ein-
kenna Birtingu. Valdís Anna
skellti sér hringinn í kringum
landið á dögunum, ók 3.200 kíló-
metra á fáeinum dögum og
kynnti dagskrána í öllum fram-
haldsskólum landsbyggðarinnar
svokölluðu, en stöllur hennar fóru
í sams konar kynningarferð til
höfuðborgarsvæðisins. „Við-
brögðin voru frábær; okkur var
rosalega vel tekið alls staðar og
gaman að segja frá því að það
voru ekki síst krakkarnir í
Reykjavík sem hvöttu til þess að
Söngkeppnin færi fram á Ak-
ureyri, vegna þess að þá kæmu
örugglega fleiri. Það tekur 10 til
12 tíma að keyra til Reykjavíkur
frá Egilsstöðum og Neskaupstað, hvora
leið, en Akureyri er miðsvæðis fyrir alla.“
Umfang Birtingar er mikið eins og lesa
má og skýrist „líklega af mikilmennsku-
brjálæði á háu stigi“, eins og Valdís Anna
orðar það en bætir svo við: „Ólafur Ragnar
Grímsson forseti sagði í vikunni að við
værum miklu duglegri, unga kynslóðin
núna en þegar hann var ungur og við erum
auðvitað montin af því sem hann sagði.“
En Valdís Anna og Tryggvi leggja áherslu
á að ekki standi þau ein í brasinu. „Það
eru alls um 200 krakkar, fljótt á litið, sem
hafa lagt sig í líma við að undirbúa þessa
hátíð,“ segir Tryggvi um leið og hann
slekkur á gemsanum og sest aftur í stól-
inn.
Og svo hann þurfi ekki að standa upp al-
veg strax aftur, er spurt um ástæðu þess
að hátíðin er haldin, og Valdís Anna svar-
ar: „Þetta er átak hjá okkur til þess að efla
ímynd ungs fólks í landinu. Okkur finnst of
oft einblínt á slæmu hliðarnar, það virðist
oft gleymast að erum að gera góða hluti
líka og það langar okkur til þess að sýna.“
Birtingu – hátíð ungs fólks – lýkur með Söngkeppni framhaldsskólanna
Þúsundir framhaldsskólanema
flykkjast til Akureyrar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Alltaf á ferðinni – framkvæmdastjórar Birtingar, hátíðar ungs
fólks, Valdís Anna Jónsdóttir úr VMA og Tryggvi Aðalbjörnsson
úr Menntaskólanum á Akureyri.
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
ÍRAFÁR er nú að leggja
lokahönd á nýtt lag, sem
vonast er til að komist í
spilun eftir tíu daga eða
svo. Hljómsveitin hefur
hafist handa við upptökur á
næstu stóru plötu, sem ráð-
gert er að komi út fyrir
næstu jól. Vignir Snær Vig-
fússon, gítarleikari og laga-
höfundur Írafárs, segir að ekki sé enn komið nafn á
nýja lagið. Aðspurður segir hann að lagið sé í svip-
uðum stíl og fyrra efni. „Þetta er lag í millihröðum
takti, með kröftugu og björtu viðlagi,“ segir hann.
Í svipuðum stíl og áður
Vignir segir að hljómsveitin sé nokkurn veginn
búin að ákveða hvaða lög verði á plötunni, þótt ein-
hver geti farið út og ný lög komið í staðinn. „Þetta
er í svipuðum stíl og það sem við höfum áður verið
að gera, en auðvitað með einhverjum nýjungum.“
Hann segir að enn sem komið er séu bara komin lög
eftir hann, „en svo er aldrei að vita nema hin læði
inn lögum, eins og síðast þegar Birgitta samdi eitt
lag“, segir hann. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
stjórnar sem fyrr upptökum með Vigni.
Mannabreytingar urðu nýlega í sveitinni, þegar
Arnar Gíslason tók við trommuleiknum af Jóhanni
Bachmann. Vignir er spurður hvort nýi trymbillinn
hafi haft áhrif á nýju lögin. „Það er nú eiginlega
ekki komið í ljós, því við byrjum núna á hinum end-
anum og prógrammerum þau áður en upptökur
fara fram. Ég er hins vegar viss um að hann mun
ljá tónlistinni nýjan karakter, enda eru hann og
Hanni [Jóhann] ólíkir trommarar, báðir þrusugóðir
á sinn hátt,“ segir hann.
Kemur út fyrir jólin
Stefnan er sett á að ljúka við hljóðblöndun plöt-
unnar í október, þannig að hún gæti komið í versl-
anir í lok þess mánaðar. „Ég reikna fastlega með
því að við förum í kynningarferð um landið þegar
platan kemur út, svipað og þegar síðasta plata kom
út. Svo eru allar líkur á því að við verðum eitthvað á
ferðinni í sumar,“ segir Vignir.
Tónlist | Upptökur hafnar
á nýrri plötu Írafárs
Nýtt lag í spilun
innan skamms
Birgitta Haukdal
Eftir Ívar Pál Jónsson
ivarpall@mbl.is