Fréttablaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 88
13. desember 2006 MIÐVIKUDAGUR32
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis
atburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn
hér til hliðar má senda á
netfangið timamot@fret-
tabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
lísa pálsdóttir útvarpskona
er 53 ára í dag
„Ja, mér finnst enn þá
alveg ógeðslega gott að
reykja og fer ekkert ofan af
því.“
Svo lét Lísa hafa eftir sér fyrir rösku
ári en óvíst er hvort breyting hefur
orðið þar á.
merkisatburðir
1577 Sir Francis Drake leggur af
stað í hnattsiglingu.
1744 Jón Þorláksson á Bægisá
fæðist.
1922 Hannes Hafstein ráðherra
andast í Reykjavík, 61 árs.
1947 Tólf mönnum bjargað
af togaranum Dhoon
við Látrabjarg. Þessi
atburður var síðar kallaður
„Björgunarafrekið við
Látrabjarg”.
1988 Sjötug kona í Reykjavík
vinnur 25 milljónir í happ-
drætti.
1992 Orgelið í Hallgrímskirkju
vígt. Það er um 25 tonn
að þyngd og kostaði um
100 milljónir króna.
Á þessum degi árið 1642
kom hollenski landkönn-
uðurinn Abel Tasman,
fyrstur Evrópubúa, auga á
eyjarnar í Suður-Kyrrahafi
sem nú heita Nýja-Sjá-
land. Tasman reyndi einu
sinni að ganga á land
á Suðureyjum og gerði
boð á undan sér með
lúðraþyt. Eyjaskeggjar
töldu hins vegar að skip-
verjar ætluðu að ráðast
á sig og snerust því til
varnar. Tasman hörfaði
eftir að nokkrir manna
hans höfðu verið felldir.
Nokkrum vikum áður hafði Tasman fundið
Tasmaníu út undan suðurströnd Ástralíu. Sjálfur
nefndi hann eyjuna Van Diemens-land en nafn-
inu var síðar breytt og
kennt við landkönnuð-
inn honum til heiðurs.
Nýja-Sjáland dregur
nafn sitt af hollenska
héraðinu Zeeland.
Evrópubúar veittu eyj-
unum litla athygli þar til
á seinni hluta 19. aldar
þegar enski landkönn-
uðurinn James Cook
ferðaðist um þær og
skráði athuganir sínar
nákvæmlega niður.
Hvalveiðimenn, trúboð-
ar og verslunarmenn
fylgdu í kjölfarið. Árið
1840 innlimuðu Bretar Nýja-Sjáland í heimsveldi
sitt og settu á fót fyrstu varanlegu evrópsku
byggðina þar syðra í Wellington.
þetta gerðist: 13. DES. 1642
Nýja-Sjáland kemur í leitirnar
Félag náms- og starfsráðgjafa verður
25 ára á laugardag. Afmælisveisla til
að fagna afmælinu verður haldin á
föstudag klukkan 13 í Tónlistarhúsinu
Ými að Skógarhlíð í Reykjavík.
Ráðherrar mennta- og félagsmála
munu heiðra samkomuna með stuttum
ávörpum ásamt dr. Gerði Óskarsdótt-
ur, dr. Sif Einarsdóttur, dr. Jóni Torfa
Jónassyni og fleira fólki.
Formaðurinn Ágústa E. Ingþórs-
dóttir segir að félagið hafi vaxið jafnt
og þétt síðan það var stofnað árið
1981. Þá voru stofnfélagar einungis
sjö talsins en í dag eru þeir rúmlega
230 og fer hratt fjölgandi. Með til-
komu meistaranáms í Háskóla
Íslands útskrifast nú um 20 til 30
náms- og starfsráðgjafar á hverju
ári.
„Það er stóraukin þörf fyrir náms-
og starfsráðgjöf í þjóðfélaginu,“ segir
Ágústa. „Ekki síst af því það hafa orðið
svo miklar framfarir á vinnumarkaði
og tækniframfarir sem hafa mikil
áhrif á daglegt líf fólks og stöðu á
vinnumarkaði. Í dag sjáum við fólk
skipta oftar um störf og meiri þörf er
fyrir endurmenntun,“ segir hún. „Fólk
fer í nám til að efla hæfni sína og oft er
þörf fyrir stuðning til að leysa úr þess-
um verkefnum á náms- og starfsferlin-
um. Það hefur kallað á aukna náms- og
starfsráðgjöf.“
Í tilefni af afmælisárinu hefur
félagið staðið fyrir mikilli dagskrá.
Hinn 20. október var í fyrsta sinn hald-
inn hátíðlegur dagur náms- og starfs-
ráðgjafar og verður sá dagur helgaður
faginu framvegis. Á þessum fyrsta
hátíðisdegi kom bandaríski fræðimað-
urinn Mark Savickas í heimsókn og
hélt fyrirlestur. „Hann hefur sett fram
kenningu sem hann nefnir The Theory
of Career Construction. Hún fjallar
um að það sé einhver ákveðinn drif-
kraftur sem kemur af stað breytingum
á starfsferli einstaklings. Það skipti
máli hvernig hver og einn túlkar við-
burði sem gerast á starfsævinni og
hvaða tilgang fólk sér í þeim verkefn-
um sem það fæst við í störfum sínum,“
segir Ágústa.
freyr@frettabladid.is
ÁgúSTA E. iNgÞóRSDóTTiR: Félag náms- og starFsráðgjaFa 25 ára
Úr sjö félögum í 230
ágústa e. ingþórsdóttir Formaður Félags náms- og starfsráðgjafa heldur upp á 25 ára afmæli samtakanna á föstudag. FRéTTABLAðið/ANTON
Móðir okkar,
Margrét Stefánsdóttir
Írabakka 24, Reykjavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 9. desember
sl. verður jarðsungin frá Fossvogskirkju 15. desember
kl. 11.00.
Ragnheiður Benediktsdóttir
Elsa Benediktsdóttir
Ásdís Benediktsdóttir
Einlægar þakkir til ættingja, vina og allra
þeirra sem sýndu okkur ómetanlega
vináttu, samúð og hlýhug gegnum veikindi
og við andlát og útför ástkærs sonar okkar,
bróður, mágs og frænda,
Arnar Steinars
Ásbjarnarsonar
Starfsfólk líknardeildarinnar í Kópavogi fær sérstakar
þakkir fyrir einstaka umönnun.
Kristín Guðjónsdóttir
Ásbjörn Guðmundsson
Þorbjörg Ásbjarnardóttir J. Óskar Sigurbjörnsson
Margrét Ásbjarnardóttir Þorvaldur Kristjánsson
Ásbjörn, Alexander og Þorvaldur Örn
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma
Snæborg J. Stefánsdóttir
Eiðsvallagötu 36, Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð laugardaginn 9. desember.
Bragi Stefánsson
Helga Sigurlaug Aðalgeirsdóttir Guðmundur H. Svavarsson
Allý Halla Aðalgeirsdóttir Hilmar Brynjólfsson
Ingibjörg Bragadóttir
Stefanía Bragadóttir Gunnar Örn Guðmundsson
Vala Bragadóttir Hallur Eyfjörð Þórðarson
ömmubörn og langömmubarn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Alhliða útfararþjónusta í 16 ár
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Okkar innilegustu þakkir fyrir samúð
og aðstoð vegna fráfalls og útfarar okkar
ástkæru,
Ingigerðar Einarsdóttur
Lindasíðu 4, Akureyri.
Óskum ykkur gleðilegrar jólahátíðar.
Synir, tengdadætur, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir
aðstandendur.
Landnámssýningin Reykjavík 871±2 hlaut á
dögunum verðlaun fyrir bestu stafrænu miðl-
un í söfnum. Verðlaunin voru veitt á ráðstefn-
unni NODEM 2006, Nordic Digital Excellence
in Museums, sem fram fór í Ósló í síðustu
viku. Sýningin fjallar um landnám í Reykja-
vík, en þar má sjá rústir af skála frá land-
námsöld. Rústirnar fundust við byggingu
Hótel Reykjavík Centrum í Aðalstræti árið
2001, og eru nú til sýnis þar undir í sýningar-
aðstöðu undir hótelinu.
Allt að 25.000 gestir hafa sótt sýninguna
heim frá því að hún var opnuð og látið vel af
henni. Í áliti dómnefndarinnar á NODEM
segir meðal annars að sýningin sé glæsileg á
að líta og gerð af tilfinningu fyrir rýminu og
staðnum. Þar fari saman fjölbreytt miðlunar-
tækni, gott aðgengi og framsetning í hæsta
gæðaflokki. Verðlaunin voru veitt Minjasafni
Reykjavíkur og Gagarín, samstarfsfyrirtæki
þess í margmiðlun, en fyrirtækið vann marg-
miðlunarhluta sýningarinnar í samstarfi við
Art+Com í Berlín. Hjörleifur Stefánsson,
Guðný Káradóttir, Þórunn S. Þorgrímsdóttir
og Hringur Hafsteinsson veittu verðlaunun-
um viðtöku.
Landnámssýningin 871±2 verður lokuð í
janúar og febrúar en verður opnuð að nýju 3.
mars 2007. - sun
Landnámssýning verðlaunuð
tóku við verðlaunum Fulltrúar Minjasafns
Reykjavíkur og gagarín tóku við verðlaunum fyrir
bestu stafrænu miðlun í söfnum.