Fréttablaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 104
48 13. desember 2006 MIÐVIKUDAGUR
HAnDboltI Liðin sem mættust í
úrslitum Meistaradeildarinnar á
síðustu leiktíð, spænsku liðin
Ciudad Real og Portland San
Antonio, drógust gegn hvort
öðru í átta liða úrslitum keppn-
innar.
Portland á harma að hefna
eftir að Ciudad fór mjög illa með
liðið í báðum úrslitaleikjunum á
síðustu leiktíð. Fyrri leikur lið-
anna fer fram í Ciudad Real.
Alfreð Gíslason og lærsvein-
ar hans í Gummersbach voru
nokkuð heppnir með andstæð-
inga en þeir drógust gegn
spænska liðinu Valladolid. Félag
Viggós Sigurðssonar, Flensburg,
mætir spænska stórliðinu Bar-
celona en Viggó lék með því
félagi á sínum tíma. Hann verð-
ur væntanlega fjarri góðu gamni
í þessum leikjum þar sem samn-
ingur hans við Flensburg er að
renna út.
Í EHF-keppninni lentu Arnór
Atlason, Gísli Kristjánsson og
félagar í FCK á móti gamla félagi
Arnórs, Magdeburg. Íslendinga-
liðið Skjern tekur aftur á móti
Lemgo-bönunum í Dunkerque.
Sigfús Sigurðsson og félagar í
Ademar Leon fá tiltölulega auð-
velt verkefni er þeir mæta
danska liðinu Bjerringbro/Silke-
borg sem Heimir Örn Árnason
var á mála hjá.
Fyrri leikir liðanna fara fram
24. og 25. febrúar og síðari leik-
irnir eru viku síðar. -hbg
drátturinn
Meistaradeildin:
Ciudad Real - Portland San Antonio
Flensburg - Barcelona
Valladolid - Gummersbach
Veszprem - Kiel
EHF-keppnin:
Magdeburg - FCK
Dunkerque - Skjern
Grasshoppers - Paris Handball
Aragon - Bidasoa
Evrópukeppnibikarhafa:
Bjerringbro/Silkeborg - Ademar Leon
Constanta - RK Zagreb
Hamburg - HC Portovik
Vardar Skopje - RK Bosna
Stórleikir fram undan í Evrópukeppnunum í handbolta en dregið var í átta liða úrsitin í gær:
Ciudad Real mætir Portland í stórleik átta
liða úrslita Meistaradeildarinnar í handbolta
MætastánýÓlafur Stefánsson tekur
hér á Ivano Balic í úrslitaleiknum í apríl.
FRéttABLAðIð/VILHeLM
nbA Jason Kidd komst í þriðja
sæti, og upp fyrir sjálfan Wilt
Chamberlain, yfir þá leikmenn
sem hafa náð flestum þrennum á
ferlinum í NBA-deildinni þegar
New Jersey Nets lagði Memphis
Grizzlies af velli, 105-93, í fyrri-
nótt. Nets eru í efsta sæti Atlants-
hafsdeildarinnar þrátt fyrir að
vera aðeins búnir að vinna átta af
tuttugu leikjum sínum til þessa.
Þetta var 79. þrennan sem
Jason Kidd nær á ferlinum en
hann skoraði 12 stig, átti 13 stoð-
sendingar og hirti 10 fráköst.
Vince Carter átti einnig stór-
leik en hann setti niður níu þriggja
stiga körfur í leiknum og setti nýtt
félagsmet hjá New Jersey Nets.
Carter var stigahæstur í liði
Nets með 37 stig en hjá Memphis
Grizzlies var varamaðurinn
Chucky Atkins stigahæstur með
26 stig. Grizzlies skoraði eingöngu
tíu stig í fyrsta leikhluta en það er
lægsta skor liðs í einum leikhluta
á þessari leiktíð.
Meistarar Miami Heat unnu
Toronto Raptors, 99-77, þar sem
Dwyane Wade var stigahæstur
með 37 stig fyrir Heat. Wade hefur
verið með tannpínu síðustu daga
en lék í fyrrinótt þrátt fyrir að
vera sárkvalinn.
„Ég finn mjög mikið til núna.
Það er engin meðferð við þessu,
ég verð bara að sofa þetta úr mér,“
sagði Wade eftir leikinn.
Phoenix Suns vann sinn ellefta
leik í röð þegar liðið lagði Orlando
Magic, 103-89, á útivelli.
Amare Stoudemire skoraði 30
stig fyrir Suns og Steve Nash gaf
15 stoðsendingar í leiknum auk
þess að skora 18 stig. -dsd
Jason Kidd í þriðja sæti yfir þá leikmenn sem hafa náð flestum þrennum á ferli sínum í NBA-deildinni:
Carter setti niður níu þriggja stiga körfur
JasonkiddNáði sinni 79.
þrennu í New Jersey og
Memphis í fyrrinótt.
NoRDIC PHotoS/Getty
fótboltI Svo virðist sem AC Milan
sé búið að fá nóg af þeim sögu-
sögnum að Úkraínumaðurinn
Andryi Shevchenko sé á leið aftur
til félagsins. Nú hefur Leandro
Cantamessa, lögfræðingur AC
Milan, sagt að fjölmiðlar geri í
því að dreifa lygum.
„Það hafa engin samskipti átt
sér stað milli Milan og Chelsea
um hugsanleg viðskipti með
Shevchenko. Það eru þrjár
hugsanlegar ástæður fyrir
þessum orðrómi. Annaðhvort er
Shevchenko að ljúga, hann skiptir
stanslaust um skoðun eða þá að
fjölmiðlarnir eru að ljúga,“ sagði
Cantamessa um málið.
-dsd
Andryi Shevchenko-málið:
AC Milan
búið að fá nóg
sHEvcHEnkoHefur margoft verið orð-
aður við endurkomu á San Siro í vetur.
NoRDIC PHotoS/AFP
fótboltI Sir Alex Ferguson
knattspyrnustjóri Manchester
United hefur látið hafa eftir sér
að gagnrýni hvetji hann til
frekari dáða. Þetta segir hann í
nýlega útkominni bók sem ber
heitið Manchester United Opus.
Þar ræðir hann einnig um hve
stoltur hann sé af árangri sínum
hjá enska liðinu.
„Ég er mjög stoltur af mínum
tíma hér. Þetta hefur verið
frábær tími. Sir Bobby Charlton
hefur stutt vel við bakið á mér frá
því ég kom til félagsins og hann
veit að ég kann að meta það.
Mér liður mun betur núna en
fyrir tveimur árum þegar við
vorum gagnrýndir mjög mikið.
Það skiptir ekki máli hvort þú átt
það skilið eða ekki, engum líkar
vel við gagnrýni og hún hvetur
þig áfram. Eins leiðin til að halda
haus er að vinna titla. Það þarf að
vinna titla eins og Úrvalsdeildina,
Meistaradeildina og bikarkeppn-
ina,“ sagði Ferguson. -dsd
Sir Alex Ferguson:
Gagnrýni hvet-
ur hann áfram
siralExSegist þrífast á gagnrýni.
NoRDIC PHotoS/Getty
fótboltI Hrafnkell Helgason, leik-
maður Fylkis, hefur átt í langvinn-
um meiðslum sem ógna nú ferli
hans sem aldrei fyrr. Í síðasta
mánuði gekkst hann undir aðgerð
vegna krossbandaslita á vinstra
hné í annað skiptið á tæpum þrem-
ur árum. Meiðslin þýða að hann
verður frá í 8-10 mánuði og missir
því í besta falli af fyrri hluta næsta
tímabils.
„Það þurfti að laga krossbanda-
festingarnar upp á nýtt þar sem
þær höfðu allar slitnað aftur,“
sagði Hrafnkell. Nokkru fyrr fór
hann í speglun á hnénu og þá hékk
ein festingin saman en var slitin
þegar að aðgerðinni kom. Hrafn-
kell segir að aðgerðin hafi heppn-
ast vel og útlitið gott enn sem
komið er. En eftir að hafa verið á
hliðarlínunni stærsta hluta síðustu
þriggja tímabila er hann orðinn
langþreyttur á ástandinu og segist
ætla að gefa fótboltanum eitt tæki-
færi enn.
Hættiefbatinnverðurlélegur
„Ef batinn verður ekki eins og
hann á að vera ætla ég að hætta.
Ég get ekki staðið í þessu í mörg
ár í viðbót,“ segir Hrafnkell sem
er 28 ára gamall. Hann segir að
meira komi til við þessa ákvörðun
en bara fótboltinn en hann ætlar
ekki að hætta á frekari sköddun á
hnénu, upp á framtíðina að gera.
Hann vilji geta beitt sér að eðlileg-
um mætti þótt hann geti ekki spil-
að knattspyrnu í efstu deild leng-
ur.
Þessar vikurnar og mánuðina
er hann í endurhæfingu hjá sjúkra-
þjálfara sem gengur vel. Fyrri
aðgerð hans gekk ekki eins vel og
sú síðari og er það stór hluti af því
að batinn hefur gengið jafn illa og
raun ber vitni. Til að mynda voru
plastfestingar græddar í hnéð í
fyrra skiptið sem áttu að eyðast
eftir því sem á leið og meiðslin
greru.
„Plastfestingarnar voru enn til
staðar og á dreif hér og þar í hnénu.
Það var líka mikill munur á aðgerð-
inni sem slíkri og eftirmálum henn-
ar. Í fyrra skiptið var ég svæfður í
sjö tíma en bara tvo tíma nú. Skurð-
urinn var helmingi minni en áður
og eftir aðgerðina í fyrra skiptið
var ég á hækjum í sjö daga og tók
morfín í fjóra daga. Nú var ég á
hækjum í tvo daga og þurfti ekki
að taka eina parkódín-töflu.“
Missirafbestuárunum
Hann segir að þessi langa meiðsla-
saga hafi verið vitanlega mikil
vonbrigði fyrir sig. „Auðvitað
hefur þetta verið ofboðslega
svekkjandi. Ég lék í sex ár og var
laus við meiðsli í stórum dráttum
en svo virðist þetta vera sagan
endalausa eftir fyrstu alvarlegu
meiðslin. Þetta væri ekki jafn
svekkjandi ef þetta hefði gerst
eftir þrítugsaldurinn. En mér
finnst að ég hafi misst af mínum
bestu árum sem knattspyrnumað-
ur. Vissulega á 28 ára leikmaður
nokkur góð ár eftir en þetta hefur
verið afar erfitt engu að síður.“
Hrafnkell er uppalinn Árbæing-
ur og hefur leikið með Fylki alla
sína tíð. Foreldrar hans eru vel
þekktir stuðningsmenn Fylkis og
mæta á flesta leiki liðsins. „Þetta
er mikil Fylkisfjölskylda og verð
ég bara að fara á leiki með þeim ef
ég get ekki spilað sjálfur,“ segir
hann í léttum dúr.
Hrafnkell kom inn á sem vara-
maður í einum leik í sumar en
þurfti að fara aftur af velli nokkr-
um mínútum síðar. Hann hefur
alls komið við sögu í 21 leik síð-
ustu þrjú árin og sjaldan eða aldrei
leikið heilan leik á þessum tíma.
Alls á hann að baki 72 leiki með
meistaraflokki Fylkis í efstu deild
og hefur hann skorað í þeim tíu
mörk. Hann á einnig einn U-21
landsleik að baki.
eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
HraFnkEllHElgasonKlæðist vonandi Fylkisbúningnum á ný næsta sumar.
FRéttABLAðIð/eIRíKuR
Hrafnkell verður frá í 8-10 mánuði
Hrafnkell Helgason segir að nái hann sér ekki af meiðslum sínum í sumar ætlar hann að leggja skóna á
hilluna. Hann fór í aðgerð í nóvember og þegar er ljóst að hann missir af fyrri helmingi næsta tímabils.