Fréttablaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 71
H A U S
MARKAÐURINN
F Ó L K Á F E R L I
17MIÐVIKUDAGUR 13. DeseMbeR 2006
H é ð A n o g þ A ð A n
Hólmfríður Helga Sigurðardóttir
skrifar
Starfsmenn SPRON klappa eflaust hver
öðrum á bakið um þessar mundir. SPRON var
nefnilega eina íslenska fyrirtækið á banka-
markaði sem lagði aukin lóð á skálar
íslensku ánægjuvogarinnar í ár. Það er
Capacent á Íslandi sem sér um fram-
kvæmd íslensku ánægjuvogarinn-
ar en hún er samræmd mæl-
ing á ánægju viðskiptavina
banka á Norðurlöndunum
og í Eystrasaltsríkjunum.
Hinir sparisjóðirnir, sem
mældir eru saman, fylgdu
fast á hæla SPRON en náðu
þó ekki að bæta sig frá fyrra
ári. Viðskiptabankarnir þrír
fengu hins vegar léttan skell
enda hefur ánægja viðskipta-
vina þeirra ekki mælst minni
frá því mælingar ánægjuvogar-
innar hófust árið 1999. Allt frá
upphafi mælinga hafa sparisjóð-
irnir komið betur út úr mæling-
um á íslensku ánægjuvoginni. Guðmundur
Hauksson, sparisjóðsstjóri SPRON, telur að
sú áhersla sem SPRON leggur á að veita ein-
staklingum og minni fyrirtækjum persónu-
lega þjónustu skipti miklu máli varðandi
útkomu könnun-
arinnar. „Við
leggjum okkur sérstaklega eftir því að
byggja upp þann þátt í starfseminni sem
lýtur að góðri þjónustu. Við erum því
ánægð með að fá með þessum hætti
viðurkenningu á að það sé að takast hjá
okkur.“
SPRON hlaut jafnframt á dögunum
jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs,
fyrst íslenskra fjármálafyrirtækja.
Guðmundur bendir á að breytt
umhverfi fjármálaþjónustunnar
hafi kallað á að starfsmenn þurfi
stöðugt að efla sína þekkingu. „Við
leggjum mikla áherslu á að efla starfs-
manninn sem einstakling í sínu starfi
og höfum í gangi mjög umfangs-
mikið fræðslu- og endurmenntun-
arkerfi til þess. Við hvetjum okkar
starfsmenn til að sækja sér þá
menntun sem er í boði. Aukin þekk-
ing leiðir til jafnréttis og ég held að
það sé fyrst og fremst þetta sem er
að skila sér í öflugra og ánægðara
starfsfólki, sem áfram skilar sér til
viðskiptavinarins í meiri þjónustu-
gæðum. Það má því segja að þessir
þættir styðji hvor annan.“
Viðskiptavinir SPRON
þeir ánægðustu
Króni og Króna Viðskiptavinir SPRON virðast
vera jafnglaðir hjá SPRON og sparibaukarnir Króni
og Króna.
guðmundur HauKsson, sparisjóðs-
stjóri spron Að vonum ánægður með að
viðskiptavinir SPRON eru þeir ánægðustu í
íslenska bankakerfinu.
Atlantsskip hefur fest kaup á
Kalmar-gámalyftara til viðbótar
við annan þriggja ára gamlan
sem félagið á.
Nýi lyftarinn vegur 70 tonn og
er sagður einn sá fullkomnasti
á landinu í dag. „Hann er búinn
mjög fullkomnu tölvukerfi sem
heldur utan um allar aðgerðir
tækisins og fæst þannig vitneskja
um allt viðhald og þjónustu,“ segir
í tilkynningu Vélaborgar efh. sem
hefur umboð fyrir Kalmar hér á
landi. Lyftarinn ræður við gáma
sem vega allt að 45 tonn og getur
staflað upp í fjórar hæðir.
Á árinu hefur Vélaborg flutt
inn og selt fjóra Kalmar-lyftara
og er með í pöntun sex tæki sem
eru seld og til afgreiðslu á næsta
ári. - óká
Atlantsskip
kaupir lyftara
nýr Kalmarlyftari atlantssKipa
Lyftarinn getur staflað gámum í fjórar hæðir
og teygt sig upp í þriðju röð.
Helgi JóHannesson, framkvæmda-
stjóri Norðurmjólkur, hefur verið ráðinn
Umdæmisstjóri VÍS á Norðurlandi. Hann
tekur við nýju starfi umdæmisstjóra
þann 1. janúar 2007.
Umdæmisskrifstofa
VÍS á Norðurlandi
er á Akureyri og
heyra undir hana
svæði allt frá
Hvammstanga til
Þórshafnar. Alls
eru tíu skrifstofur í umdæminu. Helgi
hefur starfað sem framkvæmdastjóri
Norðurmjólkur ehf. frá ársbyrjun
2001. Þar áður starfaði hann sem
framkvæmdastjóri Norðlenska í eitt
ár og framkvæmdastjóri kjötiðnaðar-
sviðs KEA frá 1997 til 2000. Hann lauk
BSc prófi frá Odense Teknikum árið
1985 og MSc í verkfræði frá Ålborg
Universitet árið 1987. Hann hefur setið
í stjórnum hinna ýmsu félaga í gegnum
tíðina. Þar á meðal sat hann í stjórn
Vátryggingafélags Íslands frá árinu 2002
til 2004, Líftryggingafélagi Íslands frá
2004 til 2005 og Verði frá 2004 til 2006.