Fréttablaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 8
8 13. desember 2006 MIÐVIKUDAGUR
Veistu sVarið?
1. Hvaða fyrrum einræðisherra
Chile, sem borinn var til grafar
í gær, fékk ekki viðhafnarútför?
2. Hver er ekki orðinn ríkur
þrátt fyrir velgengni Lata
bæjar?
3. Hver rak Alan Pardew?
sVörin eru á bls. 54
Nú fæst 10% s‡r›i rjóminn
frá MS í handhægum
sprautuflöskum
N‡ju umbú›irnar eru einstaklega
flægilegar. fiær fl‡ta fyrir matseldinni
og henta vel í fjölbreytta rétti
– en innihaldi› er a› sjálfsög›u
sami frískandi og hitaeiningasnau›i
s‡r›i rjóminn
Ger›u fla› gott
me› s‡r›um rjóma – frá MS.
N‡jun
g!
SjáVARútVeGUR HB Grandi hefur
sagt upp allri áhöfn frystitogarans
Brettings NS-50 sem gerður er út
frá Vopnafirði. Togaranum verður
lagt í byrjun mars og annað skip
verður ekki fengið í þess stað.
Allir áhafnarmeðlimir togarans
eru Vopnfirðingar og því ljóst að
um mikla blóðtöku er að ræða
fyrir bæinn. Hreppsnefnd Vopna-
fjarðarhrepps hefur farið þess á
leit við stjórn HB Granda að
endurskoða ákvörðun sína með
þeim rökum að forsvarsmenn
fyrirtækisins hafi ekki skoðað til
hlítar hversu neikvæð áhrif þetta
hefur fyrir Vopnafjörð sem sam-
félag. Ljóst er að á annan tug
starfa hverfa úr byggðarlaginu.
Þorsteinn Steinsson, sveitar-
stjóri Vopnafjarðarhrepps, segir
uppsagnirnar reiðarslag fyrir
atvinnulífið á Vopnafirði og frétt-
irnar hafi komið eins og þruma úr
heiðskíru lofti. „Uppsagnirnar
munu hafa neikvæð áhrif á
atvinnuöryggi margra fjölskyldna
hér á Vopnafirði. Sextán heima-
menn eru í áhöfn Brettings sem
jafngildir 2,2 prósentum af íbúum
í sveitarfélaginu. Ef þessi tala
væri yfirfærð á Reykjavík jafn-
gilti þetta því að um 2300 íbúar
þar misstu vinnuna.“ Þorsteinn
segir að ráðamenn Vopnafjarðar-
hrepps hafi óskað bréflega eftir
fundi með forsvarsmönnum HB
Granda varðandi framtíðaráform
fyrirtækisins.
Eggert B. Guðmundsson, for-
stjóri HB Granda, segir ákvörðun-
ina endanlega því hún hafi verið
tekin að vel athuguðu máli. „Við
erum að laga flotann okkar að
þeim aflaheimildum sem við
eigum og hagræða. Við munum
vinna úr þessari stöðu öllum til
hagsbóta; áhafnarmeðlimum á
Brettingi, sveitarfélaginu og
fyrirtækinu. Við trúum því að úr
þessu máli leysist farsællega.“
Í bréfi ráðamanna hreppsins til
HB Granda kemur fram að meiri-
hluti áhafnarinnar hefur starfað á
skipinu í áratugi og skipið verið
eins og þeirra annað heimili.
Margfeldisáhrif séu mikil fyrir
byggðarlagið, fjárhagslega,
atvinnulega og tilfinningalega.
Það gefi einnig augaleið að ákvörð-
unin geti haft slæm áhrif á búsetu-
þróun og tekjumissi fyrir sveitar-
félagið þar sem útsvarstekjur
áhafnarinnar hafa verið drjúgar í
gegnum tíðina.
Brettingur kom til hafnar á
Vopnafirði í gær og Gunnar Björn
Tryggvason, skipstjóri á Brett-
ingi, segir hljóðið í áhöfn sinni
þungt. „Þetta er mikið áfall fyrir
áhöfnina og menn hugsa sitt.“
svavar@frettabladid.is
Reiðarslag fyrir
atvinnulíf á Vopnafirði
Allri áhöfn togarans Brettings frá Vopnafirði hefur verið sagt upp störfum.
Óvissa er um atvinnuöryggi margra fjölskyldna þar sem áhöfn skipsins er öll
skipuð heimamönnum. Sveitarstjórinn segir uppsagnirnar reiðarslag.
brettingur ns - 50 Skipið leysti annan togara með sama nafni af hólmi árið 1973. Fjögurra áratuga útgerðarsögu er því að ljúka
undir nafni skipsins. Mynd/bjarki b
BIfRöSt Stjórn Háskólans á Bifröst
ákvað í gær að ráða Dr. Ágúst
Einarsson sem rektor og mun
hann taka við starfinu þann 15.
janúar næstkomandi. Hann hefur
starfað sem prófessor við Háskóla
Íslands frá árinu 1990.
Ágúst segir að hann líti á það
sem spennandi verkefni að gera
góðan skóla með glæsilega sögu
og mikla framtíð fyrir sér enn
betri. „Ég hlakka mikið til að tak-
ast á við þetta starf. Ég átti ekki
sjálfur frumkvæði að þessari
ráðningu en hef fengið mikla
hvatningu frá forsvarsmönnum
og starfsfólki skólans og það gerði
útslagið fyrir mig.“
Spurður hvort einhverjar
breytingar séu í vændum á skóla-
starfinu segir Ágúst starfið ætíð
breytast eitthvað með nýjum rektor.
„En ég ætla að efla enn frekar
kennslu, rannsóknir, tengsl við
atvinnulífið og aðra háskóla bæði
innlenda sem erlenda. Ég lít svo á
að háskólamálefnin séu ekki einka-
málefni fólksins í fílabeinsturnun-
um heldur sé þetta mikilvægur
þáttur í lífi allra landsmanna. Þeir
eigi því að fá meira fé og umfjöll-
un því í háskólunum liggur fjör-
egg þjóðarinnar.“
Ágúst hafði ekki miklar áhyggj-
ur af því umstangi sem skapaðist
við skólann þegar Runólfur
Ágústsson sagði upp störfum fyrr
í haust og sagði það heyra fortíð-
inni til. Hann staðfesti einnig að
hann hyggist flytja á Bifröst. - þsj
Stjórn Háskólans á Bifröst réð í gær nýjan rektor við skólann frá 15. janúar 2007:
Ágúst Einarsson ráðinn rektor
ágúst einarsson Er nýr rektor
bifrastarháskóla. Hann segir að í háskól-
unum liggi fjöregg þjóðarinnar.
LöGReGLUMáL Eldur kom upp íbúð
við Oddeyrargötu á Akureyri á
mánudagskvöldið. Eldri kona sem
býr í íbúðinni náði að komast út
úr húsinu og einnig ungt par sem
býr í annarri íbúð hússins. Fólkið
sakaði ekki.
Lögreglan fékk tilkynningu um
eldinn laust eftir klukkan hálf
tólf. Hún kallaði á slökkviliðið
sem slökkti eldinn og reykræsti
íbúðirnar. Efri hæðin, þar sem
eldurinn kom upp, er nánast ónýt
auk þess sem talsverðar reyk-
skemmdir urðu í húsinu. Lögregl-
an vinnur að rannsókn málsins.
Talið er að eldurinn hafi kviknað í
sjónvarpi. - ifv
Eldsvoði í íbúð Akureyri:
Þrennt komst
undan eldinum
SVeItARStjóRnARMáL Óskar Bergs-
son, varaborgarfulltrúi Framsóknar-
flokksins, hefur verið ráðinn
verkefnisstjóri Faxaflóahafna í
tengslum við ýmis verkefni er
varða skipulag og framkvæmdir
við Mýrargötu en samningur
þess efnis var lagður fyrir í hafn-
arstjórn í gær.
Er Óskari ætlað að sinna
ýmsum verkefnum er stuðla að
þróun og uppbygginu Mýrargötu-
svæðisins og „gæta hagsmuna
Faxaflóahafna“ gagnvart „lóðar-
eigendum, Reykjavíkurborg og
öðrum sem koma að samþykkt
deiliskipulags fyrir svæðið og
uppbyggingu
þess,“ eins og
orðrétt segir í
samningi Faxa-
flóahafna og
Óskars Bergs-
sonar, sem
Fréttablaðið
hefur undir
höndum.
Óskar segist
telja það fara
saman að gegna
hagsmunagæslu fyrir Faxaflóa-
hafnir og jafnframt vera vara-
borgarfulltrúi í Reykjavík. „Þessi
störf hafa fram að þessu ekki
skarast með nokkrum hætti heldur
tel ég það þvert á móti vel til þess
fallið að ég starfi að þessu verk-
efni.“
Samkvæmt samningnum fær
Óskar verktakagreiðslur upp á
6500 krónur á klukkustund, án
virðisaukaskatts, sem nemur um
390 þúsund krónum á mánuði.
Samkvæmt samningnum á Óskar
að skila vinnuframlagi upp á
fimmtán tíma á viku og skila
vinnuskýrslu um stöðu á þeim
verkefnum sem unnið er að hverju
sinni en samningurinn gildir til 30.
september á næsta ári.
- mh
Varaborgarfulltrúi Framsóknar ráðinn verkefnisstjóri Mýrargötuframkvæmda:
Ver hagsmuni Faxaflóahafna
Óskar bergsson
F
í
t
o
n
/
S
Í
A