Fréttablaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 4
4 13. desember 2006 MIÐVIKUDAGUR
GenGið 12.12.2006
Gjaldmiðlar kaup sala
Heimild: seðlabanki Íslands
125,3626
GenGisvísitala krónunnar
69,17 69,51
135,76 136,42
91,62 92,14
12,289 12,361
11,254 11,32
10,106 10,166
0,5916 0,595
104,39 105,01
Bandaríkjadalur
sterlingspund
evra
dönsk króna
Norsk króna
sænsk króna
japanskt jen
sdr
nýir ríkisborGarar
aldursskipting
0-17 ára 1.707
18-24 ára 411
25-34 ára 1.522
35-44 ára 977
45-54 ára 428
55-64 ára 168
65 ára og eldri 92
Tölurnar miðast við þá sem fengu
ríkisborgararétt frá árinu 1996 þar til í
október 2006
����������������������������������
�������������
��������
����
�������� ��
���������
������
�����
���������
���������������
������
��������
��������
�������
����
������� ��
���������������
��������������
������������������
��������������
�������������
���������������
�����������
�����������
�����������
���������������
�����������
�����������
�����������
���������������
�������������
������������
����� �����������
��� �� ����������������
������ ����������� ���
�����������������������
���������������
� ���� ��������� �������
�� ������������������
� ��� ���������������
����� ������������������
����������������������
�������� ���� ������ ��
������������ �����
������������������ ���
�������������������������
�����������������������
�� ����������������
��� �����������������
�������������������
�����������
�����������������
���������������� ������
���� �� ������� ����
���������� �������������
����� ���
������������������������������
������
�� ������ �� ����������
������� �� ���
��
��
��
�� ��
��
��
�
��
�
��
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
� �
�
�
��
� ��
��
��
�� ��
��
��
�
�
��
�
�
ÍsRAel, AP Mismæli Ehuds Olmert,
forsætisráðherra Ísraels, varð-
andi kjarnorkustefnu landsins í
þýsku sjónvarpsviðtali sem sent
var út í fyrradag, varð gagnrýn-
endum hans heima fyrir í gær til-
efni fullyrðinga um að hann væri
ekki hæfur til að gegna embætt-
inu.
Í umræddu sjónvarpsviðtali á
þýsku sjónvarpsstöðinni Sat-1, í til-
efni af fyrstu opinberu heimsókn
hans til Þýskalands sem hófst í
gær, virtist Olmert telja Ísrael til
kjarnorkuvígvæddra ríkja, en þótt
talið sé víst að Ísraelar ráði yfir all-
stóru kjarnorkuvopnabúri hefur
það verið ófrávíkjanleg stefna ísra-
elskra stjórnvalda í áratugi að við-
urkenna hvorki né neita tilvist
þessara vopna í landinu.
Olmert var í viðtalinu spurður
út í köll íranskra ráðamanna eftir
eyðingu Ísraels og hann svaraði að
Ísrael hefði aldrei hótað því að
eyða neinum.
„Íran hefur opinskátt hótað að
þurrka Ísrael út af landakortinu,“
sagði Olmert. „Er hægt að segja
að þetta sé á sama plani ef þú sæk-
ist eftir því að koma þér upp kjarn-
orkuvopnum, eins og Bandaríkin,
Frakkland, Ísrael, Rússland.“
Fáeinum dögum áður hafði
Robert Gates, verðandi varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna,
nefnt Ísrael sem kjarnorkuvíg-
vætt ríki í vitnisburði fyrir varn-
armálanefnd Bandaríkjaþings.
Talsmenn Ísraelsstjórnar kvört-
uðu yfir ummælunum.
Ummæli Olmerts voru á for-
síðum blaða í Ísrael í gær og tals-
menn stjórnarandstöðunnar kröfð-
ust afsagnar hans. En Olmert
sagði í Berlín að ekkert hefði
breyst, stefna Ísraels varðandi
kjarnorkuvopn væri óbreytt.
„Ísrael hefur oft sagt, og ég
sagði það líka í þýska sjónvarps-
viðtalinu, að við ætlum okkur ekki
að vera fyrsta ríkið í Miðaustur-
löndum sem kjarnorkuvígvæðist,“
sagði forsætisráðherrann eftir
fund með Angelu Merkel, kansl-
ara Þýskalands.
Silvan Shalom, stjórnarand-
stöðuþingmaður Likud-flokksins
og fyrrverandi utanríkisráðherra,
sagði ummælin geta skaðað við-
leitni Ísraels til að fá alþjóðasam-
félagið til að aftra Írönum frá því
að komast yfir kjarnorkuvopn.
audunn@frettabladid.is
Vinafundur í berlín Vel fór á með þeim ehud Olmert og angelu merkel Þýska-
landskanslara í Berlín í gær. Olmert fór annars fram á að Þjóðverjar notuðu við-
skiptasambönd sín í Íran til að þrýsta á þarlend stjórnvöld að hlíta reglum alþjóða-
samfélagsins um kjarnorkuáætlun þeirra. fréTTaBlaðið/ap
Kjarnorkuummæli
setja Olmert í vanda
Orð sem ísraelski forsætisráðherrann lét falla í þýsku sjónvarpsviðtali, þar sem hann
virtist telja Ísrael sem kjarnorkuvígvætt land, hafa vakið hörð viðbrögð í Ísrael.
Olmert reynir að bera í bætifláka, talar um mismæli og að ekkert hafi breyst.
UMfeRÐARMál Nokkrir vegfarend-
ur hafa hringt í lögregluna í
Reykjavík og beðist afsökunar á
framkomu sinni síðastliðinn
sunnudag í kjölfar banaslyss á
Vesturlandsvegi. Hinir sömu
höfðu áður lýst yfir óánægju
sinni með lokun vegarins og
gerðu það bæði á vettvangi og
símleiðis.
Áður hefur komið fram að
allmargir sýndu lítinn skilning á
því að þar hefði orðið alvarlegt
slys en við það bættist að
aðstæður á slysstað voru erfiðar.
Ekki var mögulegt að liðka fyrir
umferð fyrr en frumrannsókn
lauk. Lögreglan vonar að eftir-
leiðis sýni vegfarendur því meiri
skilning þegar aðstæður sem
þessar koma upp.
- shá
Dauðaslysið á sunnudag:
Hringdu til að
biðjast forláts
HeIlBRIGÐIsMál Heildarnotkun
sýklalyfja jókst um sex prósent á
milli áranna 2004 og 2005 hér á
landi að því er fram kemur í
Farsóttafréttum. Þróunin er
svipuð hjá flestum Evrópusam-
bandsríkjum.
Árið 2005 var heildarsala
sýklalyfja 22,9 dagskammtar á
hverja þúsund íbúa, þar af var
notkun utan heilbrigðisstofnana
um 87 prósent af heildarnotkun
lyfjanna. Noktun á penisillíni er
52 prósent af heildarnotkun
sýklalyfja og fer vaxandi. Þá
ávísa íslenskir læknar langmest
af súlfa- og trímetóprímlyfjum
miðað við önnur Norðurlönd. - hs
Farsóttarfréttir:
Notkun sýkla-
lyfja eykst
InnflytjenDUR „Það verður
algengara [í framtíðinni] að fólk
tali íslensku með hreim og líklegt
að trúfélög, önnur en þjóðkirkjan,
verði meira áberandi en í dag,“
segir Einar Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðahúss. Hann
segir einnig líklegt að hér rísi
fleiri sérverslanir með matvörur
frá öðrum löndum ef stórmarkað-
ir taki ekki við sér og auki úrval
sitt til þess að mæta þörfum og
áhuga fólks sem hingað kemur
frá útlöndum.
Samkvæmt líkani dómsmála-
ráðuneytisins er gert ráð fyrir
því um 3.000 manns fái íslenskan
ríkisborgararétt árið 2013 en
fram til 23. október höfðu 774
fengið íslenskan ríkisborgararétt
á þessu ári. - bþs
Fjölgun innflytjenda:
Trúfélögum
fjölgi umtalsvert
VARnARMál Háttsettir fulltrúar úr
þremur ráðuneytum munu í
byrjun næstu viku eiga fundi með
kollegum frá Noregi og Dan-
mörku um möguleika á efldu
samstarfi landanna um öryggis-
og varnarmál.
Íslenska embættismanna-
nefndin, sem í eiga sæti Grétar
Már Sigurðsson úr utanríkisráðu-
neytinu, Sturla Sigurjónsson úr
forsætisráðuneytinu og Þórunn
Hafstein úr dómsmálaráðuneyt-
inu, hittir danska samninganefnd
í Kaupmannahöfn á mánudag og
norska í Reykjavík á þriðjudag.
Norska nefndin mun einnig kynna
sér þá aðstöðu sem öðrum NATO-
ríkjum en Bandaríkjunum mun
standa til boða að nýta sér á
öryggissvæðinu á Keflavíkurflug-
velli. Þá er gert ráð fyrir að
hliðstæðar viðræður fari fram við
Breta og Kanadamenn í janúar. - aa
Þreifingar um varnarmál:
Rætt við Norð-
menn og Dani
leiðréttinG
sex frumvörp félagsmálaráðherra
voru samþykkt á haustþingi, ekki
fimm eins og sagt var í fréttablaðinu
í gær.
nýr sendiherra
albert jónsson sendiherra afhenti
Georg W. Bush, forseta Banda-
ríkjanna, trúnaðarbréf sitt sem
sendiherra Íslands í Bandaríkjunum
föstudaginn 8. desember. afhend-
ingin fór fram á skrifstofu forsetans í
Hvíta húsinu.
stjórnsýsla
UMfeRÐARslys Kona á sextugsaldri
var flutt á slysadeild í Reykjavík
eftir að bifreið hennar valt nokkr-
ar veltur á Eyrarbakkavegi um
klukkan 18 í gærkvöldi. Slysið
varð með þeim hætti að konan
missti stjórn á bifreiðinni og hafn-
aði hann ofan í skurði en flughálka
var á veginum þegar slysið varð.
Slysið varð skammt neðan við
veginn að Stokkseyrarseli og
stefndi konan í átt að Selfossi.
Slökkviliðsmenn þurftu að
beita klippum til að ná konunni úr
bílnum en hún var ein í bílnum.
Lögreglan segir mikla mildi að
bifreiðin skyldi hafna á hjólunum
því vatn var í skurðinum. Bíllinn
sást ekki af veginum en vöruflutn-
ingabílstjóri varð bílsins var og
gerði viðvart.
Þá varð árekstur innanbæjar á
Selfossi um klukkan átta í gær-
kvöldi þegar ökumaður keyrði á
kyrrstæðan bíl. Enginn slasaðist
en bíllinn er þó nokkuð skemmdur
og þurfti að draga hann burt.
Mikil hálka er á Suðurlandi og
vill lögreglan á Selfossi minna
vegfarendur á að fara varlega. - hs
kona á sextugsaldri var flutt á slysadeild eftir bílveltu á eyrarbakkavegi:
Slasaðist þegar bíll valt út í skurð
bílVelta á eyrarbakkaVeGi
sjúkraflutningamenn og slökkviliðs-
menn athafna sig við bíl konunnar á
slysstað í gærkvöldi.
myNd/iNGimar BjörN daVÍðssON