Morgunblaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
að gerð deiliskipulags á íþróttasvæðinu. Þá mun
Knattspyrnuakademían sjá um uppbyggingu
heilsu- og fræðaseturs, með aðstöðu fyrir meist-
ara- og doktorsnema í íþrótta-, sjúkraþjálfun-
ar-, og lýðheilsufræðum, og fyrir stofnanir
tengdar lýðheilsu, o.fl.
Einnig eru áform uppi um byggingu nýs
framhaldsskóla og eru viðræður hafnar við
menntamálaráðuneytið.
Knattspyrnuakademían hefur í á annað ár
boðið upp á einstaklingsbundna knattspyrnu-
þjálfun sem viðbót við starfsemi íþróttafélag-
anna. Arnór Guðjohnsen, fyrrverandi landsliðs-
KÓPAVOGSBÆR og Knattspyrnuakademía
Íslands hafa undirritað viljayfirlýsingu um sam-
eiginlegan undirbúning að uppbyggingu heilsu-,
íþrótta- og fræðaseturs á um 8 hektara land-
svæði við Vallakór í Kópavogi. Gert er ráð fyrir
að framkvæmdir hefjist í haust og að þeim ljúki
eftir 3–4 ár.
Í framkvæmdalýsingu er gert ráð fyrir
íþróttahúsi, lítilli sundlaug, fjölnota knatt- og
sýningahúsi í svipaðri stærð og Egilshöll, lík-
amsræktaraðstöðu, þremur knattspyrnuvöllum
utandyra í fullri stærð, o.fl.
Stefnt er að því að aðilar vinni sameiginlega
fyrirliði í knattspyrnu og forsvarsmaður
Knattspyrnuakademíunnar, segir að Akadem-
ían hafi fengið frábærar móttökur og alls hafi
um 1.500 knattspyrnuiðkendur sótt þar nám-
skeið. Hann sér fyrir sér að með uppbyggingu
við Vallakór skapist fyrsta flokks aðstaða fyrir
ungt afreksfólk í knattspyrnu sem skort hefur á
hér á landi, að hans mati. Aðstaðan sé þó engu
að síður hugsuð fyrir hinn almenna knatt-
spyrnuiðkanda. Viðræður hafa staðið yfir við
KSÍ, ÍSÍ og fleiri aðila um þátttöku í verkefninu.
Vilja byggja upp 8 ha
íþróttasvæði í Kópavogi
Umfangsmikil/22
LÖGBÓKANDI hjá Sýslumann-
inum í Reykjavík dró síðdegis í
gær út nöfn þeirra sem hlutu 30
einbýlishúsalóðir við Lambasel í
Reykjavík og nöfn 20 til vara. Alls
bárust 5.658 umsóknir um lóð-
irnar. Stefnt er að því að þeir sem
dregnir voru út fái að velja sér lóð-
ir 4. maí næstkomandi.
Að sögn Ágústs Jónssonar,
skrifstofustjóra hjá Reykjavík-
urborg, verður haft samband í dag
og næstu daga við þá sem voru
dregnir út. Umsækjendur þurfa að
uppfylla nokkur skilyrði. M.a.
mega þeir ekki vera í vanskilum
með opinber gjöld. Þeir þurfa að
standast greiðslumat fyrir 25 millj-
óna króna húsbyggingu og hafa
átt lögheimili í Reykjavík í a.m.k.
eitt ár talið frá ársbyrjun 2000.
Umsækjendur þurfa að mæta
sjálfir 4. maí eða senda fulltrúa
með skriflegt umboð til að velja
lóðir í sömu röð og þeir voru
dregnir út í gær. Ef einhver mætir
ekki fær sá næsti að velja. Ef lóð-
irnar ganga allar út fellur val-
réttur þeirra sem dregnir voru til
vara niður að svo stöddu, þar til
búið er að ganga formlega frá út-
hlutun lóðanna. Greiðslufrestur
fyrir lóðirnar er einn mánuður./6
Morgunblaðið/Sverrir
Umsækjendur velja lóðir 4. maí
Gögn vegna lóða við Lambasel voru færð á skrifstofu sýslumannsins í Reykjavík í gær, þar sem dregið var úr
númerum umsækjenda. Þórir Hallgrímsson lögbókandi, lengst til hægri, fylgdist með útdrættinum.
RÁN var framið í skartgripaverslun á
Skólavörðustíg á fimmta tímanum í gær.
Ungt par, karl og kona, fór inn í versl-
unina, réðst á eigandann og beitti hann
afli til að koma ætlun sinni fram. Að sögn
lögreglu hafði parið eitthvað af vörum á
brott með sér en um verðmæti þeirra er
ekki nánar vitað. Ránið var tilkynnt lög-
reglu klukkan 16.24. Unga parið lét greip-
ar sópa og hraðaði sér síðan í burtu.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
var staðfest að par í annarlegu ástandi
hefði verið handtekið í lyfjaverslun í
Kópavogi skömmu eftir ránið er það
reyndi að greiða fyrir lyf með skart-
gripum. Skartgripirnir reyndust ekki vera
úr ofangreindu ráni heldur teknir úr
skartgripaverslun skammt frá. Ýmislegt
bendir til þess að um sömu aðila sé að
ræða, þ.e. parið hafi framið rán í tveimur
verslunum í miðbænum. Rannsókn á mál-
inu mun væntanlega leiða í ljós hvort um
sömu aðila er að ræða.
Reyndu að
fá lyf fyrir
skartgripi
Morgunblaðið/Júlíus
Sérfræðingur tæknideildar lögreglunnar
rannsakar skápinn þar sem gripirnir voru.
„EF veitt væru Nóbelsverðlaun
fyrir störf tengd tungumálum held
ég að Vigdís [Finnbogadóttir]
myndi vinna þau,“ sagði David
Crystal, enskur prófessor og sér-
fræðingur í tungumálum, við opn-
unarathöfn á ráðstefnunni Sam-
ræður um menningarheima í
Háskólabíói í gær. Ráðstefnan er
haldin í tilefni af 75 ára afmæli
Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrver-
andi forseta Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, setti ráðstefnuna form-
lega og sagði Íslendinga samfagna
Vigdísi á 75 ára afmæli hennar.
„Líf þitt hefur verið litríkt ævin-
týri og mikil forréttindi að hafa
fengið að taka þátt í því með þér,“
sagði Ólafur.
Mary Robinson, sem var forseti
Írlands árin 1990–1997, og er nú
mannréttindafulltrúi Sameinuðu
þjóðanna og formaður Council of
Women World Leaders, heldur
fyrirlestur á ráðstefnunni Sam-
ræður um menningarheima í dag
kl. 13 í Háskólabíói – aðalsal. Í fyr-
irlestrinum mun hún fjalla um
stöðu kvenna og mannréttindamál,
en fyrirlesturinn ber heitið Máttur
samræðnanna.
Fjöldi annarra fyrirlestra verð-
ur í boði á ráðstefnunni í dag, þar
með talin málstofa þar sem Rósa
Erlingsdóttir stjórnmálafræð-
ingur mun fjalla um kosningabar-
áttu Vigdísar Finnbogadóttur og
þá orðræðu sem myndaðist í kring-
um hana, sem Rósa segist hafa
snúist mikið um það að Vigdís var
ekki bara kona, heldur líka ein-
stæð móðir. Í blaðinu í dag er ít-
arlegt viðtal við Vigdísi um ævi
hennar og starfsferil.
Morgunblaðið/Golli
Vigdís Finnbogadóttir og Þórunn
Björnsdóttir á setningarathöfn
ráðstefnunnar.
Ætti að fá verðlaun fyrir
störf tengd tungumálum
Vigdís/28, 34
FJÓRIR myndlistarmenn hafa verið til-
nefndir fyrir Íslands hönd til Carnegie Art-
myndlistarverðlaunanna að þessu sinni.
Þetta eru Finnbogi Pétursson, Eggert Pét-
ursson, Jón Óskar Hafsteinsson og Stein-
grímur Eyfjörð. Að sögn Halldórs Björns
Runólfssonar, lektors við myndlistardeild
Listaháskóla Íslands sem situr í dómnefnd
verðlaunanna, segir þetta sína sögu um
hversu gott listafólk Íslendingar eiga, því
einungis 21 myndlistarmaður er tilnefndur
til verðlaunanna, 12 karlmenn og 9 konur.
Carnegie-sýningin verður opnuð í Henie-
Onstad-safninu í Noregi, en flyst síðan
hingað til lands í byrjun næsta árs, þegar
hún verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsi.
Tveir af íslensku myndlistarmönnunum
voru einnig tilnefndir til Carnegie Art-verð-
launanna síðast þegar þau voru veitt, árið
2003. Það voru Steingrímur Eyfjörð og
Eggert Pétursson. Aldrei hafa fleiri ís-
lenskir myndlistarmenn verið tilnefndir.
Fjórir til-
nefndir í ár
Carnegie Art-myndlistar-
verðlaunin 2005
„ÞETTA er átak hjá okkur til þess
að efla ímynd ungs fólks í landinu.
Okkur finnst of oft einblínt á
slæmu hliðarnar, það virðist oft
gleymast að við erum að gera góða
hluti líka og það langar okkur til
þess að sýna,“ segir Valdís Anna
Jónsdóttir, annar framkvæmda-
stjóra Birtingar – hátíðar ungs
fólks, sem staðið hefur yfir í heila
viku á Akureyri og lýkur annað
kvöld, með árlegri Söngkeppni
framhaldsskólanna.
Von er á 2–3 þúsund framhalds-
skólanemum hvaðanæva af landinu
til bæjarins vegna þessa, en nem-
endur skólanna tveggja á Akur-
eyri, MA og VMA, eru hátt í 2 þús-
und. Í bænum um helgina verða því
jafnvel saman komnir 4–5 þúsund
framhaldsskólanemar.
Valdís Anna og Tryggvi Aðal-
björnsson eru framkvæmdastjórar
hátíðarinnar og segja þau sam-
heldni framhaldsskólanemenda
um allt land mikla. „Það voru ekki
síst krakkarnir í Reykjavík sem
hvöttu til þess að Söngkeppnin
færi fram á Akureyri, vegna þess
að þá kæmu örugglega fleiri,“ segir
Valdís Anna.
Á þriðja
þúsund
nemendur í
heimsókn
Þúsundir/64
SAMNORRÆNU sjónvarps-
stöðinni Skandinavia verður
hleypt af stokkunum í janúar
2006, hugsanlega fyrr. Um er
að ræða sjónvarpsstöð sem
sendir einvörðungu út nor-
rænt efni, kvikmyndir, heim-
ildarmyndir og stuttmyndir.
Stofnandinn og fram-
kvæmdastjórinn, Niels Aal-
bæk Jensen, segir að um
marghliða útsendingu verði
að ræða. Þannig verður dag-
skráin send út eins og um
hefðbundna útsendingu væri
að ræða en einnig um Netið
og í formi greiðsluvarps
(„pay-per-view“). Stöðin
verður í helmingseigu þeirra
sem útvega munu efnið og í
helmingseigu almennra fjár-
festa.
Samnorræn
sjónvarps-
stöð 2006