Morgunblaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FITUBRENNSLA
a u k i n b r e n n s l a
v a t n s l o s a n d i
m e i r i o r k a
m i n n k a r n a r t
Easy body Burner hylki er frábær lei› til a›
tapa flyngd á árangursríkan og skynsaman hátt.
Hylkin innihalda m.a koffín, H‡droxísítruss‡ru,
króm pikkólant og L-Carnitine.
sérhanna› fyrir konur
Sölusta›ir: og Heilsuhúsi›
LÖGMAÐUR GT-verktaka, fyrir-
tækisins við Kárahnjúkavirkjun
sem hefur verið ákært fyrir brot á
lögum um útlendinga og lögum um
atvinnuréttindi útlend-
inga, telur að gildandi
lög hér á landi heimili
ríkisborgurum allra
EES-ríkja að dvelja og
starfa hér á landi í allt
að þrjá mánuði án
dvalar- og atvinnuleyf-
is.
Lögmaðurinn, Mar-
teinn Másson, bendir á
að í lögum um útlend-
inga, nr. 96/2002, séu
sérreglur um útlend-
inga sem falli undir
EES-samninginn. Í 1.
mgr. 35. gr. laganna
komi fram að útlend-
ingur sem falli undir reglur EES-
samningsins megi koma til landsins
án sérstaks leyfis og dveljast eða
starfa hér á landi í allt að þrjá mán-
uði frá komu hans til landsins, eða
allt að sex mánuðum sé hann í at-
vinnuleit.
Við inngöngu nýrra ríkja í Evr-
ópusambandið nýtti Ísland sér
heimild til að hafa aðlögunartíma til
1. maí 2006 um frjálsa för launa-
fólks milli landa. Aðlögunartíminn,
samkvæmt bráðabirgðaákvæði með
útlendingalögunum, gildir hins veg-
ar ekki í þeim tilvikum þegar EES-
útlendingur frá einu hinna nýju að-
ildarríkja kemur til landsins og
dvelur hér og starfar, svo fremi
sem það sé ekki lengur en í 3 mán-
uði.
Aðlögunartíminn gildir ekki um
þjónustusamninga, að
sögn Marteins.
„Samkvæmt bráða-
birgðaákvæði með
lögum um atvinnu-
réttindi útlendinga
geta starfsmenn er-
lendra fyrirtækja,
sem selja hingað tíma-
bundna þjónustu,
komið hingað án at-
vinnuleyfis. Þetta er
afar skýrt í mínum
huga og ég tel það
vera rangt þegar því
er haldið fram að
starfsmenn erlendra
fyrirtækja, sem koma
hingað af EES-svæðinu á grund-
velli þjónustusamnings, þurfi at-
vinnuleyfi,“ segir Marteinn.
Ekki starfsmenn
GT-verktaka
Marteinn segist fallast á það með
fulltrúa sýslumannsins á Seyðisfirði
að hér sé um prófmál að ræða.
Nauðsynlegt sé að fá úr því skorið
fyrir dómstólum hvort fyrirtæki á
EES-svæðinu megi selja hingað
þjónustu og senda hingað starfs-
menn sína til að efna þá samninga.
Marteinn bendir á að Lettarnir
tveir sem hafa verið ákærðir séu
ekki starfsmenn GT-verktaka held-
ur starfsmenn fyrirtækisins Vis-
landia í Lettlandi. Þeir hafi verið
sendir hingað til lands á grundvelli
þjónustusamnings. Marteinn bendir
jafnframt á að gildandi lög, t.d. lög
um réttarstöðu starfsmanna sem
starfa tímabundið á Íslandi á veg-
um erlendra fyrirtækja, skilgreini
ekki hvað sé þjónusta og hvað ekki.
Svo fremi sem um lögmæta starf-
semi sé að ræða geti nær hvað sem
er flokkast sem þjónusta. GT-verk-
takar hafi séð sér hag í því að
kaupa umrædda þjónustu vegna
tímabundins ástands.
„Vinnumálastofnun hefur haldið
því fram að þjónustusamningar
gildi aðeins um sérfræðiþjónustu en
um það segir ekkert í lögunum. Ef
það á að refsa mínum umbjóðend-
um fyrir meint brot á lögum þá
verða lögin að vera mjög skýr hvað
þetta varðar,“ segir Marteinn.
Hann bendir jafnframt á að sam-
kvæmt reglugerð um útlendinga
beri fyrirtækjum að tilkynna Út-
lendingastofnun um komu erlendra
starfsmanna til landsins með
minnst viku fyrirvara. Þetta hafi
GT-verktakar og Vislandia gert og
fengið staðfestingu til baka frá Út-
lendingastofnun um að tilkynningin
hafi borist. Vinnumálastofnun hafi
hins vegar sagt þessa tilkynningu
enga þýðingu hafa í málinu, þetta
sé gert til að halda utan um töl-
fræði.
Upphaflega komu fjórir starfs-
menn Vislandia hingað til lands, um
miðjan febrúar síðastliðinn, en einn
fór fljótlega aftur til Lettlands og
annar fór nýlega af landi brott. Því
voru bara tveir starfsmenn eftir,
sem sýslumaðurinn á Seyðisfirði
ákærði. Hafa bæði málin, gegn GT-
verktökum og starfsmönnum Vis-
landia, verið þingfest hjá Héraðs-
dómi Austurlands og aðalmeðferðar
er að vænta í næsta mánuði.
Saksóknara sent bréf
Marteinn segist hafa sent rík-
issaksóknara bréf þar sem athygli
hans er vakin á þeim heimildum
sem ríkisborgarar hinna nýju EES-
ríkja hafa hér á landi. Var bréfið al-
menns eðlis og ekki tengt máli GT-
verktaka sérstaklega, enda hafa
fleiri sambærileg deilumál risið.
Segist Marteinn ennfremur hafa
sent Vinnumálastofnun og Útlend-
ingastofnun bréf og óskað lagalegra
skýringa á ýmsum atriðum, m.a.
hvernig Vinnumálastofnun skil-
greini þjónustusamninga, en ekki
fengið svör enn.
Lögmaður GT-verktaka segir nauðsynlegt að fá úrskurð dómstóla í málinu
Telur Lettana
geta starfað hér
án atvinnuleyfis
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
GT-verktakar hafa aðallega sinnt rútubílaakstri við Kárahnjúka og tóku þar við af SBA-Norðurleið.
Marteinn Másson
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is.
UM 3.000 börn alls staðar að af
landinu verða væntanlega víða á
ferðinni í dag og yfir helgina með
söfnunarbauka, en árleg söfnun
ABC-barnahjálpar, Börn hjálpa
börnum, hefst í dag. Auk barnanna
sem ganga munu í hús munu söfn-
unarbaukar liggja frammi í
ákveðnum fyrirtækjum næstu 4–6
vikur.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, og Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti Íslands, munu
hefja söfnunina með táknrænum
hætti, og munu börn úr Melaskóla
syngja afmælissönginn fyrir Vig-
dísi, sem er 75 ára í dag.
Að þessu sinni verður safnað fyr-
ir stórri byggingu á Heimili litlu
ljósanna á Indlandi þar sem verður
svefnaðstaða fyrir 800 drengi, en
áætlaður kostnaður við bygginguna
er tæpar 10 milljónir króna. Á
Heimili litlu ljósanna búa 2.000
börn, og er það alfarið rekið fyrir
íslenskt styrktarfé.
Auðunn Snævar Ólafsson, skrif-
stofustjóri ABC-barnahjálpar, segir
að mikil þörf sé á því að endurnýja
húsnæði drengjanna, aðstæðurnar í
dag séu ekki viðunandi. Hann segir
að vonast sé til þess að nægilegt fé
safnist til þess að ljúka byggingu
hússins sem fyrst.
Reikningur fyrir söfnunina Börn
hjálpa börnum er í Íslandsbanka,
nr. 515-14-110 000, kennitala
690688-1589.
Börn hjálpa börnum
með söfnun í dag
FRAMKVÆMDASVIÐ Reykjavíkur sendi í gær frá
sér lista yfir nöfn þeirra umsækjenda sem sýslumað-
urinn í Reykjavík dró úr hópi 5.658 aðila sem sóttu um
30 lóðir í Lambaseli. Voru dregnar út 50 umsóknir, þar
af 20 til vara. Umsækjendur fá valnúmer í þeirri röð
sem umsókn var dregin.
Eftirtaldar umsóknir komu upp:
Nr. 1, umsókn nr. 893, Magnús Davíð Ingólfsson og
Ingólfur Friðjón Magnússon.
Nr. 2, umsókn nr. 1270, Áslaug Tóka Gunnlaugs-
dóttir og Björn Ingi Guðjónsson.
Nr. 3, umsókn nr. 70, Bergdís Finnbogadóttir og
Árni Guðmundsson.
Nr. 4, umsókn nr. 2869, Sigríður Gerður Guðbrands-
dóttir.
Nr. 5, umsókn nr. 1303, Björn Guðmundsson og
Birna Björg Sigurðardóttir.
Nr. 6, umsókn nr. 2512, Sigurbjörg Vignisdóttir.
Nr. 7. umsókn nr. 490, Stefán Árnason.
Nr. 8, umsókn nr. 4251, Bryndís Harðardóttir.
Nr. 9, umsókn nr. 134, Guðrún Á. Bjarnþórsdóttir og
Guðmundur B. Hermannsson.
Nr. 10, umsókn nr. 1119, Hjálmar Örn Jóhannsson.
Nr. 11, umsókn nr. 188, Brynjar Þór Jónasson og
Guðlaug M. Júlíusdóttir.
Nr. 12, umsókn nr. 4929, Sigríður Hvönn Karlsdóttir.
Nr. 13, umsókn nr. 419, Jóhannes Geir Rúnarsson og
Guðrún Bergmann Franzdóttir.
Nr. 14, umsókn nr. 545, Vilhjálmur Jón Sigurpálsson.
Nr. 15, umsókn nr. 546, Dofri Þórðarson.
Nr. 16, umsókn nr. 5483, Christian Arthur Staub.
Nr. 17, umsókn nr. 3371, Haukur Eggertsson.
Nr. 18, umsókn nr. 2898, Sverrir Jóhannesson.
Nr. 19, umsókn nr. 2400, Haukur Halldórsson.
Nr. 20, umsókn nr. 935, Guðni Einarsson og Guðfinna
Helgadóttir.
Nr. 21, umsókn nr. 492, Svanþór Þorbjörnsson.
Nr. 22, umsókn nr. 522, Ingvar Elíasson.
Nr. 23, umsókn nr. 758, Ófeigur Grétarsson og Ragn-
heiður Þorvaldsdóttir.
Nr. 24, umsókn nr. 140, Ásdís Paulsdóttir og Emil R.
Kárason.
Nr. 25, umsókn nr. 672, Jakobína E. Sigurðardóttir.
Nr. 26, umsókn nr. 412, Sæberg Guðlaugsson og Matt-
hildur Kristensdóttir.
Nr. 27, umsókn nr. 556, Ólafur Magnús Helgason og
Berit Noesgaard Nielsen.
Nr. 28, umsókn nr. 2351, Björk Ína Gísladóttir og Gísli
Kristinn Ísleifsson.
Nr. 29, umsókn nr. 525, Jón Þ. Gíslason.
Nr. 30, umsókn nr. 167, Heiðar M. Vilhjálmsson og
Sigríður Pétursdóttir.
Nr. 31, umsókn nr. 3646, Sigríður Anna Árnadóttir.
Nr. 32, umsókn nr. 1133, Rannveig Möller og Baldvin
Haukur Júlíusson.
Nr. 33, umsókn nr. 2432, Lúðvík Leósson.
Nr. 34, umsókn nr. 701, Sigurður Þorgeirsson.
Nr. 35, umsókn nr. 82, Gylfi Guðmundsson.
Nr. 36, umsókn nr. 899, Atli Ágústsson.
Nr. 37, umsókn nr. 4801, Tryggvi R. Valdimarsson.
Nr. 38, umsókn nr. 312, Peter L. Mogensen.
Nr. 39, umsókn nr. 3414, Stefán Viðar Guðmundsson.
Nr. 40, umsókn nr. 1151, Henrik Óskar Þórðarson og
Elín Hlíf Helgadóttir.
Nr. 41, umsókn nr. 1100, Magnús Pálmason og Erna
Aðalsteinsdóttir.
Nr. 42, umsókn nr. 445, Ólafur Elíasson.
Nr. 43, umsókn nr. 1306, Eva Hauksdóttir.
Nr. 44, umsókn nr. 3000, Grímur Davíðsson og Svan-
hildur H. Sigurfinnsdóttir.
Nr. 45, umsókn nr. 1116, Arnar Snorrason.
Nr. 46, umsókn nr. 540, Rafn Hjaltason.
Nr. 47, umsókn nr. 1823, Sveinbjörn Runólfsson.
Nr. 48, umsókn nr. 17, Björg Helgadóttir og Halldór
Dungal.
Nr. 49, umsókn nr. 3411, Einar Ingi Einarsson.
Nr. 50, umsókn nr. 5161, Jörgen Þór Þráinsson.
Útdráttur úr umsókn-
um um einbýlishúsa-
lóðir í Lambaseli