Fréttablaðið - 14.12.2005, Side 77
Í næstu verslun
JÓNSI
Hljómplata ársins
Söngvari ársins
Útgáfutónleikar í Fríkirkjunni,
fimmtudaginn 15. desember kl. 21.
Miðasala við innganginn.
Frábær plata!
Í tilefni þess að tíu ár eru liðin frá
því að mynd Hilmars Oddsson-
ar Tár úr steini, sem fjallaði um
Jón Leifs tónskáld, kom út hefur
Íslensk tónverkamiðstöð gefið
út tveggja diska pakka sem inni-
heldur DVD disk með kvikmynd-
inni ásamt fjölbreyttu ítarefni
og geisladisk með tónlistinni úr
kvikmyndinni.
Þetta er í fyrsta skipti sem
kvikmyndin Tár úr steini birt-
ist á DVD, en hún kom út á VHS
spólum á sínum tíma. Sú útgáfa er
löngu uppseld og hefur kvikmynd-
in því verið ófáanleg um allnokk-
urt skeið. Skýringartextar eru á
íslensku, ensku og þýsku og pakk-
anum fylgir vandaður bæklingur
um tónlistarþátt kvikmyndarinn-
ar. ■
Tár úr steini
á DVD disk
ÚR TÁRI ÚR STEINI Þröstur Leó Gunnarsson
lék Jón Leifs.
Myndlistamaðurinn Pétur Gaut-
ur opnar sýningu á laugardaginn
í vinnustofu sinni klukkan fjög-
ur. „Ég hef oft verið með sýningu
á aðventunni og reyni að hafa
notalega stemningu, jazztónlist
og smá veitingar,“ segir Pétur.
„Gamlir og nýjir kúnnar koma
þá og gera sér glaðan dag en sýn-
ingin verður svo opin fram að
jólum á milli klukkan fjögur og
sex.“
Pétur hefur sérhæft sig í að
mála uppstillingar og heldur því
áfram. „Ég hef núna verið svo-
lítið í því að mála íslensku flór-
una, valmúgann og villiblóm svo
það er smá nýjung en fellur samt
undir þessa uppstillingahefð,“
segir Pétur og bætir því við að
hann hafi byrjað á því að mála
úti í náttúrunni. „Núna verður
maður svo bara að sætta sig við
að vinna inni og láta hugmynda-
flugið ráða ferðinni. Oft kaupi ég
líka blóm og mála á vinnustof-
unni. Ég er að bíða eftir því að
túlípanarnir komi í verslanir en
það eru blóm sem eru aldrei eins
og aldrei kjurr.“
Pétur Gautur vinnur svo
hörðum höndum við að undir-
búa sýningu sem opnar í mars, á
fertugsafmæli hans. „Þá verður
sýning í Hafnarborg og það var
mjög gaman að fá að komast að
á afmælisdeginum,“ segir hann
og bætir því við að allir séu vel-
komnir á sýninguna sem opnar á
laugardaginn en hún fer fram á
vinnustofu Péturs, á horni Njáls-
götu og Snorrabrautar. ■ PÉTUR GAUTUR Hann opnar sýningu á vinnustofu sinni á laugardaginn.
Málar túlípana og villiblóm
MIÐVIKUDAGUR 14. desember 2005 41
Í bókinni Ritlist,
prentlist,
nýmiðlar
eftir Þorbjörn
Broddason
er stiklað á
sögulegum
áföngum í
þróun boð-
skipta og
fjölmiðlunar
og þannig
leitast
við að varpa ljósi á rætur
nútímafjölmiðlunar. Sjónarhorn höfund-
ar er almennt og alþjóðlegt og vísað er
til nokkurra merkustu kenningasmiða
fjölmiðlafræðanna á tuttugustu öld, en
jafnframt er textinn með sterku íslensku
ívafi. Háskólaútgáfan gefur út.
Bókaútgáf-an Hólar
hefur sent frá
sér bókina
Chelsea
1905-2005.
Frá Feita-
Willie til
Eiðs Smára.
Höfundar
eru Agnar
Freyr Helga-
son og
Guðjón Ingi Eiríksson.
Setberg hefur sent frá sér Fyrstu orðabókina mína. Þetta er sann-
kölluð orðabók barnanna með meira
en 1000 litmyndum og mörg þúsund
orð á íslensku, dönsku og ensku. Óskar
Ingimarsson annaðist útgáfuna.
NÝJAR BÆKUR