Fréttablaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 12
12 13. desember 2006 MIÐVIKUDAGUR
jólasveinn í rammagerðinni
Leikskólabörn fylgdust agndofa með
jólasveini á sleða í glugga Ramma-
gerðarinnar í Hafnarstrætinu.
fRéttabLaðið/gva
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
35
20
0
12
/0
6
Föt fyrir
töffara
VísInDI Allur ís á norðurpólnum
gæti horfið mjög hratt næstu ára-
tugina, einkum á sumrin, að mati
hóps bandarískra vísindamanna,
sem kynntu niðurstöður rann-
sókna sinna á fundi Samtaka
bandarískra jarðeðlisfræðinga
nýverið.
Íshellan vex ekki jafn hratt og
áður á haustin og í síðasta mán-
uði var hafísinn tveimur milljón
ferkílómetrum minni en hann
hefur verið að meðaltali í nóvem-
ber þegar mælingar eru skoðað-
ar aftur í tímann.
„Þetta svæði er jafnstórt
Alaska,“ sagði Mark Serreze,
sérfræðingur í hafís við Color-
ado-háskólann, í samtali við
fréttamann breska ríkisútvarps-
ins, BBC. „Við náum okkur ekki
vel aftur á strik á haustin lengur.
Ísinn gæti verið farinn að fylgja
skilyrðum, verður kannski farinn
að sýna mjög öra minnkun í
fyrirsjáanlegri framtíð.“
Hafísinn varð minnstur í ár
þann 14. september og hefur
hann eingöngu þrisvar áður
mælst minni í 29 ára sögu mæl-
inga íssins með aðstoð gervi-
hnatta. Minnstur varð hann í
fyrra.
Áhyggjur Serreze endurspegl-
uðust í nýju tölvulíkani sem
vísindamenn Loftslagsrannsóknar-
stöðvar Bandaríkjanna og McGill
og Washington háskólanna
kynntu á fundinum, sem sýnir að
allur hafís á norðurpólnum gæti
bráðnað sumarið árið 2040.
Vísindamennirnir sýndu fram
á að því meira sem bráðnar af
ísnum, því örar bráðnar hann.
„Þegar ísinn hopar, flytur
hafið meiri hita til norðurheim-
skautsins og íslaust vatnið drekkur
í sig meira sólarljós, sem aftur
eykur hraða hlýnunar og leiðir til
frekara ístaps,“ sagði Markia
Holland, íssérfræðingur.
Að lokum kemst þetta ferli á
stig þaðan sem ekki verður aftur
snúið, og þarf ekki meiri háttar
atburð til heldur eingöngu eitt ár
sem er hlýrra en önnur, að sögn
Hollands. Eftir það, verður
bráðnunin afar ör.
Þessar breytingar munu hafa
alvarlegar afleiðingar í för með
sér fyrir allt lífríki þessa svæðis,
ekki síst fyrir ísbirni sem veiða
sér til matar á og í sjónum
umhverfis. Jafnframt myndu þær
hafa gríðarleg áhrif á mennska
íbúa svæðisins, sem myndu þar
með tapa aldagömlum hefðum.
Aftur á móti gæti ístapið skapað
ný atvinnutækifæri fyrir þetta
fólk, því hægt verður að sigla yfir
norðurpólinn.
Auk þess má gera ráð fyrir
frekari loftlagsbreytingum um
heim allan, þegar jörðin fer að
drekka í sig meiri hita frá sólinni.
smk@frettabladid.is
Ísinn bráðnar örar en áður
Bandarískir vísindamenn telja að sumarísinn á norðurpólnum geti allur verið horfinn árið 2040. Hafísinn
varð minnstur í ár í september og hefur hann einungis þrisvar áður mælst minni á síðustu 29 árum.
Heimskautsísinn bráðnar hraðar en áður var talið
AfGAnIstAn, AP Átta menn biðu
bana er sjálfsmorðssprengjumaður
sprengdi sig í loft upp við
innganginn að skrifstofum
héraðsstjóra Helmand-héraðs í
sunnanverðu Afganistan í gær.
Hamid Karzai forseti fordæmdi
tilræðið og sakaði grannríkið
Pakistan um að vera „forsprakka
talíbana“.
Flestir hinna látnu voru öryggis-
verðir, en einn var sýslumaður.
Héraðsstjórinn meiddist ekki.
Tilræðið var nýjasta árásin sem
skæruliðar talíbana efna til gegn
háttsettum fulltrúum stjórnar
Karzais.
Þá féll breskur hermaður í
skotárás annars staðar í Helmand
í gær. - aa
Tilræði í Afganistan:
Karzai ásakar Pakistana
Hamid Karzai forseti afganistans talar í Kandahar í gær. fRéttabLaðið/ap
stjóRnMál „Það er ekki nógu mikill sveigj-
anleiki í framhaldsskólunum til að taka á
móti unglingum af erlendum uppruna. Þetta
er mér mikið áhyggjuefni,“ segir Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingar-
innar, sem í gær ræddi við fólk sem fæst
við málefni innflytjenda á degi hverjum.
Meðal þeirra sem Ingibjörg Sólrún
boðaði á sinn fund voru fulltrúar vinnu-
markaðarins, Alþjóðahúss og Reykjavíkur-
borgar auk Íslendinga af erlendum upp-
runa.
Ingibjörg vildi draga upp heildarmynd af
málaflokknum og átta sig á brýnustu
úrlausnarefnunum.
Auk þess að ráða bót á málefnum
framhaldsskólans segir Ingibjörg mikil-
vægt að tryggja jafnræði milli innfluttra
Íslendinga og innfæddra. „Það snýr að
launum, sjúkratryggingum, lífeyrisgreiðsl-
um og öllum öðrum réttindum. Það má ekki
gerast að fyrirtæki misnoti útlendinga til að
ná niður launum eða félagslegum réttindum
eins og dæmi eru um.“
Ingibjörg vill að móttökumiðstöð verði
sett á fót þar sem fólk geti nálgast allar
upplýsingar, umsóknir og leyfi.
Þá þurfi að veita fólki raunhæf tækifæri
til að læra íslensku sér að kostnaðarlausu.
„Það verður að bjóða upp á mismunandi
lausnir í þeim efnum því það sama hentar
ekki öllum.“ - bþs
Formaður Samfylkingarinnar fundaði með fólki sem fæst við málefni innflytjenda:
Þröskuldar í framhaldsskólum
Farið yFir stöðuna ingibjörg Sólrún gísladóttir
ásamt nokkrum fundarmanna. fRéttabLaðið/gva
lAnDBÚnAÐUR Í síðustu viku var
innvigtun mjólkur 2.186.324 lítrar
og er innleggið á árinu orðið 110
milljónir lítra. Þetta er sjö
milljónum lítra meira en á sama
tíma í fyrra.
Ef ekki verða óvænt áföll í
mjólkurframleiðslunni það sem
eftir lifir árs má reikna með að
hún verði rúmlega 116 milljónir
lítra á þessu ári. Það yrði þriðja
mesta innvigtun Íslandssögunnar
en aðeins var framleitt meira af
mjólk árin 1978, 120,2 milljónir
lítra og 1979 en þá voru fram-
leiddar 117,2 milljónir lítra af
mjólk. - hs
Landbúnaður:
Þriðja mesta
framleiðsluárið
nýmjólK búast má við að mjólkurfram-
leiðsla í ár verði um 116 milljónir lítrar
en hún hefur ekki verið meiri í 27 ár.
Undanfarna daga hefur ljósaper-
um, í tuga- og jafnvel hundraðatali,
verið stolið úr jólaskreytingum við
heimahús í Keflavík í skjóli nætur.
greint var frá þessu í víkurfréttum á
þriðjudag. Lögregla hefur ekki fundið
peruþjófinn.
lögregluFréttir
ljósaperuþjófur í Keflavík