Fréttablaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 84
13. desember 2006 MIÐVIKUDAGUR20
Sean Penn er sannur karakterleikari. Hann er ekki aðeins sérkennilega myndar-
legur heldur lifir sig svo um munar í hlutverk sín og gerir persónurnar sannfær-
andi.
Penn er fæddur árið 1960, sonur leikstjórans Leo Penn sem var settur á svartan
lista eftir að hann neitaði að bera vitni á McCarthy-tímabilinu.
Ferill Seans Penn hófst árið 1982 með gamanmyndinni Fast Times at Ridgemont
High. Síðan hefur hann leikið í um fjörutíu myndum. Frægðarsól Seans fór þó
fyrst að skína þegar hann giftist söngkonunni Madonnu árið 1985. Sambandið
var í meira lagi stormasamt og lauk nokkru síðar en er skrifað í spjöld sögunnar
yfir sérstæð hjónabönd.
Penn hlaut óskarsverðlaunin fyrir besta leik í myndinni Mystic River. Hann var
einnig tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir leik sinni í myndunum I Am Sam,
Sweet and Lowdown og Dead Man Walking.
1. Dead Man Walking (1995). Hér er sögð saga nunnunnar Helen Prejean sem
kynnist dæmdum morðingja, leiknum af Sean Penn. Hún gerist andlegur ráðgjafi
hans síðustu daga hans áður en hann er tekinn af lífi.
2. U Turn (1997). Mynd úr smiðju Olivers Stone. Hér segir frá því þegar Sean Penn
endar óvart í smábæ í einhverjum útnára og kynnist alls kyns furðulegum bæjar-
búum. Hann lendir milli steins og sleggju þegar hann kynnist kynþokkafullri konu
(Jennifer Lopez) og eiginmanni hennar (Nick Nolte). Þá eru samskipti hans við
bifvélavirkja bæjarins (Billy Bob Thornton) bæði súrrealísk og fyndin.
3. I Am Sam (2001). Myndin fjallar um Sam Dawson sem er með þroskahöml-
un. Hann á dóttur sem hann elur upp á eigin spýtur en þegar hún fer í skóla
hafa yfirvöld áhyggjur af framtíð hennar og vilja setja hana í fóstur. Við tekur
barátta hins treggáfaða Sam sem vill ólmur hafa dóttur sína hjá sér. Penn var
tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt.
4. Mystic River (2003). Stórmynd með ekki lakari leikurum en Sean Penn, Tim
Robbins, Kevin Bacon, Laurence Fishburne, Marcia Gay Harden, Laura Linney
and Emmy Rossum. Leikstjóri er Clint Eastwood en myndin var tilnefnd til sex
óskarsverðlauna og hlaut tvenn. Tim Robbins fyrir leik í aukahlutverki og Penn
fyrir leik í aðalhlutverki.
5. 21 Grams (2003). Þetta var greinilega gott ár fyrir leikarann Sean Penn.
Handritshöfundur er Guillermo Arriaga og leikstjóri Alejandro González Iñárritu
sem einnig hefur gert myndina Amores perros. Líkt og sú mynd eru hér sagð-
ar nokkrar sögur mismunandi fólks sem allt tengjast á einhvern hátt hræði-
legu bílslysi. Penn leikur dauðvona mann sem bjargast þar sem hann fær nýtt
hjarta úr manninum sem lést í slysinu.
Topp 5: Sean penn
Sean Penn var frábær í Mystic
River.
... að epli virka betur en kaffi til að
hressa sig við á morgnana?
... að fersk epli fljóta vegna þess
að mikill hluti af rúmmáli þeirra
er loft?
... að fitusameindirnar í geitamjólk
eru fimm sinnum minni en í kúa-
mjólk?
... að fleiri pítsur eru borðaðar á
laugardagskvöldum en öðrum
kvöldum vikunnar?
... að fólk eyðir miklu meira í
matarinnkaup þegar það verslar á
fastandi maga?
... að fólk ætti ekki að borða vatna-
krabba með beinan hala þar sem
hann hefur verið eldaður eftir að
hann dó?
... að Frank Epperson fann upp
íspinnann þegar hann var 11 ára?
... að frá árinu 1978 hafa að
minnsta kosti 37 manns látið lífið
eftir að hafa orðið undir sjálfsala
sem það hefur hrist um koll við að
reyna að losa varning?
... að fleiri en hundrað hafa slasast
við sömu iðju?
... að fyrsta vestræna neysluvaran
sem seld var í Sovétríkjunum var
Pepsi-Cola?
... að fæða grísku guðanna kallaðist
ódáinsfæða (ambrosia)?
... að geimfarar mega ekki borða
baunir áður en þeir leggja af stað í
geimferð þar sem óhóflegur vind-
gangur skemmir geimbúningana?
... að gosdrykkurinn 7UP var fyrst
framleiddur árið 1929?
... að talan 7 varð fyrir valinu vegna
þess að upprunalega flaskan var
sjö únsur og UP vísaði til þess að
loftbólurnar stigu upp?
... að hanastélið „Bloody Mary“ var
fundið upp í París árið 1930?
... að heimsins stærsti hamborgari
vó 2,72 tonn?
... að heitt vatn er í sumum tilfellum
eðlisþyngra en kalt?
... að hin sérstaka lauklykt á rætur
sínar að rekja til þess að laukur-
inn dregur til sín brennistein úr
jarðveginum?
... að hnetur eru notaðar við fram-
leiðslu á dínamíti?
... að hnetur innihalda ekkert
kólesteról?
... að hreindýramjólk inniheldur
meiri fitu en kúamjólk?
... að hrísgrjón eru meginuppistað-
an í fæðu helmings jarðarbúa?
... að hrísgrjón eru ræktuð á 10
prósentum alls ræktarlands í
heiminum?
... að hrísgrjónum er fleygt yfir brúð-
hjón sem tákn um frjósemi?
... að hunang er eina matartegund-
in sem ekki rotnar?
... að hundar og kettir éta gæludýra-
fóður fyrir 11 milljarða dollara á ári
hverju í Bandaríkjunum?
ViSSir þú...
Dúnúlpur
Rúskinnsúlpur
Leðurjakkar
Vattkápur
Hattar - Húfur
Leðurhanskar
Ullarsjöl
Góð gjöf
Útsöluhorn
50% afsláttur
Góðar vörur
Mörkinni 6, Símí 588-5518
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga frá kl. 10-16