Fréttablaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 92
13. desember 2006 MIÐVIKUDAGUR36
menning@frettabladid.is
! Kl. 20.00Þriðja rússneska skáldakvöld MÍR
er tileinkað Vladimír Vysotský,
skáldi, leikara, tónlistarmanni og
trúbador. Sergej Gúshín sendiráðs-
ritari fjallar um Vysotský og skýrir
hvers vegna hann varð eins konar
goðsagnapersóna í Sovétríkjunum
þegar í lifanda lífi. Kynnt verða brot
af tónlistarflutningi Vysotskýs og
lítil myndasýning um listamanninn
sett upp. Dagskráin fer fram í húsa-
kynnum MÍR við Hverfisgötu 105.
Það verður rólegheitastemning
í Hafnarfjarðarkirkju í kvöld
en þar verður boðið upp á
ókeypis tónleika í jólaamstrinu.
Tónleikarnir bera yfirskriftina
„Jólasöngvar“ en skipuleggj-
andi þeirra, Antonía Hevesi,
hefur staðið að sambærilegum
jólatónleikum fyrir jólin síðan
hún hóf störf sem organisti við
kirkjuna. Antonía hættir sem
organisti um áramótin og eru
þetta því síðustu „Jólasöngvar“
hennar að sinni.
Gestur Antoníu er hafnfirski
tenórinn Eyjólfur Eyjólfsson en
þau hafa starfað töluvert saman.
Auk þess mun leynigestur líta
inn og leggja sitt af mörkum við
dagskrána.
Á efnisskrá kvöldsins eru
klassísk og hátíðleg jólalög á
borð við Panis angelicus eftir C.
Franck, Ave Maria eftir Schu-
bert, Bach-Guonud og Sigvalda
Kaldalóns og Ó, helga nótt
eftir A. Adams. „Við reynum
að hjálpa fólki að slappa af
í jólastressinu og ef einhver
sofnar í kirkjunni munum við líta
á það sem hrós,“ segir Antonía
og kímir.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og eru
þeir öllum opnir.
Unnið gegn jólastressinu
Eyjólfur Eyjólfsson ópEru-
söngvari Kemur Hafnfirðingum
í jólaskap
> Dustaðu rykið af …
smásögum Antons Pavlovítsj
Tsjekhov. Húmor og dæmalaus
mannskilningur höfundarins nýtur sín
einkar vel í sögum hans. Mæla má
með safninu Konan með hundinn
sem forlagið Bjartur gaf út í þýðingu
Árna Bergmann árið 1998.
Örvæntingarfullri þriggja vikna
leit starfsmanna bókabúðarinnar
Lame Duck í Cambridge í Massa-
chusetts-ríki í Bandaríkjunum að
tveimur handrita argentínska rit-
höfundarins Jorge Luis Borges
lauk á mánudag þegar gersemarn-
ar fundust í versluninni. Greinir
fréttavefur Yahoo! frá þessu vand-
ræðalega tilstandi. Bókabúð þessi
selur sjaldgæfar bækur, listmuni
og handrit en starfsmenn hennar
týndu eða töldu að handritunum
tveimur hefði verið stolið á nýaf-
staðinni bókasýningu. Handritin
tvö, „Pierre Menard, höfundur
Don Quixote“ og „Babelbókasafn-
ið“, sem bæði voru gefin út árið
1939, eru metin á rúmar 66 millj-
ónir íslenskra króna.
Alþjóðalögreglan Interpol, sem
berst jafnan af elju gegn fjölþjóð-
legri glæpastarfsemi, var komin í
málið ásamt fagaðilum á staðnum
en handritin voru venju bundið
læst inni í peningaskáp.
Haft er eftir eiganda verslun-
arinnar, John Wronoski, að hann
hafi verið skömmustulegur en
ósköp feginn þegar handritin
komu í leitirnar. Starfsfólkið hafði
snúið versluninni á hvolf tíu eða
tólf sinnum á undanförnum þrem-
ur vikum og honum sjálfum varla
komið dúr á auga allan þann tíma.
Fundust handritin á endanum
bak við ljósmynd í plastslíðri sem
farið hafði verið með á téða bóka-
sýningu en sem betur fer ratað á
ný í þessa bókabúð Ófélegu andar-
innar.
- khh
Á ófyrirséðu flakki
rithöfunDurinn jorgE luis BorgEs
Handritin verða læst inni í skáp að nýju.
NordiCPHoTo/ GETTy iMAGES
Söngkonan Magga Stína og hennar
liðtæka hljómsveit halda tvenna
tónleika á næstunni, annað kvöld
verða listir leiknar á kaffihúsinu
Græna hattinum á Akureyri og á
föstudagskvöld troða hljómlistar-
mennirnir upp á Domo bar við
Þingholtsstræti í Reykjavík.
Magga Stína og félagar kynna
disk sinn, Magga Stína syngur
Megas, þar sem heyra má nýjar
útsetningar á tón- og textasmíðum
Megasar, þar af þrjú ný lög tón-
skáldsins. Lög á borð við „Fíla-
hirðirinn frá Súrín“ og „Aðeins
eina nótt“ hafa víða hljómað á
öldum ljósvakans og fá hlustendur
nú tækifæri til þess að heyra þau í
lifandi flutningi. Uppselt var á
útgáfutónleika sveitarinnar í nóv-
ember og góður rómur gerður að
frammistöðu listamannanna þar .
Sveitina skipa Kristinn H.
Árnason gítarleikari, Guðni Finns-
son kontrabassaleikari, Hörður
Bragason sem leikur á harmon-
ikku og fleiri ólíkindatól og
trommu- og slagverksleikarinn
Sigtryggur Baldursson.
Miðar á tónleikana verða seldir í
Pennanum, Glerártorgi, og við inn-
gang Græna hattarins en miðar á
tónleikana sunnan heiða eru seldir
á midi.is, á forlagsskrifstofu Bjarts
við Bræðraborgarstíg og við inn-
gang djassbúllunnar Domo. - khh
Megas í meðförum
Magga stína trEður upp ásaMt sérlEgri svEit sinni Flytja lög Megasar norðan
og sunnan heiða. FréTTABlAðið/HEiðA
Forystusveit íslenskra
tónlistarmanna kallar eftir
hugmyndum um heiti á
hátíðisdegi sem helgaður
verði íslenskri tónlist.
Þeir vilja hefja til vegs
íslenskt tónlistarsumar og
nýta þessi tímamörk til
frekari sóknar íslenskra
tónlistarmanna heima og
erlendis. Þetta kom fram í
hádegishófi sem Samtónn,
heildarsamtök þeirra félaga
sem standa innan vébanda
tónlistarinnar á Íslandi, hélt
á Hótel Borg í gær. Þar var
tilkynnt um stofnun sjóðs
á vegum 365 miðla og Stefs
sem tekur til starfa á næsta
ári og verður árlega veitt úr
honum 6 milljónir króna til
styrktar tónsköpun.
Skálaræður einkenndu samkom-
una: menntamálaráðherra flutti
ræðu og þakkaði hlý orð í grein-
um forkólfa tónlistarmanna þá
um morguninn þar sem ríkis-
stjórn voru þökkuð vel unnin
störf í þágu tónlistar í landinu:
lægra stig virðisaukaskatts og
fleira. Jakob Magnússon minnti
samkomuna á að í upphafi var
orðið, en orðið væri tíðni og nú
leiddu vísindamenn að því rökum
að innsti kjarni lífsins væri tíðni.
Hann sagði á þriðja hundrað
diska líta dagsins ljós á ári og á
þeim færu á þriðja þúsund tón-
verk. Vildi Samtónn brýna karla
og konur að gera veg tónlistar
sem mestan. Rétt eins og íslensk
tunga hefði sinn hátíðisdag ár
hvert vildu menn finna hátíðis-
dag íslenskrar tónlistar – helst að
hausti.
Var þá Máni Svavarsson heiðr-
aður fyrir glæsilega framgöngu
á erlendum mörkuðum með tón-
list sinni við Latabæ, en lag hans
situr nú í fjórða sæti breska smá-
skífulistans og hefur selst í yfir
100 þúsund eintökum.
Tilkynnt var um stofnun nýs
sjóðs með framlagi Stefs og 365
miðla og undirritað samkomulag
þar um af þeim Kjartani Ólafs-
syni, formanni Tónskáldafélags
Íslands, og Ara Edwald, forstjóra
365 miðla. Bætist sá sjóður við
Tónskáldasjóð Ríkisútvarpsins
og Rásar 2. Öllum þessum sjóð-
um er ætlað að styrkja nýsköpun
tónlistarmanna.
Páll Magnússon útvarpsstjóri
minntist framlags Ríkisútvarps-
ins til tónlistarlífs í landinu og
áréttaði framlag Rásar 2 í útrás
íslenskrar tónlistar: net evr-
ópskra útvarpsstöðva dreifði Rás
2 tónleikum: 11 útvarpsstöðvar
tækju á móti tónleikum Mugis-
ons og 13 á móti tónleikum Sigur
Rósar. Ekki vildi hann gera upp á
milli stöðva á sinni ábyrgð og
taldi Sjónvarpið sinna tónlist af
miklum krafti bæði með dag-
skrárþáttum og flutningi tónlist-
ar í Kastljósi.
Að lokum bað hann samtök
tónlistarmanna að ganga til þess
verks að endurskoða samninga
um flutning eldra efnis í fórum
útvarpsins: Opnum gullkistuna,
gildandi samningar eru barn síns
tíma, sagði Páll og hét að gera
nýja samninga við tónlistarmenn
áður en nýr dagur tónlistarinnar
rynni öðru sinni. Brostu tónlist-
armenn þá breitt í salnum og
hugsuðu sitt.
Í fleiri skálaræðum stungu
menn upp á liðnum tónlistar-
mönnum sem kenna mætti dag-
inn við: Bjarna Böðvarsson og
Svavar Gests, 12. september og
Sigfús Halldórsson. Ellý Vil-
hjálms reyndist vera fædd 28.
desember svo ekki dugar sá
dagur nema sem skiladagur fyrir
diska jólanna. En nógir eru merk-
ismenn sem lagt hafa líf sitt í tón-
list á liðinni öld.
Það er hugur í tónlistarmönn-
um: lækkun virðisaukaskatts til
samræmis við virðisaukaskatt á
bókum hefur víða stóraukið sölu
útgefinnar tónlistar á diskum.
Geirinn sér aukin sóknarfæri í
útflutningsmiðstöð tónlistar,
styrktarsjóðum Reykjavíkur-
borgar og Flugleiða fyrir nýgilda
og sígilda tónlist og fleiri stoðum
sem skotið er undir tónlistarlíf
„okkar stórhuga þjóðar“ eins og
Jakob orðaði það. - pbb
Tónlistarmenn sækja fram
tónlist Máni Svavarsson tekur við viðurkenningu fyrir árangur á erlendum vettvangi síðustu daga úr hendi Jakobs Magnússonar í gær.
Jakob minnti á að ætíð gætu menn treyst á hjálp Mána til góðra verka. Fréttablaðið/Hörður