Fréttablaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 101
Tökur eru nú hafnar á
Duggholufólkinu fyrir
vestan. Ari Kristinsson er
leikstjóri myndarinnar sem
hann segir vera jólamynd í
ítrasta skilningi.
„Þetta er barna- og fjölskyldumynd
sem við ætlum okkur að frumsýna
um næstu jól.“ segir Ari Kristins-
son kvikmyndagerðarmaður en nú
standa yfir tökur á Vestfjörðum á
kvikmyndinni Duggholufólkið sem
er nýjasta verk Ara. „Þetta verður
jólamynd í ítrasta skilningi þess
þar sem við erum að nýta okkur
bæði jólastemninguna og náttúru-
fegurðina í vetrinum hérna fyrir
vestan. Það hæfir sögu myndarinn-
ar ákaflega vel þar sem þetta er
fjölskyldu- og draugasaga og
umhverfið hefur þennan kynngi-
magnaða blæ sem fellur fullkom-
lega að því sem við erum að gera.“
Myndin hefur verið í tökum
fyrir sunnan í eina 25 daga og hafa
tökur aðallega farið fram í Lata-
bæjarstúdíóinu og að einhverju
leyti í Hafnarfirði. Nú er hins
vegar komið að útitökum fyrir
vestan og þegar náðist í Ara var
hann í óða önn við að hlúa að leik-
urum og starfsfólki sem voru rétt
nýlent á Ísafjarðarflugvelli eftir
erfitt flug. „Það var víst all svaka-
leg ókyrrð í fluginu og fólkið er
svona rétt að byrja að jafna sig og
þá einkum yngri kynslóðin. Fólk
þarf að fá að koma við jörðina oftar
en tvisvar og þakka fyrir að vera á
lífi áður en það jafnar sig á þessu.“
segir Ari og er greinilega ánægður
með að vera kominn með allt sitt
fólk vestur heilt á húfi.
Í aðalhlutverkum í Duggholu-
fólkinu eru krakkarnir Þórdís
Árnadóttir, Bergþór Þorvaldsson
og Árni Beinteinn Árnason auk
reyndari leikaranna Brynhildar
Guðjónsdóttur, Margrétar Vil-
hjálmsdóttur og Erlends Eiríksson-
ar. „Við verðum nokkuð víða í
tökum hér fyrir vestan og förum
meðal annars í hlíðar Bolafjalls svo
þetta verður örugglega heilmikið
ævintýri. Ég er búinn að vera fyrir
vestan í nokkra daga við undirbún-
ing og er orðinn spenntur að byrja
að taka, en ég er hræddur um að
fólkið þurfi að fá að jafna sig á
fluginu áður en það fer að hlakka
til vinnunnar.“
magnusg@frettabladid.is
Leiðin til
Betlehem
( (HinirrÁFÖLLnUF
BNA GEGN JOHN LENNON
HAGATORGI • S. 530 1919
/ álfabakka / kringlunni / keflavík / akureyri
SANTA CLAUSE 3 kl. 3:40 - 5:50 Leyfð
THE GRUDGE 2 kl. 5:50 - 10:30 B.i. 16
FLY BOYS kl. 8 B.i. 12
BÆJARHLAÐIÐ M/- Ísl tal. kl. 3:40 Leyfð
DEAD OR ALIVE kl. 4 - 6 - 8 - 9 - 10:10 B.i.12
DEAD OR ALIVE VIP kl. 5 - 8 - 10:10
SAW 3 kl. 8 - 10:20 B.i.16
SKOLAÐ Í BURTU M/- Ísl tal kl. 3:40 - 5:50 Leyfð
FLUSHED AWAY M/-Ensk tal. kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 Leyfð
THE HOLIDAY kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.7
DEAD OR ALIVE kl. 6 - 8 - 10:30 B.i.12
SKOLAÐ Í BURTU M/- Ísl tal. kl. 6 Leyfð
FLUSHED AWAY M/-Ensk tal kl. 10 Leyfð
THE HOLIDAY kl. 8 - 10:30 Leyfðð
SANTA CLAUSE 3 kl. 8 Leyfð
THE GRUDGE 2 kl. 10 B.i. 16
DEAD OR ALIVE kl. 6 - 8 - 10 B.i.12
SKOLAÐ Í BURTU M/- Ísl tal. kl. 6 Leyfð
FLUSHED AWAY M/-Ensk tal kl. 8 Leyfð
SCANNER DARKLY (óTExT) kl 10 B.i.16
Martin ShortTim Allen
Frá framleiðendum og
NATIVITY STORY kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.7
MÝRIN kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 12
THE DEPARTED kl. 10:10 B.i. 16
Byggð á tölvuleiknum vinsæla DeaD OR alive
FORSTJÓRI HEILA KLABBSINS
„Óborganleg
grínmynd
eftir Lars
Von Trier
um árekstra
Íslendinga
og Dana,
þar sem
Friðrik Þór
og Benedikt
Erlings stela
senunni.“
JÓLAMYNDIN Í ÁR
BOSS OF IT ALL kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.12
THE US VS. JOHN.. kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.12
SANTA CLAUSE 3 kl. 5:50 - 8 Leyfð
BAráTTAn uM jólin er hAfin.
jólASveininn 3
TónlisTarmaður -
mannúðarvinur - þjóðarógn
S.V. -MBL
V.J.V. topp5.iS
www.haskolabio.is
þRjáR á tOppnum
Ég verð að viðurkenna að ég hafði
lítið heyrt í Gavin Portland þegar
ég setti þessa plötu í spilarann. Og
ég veit ekki mikið um þessa sveit
annað en að hún er skipuð meðlim-
um úr harðkjarnasveitunum
Fighting Shit og Brothers Majere
og að þetta er ein af hljómsveitun-
um hans Þóris, My Summer As A
Salvation Soldier. Þórir spilar á
gítar í Gavin Portland og syngur á
móti aðalsöngvaranum Kolla. Jú,
og einhvers staðar las ég að breska
rokkblaðið Kerrang! hefði hrifist
mjög af frammistöðu þeirra á Air-
waves-hátíðinni.
Views of Distant Towns er frek-
ar stutt plata. Níu lög, tæpur hálf-
tími. En þessi hálftími er einhver
fullkomnasta rokkkeyrsla sem ég
hef heyrt lengi. Hún heldur manni
hundrað prósent frá byrjun fyrsta
lagsins, I should hide all their
bricks, til loka þess síðasta, With a
white picket fence. Hljómurinn er
hrár og ferskur og þetta eru allt
flott rokklög. Hrátt og villt rokk,
en á sama tíma mjög grípandi.
Tónlist Gavins Portland er ekki
glæný eða byltingarkennd. Hún
minnir mig á köflum á hina frá-
bæru Chicago-sveit Jesus Lizard,
á köflum á The Birthday Party (t.
d. upphafið á laginu This is my
Body, this is my blood I found...)
og líka á köflum á þær sveitir sem
hafa verið áberandi á harðkjarna-
senunni undanfarin ár. Gavin Port-
land vinnur hins vegar vel úr
öllum þessum áhrifum og útkom-
an er plata sem svínvirkar og
hljómar fersk og spennandi. Söng-
urinn er kannski veikasti hlekkur-
inn. Sums staðar finnst manni
Kolli varla vera að ráða við þetta,
en hann hefur það þó og í sumum
lögunum hljómar hann mjög vel.
Á heildina litið er þetta frábær
rokkplata. Ein af þeim bestu
íslensku í ár. Trausti Júlíusson
Rokkplata ársins?
TónlisT
Views of Distant Towns
Gavin Portland
HHHH
Views of Distant Towns er ekki
lengri en tæpur hálftími, en því-
líkur hálftími! Hrátt og villt rokk,
en á sama tíma mjög grípandi.
Hljómsveitin Dýrðin heldur
útgáfutónleika á Barnum á föstu-
dag í tilefni af útkomu fyrstu plötu
sinnar sem er samnefnd sveitinni.
Platan kom út í Bandaríkjunum
í byrjun október á vegum útgáfu-
fyrirtækisins Skipping Records
sem uppgötvaði Dýrðina á netinu.
Hér á landi kom platan út um miðj-
an nóvember.
Að sögn Magnúsar Axelssonar
mun Dýrðin spila nýju plötuna á
tónleikunum auk eins nýs lags sem
nefnist Goldfish. „Við ætlum að
halda áfram að semja fleiri lög og
það er alveg inni í myndinni að
halda áfram að gefa út á næsta
ári,“ segir Magnús. Bætir hann því
við að þótt nýja lagið sé sungið á
ensku sé platan öll á íslensku. Þrátt
fyrir það hafi sveitin fengið góðar
viðtökur í Bandaríkjunum þar sem
áheyrendur hafi meira að segja
sungið með þeim á tónleikum.
Útgáfutónleikarnir hefjast
klukkan 21.00 og er ókeypis inn.
Hljómsveitin The Way Down sér
um að hita upp.
Dýrðin á tónleikum
hafís og einar Systkinin Hafdís og Einar Hreiðarsbörn á tónleikum með Dýrðinni.
mynD/nick karPowicz
Þakka fyrir að vera á lífi
ari krisTinsson Er ánægður með að allir hafi sloppið heilir á húfi.
Kvikmyndin Apocalypto í leik-
stjórn Mel Gibson fór beint á
toppinn á bandaríska aðsóknar-
listanum eftir fyrstu frumsýning-
arhelgina.
Myndin fjallar um Maya-indí-
ána í Mið-Ameríku og er töluð á
mállýsku þeirra. Ekki höfðu marg-
ir trú á að hún færi á toppinn. „Ég
held að fólk sé frekar undrandi á
því að hún sé númer eitt. Fyrir
tveimur mánuðum hefði enginn
trúað því,“ sagði starfsmaður
Disney.
Myndin var þó langt frá því að
nálgast síðustu mynd Gibson í vin-
sældum, The Passion of Christ,
sem náði inn rúmum 5,7 milljörð-
um króna króna eftir frumsýning-
arhelgi sína. Aflaði Apocalypto
framleiðendum um 960 milljónum
króna.
Í öðru sæti á aðsóknarlistanum
varð rómantíska gamanmyndin
The Holiday með Cameron Diaz
og Jude Law í aðalhlutverkum og í
því þriðja varð mörgæsamyndin
Happy Feet.
Gibson á toppinn
Leikkonan Jada Pinkett Smith hefur
gefið eina milljón dollara, eða tæpar
sjötíu milljónir
króna, til lista-
skóla í Balti-
more þar sem
hún stundaði
nám á sínum
yngri árum.
Vonast hún
jafnframt til að
nýtt leikhús
skólans verði til-
einkað rappar-
anum Tupac
Shakur sem var
skotinn til bana
fyrir tíu árum.
Jada Pinkett og
Tupac voru góðir
vinir þegar þau gengu í skólann og
vildi hún minnast hans á þennan
hátt.
„Það skiptir miklu máli þegar þú
ert kennari og frægasti nemandinn
þinn snýr aftur til að gefa pening,“
sagði Donald Hicken, yfirmaður
leiklistardeildarinnar. „Það hefur
mikið að segja fyrir samfélagið að
skólinn skiptir máli í lífi fólks.“
Gefur 70
milljónir
JaDa pinkeTT og
will smiTh Hjónin
Jada Pinkett og will
eru ekki búin að
gleyma listaskólan-
um í Baltimore.
apocolypTo nýjasta mynd mel Gibson er að gera góða hluti í Bandaríkjunum.