Morgunblaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
AUGLÝST Á ÍSLENSKU
Lyfjafyrirtækið GlaxoSmithKline
á Íslandi hefur birt lyfjaauglýsingar
á íslensku í takmörkuðu upplagi af
breska læknatímaritinu British
Medical Journal, og dreift því til
hóps íslenskra lækna.
Íþróttasvæði í Kópavogi
Kópavogsbær og Knatt-
spyrnuakademía Íslands hafa und-
irritað viljayfirlýsingu um sameig-
inlegan undirbúning að uppbygg-
ingu heilsu-, íþrótta- og fræðaseturs
á um 8 hektara landsvæði við Valla-
kór í Kópavogi. Gert er ráð fyrir að
framkvæmdir hefjist í haust og ljúki
eftir 3–4 ár.
Ólögleg kvikmynd eða ekki?
Kvikmyndaskoðun segir að það
komi ekki í sinn hlut að ákvarða
hvort kvikmyndin 9 Songs eftir
Michael Winterbottom, sem sýnd er
á kvikmyndahátíð í Reykjavík, sé
ólögleg klámmynd sem varði við
hegningarlög að sýna.
Vopnasölubanni varla aflétt
Flest bendir til þess að Banda-
ríkjamönnum hafi í bili tekist að fá
Evrópusambandsríkin til að falla frá
þeirri ákvörðun að aflétta vopna-
sölubanni á Kína. Bandaríkjamenn
óttast að evrópsk vopn myndu raska
jafnvægi í Asíu og verða ef til vill
notuð gegn Taívan. Þing ESB sam-
þykkti í gær ályktun gegn því að
banninu yrði aflétt.
Gagnrýnir trúarofstæki
Margrét Danadrottning segir í
nýrri viðtalsbók að íslam sé áskorun
sem kristnar þjóðir verði að takast á
við. Hún gagnrýnir trúarofstæki og
varar við því að fólk sýni því um-
burðarlyndi. Slíkt umburðarlyndi
geti í reynd verið afsökun til að
koma sér hjá því að taka afstöðu.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 36/42
Fréttaskýring 8 Minningar 43/50
Úr verinu 14 Brids 52
Viðskipti 15 Dagbók 54/57
Erlent 18/19 Myndasögur 54
Minn staður 20 Víkverji 54
Suðurnes 21 Velvakandi 55
Austurland 21 Staður & stund 56
Höfuðborgin 22 Kirkjustarf 57
Akureyri 22 Leikhús 58
Daglegt líf 24/27 Af listum 60
Vigdís 75 ára 28/32 Bíó 62/65
Menning 33, 58/65 Ljósvakamiðlar 66
Forystugrein 34 Veður 67
Viðhorf 36 Staksteinar 67
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
Reyðarfjörður | Steypuvinna við und-
irstöður fyrri kerskála álvers
Fjarðaáls-Alcoa á Reyðarfirði er
hafin. Við steypuna í álverið er not-
uð ný og öflug 36 metra löng sem-
entsdæla og sérstök stálsteypumót
sem þykja mun skilvirkari í notkun
en hefðbundin timburmót. Tveir
kerskálar verða í álverinu á Reyð-
arfirði, hvor um sig 1,1 km að lengd.
Áður en undirstöðurnar eru steypt-
ar, er steypt á klöppina svokallað
þrifalag, sem að sögn Andy Cam-
eron, staðarstjóra Bechtel á Reyðar-
firði, gerir vinnu við undirstöðurnar
bæði tryggari og skilvirkari, auk
þess sem það gerir klöppina undir
vatnshelda. Meðan verið er að
steypa undirstöður fyrir fyrsta kerið
í kerskálanum, er annar verkhópur
að störfum við að steypa þurralag
fyrir næsta ker við hliðina og er skil-
ið á milli hópanna með öryggisgirð-
ingum. Cameron segir aðferðir við
uppsteypuna, bæði hvað varðar gerð
þrifalags, dælingu og hin sérhönn-
uðu steypumót, spara allt að helm-
ingi vinnutíma við verkið.
Steypustöðin ehf. hefur reist
steypustöð í jaðri hinnar 100 hekt-
ara stóru álverslóðar. Steypustöðin
hefur tvö síló sem anna samtals 160
kúbikmetrum á klukkustund.
Framkvæmdir við álverið á Reyðarfirði ganga vel
Steypuvinna hafin
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Dælt í stálsteypumótin við álverið. Um 300 starfsmenn vinna nú á álverssvæðinu, þar af eru 83% Íslendingar.
ÚRSKURÐARNEFND þjóð-
kirkjunnar hafnaði í gær öllum
kröfum sóknarprestsins í
Garðasókn, sr. Hans Markúsar
Hafsteinssonar, í deilu sem
staðið hefur milli hans og aðila
innan safnaðarins. Mun nefnd-
in leggja til við biskup Íslands
að sóknarpresturinn verði
fluttur til í starfi.
Samkvæmt heimild Morgun-
blaðsins gerði sóknarprestur-
inn, sem var málshefjandi, þá
kröfu að formanni og vara-
formanni sóknarnefndar,
Matthíasi G. Péturssyni og
Arthuri Farestveit, yrði veitt
áminning. Þessari kröfu var
vísað frá af úrskurðarnefnd.
Einnig gerði málshefjandi
kröfur um að Nanna Guðrún
Zoëga djákni og sr. Friðrik J.
Hjartar, prestur safnaðarins,
yrðu flutt til í starfi. Þeim
kröfum var hafnað.
Að kröfu gagnaðila, þ.e. for-
manns og varaformanns sókn-
arnefndar, auk djáknans, legg-
ur úrskurðarnefndin til við
biskup Íslands að sóknarprest-
urinn verði fluttur til í starfi.
Úrskurðinum er hægt að
skjóta til áfrýjunarnefndar
þjóðkirkjunnar innan þriggja
vikna frá því hann var birtur.
Sóknar-
prestur
verði
fluttur til
Úrskurðarnefnd
þjóðkirkjunnar
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur um að fimm manna fjölskylda geti
skráð lögheimili sitt á skipulögðu sumarhúsasvæði í
Bláskógabyggð en fjölskyldan flutti þangað í vor.
Hagstofan hafnaði beiðni fjölskyldunnar um skrán-
ingu lögheimilisins eftir að hafa fengið umsögn um
málið frá sveitarstjórn Bláskógabyggðar.
Í dómi Hæstaréttar segir að fjölskyldan njóti
stjórnarskrárbundins réttar til að ráða búsetu sinni
og hefði ekki verið vísað til haldbærra heimilda sem
sett gætu skorður við búsetu þeirra í sumarhúsa-
byggðinni. Lagði Hæstiréttur til grundvallar, að
nýting fjölskyldunnar á húsinu samræmdist laga-
ákvæði um lögheimili og þau teldust því hafa þar
fasta búsetu í skilningi laga.
Fékk ekki skráða skólavist fyrir börnin
Fjölskyldan flutti í febrúar á síðasta ári frá
Reykjavík í hús, sem hún hafði byggt í landi Iðu.
Jafnhliða flutningnum sóttu hjónin um skólavist
fyrir tvo syni sína. Bláskógabyggð tilkynnti fjöl-
skyldunni hins vegar, að hún fengi ekki skráð lög-
heimili í sveitarfélaginu auk þess sem börnunum
var neitað um skólavist í grunnskóla sveitarfé-
lagsins.
Fjölskyldan óskaði þá eftir að fá skráð lögheimili
í sveitarfélaginu með óstaðsetta búsetu, en hún bjó
þá ekki lengur í Reykjavík og taldi sér óheimilt að
hafa lögheimili skráð þar. Þessu hafnaði sveitar-
stjórnin.
Taldi húsið reist sem frístundahús
Fjölskyldan kærði þetta til menntamálaráðu-
neytisins sem vísaði kærunni frá. Í kjölfar þess var
óskað eftir að sveitarfélagið tæki upp ákvörðun sína
um höfnun skólavistar barnanna. Þeirri málaleitan
var hafnað, en samið var í apríl um bráðabirgða-
skólavist fyrir drengina út það skólaár sem þá stóð
yfir. Fram kemur í dómi Hæstaréttar, að börnin
hafi sótt skóla í Bláskógabyggð og er það m.a. lagt
til grundvallar þeirri niðurstöðu, að fjölskyldan hafi
fasta búsetu í húsinu.
Fimm hæstaréttardómarar dæmdu í málinu en
einn þeirra, Garðar Gíslason, skilaði séráliti, og vildi
hafna kröfu fjölskyldunnar. Segir hann að þar sem
umrætt landsvæði hafi verið skipulagt sem frí-
stundabyggð og hús fjölskyldunnar reist sem frí-
stundahús, sem ekki væri ætlað til heilsársbúsetu
heldur tímabundinnar dvalar, yrði húsnæðinu að
þessu leyti jafnað til þess húsnæðis, sem talið sé
upp í lögheimilislögum. Geti fjölskyldan því ekki
með dvöl í húsinu uppfyllt skilyrði laganna um fasta
búsetu og því ekki átt kröfu til lögheimilis þar.
Meirihluti dómsins var skipaður hæstaréttar-
dómurunum Markúsi Sigurbjörnssyni, Guðrúnu
Erlendsdóttur, Gunnlaugi Claessen og Ingibjörgu
Benediktsdóttur. Kristinn Hallgrímsson hrl. og
Óskar Thorarensen hrl. fluttu málið fyrir Bláskóga-
byggð og ríkið. Karl Axelsson hrl. og Guðjón Ægir
Sigurjónsson hdl. fluttu mál fjölskyldunnar.
Hæstiréttur dæmir fjölskyldu sem vildi eiga lögheimili í Bláskógabyggð í vil
Réttur til búsetu varinn
NAFN Jóhönnu Sigurðardóttur al-
þingismanns hefur nú bæst í hóp
þeirra Samfylkingarmanna sem orð-
aðir hafa verið við varaformannsemb-
ættið í Samfylkingunni. Jóhanna hef-
ur ekkert gefið út um það opinberlega
hvort hún hyggist gefa kost á sér, en
skv. upplýsingum blaðamanns hefur
hún tekið vel í þá hugmynd að bjóða
sig fram.
Stuðningsmenn hennar telja þó lík-
legt að hún muni ekki tilkynna fram-
boðið, ef af verður, fyrr en á lands-
fundi Samfylkingarinnar í lok maí,
þ.e. eftir að úrslitin í formannskjörinu
verða ljós.
Framkvæmdastjórn Ungra jafnað-
armanna skoraði á Ágúst Ólaf
Ágústsson þingmann að gefa kost á
sér í varaformannsembættið í byrjun
vikunnar. Öruggt er talið að hann
muni tilkynna framboð sitt opinber-
lega í dag. Verður hann þar með
fyrstur til að gefa formlega kost á sér
í varaformannsstólinn. Má búast við
því að sú ákvörðun verði til þess að
ýta við öðrum þeim sem orðaðir hafa
verið við stólinn, um að taka af skarið.
Þeir sem hafa sérstaklega verið
nefndir í þessu sambandi eru Lúðvík
Geirsson bæjarstjóri og þingmenn-
irnir Kristján L.
Möller, Lúðvík
Bergvinsson og
Guðmundur
Árni Stefánsson.
Landsfundur
Samfylkingar-
innar hefst 20.
maí nk. For-
mannskjörið fer
fram með póst-
kosningu, en
kosið er um varaformanninn á fund-
inum sjálfum. Hingað til hefur verið
talið að væntanleg varaformannsefni
myndu ekki gefa formlega kost á sér
fyrr en formannskjörið lægi fyrir.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
Jóhanna Sigurðardóttir
nefnd sem varaformannsefni
UM 4.500 manns höfðu í gær-
kvöldi skráð sig fyrir mögu-
legum kaupum á hlut í Síman-
um. Að sögn Orra Vigfússonar,
eins aðstandenda hóps áhuga-
samra kaupenda, má reikna
með að loforð séu komin fyrir
ríflega 10 milljörðum króna.
Orri og hans samstarfsmenn
í verkefninu, Agnes Bragadótt-
ir og Ingvar Guðmundsson,
áttu í gær fundi með fulltrúum
fjármálastofnana og verður
þeim heimsóknum haldið áfram
næstu daga. Orri segir viðtök-
urnar hafa verið góðar.
Loforð frá
um 4.500
manns