Morgunblaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 20
Vík | Vorverkin eru byrjuð hjá
vegagerðarmönnum. Vegir
koma í misjöfnu ásigkomulagi
undan vetri og er töluvert verk
framundan. Bjarni Jón Finns-
son hjá Vegagerðinni í Vík í
Mýrdal og Andrés Pálmason
verktaki vinna við að laga mal-
bikið fyrir framan Víkurskála.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Vorverk í vegagerð
Viðgerðir
Suðurnes | Austurland | Akureyri | Höfuðborg
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Ánægð með skólann | Foreldrar barna í
Dalvíkurskóla eru ánægðir með skólann, en
könnun var gerð eftir foreldraviðtöl fyrr í
vetur. Þessi könnun er hluti af sjálfsmati
Dalvíkurskóla og hafði sjálfsmatsnefnd
skólans veg og vanda af framkvæmd þess-
arar könnunar. Í ljós kom að yfir 90% for-
eldra sögðu að barni sínu liði vel í skól-
anum, telja að skólinn njóti virðingar í
samfélaginu, voru ánægð með störf kenn-
ara barns síns og telja Dalvíkurskóla vera
góðan skóla. Öllum foreldrum fannst þeir
vera velkomnir í skólann. Alls tóku for-
eldrar 210 nemenda þátt í könnuninni. Frá
þessu er sagt á vef Dalvíkurskóla.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Kosið í Hofstaðaprestakalli | Almenn
prestskosning fer fram í Hofsprestakalli í
Múlaprófastsdæmi 28. maí næstkomandi, í
safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju. Eft-
irtalin eru í kjöri, að því er fram kemur í til-
kynningu frá Biskupsstofu: séra Brynhildur
Óladóttir, Klara Hilmarsdóttir guð-
fræðingur, Stefán Már Gunnlaugsson guð-
fræðingur, Stefán Karlsson guðfræðingur og
Þóra Ragnheiður Björnsdóttir guðfræð-
ingur. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer
fram frá 14. til 27. maí nk. á Biskupsstofu og
hjá prófasti Múlaprófastsdæmis í safnaðar-
heimili Vopnafjarðarkirkju.
Einkahlutafélag | Bæjarráð Bolungar-
víkur hefur tekið jákvætt í boð um að taka
þátt í stofnun einkahlutafélags sem stofnað
verður í samstarfi við önnur sveitarfélög á
Vestfjörðum og þýska ferðaþjónustuaðila.
Fyrirtækinu er ætlað að byggja og reka
sumarhús og báta fyrir sjóstangveiði. Var
óskað eftir 100 þúsund króna hlutafjár-
framlagi Bolungarvíkurkaupstaðar. Eins
og áður sagði tók bæjarráð jákvætt í málið
en vísaði því til umsagnar atvinnumálaráðs
að því er fram kemur á bb.is.
Málefni Fram-haldsskólans áHúsavík hafa
verið til umræðu á spjall-
vefnum skarpur.is en þar
varpar Magnús Hall-
dórsson fram hugmynd
um sameiningu þingeysku
framhaldsskólanna og
segir að eðlilegasta að-
gerðin til að auka kraftinn
á framhaldsskólastiginu í
heimahéraði sé að sam-
eina framhaldsskólana
tvo, FSH og Framhalds-
skólann á Laugum.
Umræða um námstíma
til stúdentsprófs eigi að
reka stjórnendur skól-
anna til viðræðna sem
ættu að leiða af sér þá
rökréttu lausn, að reyna
að koma á sameinuðum
framhaldsskóla í Þingeyj-
arsýslu sem hefði alla
burði til þess að standa
sig betur í samkeppni við
Akureyrarskólana heldur
en tveir litlir og ólíkir
skólar.
Sameining?
Uppskeruhátíð eldri borgara var haldin í Grund-arfirði fyrr í vikunni. Sýnd var handavinna sem eldri borgarar
hafa unnið að í vetur og var þar margt góðra muna.
Elsa Árnadóttir leikfimikennari afhenti viður-
kenningar fyrir góða mætingu í leikfimi í sumar. Þá
söng kór eldri borgara á hátíðinni.
Uppskeruhátíð
eldri borgara
Safnahús Skaga-fjarðar hefurhleypt af stokk-
unum vísnavef með mörg
þúsund vísum og er slóðin
www.skagafjordur.is/
skjalasafn.
Þar eru margar perlur,
s.s. eftir Jónas Jónsson
frá Grjótheimi:
Eina hef ég alltaf haft
aðferðina tama;
þeim sem byrja að brúka kjaft
býð ég upp á sama.
Undanfarna áratugi
hefur Safnahúsið efnt til
vísnakeppni í tengslum
við Sæluviku Skagfirð-
inga.
Nú er yrkisefnið páfa-
kjör, en einnig skulu hag-
yrðingar botna eftirfar-
andi fyrriparta, einn eða
fleiri:
Auðun flúði og útvarpsstjórinn
Óðins- steytti á boðanum.
Lífið þyngist land um kring
launapyngjan tæmist.
Er að baki veðra vá
við mun taka blíða.
Vefur og keppni
pebl@mbl.is
KÖNGULÓ og húsfluga eru myndefni á
tveimur frímerkjum sem Íslandspóstur hef-
ur nú gefið út. Um leið komu út fjögur frí-
merki í heftum
sem sýna ís-
lenska vertíðar-
báta frá miðbiki
síðustu aldar.
Á Íslandi hafa
greinst um 90
tegundir
köngulóa.
Krossköngulóin er meðal stærstu
köngulóa sem fyrirfinnast í íslenskri nátt-
úru. Verðgildi frímerkis með mynd af henni
er 50 kr. Örn Snorrason (EnnEmm auglýs-
ingastofa) hannaði frímerkið en ljósmynd
tók Jan Ethelberg.
Íslandspóstur hefur áður gefið út frí-
merki tileinkuð skordýrum, þ.e. fiðrildum,
járnsmið og húshumlu. Nú bætast við þá frí-
merkjaröð húsfluga. Verðgildi frímerkisins
er 70 kr. Örn Snorrason hannaði frímerkið
einnig en ljósmynd tók Oddur Sigurðsson.
Íslenskir vertíðarbátar
Íslenska vetrarvertíðin stóð frá 2. janúar
til 15. maí. Vertíðarbátarnir á frímerkjun-
um voru allir smíðaðir hérlendis og hver
með sínu bygg-
ingarlagi. Þeir
eru allir frá mið-
biki síðustu ald-
ar.
Vörður ÞH 4
var smíðaður úr
eik í Reykjavík
1947 og upphaflega gerður út frá Grenivík.
Kári VE 47 var smíðaður úr eik í Vest-
mannaeyjum 1944. Sædís ÍS 67 er elst þess-
ara báta, smíðuð úr eik og beyki á Ísafirði
1938. Guðbjörg NK 74 var smíðuð úr eik í
Neskaupstað 1948.
Verðgildi tveggja fyrrnefndu frímerkj-
anna er 70 krónur en þeirra síðarnefndu 95
krónur. Hlynur Ólafsson hannaði þau öll og
Jón Björnsson tók ljósmyndirnar.
Könguló og
húsfluga á
frímerkjum
Kelduhverfi | Stórslátrun var nú í vikunni
á laxi í Silfurstjörnunni, var þá slátrað um
14 þúsund löxum eða um 30 tonnum. Sett
var upp ný sláturlína í Silfurstjörnunni um
áramótin, en keypt var notuð lína frá Fær-
eyjum. Slægingarvélin, sem er af gerðinni
Baader, getur slægt 16 fiska á mínútu „og
er þetta mikill munur fyrir starfsfólkið að
þurfa ekki að slægja og taka innan úr
fisknum í höndum“, segir á vefnum detti-
foss.is
♦♦♦
Aukinn afli | Ríflega 28% aukning varð á
lönduðum afla á höfnum á Vestfjörðum í
liðnum mánuði samanborið við mars í fyrra.
Alls var landað 6.806 tonnum af sjávarfangi
í höfnum vestra í síðasta mánuði og munar
mestu um loðnuafla, 2.533 tonn, en engin
loðna barst að landi í fyrra.
Mikill samdráttur er í þorskafla milli ára,
2393 tonnum var landað í mars 2004, en ein-
ungis 1.292 tonnum nú. Samdrátturinn
nemur um 46%.