Morgunblaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 53
FRÉTTIR
Fréttasíminn
904 1100
Höfn | Fjöldi manns fylgdist með
þegar björgunarskip kom til heima-
hafnar á Hornafirði í fyrsta skipti.
Formleg móttökuathöfn verður á
sumardaginn fyrsta og þá verður
skipinu gefið nafn.
Björgunarskip Hornfirðinga er af
Arun-gerð, fimmtán ára gamalt og
keypt af Konunglega breska björg-
unarfélaginu (RNLI) fyrir um 15
milljónir króna. Þetta er gjafverð því
samskonar skip kostar um 200 millj-
ónir króna. Það er afhent í topp-
standi og er eins og nýtt. Þetta er
samskonar skip og í Neskaupstað,
Grindavík, Hafnarfirði, Reykjavík,
Rifi og nú síðast á Skagaströnd og
hafa þau reynst mjög vel. Þetta er 42
tonna plastbátur, 16,3 m að lengd og
5,2 að breidd. Farsvið skipsins er um
eitt hundrað sjómílur og ganghraði
átján sjómílur.
Jón Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Landsbjargar, segir að þótt
alltaf sé merkilegt þegar nýtt björg-
unarskip kemur til heimahafnar í
fyrsta sinn marki skipið á Hornafirði
ákveðin tímamót. Skipið er síðasti
hlekkurinn í keðju stærri björgunar-
skipa en alls eru fjórtan skip í þess-
um stærðarflokki hringinn í kringum
landið. Segir Jón að nú sé staðan
orðin ákjósanleg en þó sé kominn
tími til að endurnýja skip á Vopna-
firði, Patreksfiði og Siglufirði.
Friðrik Jónas Friðriksson, for-
maður Björgunarfélags Hornafjarð-
ar, segir mikla ánægju með skipið.
Fjögurra manna áhöfn sigldi skipinu
heim frá Hafnarfirði.
Síðasti hlekkurinn í
keðju björgunarskipa
Morgunblaðið/Sigurður Mar
Síðasti hlekkurinn Nýja björgunarskipið við Hornafjarðarós.
BORGARALEG ferming verður
haldin sunnudaginn 17. apríl kl. 11,
í stærsta sal Háskólabíós. Í ár
fermast 93 börn borgaralega og
hefur fermingarhópurinn aldrei
verið fjölmennari. Fermingarstjóri
í ár er Sigrún Valbergsdóttir leik-
stjóri.
Á fermingarnámskeiðum Sið-
menntar er fjallað um siðfræði,
mannleg samskipti, mannréttindi,
jafnrétti, ábyrgð, efahyggju, gagn-
rýna hugsun, mismunandi lífsskoð-
anir, trúarheimspeki, tilfinningar,
skaðsemi vímuefna, ofbeldi og ein-
elti o.fl.
Að námskeiðinu loknu fer fram
athöfn og taka fermingarbörn virk-
an þátt í henni með tónlistarflutn-
ingi, ljóðalestri og ávörpum. Einnig
verða fluttar ræður. Í ár munu þau
Felix Bergsson, sjónvarpsmaður og
leikari, og Halldóra Geirharðsdóttir
leikkona flytja hátíðarávörp.
Yfir 90 börn fermast
borgaralegri fermingu
Grand Hótel Reykjavík, laugardaginn 16. apríl 2005
Tannlæknafélag Íslands efnir til málþings á Grand Hótel Reykjavík, laugardaginn 16. apríl
klukkan 9.30-13.00, undir yfirskriftinni „Áhrif reykinga á tannheilsuna og úrræði tannlækna".
Áhrif reykinga á tannheilsuna og úrræði tannlækna
Málþing Tannlæknafélags Íslands
09.30 Morgunverður.
10.00 Setning. Heimir Sindrason, formaður Tannlæknafélags Íslands.
10.10 Hvað gerist í munnholi við reykingar? Sigurjón Arnlaugsson,
sérfræðingur í tannholdssjúkdómum og lektor við tannlæknadeild HÍ.
10.25 Reykingar og tannheilsa – hvað segja rannsóknir?
Dr. Helga Ágústsdóttir tannlæknir.
10.40 Það er ekkert mál að hætta! Valgeir Skagfjörð leikari.
11.00 Reykingar og hjartasjúkdómar. Gunnar Sigurðsson læknir.
11.15 Kaffihlé.
11.40 Reykingar og krabbamein í munni. Hannes Hjartarson læknir.
11.55 Að hætta að reykja – en ekki á hnefanum! Þorsteinn Blöndal
lungnasérfræðingur.
12.15 Úrræði tannlækna vegna reykskemmda. Ingólfur Eldjárn tannlæknir.
12.30 Fyrirspurnir og umræður.
13.00 Fundarlok.
Fundarstjóri: Brynja Þorgeirsdóttir fréttamaður.
Málþingið er öllum opið og er aðgangur ókeypis. Sætafjöldi er takmarkaður
og því þarf að tilkynna þátttöku til Tannlæknafélags Íslands í síðasta lagi á
hádegi föstudaginn 15. apríl í síma 575 0500 eða með því að senda tölvupóst
á netfangið tannsi@tannsi.is. Sjá heimasíðu TFÍ, www.tannlaeknar.is.
Dagskrá
A
P
al
m
an
n
at
e
n
g
sl
/
H
2
h
ö
n
n
u
n
Tannanna vegna
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2005 53